Morgunblaðið - 02.06.2004, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 02.06.2004, Blaðsíða 36
MINNINGAR 36 MIÐVIKUDAGUR 2. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Gunnar Konráðs-son fæddist á Ak- ureyri 26. júní 1920. Hann lést á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri 26. maí síð- astliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Svava Jósteinsdóttir húsmóðir, f. 18. maí 1895, d. 14. apríl 1986 og Konráð Jóhanns- son gullsmiður, f. 5. maí 1895, d. 4 apríl 1981. Börn þeirra hjóna auk Gunnars eru: Jóhann Ingólfur, f. 16. nóvember 1917, d. 27. desem- ber 1982, Jósteinn, f. 19. nóvember 1923, d. 21 apríl 1994, Hjördís Ingi- björg, f. 19. mars 1928, Svavar, f. 28. desember 1930 og Haukur, f. 28. júlí 1933. Gunnar kvæntist 15. maí 1943 Stellu Stefánsdóttur sjúkraliða, f. 8. október1923, og eignuðust þau 14 börn, þau eru: 1) Hjördís Ingunn Sörensen, f. 10. júní 1940, gift Helga Sörensen, f. 9. október 1937 og eiga þau eina dóttur. 2) Svava, f. 3. nóvember 1942, gift Bjarna Fannberg Jónassyni, f. 21. septem- ber 1941 og eiga þau fimm börn. 3) júlí 1954, d. 4. október 1981 og eign- uðust þau tvö börn. Sambýlismaður Ingibjargar er Peter Jones, f. 26. janúar 1953 og eiga þau einn son. 12) Bessi, f. 19. apríl 1960, kvæntur Indiönu Ásmundsdóttur, f. 23. maí 1960 og eiga þau þrjú börn. 13) Sig- rún, f. 1. nóvember 1961, gift Gunn- ari Jónssyni, f. 26. apríl 1961 og eiga þau þrjár dætur. 14) Hanna Dröfn, f. 5. apríl 1964, gift Ólafi Þorsteinssyni, f. 5. nóvember 1960 og eiga þau fjögur börn. Afkomendur Stellu og Gunnars eru 130 talsins. Gunnar, eða Nunni Konn eins og hann var jafnan kallaður, gekk í barnaskóla Akureyrar og lauk þar skyldunámi. Hann starfaði lengst af sem verkamaður hjá Eimskipa- félagi Íslands á Akureyri en einnig starfaði hann hjá félaginu í nokkur ár í Reykjavík. Gunnar var mikill áhugamaður um íþróttir og tónlist. Hann lék knattspyrnu með íþrótta- félaginu Þór til margra ára, stund- aði hestamennsku, þótti mjög lið- tækur snókerspilari og þá söng hann með Karlakór Akureyrar. Gunnar stundaði golf í 50 ár, var um árabil í hópi fremstu golfleikara landsins og lék margoft í meistara- flokki á landsmótinu í golfi. Einnig var hann mikill áhugamaður um ís- lenskt mál, landafræði og náttúru landsins. Útför Gunnars verður gerð frá Akureyrarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Guðrún Jóna, f. 5. des- ember 1943, gift Finni Marinóssyni, f. 21. mars 1943 og eignuð- ust þau sex börn. 4) Stefanía Erla, f. 17. apríl 1945, gift Krist- leifi Kolbeinssyni, f. 3. júní 1946 og eiga þau fimm börn. 5) Elín Stella, f. 5. september 1947, var gift Ólafi Arnars, f. 21. septem- ber 1946, d. 27. júní 1998, og eiga þau fjög- ur börn. 6) Gylfi Þor- geir, f. 23. nóvember 1948, kvæntur Sigrúnu Þorláks- dóttur, f. 1. maí 1957 og eignuðust þau fimm börn. Fyrir átti Gylfi tvær dætur. 7) Konráð Stefán, f. 14. sept- ember 1950, d. 8. september 1955. 8) Ragna, f. 18 febrúar 1952, gift Gunnari Hannessyni, f. 13. október 1951 og eiga þau fjögur börn. 9) Fríður, f. 16. janúar 1954, gift Bjarna Bjarnasyni, f. 10. janúar 1949 og eiga þau fjögur börn. 10) Konráð Stefán, f. 15. janúar 1956, kvæntur Guðfinnu Sölvadóttur, f. 7. júlí 1961 og eiga þau þrjú börn. 11) Ingibjörg Margrét, f. 7. október 1957, var gift Þorleifi Ólasyni, f. 18. annað lýsti hans innri manni. Nunni gat verið orðhvatur og lá ekki á skoð- unum sínum en undir niðri sló hreint og milt hjarta sem helst ekkert aumt vildi sjá. Nunni var aldrei ríkur mað- ur af veraldlegum eignum en senni- lega einn ríkasti maður landsins af andlegum eignum, Nunni og Stella áttu nefnilega fjórtán börn, þrettán eru á lífi en einn son misstu þau ung- an, kannski mætast þeir feðgar nú, það verða fagnaðarfundir. Afkom- endur eru nú 130 og það er stórkost- legt framlag til íslenskrar þjóðar. Það var þröngt í búi hjá Stellu og Nunna en með sameiginlegri elju og natni skilar lífskapphlaup þeirra þessu. Nunni bjó nær allan sinn aldur á Akureyri, aðeins í stuttan tíma eftir stríð í Reykjavík, lengst af eða síðan 1948 í Lækjargötu 22 í Búðargili á Akureyri. Nunni sagði Eyjafjörð fallegasta stað á jarðríki, oft vorum við búnir að fara Eyjafjarðarhringinn og hann sá alltaf eitthvað nýtt sjónarhorn á kennileitum. Eina smá sögu í lokin, Nunni minn. Daginn sem þú lést vorum við vinir þínir á Súlunni að reyna að veiða síld norður í dumbshafi. Það gekk afar illa, búnir að reyna mörg köst um daginn en fengu enga síld. Þú varst búinn að vera mér hugleikinn allan daginn. Eftir kvöldmat var hringt og okkur sagt frá láti þínu og hugsaði ég þá að við værum búnir að fá enn einn verndarengilinn, viti menn í næsta kasti fengum við meiri afla en við gát- um tekið og gátum látið aðra njóta góðs af. Þetta hefur örugglega glatt þig, Nunni minn. Stella mín, þú átt marga að og verður pössuð vel á ævi- kvöldi, það vissi Nunni. Blessuð sé minning Nunna Konn, þinn tengdasonur Bjarni Bjarnason. Tengdafaðir minn og vinur Nunni Konn er allur. Gunnar Konráðsson var um margt merkilegur maður, hann var mesti Íslendingur sem ég hef kynnst. Virðing hans fyrir nátt- úru landsins síns var viðbrugðið svo ekki sé talað um málið, tunguna sem hann nánast sjálfmenntaður maður- inn hafði svo mjög góð tök á og leið- rétti aðra ef honum fannst illa með farið. Íslenski fáninn var honum einnig hugleikinn og líkaði honum illa ef ekki var vel um hann gengið. Ekki hef ég kynnst neinum sem þekkti landið sitt betur en Nunni Konn, hann kunni skil á nánast hverri hæð og þúfu og það var gaman að ferðast með Nunna. Margan bíltúrinn vorum við búnir að fara, Nunni vildi alltaf sitja hægra megin í aftursæti og er það eina til- fellið sem hann tók hægri fram yfir vinstri því Nunni var alla tíð einlæg- ur sósíalisti. Tónlist var Nunna hugleikin og hlustaði hann mikið á síðustu árum og voru gömlu meistararnir honum hugleiknir og kunni hann góð skil á þeim flestum. Margan diskinn var hann búinn að gefa manni eftir að hafa hlustað á hann því hann vildi ekkert eiga nema þá músík sem hon- um líkaði. Golfíþróttina stundaði Nunni lengi meðan heilsan leyfði og var hann mjög svo liðtækur í þeirri kúnst, því allt sem þurfti natni og nærgætni við lá vel fyrir honum. Um- gengi hans við áhöld við golfleik og Nú er hann afi Nunni dáinn. Farinn úr Gilinu, eitthvað annað þar sem honum líður vel. Ekki að honum hafi ekki liðið vel hérna megin því hér átti hann gott líf, var heilsuhraustur og lánsamur, eins og stór afkvæmahópur ber glöggt vitni. Já, stór afkvæma- hópur, hann gladdi afa minn mikið. Hann var barnakarl enda hændust held ég öll börn að honum. Ekki fyrir það að hann væri knúsandi og kyss- andi í tíma og ótíma heldur bara fyrir það að vera hann afi Nunni. Afi var kannski ekki fullkominn maður, en nánast fullkominn afi. Hverjum þykir ekki vænt um afa sem á nýjustu teg- und af sjónvarpi á hverjum tíma, veit allt um enska boltann og bestu golf- arana? Og hverjum þykir ekki vænt um afa sem tekur á móti manni með kossi í hvert skipti? En bara einum, enda nóg, því með honum sagði afi hversu vænt honum þótti um okkur. Og lét létt handaband fylgja með. Lánsemi afa var alls ekki bundin við afkvæmahópinn, miklu fremur við lífsförunautinn, hana ömmu Stellu, sem hann átti erfitt með að vera án, þrátt fyrir allt. Yndislegri afa og ömmu er ekki hægt að hugsa sér. Samstillt til flestra verka, vakin og sofin yfir stórum hópi fólks til að tryggja að allir vissu hversu vænt þeim þótti um alla. Mér hefur alltaf þótt það merkilegt hversu glaður afi varð við fæðingu hvers barns, bara eins og þetta væri fyrsta barnið í fjöl- skyldunni en ekki það hundraðasta eða rúmlega það. Alltaf sama gleðin. Og allir áttu sinn stað í hjarta afa og allir jafn mikinn. Þannig var afi, full- kominn afi Nunni. Nú kveðjum við hann afa okkar. Kveðjum hann með stolti og virðingu. Stolti yfir því að fá að eiga hann fyrir afa og virðingu fyrir öllu því sem hann hefur gefið okkur og öllum öðrum. Elsku amma Stella, öll okkar ást og allur okkar kærleikur er hjá þér nú eins og alltaf. Við biðjum Guð að vera með afa Nunna og ömmu Stellu nú þegar leiðir þeirra skilur. Kolbrún, Arndís, Gunnur Stella, Þórður og Ágústa Kristleifsbörn. Hann afi Nunni var ekkert venju- legur afi. Þegar hann hringdi í okkur og bað okkur að keyra sig í búðina gátum við alveg eins átt von á því að skreppa til Dalvíkur eða inn í fjörð í leiðinni. Afa þótti afskaplega gaman að sitja í bíl og virða fyrir sér landið og umhverfið. Á hverjum rúnti lærð- um við eitthvað nýtt, hvort sem það var um sveitirnar eða um íslenska tungu, því að afa var mikið í mun að tala fallegt íslenskt mál. Sjónvarps- tæki, hljómflutningsgræjur og myndavélar voru mikið áhugamál afa og jafnvel þótt hann væri kominn yfir áttrætt fylgdist hann mjög vel með nýjungum og átti það meira að segja til að skipta um sjónvarp nokkrum sinnum í mánuði. Afi hafði mikinn áhuga á íþróttum og þá sérstaklega fótbolta og golfi. Hann var einn harð- asti stuðningsmaður Manchester United á Íslandi og sat límdur við fína sjónvarpið sitt þegar þeir áttu leik og að sjálfsögðu töpuðu þeir aldrei á sanngjarnan hátt. Afi var líka eld- rauður Þórsari og studdi sitt lið í ára- tugi. Við eigum endalausar minningar um afa Nunna og erum þakklát fyrir að hafa átt svona stórkostlegan afa. Elsku amma, nú er lífsförunautur þinn farinn en eftir standa fjölmargir afkomendur sem munu hugsa vel um þig. Hvíl í friði, elsku afi, Stefán, Hafdís, Bjarni og Hjörvar. Mikill höfðingi, afi Nunni, hefur kvatt. Afi átti mörg áhugamál, svo sem íþróttir, tónlist, ferðalög, ís- lenskt mál og stjórnmál. Þar sem afi Nunni fór var golfkylfan oftast ná- lægt og fengu barnabörnin oft það hlutverk að elta golfkúlur upp á Höfða. Hann tók aldrei bílpróf en hafði þó mikinn áhuga á bílum og fátt vissi hann betra en að fara í bílferðir. Stundum urðu slíkar ferðir sem ekki áttu að verða nema rétt út fyrir bæj- armörkin að dagsferðum og var þá víða komið við enda var afi hafsjór upplýsinga um landið og þekkti til margra bæja. Þeir voru ekki margir leikirnir með Manchester United sem hann missti af hin síðari ár og þá var hann duglegur að fara á leiki hjá Þórsur- um og heyrðist þá jafnan manna hæst í honum, enda raddstyrkur hans vel þekktur. Afi var afar hrif- næmur, lét heyra í sér ef honum mis- líkaði eitthvað en hann var einnig óspar á að hæla fólki og gleðjast með þeim sem gerðu vel. „Bravó, bravó“ heyrðist gjarnan frá honum þegar honum líkaði eitthvað sérstaklega vel. Klassísk tónlist var hans líf og yndi og hann var duglegur að boða fagn- aðarerindið, gefa barnabörnum sín- um plötur og mæla með ákveðnum söngvurum. Það var ósjaldan að hann var að hlusta á nýja diska þegar maður kom inn í Gil og oft voru hljómflutningstækin líka ný því afi var afar nýjungagjarn og vildi eiga það nýjasta og besta. Afi var einstaklega barngóður og gladdist alltaf jafn innilega þegar bættist í hópinn hans. Hann fylgdist vel með sínum stóra afkomendahópi og var alltaf með á hreinu hvað hver og einn hafði fyrir stafni, svo sem við vinnu eða nám. Afi var góður í því sem hann tók sér fyrir hendur og var vel lesinn og fróður. Íslenskt mál var honum hugleikið, orð á borð við „hæ“, „bæ“, ,,ógeðslega“, ,,ókei“ og ,,æðislega“ voru eitur í hans beinum og varla finnst sá afkomandi hans sem ekki upplifði að vera leiðréttur fyrir frjálslega meðferð á tungumál- inu. Nú kveðjum við afa í bili, hann hef- ur lokið sínum 18 holum hér á jörðu en er eflaust að slá upphafshögg á nýjum slóðum. Vertu sæll elsku afi, minning þín lifir. Þóra, Kári og Helgi. Um elsku afa og langafa eigum við öll góðar minningar og skemmtilegar sögur að segja frá. Afi var ótrúlega skemmtilegur persónuleiki, harður nagli með ákveðnar skoðanir á mönn- um og málefnum en þó með blítt hjarta sem ekkert aumt mátti sjá. Trúr var afi skoðunum sínum sem kom glöggt fram varðandi stjórnmál og stuðning hans við félög sín í bolt- anum, og skipti þá engu hvort um var að ræða Þór eða Manchester United. Einnig hafði afi brennandi áhuga á íslenskri tungu og var óþreytandi við að leiðrétta það sem að hans mati þótti rangt mál. Eina sögu getum við sagt sem lýsir því vel hversu mikið hjartans mál íslenskan var honum. Einu sinni sem oftar fórum við á rúntinn í yndislegu veðri og fannst okkur við hæfi að kaupa ís. Mikið var úrvalið í búðinni og báðum við því af- greiðslustúlkuna að aðstoða okkur við valið. Hún svaraði að bragði: ,,þessi er ógeðslega góður“. Afi fuss- aði og sveiaði og fljótur til svara sagði hann ,,við skulum koma, við viljum ekkert ógeðslegt“. Elsku afi og langafi, við kveðjum þig hinsta sinni og biðjum Guð almáttugan að varð- veita ömmu og okkur öll. Hvíl þú í friði Sigrún, Hjalti, Heba, Hólmar, Þorgeir Rúnar og fjölskyldur. GUNNAR KONRÁÐSSON SJÁ SÍÐU 38 Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, RAGNAR ÞORGRÍMUR KRISTJÁNSSON, Höfðagötu 11, Hólmavík, andaðist sunnudaginn 30. maí. Matthildur Sveinsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. Elskulegur bróðir og frændi, STEFÁN GUÐNI ÁSMUNDSSON skipstjóri frá Skuld, Neskaupstað, síðast til heimilis í Fannborg 1, Kópavogi, andaðist á Kumbaravogi miðvikudaginn 19. maí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Björg V. Ásmundsdóttir og aðstandendur. Elskulegi faðir okkar, tengdafaðir og afi, HJÖRTUR GUÐMUNDSSON, Lindargötu 61, Reykjavík, sem lést á Landspítala Fossvogi miðviku- daginn 26. maí, verður jarðsunginn fá Grafar- vogskirkju þriðjudaginn 8. júní kl. 13.30. Ingimundur Hjartarson, Anna María Hjartardóttir, Júlíus R. Júlíusson, Gunnlaugur B. Hjartarson, Málfríður S. Gísladóttir, Alda Hjartardóttir, Sveinn Muller og barnabörn. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GRÉTAR SÍMONARSON fyrrv. mjólkurbússtjóri, Seftjörn 6, Selfossi, sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Ljós- heimum, Selfossi, fimmtudaginn 27. maí, verður jarðsunginn frá Selfossskirkju föstu- daginn 4. júní kl. 15.00. Guðbjörg Sigurðardóttir, Þóra Grétarsdóttir, Örn Grétarsson, Sesselja Sigurðardóttir, Sigurbjörg Grétarsdóttir, Sigurður Grétarsson, Sólveig Sjöfn Ragnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.