Morgunblaðið - 19.06.2004, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 19.06.2004, Blaðsíða 35
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2004 35 G jörningaklúbburinn er, ásamt Finnboga Péturssyni, fyrstu ís- lensku listamennirnir sem sýna verk sín hjá íslensku galleríi á Art Basel í Sviss, mikilvægustu listastefnu í heimi. Klúbburinn sýnir á þeim hluta stefnunnar sem helgaður er ungum og upprennandi listamönnum og voru þær valdar úr á þriðja hundrað umsækjendum, en það er gallerí i8 sem stendur að sýningu þeirra. Alls 17 listamenn eru kynntir á Art Statements. Gjörningaklúbburinn átti möguleika á því að vinna 25.000 franka verðlaun, svokölluð Baloise-verðlaun, 1,5 milljónir íslenskra króna, en svo fór þó að verðlaunin fóru til breska listamannsins Tino Sehgal og Aleks- andra Mir frá Póllandi. Verk Sehgal er mjög sérstakt. Inni í básnum hans eru alltaf öllum stundum staddir ýmsir galleristar að tala á leikrænan hátt um hvað nútímamyndlist sé frábær, og er verkið fullt af kaldhæðni og á að vera einhvers konar ádeila á listheiminn. Bás- inn er ómerktur, það er ekkert inni í honum nema galleristarnir, og listamaðurinn vill eng- ar ljósmyndir teknar af verkinu til birtingar. Verk Aleksandra Mir er risastór regnhlíf sem hún gengur með um göturnar og skýlir fólki fyrir rigningunni. Þær Eirún, Jóní og Sigrún, liðsmenn Gjörn- ingaklúbbsins, og Finnbogi, eru reyndar ekki einu íslensku listamennirnir sem kynntir eru í Basel. Verk þeirra bræðra Sigurður og Krist- jáns Guðmundssona eru á bás norska gallerís- ins Gallery Riis og Ólafur Elíasson er á mála hjá a.m.k. þremur galleríum á listastefnunni. Þá sýnir Katrín Sigurðardóttir verk sín á hlið- arsýningu Art Basel, Liste, hjá Gallerí Maze, en þar kynna yngri og minna þekkt gallerí sína starfsemi. Liðsmenn Gjörningaklúbbsins segja að það sé áhugavert að sjá berum augum við- skiptalegu hliðina á myndlistarheiminum sem sést hvergi betur en einmitt á listastefnunni í Basel. „Fólk labbar um og prúttar um listina, og karlar í skærgrænum buxum með úttroðin veski punkta hjá sér verð eins og þeir væru að labba um í risastórum stórmarkaði, sem þetta auðvitað er,“ segja liðsmenn Gjörningaklúbbs- ins. Það er mikill bissness í loftinu. Dorothée Kirch, fulltrúi i8, sem sér um að kynna verk Gjörningaklúbbsins og Finnboga Péturssonar á Art Basel, segir að Gjörn- ingaklúbburinn hafi fengið góðar viðtökur. Nú þegar séu nokkur verkanna seld og viðræður standi yfir um kaup á öðrum verkum lista- mannanna. Þá sé fjöldi manns áhugasamur og vilji frekari upplýsingar. Liðsmenn Gjörningaklúbbsins segja að það sé ómetanlegt að gallerí ákveði að kynna þeirra list sérstaklega í heila viku á jafn mik- ilvægum stað og Art Basel er. Fjöldi fólks sem aldrei hefur séð list þeirra fær að kynn- ast henni og út úr því geta komið margvísleg ný tækifæri. Almennt segja þær að á listastefnu eins og Art Basel vilji myndlistin sjálf oft gleymast í öllum látunum og máttur auðvaldsins tekur yfir, eins og þær orða það. „En svo er hér fullt af ástríðufullum söfnurum sem koma hingað af einskærri ást á myndlist. Maður finnur líka sterkt fyrir þessari taumlausu virðingu sem margir bera fyrir myndlistinni og maður er auðvitað mjög ánægður að finna að fólk kunni að meta svo mikils það sem maður er að gera.“ Úlfurinn vaknar til lífsins Gjörningaklúbburinn framdi gjörning á stéttinni fyrir framan aðal sýningarhöllina, tvo daga í röð. Nokkuð af áhorfendum dreif að til að virða hann fyrir sér og tóku síðan virkan þátt í gjörningnum. Gjörningurinn hófst á því að liðsmenn Gjörningaklúbbsins keyrðu sof- andi mann inn í hjólastól, Úlf Grönvold mynd- listarmann, sem var sérstaklega ferjaður út til Basel til að taka þátt í gjörningnum. Þær byrjuðu að raka hann og klæða upp eins og sirkusstjóra, en smám saman missa þær stjórnina á aðstæðum, maðurinn rís upp úr hjólastólnum, grípur svipu og fer að stjórna þeim eins og sirkusdýrum. Hann lætur þær gera alls kyns kúnstir. Fyrir þetta heimtar hann lófaklapp áhorfenda og smápeninga í pípuhatt sinn. Þær Eirún, Jóní og Sigrún segja að kannski passi svona gjörningur ekki inn í það andrúmsloft sem ríkir í Basel, sem gerir framkvæmdina því skemmtilegri. „Fólk er líklega ekki að leita að gjörningi til að kaupa,“ segja þær og brosa kankvíslega. Þær segja þó að á Basel sé einnig tækifæri til að ná athygli annars konar fólks úr myndlistarheim- inum, sýningarstjóra og safnstjóra til dæmis. Gjörningaklúbburinn hefur sýnt víða á síð- ustu misserum og þekkja marga úr listheim- inum. Hafa þær hitt marga kunningja sína á stefnunni? „Já, við þekkjum marga hér og tveir í Art Statements eru góðir vinir okkar. Þetta er lít- ill heimur, þetta er eins og árshátíð myndlist- armanna og aðstandenda þeirra í heiminum. En svo hittir maður hér fullt af fólki sem hef- ur aldrei séð verkin okkar og það er mjög skemmtilegt.“ Varðandi þátttöku Úlfs í gjörningi þeirra í Basel og það hvort hann sé orðinn fjórði með- limur klúbbsins, segja þær svo ekki vera, hann sé einungis aukaleikari sem hafi verið kallaður til en hafi lagt sitt af mörkum í hug- myndavinnunni. „Við fáum oft fólk til að vinna með okkur. Til dæmis vinnur Ólafur Björn Ólafsson hljóðmyndina sem við notum í inn- setningunni á sýningunni og Páll Stefánsson ljósmyndari tók myndirnar af okkur. Svo má ekki gleyma gallerí i8 sem við erum auðvitað í nánu og stöðugu samstarfi við.“ Milli lífs og dauða Verk Gjörningaklúbbsins á Art Statements samanstendur af ljósmyndum sem teknar eru á Krísuvíkursvæðinu á Íslandi, og verki á gólfi, sem samanstendur af hrafni búnum til úr nælonsokkum, hrafnsungum og hrafns- eggjum í hreiðri búnu til úr lakkrís. Ljósmyndirnar og höggmyndirnar eru allar nátengdar, en seljast þó í sitthvoru lagi. Í stórum dráttum eiga myndirnar rætur sínar í kvikmyndahandriti Gjörningaklúbbsins sem fjallaði um þrjár manneskjur á ferð úti í auðninni. Þá kemur til sögunnar vondur mað- ur, leikinn af Úlfi, sem keyrir yfir þær á bíl. Þar með lenda þær á milli lífs og dauða og þurfa að grípa til þess ráðs meðal annars að skera vonda manninn upp og lækna hans illa hjarta, til að þær sjálfar eigi möguleika á að snúa aftur til lífsins. Þær Eirún, Jóní og Sigrún segja að veran í Basel einkennist einnig af miklum veisluhöld- um sem ná hámarki í sérstakri veislu að kvöldi 17. júní sem haldin er til heiðurs ís- lensku þátttakendunum, en að henni standa meðal annars Francesca Von Habsburg stjórnandi TBA 21, Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaframleiðandi, Sam Keller, að- alstjórnandi Art Basel, Simon De Pury upp- boðshaldari og gallerí i8. Vandað er til veisl- unnar og til dæmis kemur hljómsveitin Trabant gagngert til Basel til að leika tónlist sína, en Trabant vakti athygli Francescu Von Habsburg þegar hljómsveitin lék í veislu á Bessastöðum síðastliðinn vetur sem haldin var vegna opnunar sýningar Ólafs Elíassonar myndlistarmanns í Hafnarhúsinu í Reykjavík. Hatursfélag eða ástarfélag? Gjörningaklúbburinn var einn fjögurra listamanna sem valdir voru úr þátttakendum á Art Statements, sem þátt tók í sérstöku listamannaspjalli á listastefnunni. Í spjallinu kom meðal annars fram að klúbburinn hefur hannað sitt eigið merki sem einn liðsmanna, Jóní, er með flúrað á upphandlegg sinn og gekk listamaðurinn um og sýndi áhorfendum merkið, sem samanstendur af fjórum hjörtum, á listaspjallinu. Markús Þór Andrésson, sem staddur er á listastefnunni, tók að sér að flytja stuttan inngang um list klúbbsins og þar kom meðal annars fram að samstarf listamannanna hófst árið 1996 og hefur því varað í 8 ár. Reyndar varð kveikjan að samstarfi þeirra ár- ið 1995 þegar þær stúlkur sóttu ráðstefnu í Finnlandi og kynntust þar dönsku lista- mannateymi, Superflex. Þær sögðust í spjall- inu hafa heillast af kraftinum sem bjó í sam- starfi þeirra og ákveðið að vinna sjálfar saman í framtíðinni. Í inngangi Markúsar kom einnig fram að umfjöllunarefni Gjörningaklúbbsins er ást og hatur, sætleiki og ljótleiki meðal annars en ástin sem vísað er til í ensku heiti klúbbsins, „The Icelandic Love Corporation (Íslenska ástarfélagið)“ vísar ekki endilega til ástar milli manns og konu heldur almennt í ástina í stóru samhengi, ást á lífinu, eins og þær sjálfar vilja skýra það. Nafnið, The Ice- landic Love Corporation, olli reyndar spyrl- inum á listaspjallinu einhverjum heilabrotum og spurði ítrekað um tilvísanir í ástina, hvar þær væri að finna. Sagðist hann sjá meira af hefnd en ást í verkunum, og vísaði þar í verkin á sýningunni. „Þið ættuð kannski frekar að heita „íslenska hefndarfélagið“,“ sagði spyrill- inn og brosti og sagðist skynja ákveðið „Bad Girls“-viðhorf í verkunum. Þá sagðist honum finnast heimur þeirra barnalegur og sagðist greina áhrif frá sjöunda áratugnum. Gjörn- ingaklúbburinn tók ekki fyllilega undir við- horf spyrilsins og sögðust vísa í almenna hluti og nota myndlíkingar og tákn sem væru mjög hrein og bein, sem gætu kannski virkað barnaleg. „Hrafninn er ekki barnalegur, hann er klár og sjálfbjarga.“ Þá sögðu þær að ástin kæmi glögglega í ljós í hrafnaverkinu, þar væri fjölskyldan saman komin með þeirri ást sem því fylgir, og eggin væru tákn fyrir lífið. Spyrillinn vildi að síðustu fá að vita um fram- tíðarsýn listamannanna, ætla þær að vinna alltaf saman sem hópur og þá hvernig? „Einu sinni datt okkur í hug að fá 75 ára gamlar konur til að framkvæma gjörning eftir okkur til að sjá hvernig við komum til með að líta út í framtíðinni,“ sögðu þær Eirún, Sigrún og Jóní en að öðru leyti sögðu þær að ómögu- legt væri fyrir þær að spá fyrir um framtíðina. Ómetanlegt að fá slíka kynningu Gjörningaklúbburinn tekur þátt í Art Statements sem er hluti af listastefnunni Art Basel sem nú stendur yfir í Sviss. Þóroddur Bjarnason ræddi við þær Eirúnu, Jóní og Sigrúnu um hrafnana, úlfinn og menn í skær- grænum skyrtum. Morgunblaðið/Þóroddur Frá gjörningi Gjörningaklúbbsins á Art Basel. Sirkusstjórinn er vaknaður til lífsins og stjórnar meðlimum klúbbsins eins og sirkusdýrum. Stund milli stríða í Basel. Gjörningaklúbburinn: Jóní, Eirún og Sigrún. tobj@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.