Lesbók Morgunblaðsins - 22.02.2003, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 22.02.2003, Blaðsíða 4
4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 22. FEBRÚAR 2003 T ÓNLISTARUPPELDIÐ verður að skrifast á hann pabba minn. Hann spilaði á harmónikku, og því var mikil músík í kringum mig alveg frá barnsaldri. Það komu menn heim frá Reykjavík sem voru með honum í hljómsveit. Ég man eftir því að Svavar Lárusson söngvari kom einhvern tíma heim á Garðaveg- inn í Keflavík og var með nýtt lag, sem pabbi átti að læra. Ég var aðeins byrjaður að læra á nikkuna hans pabba, en hún var ennþá allt of stór fyrir mig. Ég náði lagi á hana með því að vera á hnjánum á gólfinu. Það kom í ljós að ég kunni lagið sem Svavar ætlaði að fara að kenna pabba.“ Það er Þórir Baldursson tónlistarmaður sem hefur orðið; – einu sinni sjö ára strákur með risavaxna harmónikku á hnjánum heima í Keflavík, og vildi vera með í músíkinni. Hann talar af mikilli hlýju um föður sinn, Baldur Júl- íusson, sem sjálfur var hljómsveitagæi, og spil- aði gömlu dansana með víðfrægum músíkönt- um eins og Karli Jónatanssyni, Svavari Lárussyni og fleirum. Hjá föður sínum lærði Þórir að spila. „Þú getur rétt ímyndað þér hvað pabbi varð glaður, og eftir þetta var keypt handa mér harmónikka sem passaði á minn skrokk, og hana átti ég til tíu ára aldurs. Þetta var mitt fyrsta hljóðfæri fyrir utan nokkrar munnhörp- ur. Ég var mjög fljótur að læra lög og hef alltaf nálgast músíkina þannig að hlusta fyrst og herma svo eftir. Það hljómar allt í höfðinu á mér sem ég ætla að spila; – ég heyri það sek- úndubroti áður.“ Varstu þá aldrei bundinn á klafa nótna? „Nei. Ég les hljóma og línur, en hef aldrei náð því almennilega að lesa og spila, þegar all- ar raddir eru skrifaðar út. Ekki hvort tveggja í einu. Ég les þó hvað sem er á nótum, – annars gæti ég hvorki útsett né skrifað. Ég nálgast bara tónlistina með þessum hætti, verð að heyra hana innra með mér fyrst.“ Þetta er gáfa sem margir tónlistarmenn hljóta að öfunda þig af. „Ég veit það nú ekki. Annars finnst mér það sérkennilegt að útlærðir píanistar sem búnir eru að ljúka áttunda stigi í píanóleik, skuli ekki geta spilað afmælissönginn öðru vísi en eftir nótum. Þá er eitthvað að kennslunni, það er auðvitað ekki við fólkið sjálft að sakast. Það þyrfti að vera partur af kennslunni að hlusta meira og pæla meira í teoríunni um leið. Það myndi ekki skaða. Ef þú hljómgreinir yndis- lega fallegt verk eins og Tunglskinssónötu Beethovens um leið og þú spilar, þá ertu miklu fljótari að læra verkið, og um leið skilurðu hvað Beethoven var að fara. Annars eru þetta bara einhverjar nótur í cís-moll og fullt af krossum út um allt.“ En fékkst þú tækifæri til að fara í tónlistar- skóla? „Já, ég gerði það nú. Ég fór í fyrsta píanó- tímann til Vigdísar bæjarstjórafrúar í Kefla- vík, móður Gísla Alfreðssonar. En ég var latur. Ég var farinn að spila eftir eyranu og nóturnar heilluðu ekki hug minn. Ég gat spilað miklu meira en það sem ég var að stauta af nótna- blaðinu, og hafði ekki nógu mikinn aga til að þjálfa mig í nótnalestrinum.“ Lærði á franskt horn í lúðrasveit Varstu þá að fá nógu ögrandi verkefni? „Já, það held ég, ég var bara latur, og sé eft- ir því núna. Ég sinnti þessu ekkert. Ég fór líka í tíma til annars manns sem er góður vinur í dag, Guðmundar Norðdahl, en hann stofnaði tónlistarskóla í Keflavík. Guðmundur hefur verið hvalreki á fjörum allra þeirra sem hafa fengið hann í sitt byggðarlag, því hann stofnar alltaf einhverja tónlistarstofnun – skóla, kór, eða annað. En ég fór í lúðrasveit í Tónlistar- skólanum hjá Guðmundi, svona ellefu, tólf ára, og lærði að spila á franskt horn, og þar þjálf- aðist nótnalesturinn eitthvað. Að lokum fór ég svo í kennaradeildina í Tónlistarskólanum í Reykjavík nítján ára gamall. Ég hætti í menntaskóla og að ráðum föður míns kláraði ég tveggja ára nám í kennaradeildinni. Þar með er tónlistarnám mitt upp talið. Hins vegar eru öll þessi ár, sem ég hef starfað við tón- smíðar, útsetningar, spilamennsku og upptök- ur minn skóli, og þar hef ég lært með sömu gömlu aðferðinni – að hlusta og herma eftir.“ En varstu þá ekki farinn að spila? „Jú, elskan mín, ég byrjaði minn atvinnuferil fjórtán ára í Krossinum í Keflavík.“ Hvað var Krossinn? „Krossinn var gamall herspítali; – tveir stór- ir braggar. Á framhliðinni var stór rauður kross – rauði krossinn, og húsið var aldrei kall- að annað en Krossinn eftir að Njarðvíkur- hreppur yfirtók það og notaði sem samkomu- hús. Þetta var aðalstaðurinn á þessum árum. Það var mikil uppsveifla í Keflavík í kringum sjávarútveginn, og það var spilað um hverja einustu helgi bæði í Krossinum og uppi á Velli. Reyndar var ég farinn að spila með pabba fyrir þetta; – alveg frá því ég var tíu ára. Ef einhver píanóleikarinn úr Reykjavík komst ekki, þá hljóp ég í skarðið. Það er gaman að segja frá því að píanóleikari í einni af þessum hljóm- sveitum var Jón Óskar skáld. Ég gleymi því aldrei þegar hann forfallaðist einhverra hluta vegna á miðju balli þannig að ég hljóp í skarðið. En þegar átti að fara að borga launin, vildi pabbi að ég fengi bara helminginn, en það tók skáldið ekki í mál; – ég fékk öll launin.“ Tólf ára ökukappi skilaði pabba heilum heim Pabbi þinn hefur þá verið á kafi í hljóm- sveitabransanum. „Hann var ekki með hljómsveitina, en hann var í henni. Hans hlutverk var líka að sækja hljómsveitarfélaga sína til Reykjavíkur, og keyra þá til baka eftir dansleik. Þá var hann nú oft orðinn þreyttur á leiðinni til baka, svo hann tók mig oft með í Reykjavíkurtúrinn til að keyra til baka. Þannig var ég farinn að æfa aksturinn tólf ára gamall á voða fínum Fordara með átta sílindra vél, – mikið sport fyrir tólf ára strák.“ Var enginn að fetta fingur út í þetta? „Nei, nei. Það var engin umferð á nóttunni, og engar athugasemdir gerðar við þetta. Pabbi var líka ökukennari, þannig að það var kannski látið kyrrt liggja þess vegna.“ Hvers konar músík voruð þið að spila? „Þetta voru gömlu dansarnir. Það góða við þá er hvað formið er hefðbundið. Þeir eru í þrí- skiptu formi; þrír kaflar, og fara ekkert út um víðan völl. Það þjálfaði eyra mitt óskaplega mikið að elta hljómaganginn. Þetta voru polk- ar og rælar, valsar og tangóar. Þetta var þegar ég var yngri. Þegar ég fór svo að spila í Kross- inum vorum við að spila tjútt, standarda og Presley-lög, Bill Haley og því um líkt.“ Voru Keflavíkurpoppararnir frægu farnir að láta til sín taka þarna? „Ja, það var ekkert löngu seinna. Árið eftir að ég byrjaði að spila í Krossinum voru Hljóm- ar að byrja. Það var um 1959, og ég var þá fimmtán ára en Rúnar [Júlíusson] og Gunni [Gunnar Þórðarson] fjórtán.“ Þótti þér þá ekki nýja tónlistin spennandi? „Hljómar voru á þessum tíma að spila Shad- ows-lögin, og Bítlarnir komu ekki fyrr en 1961–2. Ég kveikti ekkert strax á þeim, fannst þeir frekar falskir og það fór í taugarnar á mér. Ég sá ekki lögin í gegnum sönginn, því hann truflaði mig. 1962 var ég svo að byrja í Sav- anna-tríóinu, og það var ekki fyrr en seinna að ég sættist við Bítlana. Annað var ekki hægt.“ Þú varst þá kornungur, þegar þú varst bú- inn að fara í gegnum ótal stíltegundir í tónlist- inni: gömlu dansana, gamla rokkið, bítlamúsík og svo þjóðlagatónlistina með Savanna-tríóinu. „Já, já. Og svo hlustaði ég mikið á plöturnar hans pabba. Hann átti Errol Garner, Benny Goodman og eitt og annað sem ég lá yfir.“ Það hefur einmitt verið sagt að þú hafir svo- lítið af Errol Garner í þér þegar þú ert að spila. „Ja, það er ekkert ólíklegt, og mér finnst það hreint ekki leiðinlegt.“ „ÉG FANN AÐ ÉG FUNDIÐ SVONA Þórir Baldursson hefur ekki bara upplifað tímana tvenna í dægurtónlistinni. Hann hefur upplifað – og spilað – allt – alveg frá gömlu dönsunum til þess sem er að gerast í dag. BERGÞÓRA JÓNSDÓTTIR ræddi við manninn sem samdi Leyndarmál og Brúðarskóna, manninn sem margir þekkja úr Savanna-tríói, aðrir af alþjóðlegum afrekum í diskótónlistinni og nú æ fleiri sem konung Hammondsins. „Ég er mjög tilfinningaríkur, ekki síst í músíkinni, þegar ég er að spila. Ég verð að gæta mín, en stundum get ég það bara ekki – fer bara að gráta og ræð ekkert við það.“

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.