Lesbók Morgunblaðsins - 26.04.2003, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 26.04.2003, Blaðsíða 8
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 26. APRÍL 2003 Þ AÐ var fyrri hluta sumars 1938, rúmu ári áður en seinni heims- styrjöldin braust út, að ég fermdist. Ég átti heima á Vað- brekku í Hrafnkelsdal í Jökul- dalshreppi, næstelst tíu systk- ina. Kirkjan okkar er á Eiríksstöðum. Það er ekki löng leið milli bæjanna ef loftlínan er mæld, en þessi leið var þó ekki fljótfarin 1938. Kirkjuferð þurfti jafnan að undirbúa með nokkrum fyrirvara. Hestarnir voru sóttir daginn áður og hafðir heima yfir nóttina. Ótal mörgu þurfti að huga að; þvo og pressa spari- fötin af fólkinu og ganga frá því öllu að kveldi, því næsta dag varð að taka snemma. Ég vaknaði snemma þennan sunnudags- morgun. Mér var órótt innanbrjósts. Ég vissi ekki hvort ég kveið fyrir eða hlakkaði til. Það átti jú eitthvað merkilegt að gerast í lífi mínu. Skyldi eitthvað breytast? Ég gekk út á hlað. Veðrið var yndislegt, logn og glaða- sólskin. Allt var eins og venjulega. Fiskifluga suðaði á bæjarþilinu. Fyrir vitin lagði ilm af nýsleginni töðu. Pabbi hafði byrjað að slá í kringum bæinn í gær, en hann hóf alltaf slátt á laugardegi. Áin Hrafnkela leið fram með sínum venjulega róandi klið, tær og glitrandi í sólargeislunum. Ekki angraði undirvitundina sú hugsun sem sækir á huga barna í dag. Hvað fæ ég í fermingargjöf? Þá var ekki hugsað um gjafa- pakka í glansandi umbúðum. Ég var fyrir löngu búin að fá fermingargjöfina frá mömmu og pabba. Þau höfðu þann hátt á að gefa okkur fermingargjöfina þegar við höfð- um lokið fullnaðarprófi, en það fór fram um mánaðamót apríl–maí. Þá gáfu þau okkur sex ær, loðnar og lembdar, og einn gemling. En þessari eign fylgdu þær kvaðir að við yrðum heimavinnandi á búinu. Launin yrðu ágóðinn af fjáreigninni. Þegar við hefðum svo eignast nægan sjóð til að kosta okkur til náms skyld- um við fara í skóla, til að ná einhverri fræðslu. Ég hef oft á seinni árum kallað þetta „fimm ára áætlun“. Nú dugði ekki að slóra. Mér leið vel, hafði öðlast sálarró við að njóta fegurðarinnar úti. Ég dreif mig inn aftur. Það urðu allir að hjálpast að við undirbúning ferðarinnar. Þeg- ar svo allt var tilbúið, var lagt af stað. Spari- fötin voru flutt í hnakktöskum, samanbrotin og vel frá gengin. Hægt og rólega silaðist þessi hópur af stað eftir troðnum götuslóðum. Öll kennileiti höfðu nöfn. Fyrst fórum við Torfur, þá Sand- inn fyrir ofan Melhólana, en þar var hægt að greikka sporið. Síðan kom að Hrafnkelu. Það var farið yfir hana á vaði skammt frá þar sem hún fellur í Jökulsá. Þegar komið var yfir ána var farið upp á Gerðishöfða. Nokkrar kindur stukku upp úr laut, þar sem þær höfðu lagt sig í skugga. Nei sko! Þarna er hún þá, hún Maga mín, uppáhaldsærin mín. Hvít á bak- inu, en svört á maganum. Með báðar gimbr- arnar sínar. Svona fallegar. Þær skal ég setja á í haust. Þær skulu ekki fara í sláturhúsið! En hvað þá með „sjóðinn“ og skólagönguna? Nei, ég sleppi öllum skólum heldur en að farga þessum fallegu lömbum. Við höfðum silast áfram, komin niður í Teig. Hvað er ég að hugsa? Ég verð að snúa mér að því sem er framundan í dag! Mér verður litið yfir Jök- ulsána þar sem hún beljar fram, kolmórauð og ógnandi. Þarna fer hópur manna ríðandi og fer greitt; auðvitað bæði frá Brú og Heið- arseli. Það verður margt manna við kirkju í dag. Best fyrir mig að hugsa um trúarjátn- inguna svo mér fatist ekki í kirkjunni þegar allt þetta fólk situr og hlustar. Næst komum við að Hölkná. Þar verður að fara ofur ró- lega. Hún rennur í djúpu gili og stórgrýttur botn á vaðinu. Allir komast samt yfir án telj- andi áfalla. Þegar komið er upp úr gilinu eru allar torfærur að baki, rennisléttar grundir alveg út að kláf. Þá er ærlega slegið í og farin hraðferð. Mikill og skemmtilegur þótti mér sá hraði. Þess ber að geta að ég hafði aldrei séð bifreið þegar þetta var, hvað þá ferðast með slíku tæki. Við kláfinn er stigið af baki, sprett af hest- unum og þeir heftir svo þeir strjúki ekki heim á meðan við erum á kirkjustaðnum. Nú er komið að þeim ferðamáta sem víðast hvar er aflagður í dag; að fara yfir Jökulsá í kláfi. Kláfurinn er kassi sem fjögur hjól eru fest utan á. Hann rennur eftir vírum sem strengdir eru yfir ána og rækilega festir í grjótvörður sitt hvorum megin árinnar. Það er mikill léttir þegar allir eru komnir yfir. Oftast einn eða tveir í kassanum í hverri ferð, horfandi niður í ólgandi strauminn. Næst er farið heim í bæ á Eiríksstöðum til að hafa fataskipti. Ég fór í hvítan silkikjól með púffermum, sem mamma hafði saumað á mig, í silkisokka og skó með hælum, en það var alveg nýtt fyrir mér. Ég hafði þó aðeins æft mig á hælaskónum heima. Það lá við að ég væri feimin, svona rosalega fín. Við vorum sex börn sem fermdumst saman þennan dag; þrír drengir og þrjár stúlkur. Drengirnir voru Stefán Pálsson á Aðalbóli, Jón Haraldsson í Möðrudal á Fjöllum og Gunnlaugur Snædal á Eiríksstöðum og stúlk- urnar voru Gunnhildur Hjarðar í Hjarðar- haga, Lára Lárusdóttir í Sænautaseli í Jökul- dalsheiði og ég. Presturinn okkar var séra Sigurjón Jónsson á Kirkjubæ í Hróarstungu. Hann hafði frætt okkur um kristindóminn og búið okkur undir ferminguna. Hann var greindur maður og flutti ávallt góðar ræður. Ræðan sem hann hélt þegar hann fermdi okkur hefur verið mér minnisstæð æ síðan. Hann bað okkur blessunar og óskaði þess að við yrðum sólarmegin í lífinu. Svo sagði hann: „Það er ekki nægilegt að hafa eintómt sól- skin. Jurt sem fær aðeins sólarhita visnar og deyr. Hún þarf einnig regnskúri til að dafna og þroskast.“ Ég skildi þetta afar vel þá, vegna þess að það var oft svo þurrviðrasamt í Hrafnkelsdalnum og þá léleg grasspretta. Seinna á ævinni hef ég oft hugsað um þessa spekiríku ræðu. Einkum þegar á móti hefur blásið. Þá hugsa ég um regnskúr; nú sé best að axla þessa ábyrgð og ganga í gegnum erfiðleikana án þess að láta þá buga sig, þetta sé hinn nauðsynlegi regnskúr. Þannig full- yrði ég að séra Sigurjón hafi lagt mér gagn- lega lífsreglu um leið og hann fermdi mig. Eftir messuna var veislukaffi á kirkju- staðnum, eins og ævinlega. Það var tvíbýli á Eiríksstöðum, kaffi á báðum búum og skipt- ist fólk á milli búa eftir því frá hvaða bæjum það kom. Þegar öllu þessu tilstandi var lokið var haldið heim. Það var ævinlega mikill léttir þegar komið var yfir í kláfnum. Ég var með þeim fyrstu yfir og fór að sækja hestana, sem höfðu komist býsna langt í höftunum. Ég hugsaði um liðinn dag, sem hafði verið eins og yndislegt ævintýri. En nú var allt orðið eins og áður. Mér fannst ég ekkert öðruvísi en í morgun. Ég var komin í gallabuxur, peysuna og gúmmískóna. Ég gekk eftir þurru mólendinu. Það skrjáfaði í lynginu undir fótunum þar sem ég gekk. Ég óskaði þess að það færi að rigna. FERMING Á JÖKUL- DAL 1938 Barnahópurinn á Vaðbrekku árið 1934. Fremri röð frá vinstri: Guðlaug, Sigrún, Aðalsteinn, Stefán og Jón Hnefill. Aftari röð frá vinstri: Ragnhildur (í fangi Guðrúnar), Guðrún og Jóhanna. Foreldrar barnanna hétu Aðalsteinn Jónsson og Ingibjörg Jónsdóttir. Eiríksstaðakirkja á Jökuldal. E F T I R J Ó H Ö N N U A Ð A L S T E I N S D Ó T T U R F R Á VA Ð B R E K K U Hér er rifjuð upp ferming frá árinu 1938 í afskekktri, íslenskri sveit. Þá var ýmislegt öðruvísi en nú er við sömu tækifæri. Höfundur er húsfreyja.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.