Lesbók Morgunblaðsins - 09.08.2003, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 09.08.2003, Blaðsíða 6
t.d. þegar hann lýsir sköpun heims og manns og átökum ólíkra afla sem ríkja í goðaheimi og mannheimi, og hann lítur til hins nýja siðar þegar hann rýnir í framtíðina. Ég tel líklegt að skáldin séu fleiri en eitt og tek undir með Vé- steini Ólasyni að grunnurinn að kvæðinu sé eldri en frá því rétt fyrir árið 1000, en að það hafi mótast endanlega við þær aðstæður sem ríktu rétt fyrir kristnitökuna.13 Einar Ólafur Sveinsson á að hafa sagt ein- hverju sinni í gamni, að vel gæti verið að Þor- geir Ljósvetningagoði hafi samið Völuspá. Ég held að það sé nokkur alvara í þessu. Hin tví- átta völva talar fyrir munn skáldsins sem greinilega er vel menntaður einstaklingur á vísu síns tíma og meðvitaður um það pólitíska samhengi sem átök tveggja siða skapa. Hann leitar lausnar fyrir framtíðina eins og lögsögu- maðurinn heiðni, Þorgeir Ljósvetningagoði, tók að sér að gera á Alþingi árið 1000 (999). Honum var ljóst að gamli heimurinn var kom- inn að fótum fram og væri að líða undir lok. Nýr siður hlaut að taka við. Bæði skáldið og stjórnmálamaðurinn finna fyrir alvöru þeirra tíma sem þeir lifa og gera sér grein fyrir því að eitthvað nýtt sé í vænd- um. Ábyrgðin gagnvart atburðum líðandi stundar hvílir þungt á þeim. Þorgeir leitar sagnaranda undir feldi og á þar líkt og skáldið stefnumót við guðina sem takast á.14 Sá nýi guð sem öllu ræður hlaut að sigra og á þessu grundvallast nýji heimurinn. Á það gátu þeir sæst bæði hinir heiðnu forlagatrúarmenn og þeir kristnu menn sem voru tilbúnir að berjast á Alþingi fyrir ríki Guðs og hinum nýja sið. Ekki er ólíklegt að Þorgeir hafi undir feldinum nafntogaða einmitt séð hinn ríka koma öflugan ofan, þann er öllu ræður – birtast eins og í mandorlunni í efstu myndröð byzönsku dóms- dagsmyndanna. Helstu heimildir Ágústínus kirkjufaðir. The City of God. Penguin Books, 1984. Bæksted, Anders 1986: Goð og hetjur í heiðnum sið. Bókaútgáfan Örn og Örlygur. Dronke, Ursula 1992: „Völuspá and the Sybilline Tradi- tion.“ Latin Culture and Medieval Germanic Europe. Gröningen. Eddukvæði. Ólafur Briem bjó til prentunar. Reykjavík. Skálholt, 1968. Gad, Tue 1966: „Mikael.“ Kulturhistorisk leksikon for nordisk middelalder fra vikingetid til reformationstid. XI. Reykjavík 1966. Bókaverslun Ísafoldar. Harbison, Peter 1994: Irish High Crosses with the Fig- ure Sculptures Explained. Drogheda. The Boyne Valley Honey Company. Henry, Francise 1967: Irish Art during the Viking Invasions 800-1220 A.D. London. Methuen & Co Ltd. Hermann Pálsson 1996: Völuspá. The Sybils Prophecy. Edinburgh. Lockharton Press. Hörður Ágústsson 1989: Dómsdagur og helgir menn á Hólum. Reykjavík. Hið íslenska bókmenntafélag. Íslensk bókmenntasaga I. Ritstj. Guðrún Nordal, Sverr- ir Tómason og Vésteinn Ólason. Reykjavík. Mál og menn- ing. 1992. Jón Hnefill Aðalsteinsson 1999: Kristnitakan á Íslandi. Reykjavík. Háskólaútgáfan. Lundberg, Mabel 1990: De dödas uppståndelse i kristen tro og konst. Lund. Studentlitteratur. Ólafur H. Torfason 2000: Nokkrir Íslandskrossar. Reykjavík. Samplonius, Kees 2001: Sybilla borealis. Notes on the Structure of Völuspá. Leuven. Peeters. Selma Jónsdóttir 1959: Byzönsk dómsdagsmynd í Flat- artungu. Reykjavík. Almenna bókafélagið. Sigurður Nordal 1952: Völuspá. Árbók Háskóla Íslands. Reykjavík. Simek, Rudolf 1993: Hugtök og heiti í norrænni goða- fræði. Reykjavík, Bókaforlag Máls og menningar. Thompson, Damian 1996: The End of Time. Faith and Fear in the Shadow of the Millennium. London. Sinclair- Stevenson. Neðanmálsgreinar 1 Ég vil sérstaklega þakka Yuri Bobrov prófessor í íkonafræðum og miðaldalist við Listaháskólann í St. Pét- ursborg og Tryggva Gíslasyni mag. art. fyrir góðar ábend- ingar og samræður um efni þessarar ritgerðar. Þeir voru báðir meðal fyrirlesara á málstofu sem haldin var á vegum námsnefndar í almennum trúarbragðafræðum við Háskóla Íslands í Skálholtsskóla 4. apríl 2003 þar sem hluti þess- arar ritgerðar var kynntur. 2 Augustinus, City of God (De civitate Dei), bók XVII. 3 Dronke 1992 og Samplonius 2001. 4 Ólafur H. Torfason 2000: 20. 5 Upplýsingar frá Yuri Bobrov, prófessor í miðaldalist og íkonafræðum við Listaháskólann í St. Pétursborg. 6 Njála segir frá því að Síðu-Hallur hreifst af þessum eiginleika Mikaels þegar Þangbrandur boðaði honum trúna. Í Biblíunni er hvergi sagt frá Mikael með vogina. Það þema er komið inn í kristna myndlist frá Egyptum. Þangbrandur hefur því að öllum líkindum haft með sér dómsdagsíkona þegar hann boðaði Íslendingum trú rétt fyrir árið 1000. 7 Sigurður Nordal 1952. Ástæða er til að benda á umræð- ur sagnfræðinga um endatímahugmyndir við aldamótin 1000. Margir þeirra draga í efa að þær hafi verið útbreidd- ar á Vesturlöndum á síðari hluta tíundu aldar. Hins vegar má geta þess að umrót í kjölfar plágna, þjóðfélagsbreyt- inga, þjóðflutninga og innrása norrænna manna á Bret- landseyjum ýtti undir hugmyndir um að refsing Guðs bitn- aði á mönnum með sérstökum hætti á þessum tíma og var það tengt ritningartextum Biblíunnar um endatímanna (sjá t.d. Thompson 1996). 8 Dronke 1992. 9 Sigurður Nordal 1952: 147. 10 Völuspá, með formála og skýringum eftir Hermann Pálsson 1994: 108. 11 Harbison 1994. 12 Í endurgervingu myndarinnar sem Hörður Ágústsson gerði og birt er í bókinni Dómsdagur og helgir menn kem- ur útbreiðsla eldstraumsins ekki nægilega vel fram. 13 Íslensk bókmenntasaga I. 1992:75. 14 Jón Hnefill Aðalsteinsson 1999: Kristnitakan á Ís- landi. Háskólaútgáfan. Höfundur er prófessor í kennimannlegri guðfræði og umsjónarmaður almennra trúarbragðafræða við Háskóla Íslands. Í TILEFNI af því að Ragnar Kjartans- son myndhöggvari og leirkerasmiður hefði orðið áttræður þann 17. ágúst nk. verður í dag opnuð minningarsýning á verkum Ragnars í Ásmundarsal við Freyjugötu. Á sýningunni verður Ragnars aðallega minnst fyrir frum- kvöðlastarf sitt sem leirlistarmaður, en hann var einn af stofnendum leirbrennslunnar Funa árið 1947 og Glits tíu árum síðar. Á ár- unum sem hann starfrækti fyrst Funa og svo Glit unnu margir þekktustu myndlistarmenn landsins með honum og kemur sú samvinna skýrt fram á minningarsýningunni. Meðal samstarfsmanna Ragnars má nefna Jón Gunn- ar Árnason, Kjartan Guðjónsson, Hring Jó- hannesson, Magnús Pálsson, Ragnheiði Jóns- dóttur, Dieter Roth, Sigurjón Jóhannsson, Steinunni Marteinsdóttur og marga fleiri. Eitt aðalsmerki framleiðslunnar á þessum tíma var frjó hugmyndavinna og metnaður í hönnun og haldnar voru sýningar m.a. í Munchen, Lond- on, Washington og New York við góðan orðs- tír. Hönnun á háu stigi Ragnar Kjartansson fæddist að Staðastað á Snæfellsnesi 17. ágúst 1923 og ólst þar upp. Haustið 1939 hóf hann nám hjá listamanninum Guðmundi Einarssyni frá Miðdal og var lær- lingur hjá honum fimm vetur. Haustið 1946 hélt hann til Svíþjóðar til náms í leirkerasmíð og höggmyndagerð í Gautaborg. Þegar heim kom stofnaði hann leirbrennsluna Funa hf. ásamt öðrum og næstu tvo áratugina var leir- munagerð helsti starfsvettvangur Ragnars, fyrst í Funa hf. og síðar í Glit hf. Samhliða starfi sínu hjá Funa sótti hann tíma í högg- myndagerð í skóla frístundamálara þar sem Ásmundur Sveinsson kenndi. Á síðari hluta starfsferils síns sneri Ragnar sér nær ein- göngu að höggmyndalist og eftir hann standa fjöldi útilistaverka um allt land, má þar nefna Stóðið við Hringbraut á móts við Umferðar- miðstöðina, Bárð Snæfellsás á Arnarstapa, Sjómennina fyrir framan safnahúsið á Ísafirði og Björgunarbátinn á Siglufirði. „Í dag er Ragnar kannski þekktastur fyrir höggmyndir sínar, en hann vann sem leirkera- smiður í tuttugu ár og var mjög þekktur á sín- um tíma fyrir leirlistarverkin. Hann vann mik- ið með öðru myndlistarfólki hjá Glit og var hönnunin þar ætíð mjög metnaðarfull. Sumir hafa viljað lýsa verkstæðinu hjá Glit sem nokk- urs konar listaakademíu. Minningarsýningin sem opnar í Ásmundarsal í dag spannar tutt- ugu ára skeið, frá 1947 þegar hann stofnaði Funa og til 1967 þegar hann hætti hjá Glit og hún varð að stórri verksmiðju. Á þessum árum var hugmynd Ragnars að tengja saman mynd- listina og hönnunin og hjá Glit ríkti mikill metnaður fyrir því að vera með hönnun á mjög háu stigi, algjörlega sambærilegt við það sem væri að gerast á öðrum stöðum í Evrópu. Segja má að þeim hafi vissulega tekist það, enda var þeim boðið á sýningar erlendis og fengu góða umfjöllun,“ segir Inga, dóttir Ragnars, sem sjálf starfar sem myndlistarkona. Tilraunir með form og efni Ragnar var alla tíð mikilvirkur í samtökum listamanna. „Hann var einn af aðalhvatamönn- um að stofnun Myndhöggvarafélagsins í Reykjavík, meðal frumkvöðla að útisýningun- um á Skólavörðuholti sem hófust 1967 og ollu „sprengingu“ í íslenskri höggmyndalist og þar með í hinum íslenska listaheimi, barðist fyrir verndun Korpúlfsstaða og að myndlistarmenn fengju afnot af húsinu og var einn af stofn- félögum Nýlistasafnsins. Einnig var Ragnar kennari og skólastjóri Myndlistarskólans í Reykjavík til fjölda ára. Allt starf Ragnars er því óneitanlega samofið sögu íslenskrar mynd- listar á sjötta og sjöunda áratugnum,“ segir Inga. Listkennsla var Ragnari ætíð hjartfólgin og stóð hann fyrir miklu starfi á því sviði. Óhætt er að fullyrða að allflestir þeir mynd- höggvarar sem komu fram hér á landi á sjö- unda og áttunda áratugnum voru einhvern tímann annað hvort nemendur hjá Ragnari eða aðstoðarmenn hans. Að sögn Ingu var Ragnar alla tíð afar upp- tekinn af því að gera ýmsar tilraunir bæði með efni og form. „Í samvinnu við meðal annars jarðfræðinga var náð í leir úr Elliðaánum og af Reykjanesinu og reynt að vinna hann til notk- unar. Hann reyndist hins vegar ekki nógu góð- ur, aðallega ekki nógu sterkur, enda Ísland ungt landfræðilega séð. Munirnir sem unnir voru úr þessum íslenska leir voru mun brot- hættari svo á endanum gáfust þau upp og fóru að nota innfluttan leir frá Danmörku. En þau lögðu mikið á sig til þess að gera tilraunir með nýjungar bæði hvað leir og glerunga varðaði, enda lá heilmikil þróunarvinna að baki starf- inu. Ein af tilraununum sem Ragnar gerði með leirinn var að setja hraungjall inn í leirverkin, renna því inn í hlutina sem gerði það að verk- um að þeir þoldu miklu hærri hita við brennslu og urðu fyrir vikið mun sterkari.“ Frjótt samstarf Á minningarsýningunni verða samkvæmt Ingu um tvö hundruð leirmunir eftir Ragnar og leirverk sem hann vann í samvinnu við marga af þekktustu myndlistarmönnum lands- ins. „Þó sýningin fókuseri fyrst og fremst á verk Ragnars þá er sjónum um leið beint að öllu samstarfsfólki hans. Ragnar kenndi á þessum tíma í Myndlistarskólanum og fjöldi nemenda hans vann síðan með honum í Glit, en samvinnan á verkstæðinu var mjög sérstök. Þannig gerði Ragnar oft formin og renndi hlut- ina og síðan komu kannski Ragnheiður Jóns- dóttir, Hringur Jóhannesson, Sigurjón Jó- hannsson eða Magnús Pálsson, svo einhverjir séu nefndir, og skreyttu þá. Þetta var því afar frjótt samstarf. En það voru ekki bara inn- lendir listamenn sem störfuðu með Ragnari því um tíma unnu Ragnar og svissneski mynd- listarmaðurinn Dieter Roth náið saman við hönnunina. Það er alltaf gaman að skoða hlut- ina sem unnir voru hjá Glit og sjá hver skreytti hvað. Oft eru hlutirnir merktir fleirum en ein- um, stundum hefur gleymst að merkja formið og sumir munir eru alls ekkert merktir og þá þarf að skoða gamlar ljósmyndir til þess að reyna að átta sig á því hver kom þar að verki.“ Aðspurð af hverju Ásmundarsalur varð fyrir valinu sem sýningarstaður svarar Inga því til að viðeigandi hafi þótt að sýna í þessum sal þar sem Ragnar starfaði mikið í húsinu á sínum tíma. „Lengi vel var Myndlistarskólinn í METNAÐARFULL HÖNNUN OG ÖFLUG TILRAUNASTARFSEMI Ragnar Kjartansson myndhöggvari og leir- kerasmiður hefði orðið áttræður þann 17. ágúst nk., en hann lést árið 1988. Í tilefni afmælisins verður opnuð í dag minn- ingarsýning í Ásmund- arsal. SILJA BJÖRK HULDUDÓTTIR fékk Ingu dóttur Ragnars til þess að segja frá sýningunni. Ragnar að renna hraungjalli í vasa á vinnustofunni í Glit, líklega árið 1964. 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 9. ÁGÚST 2003

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.