Lesbók Morgunblaðsins - 30.08.2003, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 30.08.2003, Blaðsíða 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 30. ÁGÚST 2003 13 V IÐ erum afskaplega ánægð með að fá tækifæri til að sýna þessi verk hér í safn- inu,“ segir Birgitta Spur safnstjóri Listasafns Sigur- jóns Ólafssonar, en í dag verður opnuð sýning á skúlptúrum helstu meistara 20. aldar í Evrópu undir heitinu Meistarar formsins. „Sýningin er að grunni til frá Rík- islistasafninu í Berlín, en kemur hingað frá Listasafni Akureyrar, þar sem hún var í sum- ar. Við höfum átt mjög gott samstarf við Hannes Sigurðsson safnstjóra, en undirbún- ingur sýningarinnar hefur staðið á annað ár.“ Meistarar formsins er sannarlega réttnefni þar sem á sýningunni eru m.a. verk eftir heimsþekkta listamenn eins og Edgar Degas, Auguste Renoir, Ernst Barlach, Alexander Archipenko og Henry Moore. Alls er 31 verk á sýningunni í Sigurjónssafni eftir 22 lista- menn. „Vegna þess að rýmið er talsvert minna hjá okkur en á Akureyri tókum við þá ákvörðun að sýningin hér í Sigurjónssafni yrði afmark- aðri í tíma og með ákveðna tengingu við fjóra íslenska listamenn 20. aldar, þá Einar Jóns- son, Ásmund Sveinsson, Sigurjón Ólafsson og Gerði Helgadóttur, “ segir Birgitta. „Á sýningunni má sjá hvernig hugmyndir um efni og form hafa verið á sveimi á sama tíma. Það má t.d. sjá að konan og kvenlík- aminn er listamönnunum hugleikinn, einnig eru þjóðfélagsleg tengsl sterk í mörgum verk- anna og loks eru pólitísk verk þar sem lista- mennirnir taka mjög ákveðna afstöðu gegn hernaði og stríðsrekstri. Mér finnst til dæmis mjög athyglisvert hvernig þrír listamenn vinna hver um sig úr stríðsógnuninni, Henry Moore með Hjálmhöfuð frá 1975, Sigurjón með verkið Atómsprengjan frá 1979 – hvoru tveggja þegar kalda stríðið stóð sem hæst – og þýski myndlistarmaðurinn Axel Lischke, sem lét gera hina margumtöluðu vopnatösku (Án titils) 2001. Að setja vopnin á sýning- arstall er í raun táknræn athöfn, þeir gera vopnin óvirk og hættulaus. Boðskapurinn gæti verið: Sendum vopnin á minjasöfn og hættum að berjast.“ Verkin eru öll fígúratív, þar sem maðurinn er í fyrirrúmi og sker verk Gerðar Helgadótt- ur sig úr þar sem um hreina óhlutbundna „kompósisjón“ er að ræða. Sameiginlegt ein- kenni allra verkanna er að þau eru lítil um sig en Birgitta bendir á að mörg þeirra séu „monumental“ í byggingu þannig að lista- mennirnir hafi jafnvel hugsað sér útfærslu þeirra í mun stærra formi. Birgitta leggur áherslu á hversu einstakur fengur sé að þessari sýningu og hefur verið útbúið ítarlegt kennsluefni um sýninguna fyr- ir kennara í grunn- og framhaldsskólum sem vilja nýta sér tækifærið og fræða nemendur sína um höggmyndalist 20. aldarinnar í tíma og rúmi. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, opnar sýninguna klukkan 15 í dag að loknu ávarpi Johanns Wenzl sendiherra Þýskalands á Íslandi. MEISTARAR FORMSINS Í LISTASAFNI SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR SENDUM VOPNIN Á MINJASÖFN Morgunblaðið/Arnaldur Sigurjón Ólafsson. Á leið til elskunnar minnar, 1954-55. Morgunblaðið/Arnaldur Auguste Renoir. Litla þvottakonan 1916-19. Í bakgrunni er verk Einars Jónssonar Dögun, 1906. Morgunblaðið/Arnaldur Ernst Barlach. Móðir með barn II, 1935. HRINGEKJUR lífsins nefnist einkasýning Eyjólfs Einarssonar sem opnuð var í Lista- safni Reykjavíkur – Kjarvalsstöðum í gær. Á sýningunni er áherslan lögð á stór ol- íumálverk sem listamaðurinn hefur verið að vinna undanfarin ár og ekki hafa verið sýnd áður. „Eyjólfur er einn af fremstu listmálurum sinnar kynslóðar og hefur notið vaxandi athygli hin síðari ár fyrir af- ar persónulegt myndmál og túlkun sem endurspeglar tíðarandann með sérstökum hætti,“ segir í fréttatilkynningu frá safn- inu. Sunnudaginn 28. september kl. 15 verð- ur Eyjólfur með Listamannaspjall. Hann mun skoða sýningu sína ásamt gestum og taka þátt í umræðum um verkin. Sýningin stendur til 12. október. Kjar- valsstaðir eru opnir alla daga kl. 10–17. Valdabarátta, olía á striga, eftir Eyjólf Einarsson. EYJÓLFUR EINARS- SON Á KJARVALS- STÖÐUM SÝNING á verkum fjögurra norskra textíl- hönnuða verður opnuð í Listhúsi Ófeigs kl. 16 í dag. Listamennirnir eru Hilde Horni, Torill Haugsvær Wilberg, Tove Nordstad og Inger Lise Saga. Tvær þeirra eru innanhússarkitekt- ar, sú þriðja tannlæknir og sú fjórða barna- skólakennari. Verk þeirra eru úr þæfðri ull í bland við silki, viskós og lín. Sýningin nefnist „4 colours 4 ladies“. Listhús Ófeigs er opið 10–18 virka daga, 13– 16 laugardaga. Sýningin stendur til 17. sept- ember og er aðgangur ókeypis. FJÓRIR TEXTÍL- HÖNNUÐIR HJÁ ÓFEIGI Kjóll úr þæfðri ull, viskós og líni.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.