Lesbók Morgunblaðsins - 03.01.2004, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 03.01.2004, Blaðsíða 4
4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 3. JANÚAR 2004 G ottfried Semper fæddist í Hamborg 29. nóvem- ber 1803 inn í stóran barnahóp ullarverk- smiðjueiganda. Að menntaskólagöngu lok- inni hélt hann árið 1823 til Göttingen til náms í stærðfræði og fornleifafræði. Hann leitaði síðan fyrir sér um stöðu sem vatnsvirkj- anaverkfræðingur í Düsseldorf, en hafði ekki erindi sem erfiði. Eftir skamma viðdvöl í München og víðar í Bæjaralandi hélt hann loks árið 1826 til Parísar, þar sem hann hóf nám og störf í virtum einkaskóla Þjóðverj- ans Franz Christians Gau. Kennslan hjá Gau var mjög í anda kennslunnar í hinum fræga skóla École des Beaux Arts, enda hafði Gau sjálfur stundað þar nám. Gau var mjög pólitískur maður og sannfærður lýð- veldissinni og höfðu lífsskoðanir hans rík áhrif á nýja lærisveininn. Í París upplifði Semper júlí-uppreisnina 1830, sem markaði sömuleiðis djúp spor í vitund hans. En í París kynntist Semper ekki einvörð- ungu því, sem var efst á baugi í arkitektúr og stjórnmálum, heldur varð hann einnig fyrir miklum áhrifum af safni Georges Cu- viers baróns (1769–1832), Jardin des Plan- tes, en það var stærsta líffræðisafn heims. Samkvæmt kenningum Cuviers í saman- burðarlíffræði er óendanleg fjölbreytni nátt- úrunnar reist á örfáum frumformum, sem hvert um sig hefur þróast og breyst fyrir margvísleg áhrif í sögunnar rás. Saman- burðarkerfi Cuviers naut almennrar hylli í náttúruvísindum, allt þar til að þróunar- kenning Darwins leysti það af hólmi. Þessar hugmyndir Cuviers heimfærði Semper upp á öll svið mannlegrar sköpunar. Kveður hann m.a. svo að orði, að „byggingarstílarnir […] þróist úr örfáum frumgerðum í ýmsar áttir, líkt og gert sé ráð fyrir varðandi uppruna tegundanna í ríki hinnar lífrænu sköpunar“. Má til sanns vegar færa, að hin mikla kenn- ingasmíði Sempers, sem hann setti fram á lífsleiðinni, byggist í raun á samanburð- arkerfi Cuviers. Á árunum 1830–1833 dvaldist Semper á Ítalíu og í Grikklandi. Í Róm kynntist hann Berthel Thorvaldsen, og í Aþenu vann hann við fornleifauppgröft og uppmælingar. Komst hann að því, að byggingar fornaldar voru ekki hvítar og litlausar, heldur voru þær klæddar þunnu lagi pússningar og mál- aðar í litum. Rannsóknir hans leiddu til end- urskoðunar á hinni klassísku glansmynd af arkitektúr fornaldar, sem sýnt hafði bygg- ingar þess tíma einlitar með svip „göfugs einfaldleika og kyrrláts stórfengleika“. Jafn- framt spratt af þeim harðvítug deila, hin svokallaða pólykrómíudeila, sem gerði Sem- per víðfrægan í einu vetfangi. Á heimleiðinni til Þýskalands hitti hann Karl Friedrich Schinkel, byggingarmeistara prússnesku konunganna og frægasta arkitekt á þeim tíma, og fór Schinkel lofsamlegum orðum um rannsóknir hans. Árið 1834 gaf Semper út ritið Vorläufige Bemerkungen über be- malte Architektur und Plastik bei den Alten (’Nokkrar athugasemdir um málaðan arki- tekúr og höggmyndir til forna’), og sama ár var hann skipaður prófessor og forstöðu- maður akademíunnar í Dresden. Þá er hann 31 árs gamall og hefur ekki byggt nokkurn skapaðan hlut. Dresden 1834–1849 Í Dresden komst Gottfried Semper í kynni við Richard Wagner tónskáld (1813– 1883). Urðu þeir góðir vinir og sálufélagar, enda aðhylltust báðir hugmyndina um „heildstæða listaverkið“, þ.e. listaverkið sem órjúfanlega heild. Og í Dresden hófst Semp- er loks handa við að skipuleggja, hanna og byggja, og tókst honum með nokkrum merk- um stórbyggingum að setja slíkan svip á borgarmynd Dresdenar, að farið var að kalla hana Flórens norðursins. Af verkum Sempers í Dresden má hér nefna fyrra hirðleikhúsið (hönnunar- og byggingartími 1835–1841) ásamt endur- skipulagi á aðliggjandi lokuðu torgi, svoköll- uðu Zwinger, og á Brühl-stöllunum niður að bakka Saxelfar. Af ásettu ráði sleppir Semp- er að hafa hefðbundið framstætt fordyri („Portikus“) á leikhúsinu, en á þeim tíma þótti slíkt fordyri vera táknrænt fyrir tign aðalsmanna. Jafnframt hefur hann leikhúsið að formi til hálfhringlaga með bogagöngum og tekur þar með upp tvöfalda skeifulögun Zwinger-torgsins og ljær byggingunni um leið svip samkomustaðar eða -torgs, – það á m.ö.o. að vera sannkallað borgaraleikhús. Sömuleiðis í innirýminu brýtur Semper upp á nýjungum, sem hann átti eftir að þróa frekar í öðrum leikhúsbyggingum í sam- vinnu við vin sinn Richard Wagner; hann hverfur frá svala- og stúkuleikhúsi þess tíma og innleiðir hringleikhús, m.ö.o. arenuleik- hús. Með fyrra hirðleikhúsinu í Dresden hlaut Semper alþjóðlega viðurkenningu og frægð sem arkitekt. Það var því mikið áfall fyrir hann, þegar leikhúsið brann hinn 21. sept- ember 1869. Gripu Dresdenarbúar þá til þess ráðs að efna til undirskriftasöfnunar og tókst þeim að koma því til leiðar, að Semper var falið að hanna og byggja nýtt leikhús, síðara hirðleikhúsið (1871–1878), sem stend- ur enn þann dag í dag og gengur undir nafn- inu Semperóperan. Af öðrum byggingum Sempers í Dresden má nefna Villa Rosa, sem hann byggði fyrir bankajöfurinn Oppenheim, og sýnagóguna, sem hann reisti fyrir gyðingasöfnuð borg- arinnar. – Villa Rosa (1838–1846) er greini- legt afsprengi hinnar frægu Villa Rotonda eftir Andrea Palladio á Norður-Ítalíu. Vakti Villa Rosa strax mikla athygli og hlaut ein- róma lof samtímamanna fyrir fullkomna formgerð og hlutföll. Einkum má greina ákveðið samspil fernings og gullinsniðs, sem átti eftir að skipta miklu máli á komandi ár- um í kenningum Sempers um „lögmál formsins“. Sömuleiðis verður af Villa Rosa hvað ljósast, að Semper hefur sótt til ítalska renessansins í stórbyggingum sínum í Dres- den, enda taldi hann, að laga mætti ítalska renessansinn einkar vel að nýjum viðfangs- efnum. Gyðingar í Dresden höfðu árið 1835 sett á fót nefnd til að undirbúa byggingu sýnagógu og safna til hennar fé í trausti þess, að í Saxlandi yrðu brátt samþykkt lög, sem heimiluðu gyðingum slíkt, enda varð sú raunin tæpum tveimur árum síðar. Árið 1838 fól söfnuðurinn Semper hönnun og byggingu guðshússins. Hönnun Sempers hefur verið talin marka þáttaskil í baráttu gyðinga fyrir jafnrétti í Þýskalandi. Bygg- ingin (1838–1840) minnir ekki einvörðungu á rómönsk form elstu sýnagóga í þýskumæl- andi löndum, heldur vísar hún einnig til rómanskra bygginga, sem teljast hafa „þýskan“ eða „þjóðlegan“ svip: Jafnvel við fyrstu sýn minnir átthyrningurinn, sem rís upp úr miðju ferhyrningslaga sýnagóguskip- inu, á dómkirkju Karls mikla í Aachen, litlar innisvalirnar svo og bogaraðir, fleygsteinar og kringlóttir gluggar með rósettum vísa til frægra rómanskra kirkna á Norður-Ítalíu og til dómkirknanna í Speyer, Mainz og Worms. Með þessari byggingu voru gyð- ingar í Dresden viðurkenndir á táknrænan – m.ö.o. arkitektónískan – hátt sem fullgildir þýskir samborgarar, og gerðist það þremur áratugum áður en þeir hlutu fullt jafnrétti að lögum í Saxlandi árið 1869. Sýnagógan í Dresden hlaut sömu örlög og flest guðshús gyðinga í Þýskalandi. Kveikt var í henni „ríkiskristalsnóttina“ 9./10. nóvember 1938. Útlegð í London Í París braust árið 1848 út bylting, sem breiddist fljótt út til Þýskalands. Árið eftir var gerð uppreisn gegn konunginum í Sax- landi, sökum þess að hann neitaði að við- urkenna nýja stjórnarskrá fyrir þýska ríkið. Gottfried Semper var eini nafntogaði þýski arkitektinn, sem studdi alþýðuna, og raunar gengu þeir vinirnir báðir, hann og Richard Wagner, í lið uppreisnarmanna. Lét Semper reisa götuvirki til varnar stjórnarhernum og tók sjálfur þátt í bardögum. Leiddi það til þess, að hans var leitað um gjörvallt Þýska- land sem eins „aðalforsprakka“ uppreisnar- manna og „lýðveldissinna í sérflokki“. Varð Semper að flýja land og skilja konu sína og börn eftir í Dresden. Fyrst hélt hann til Parísar og var kominn um borð í skip á leið til Bandaríkjanna, þegar honum snerist hug- ur, og ákvað að fara til London í veikri von um verkefni. Árin í London reyndust Semper erfið, en hann víkkaði mjög sjóndeildarhringinn, einkum með vinnu sinni við heimssýninguna í London 1851, auk þess sem hann þróaði kenningar sínar í menningarfræðum. Á hinn bóginn varð ekkert úr flestum verkefna hans, þar á meðal framúrskarandi menning- armiðstöð í South Kensington, sem hann hannaði fyrir Albert prins, eiginmann Vikt- oríu Bretadrottningar. Eftir hans hönnun voru einungis settar upp fjórar sýningar- deildir á heimssýningunni í Crystal Palace, FAÐIR NÚTÍMA- ÓPERUHÚSA Á síðasta ári var þess minnst í þýskumælandi löndum að tvær aldir eru liðnar frá fæðingu Gottfrieds Sempers (1803–1879), sem telja verður einn merkasta arkitekt, leikhúshönnuð og menningarfrömuð 19. aldar. Fjölmargir Íslendingar þekkja sumar frægustu byggingar Sempers, t.d. óperuhúsið í Dresden og Burg- theater í Vín, en færri kunna deili á höfundi þeirra. Í tilefni af tveggja alda afmælinu er því ekki úr vegi að segja dálítið frá Semper og starfsferli hans, gera stutta grein fyrir kenningum hans í arkitektúr og menningarfræðum og fjalla jafnframt um nokkur helstu verk hans. E F T I R AT L A M A G N Ú S S E E L O W Óperuhátíðarhús Richards Wagner í München (1864–1867), sem aldrei var reist. Fremst er brú- in yfir Ísar-fljót. Kópía af upprunalegu líkani frá 1866.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.