Íslendingaþættir Tímans - 16.03.1972, Blaðsíða 15

Íslendingaþættir Tímans - 16.03.1972, Blaðsíða 15
Stína, eins og hún var alltaf köll uð ólst upp hjá foreldrum sínum í Dilksnesi í stórum systkinahópi, en Dilksnesheimilið var á hennar uppvaxtarárum einn af miðdeplum sveitarinnar í skemmtana- og fræðalífi unga fólksins, sem þá var að vaxa úr grasi. Þar var tónlist í hávegum höfð, fólkið skemmti sér við söng og orgelspil á milli fræð- andi viðræðna. Þær stundir munu mörgum ógleymanlegar sem óttu þess kost að njóta þeirra. Árið 1931 hinn 30. ágúst igiftist Stína Ósk-ari Guðnasyni, syni Guðna Jónssonar og Ólafar Þórðar dóttur þeirra mætu hjóna, en Ósk- ar hafði á sínum barnsárum verið- sumardrengur í Dilksnesi, svo hér tóku þessi leiksystkini saman og mynduðu sitt farsæla heimili, er þau hafa húið í alla tíð síðan, en það er næsta hús við undirritað- an, sem einnig hefur húið jafnlengi við hlið þessara ágætu hjóna, og minnist margra ánægjulegra stunda á heimili þeirra. Þau hjón eignuðust 6 hörn, sem öll eru á lífi, en með lífi sínu og starfi hafa þau hjón sýnt það, að hörnin þeirra voru þeim allt. IBaki brotnu unnu þau til að gefa klof- ið það að kosta þau öll til ein- hverra mennta. En nú, þegar þeim áfamga ier náð og börnin orðin virík- ir þjóðfélagsþegnar, og von hefði mátt vera um rólegri daga, þá er stundin komin, þessi mikla stund, sem enginn fær umflúið. Frá því 17. apríl á s.l. ári er hið mikla sjóslys varð hér við Hornafjarðarós og átta ungir og vaslkir sveinar hurfu í hafið, er þetta í þriðja sinn, sem dauðinn ber snögglega að dyrum hér í Hafn arhreppi. í annað sinn rétt fyrir jólin, er ungur bóndi hnígur ör- endur niður við bæjardymar hjá sér, og nú hverfur Stína frá okk- ur hér, án þess nokkrum hefði komið til hugar að slíkt væri í að- sigi. Þetta er mikið áfall í svo litl- um bæ sem hér, þar sem allir þekkja alla og umgangast hver annan daglega. Stína var yngst systkina sinna, næstur henni að árum var Hösikuld ur listmálari, sem látinn er fyrir nokkrum árum. Stína var í eðli sínu listelsk kona, enda bar heimili hennar vott Steindór Gíslason bóndi á F. 22.6. 1912. D. 22.12. 1971 Steindór bóndi á Haugi í Gaul- verjabæjarhreppi andaðist í sjúkra húsinu á Selfossi 22. des. s.l. eftir þung veiikindi siðast liðið ár. Hann var þrívegis skorinn upp á þeim tíma. Þessi þunigu veikindi og að- gerðir bar Steindór með mikilli hugprýði og þolinmæðí og lét aldrei hugifallast. Steindór fæddist að Hrútsstöð- um í Flóa, sonur hjónanna Krist- ínar Jónsdóttur og Gísla IBrynj ólfssonar, er þar bjuggu, en fluttu síðar að Hauigi, þá ársgamall. Þau voru bæði vel þekkt heiðurshjón og hann sem þjóðhagasmiður. Steindór var trúmaður og að nolkkru forspár og draumspakur. Ég hyigg, að hans andlega þrek og jafnaðargeð í veikindunum hafi byggzt á trú hans á að framgang- ur lífsins væru forlög, þ.e. þróun oig þroski til annars og eilífs lífs. Haugi Því það að hafa lifað er eilíft og verður aldrei þurrkað burt né fært til. Því þótt Steindór væri að upplagi um að svo var, allt er þar innan- stokks með þeim hætti, er bera henni vitni um yndisþokka og gott hugarfar. Greiðvikni og öðlings skap hennar var mikið. Það var sem legði frá henni hressandi loft, hreysti fagurrar menningar og hóg látrar gleði, þegar komið var inn í stofurnar hennar. Stína var siú auðkona, að vera persónuleika gædd. En það telst sá maður eða kona, sem helgar líf sitt öðrum, lifir lífi sínu fyrir utan sjálfa sig, lifir í hinum margvís- legustu viðfangsefnum en gleym- ir sjálfum sér, þetta var eitt af lífslánum Stínu. Tap eða vinningur er sá regin möndull, sem mannlegt líf snýst um. Líf og leikur verður sæluvana auðn. Ginnungagap, ef hvort tveggja er eiigi „leikur að vinna og tapa“. Stínu tókst með afbrigð- um vel að vinna leik hins mann- lega lífs. •Mannúðarmanni þykir kraftur lífs vors birtast á fegurstan hátt, þá er vér styrkjum skjólstæðinga, förunauta og igranna, vinnum bót þjóðfélagi og ættjörð. Þetta var lífsviðhorf Stínu. Stína mín, þessi fátæklegu orð eiga að vera hinzta kveðja til þín frá mér og konu minni, þau eiga að vera þakklæti fyrir samveru- stundirnar hér á Höfn, ég veit þú fyrirgefur hve mikið er ósagt um þig og þitt starf. Ég veit að þú gekkst þína ævi- braut á guðs vegum, og ég vissi að þú varst örugg í trúnni á eilífa lífið, þess vegna valdi ég versið, sem er í upphafi þessara orða. Elskulegum eiiginmanni þínum og börnuni ykkar sendi ég og kona mín oikkar innilegustu samúð arkveðjur. islendingaþættir Gunnar Snjólfsson. 15

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.