Íslendingaþættir Tímans - 29.03.1973, Blaðsíða 1

Íslendingaþættir Tímans - 29.03.1973, Blaðsíða 1
ÍSLENDINGAÞJETTIR Fimmtudagur 29. marz 20. tbl. 6. árg. Nr. 105. TINIANS Hjónin Gréta Þórarinsdóttir og Engilbert Kolbeinsson Y tri-N j arðvík Kveðja frá bróður og mági. Enginn veit hva8 átt hefur, fyrr en misst hefur. Loksins, þegar leiðir okkar fóru að liggja saman og hugir okkar að mæt- ast, þurftu örlögin að gripa i taumana og endirinn að verða svo sviplegur sem raun ber vitni. Aldursmunur okkar bræðranna var 12 ár og eins og oft er i svona tilvikum var samband okkar ekki eins náið og vera skildi, meginpart sökum þess að viö ólumst upp við mjög ólikar aðstæð- Ur. Berti byrjaði strax um fermingu að stunda sjóinn með föður okkar, og þar var hans vettvangur alla tið siðan. Þeir feðgar hættu útgerð um það leyti sem ég var að komast á fermingarald- ur og þá flutti Berti að heiman. En nú á þessum siðustu árum, höf- um við farið að leiöa saman hesta okk ar og ræða okkar vandamál, ég min eins og þau eru og hann sin eins og þau voru á minum aldri og þar ber þá margt að sama brunni eftir allt sam- an, bilið var ekki eins breitt og við hugðum. Gréta naut alls hins bezta á sinu uppvaxtarheimili og hjá sinum að- standendum, en engu að siður var um- hverfi hennar, henni alla tið þvingun og þvi var það henni stór sigur, þegar hún fór að ráðskazt á sinu eigin heim- ih, sem henni þótti mjög vænt um og bjó svo vel úr garði sem hénni var mögulegt. Það er þvi stórt skarð rofið i ástvina- hópinn. En minningin á eftir að lifa um ókomin ár. Það er min hinzta ósk ykkur til handa, að þið finnið á nýja staðnum þann frið og það athvarf, sem þið höfð- uð svo vel skapað ykkur hér á meöal okkar. Kveöja. Maggi. Nýlega fór fram frá Hafnarfjarðar- kirkju minningarathöfn um skipverj- ana á mótorbátnum Sjöstjörnunni frá Keflavik, er fórst i hafinu á milli Is- lands og Færeyja hinn ellefta febrúar siöastliðinn. Með skipinu fórust tiu manns, og þar á meðal hjónin Gréta Þórarinsdóttir og Engilbert Kolbeins- son skipstjóri. Gréta og Berti, en svo var hann kallaður af þeim er hann þekktu, voru sambýlisfólk mitt allt siðastliðið ár. Gréta var fædd hinn 29. september ár- ið 1945 i Hafnarfirði. Foreldrar hennar eru þau Anna Kristmundsdóttir frá Brunnastöðum og Þórarinn Guð- mundsson frá Skjaldarkoti á Vatns- leysuströnd. Gréta ólst upp hjá móður sinni og fósturföður Hannesi Kristjánssyni frá Suðurkoti, sem reyndist henni sem bezti faðir og leit á hana eins og sinar eigin dætur. Berti var fæddur hinn sjöunda september árið 1938 i Reykjakoti i ölfusi, én flutt- ist á fyrsta ári með foreldrum sinum að Auðnum á Vatnsleysuströnd. For- eldrar hans eru þau hjónin Kapitola Sigurjónsdóttir og Kolbeinn Guð- mundsson, en þau eru bæði Vest- firðingar að ætt. Berti ólst upp i for- eldrahúsum. Hann var aöeins þrettán ára gamall, þegar hann byrjaði að stunda róðra með föður sinum og siðan hefur hann haft sjómennsku að at- vinnu, að undanskildum þeim tveim vetrum, er hann var i Stýrimanna- skólanum i Reykjavik, en þaöan lauk hann hinu meira fiskimannaprófi vor- ið 1965. Strax, þegar hann kom úr skólanum, tók hann við skipstjórn á vélbátnum Strák frá Siglufirði, og hef- ur hann verið skipstjóri siðan, með ýmsa báta þar til um haustiö 1969 að hann ræður sig til Sjöstjörnunnar hf. i Keflavik og hefurhann verið skipstjóri siðan. Berti var mjög gætinn og ihugull skipstjóri. Haustið 1965 er hann var skipstjóri á vélbátnum Strák frá Siglu- firði, (er var á leigu hjá Bæjarútgerð

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.