Íslendingaþættir Tímans - 16.02.1983, Blaðsíða 6

Íslendingaþættir Tímans - 16.02.1983, Blaðsíða 6
Aðalbjörg Ögmundsdóttir Fædd 1. október 1904 Dáin 1. janúar 1983 Aðalbjörg Ögmundsdóttir andaðist að morgni laugardagsins l.janúar á Elli og hjúkrunarheimil- inu Grund í Reykjavík. Jarðarför hennarfórfram frá Þingmúlakirkju miðvikudaginn lljanúar. Þar var hún lögð til hinstu hvíldar við hlið foreldra sinna. Kristrún Aðalbjörg Ögmundsdóttir eins og hún hét fullu nafni var fædd á Skjögrastöðum í Vallahreppi 1. október 1904. Foreldrar hennar voru þau heiðurshjón, Sigurborg Þorláksdóttir frá Hreimsstöðum í Hjaltastaðaþinghá og Ög- mundur Ketilsson frá Skjögrastöðum. Börn þeirra hjóna voru fjögur: Bergljót, Aðalbjörg sem hér er minnst, Hóseas bóndi í Eyrarteigi, og Þorlákursem lést ungur. Er nú Hóseas einn á lífi. Þau Ögmundur og Sigurborg flytja frá Skjögra- stöðum í Eyrarteig með börn sín vorið 1912 og búa þar sérlega snyrtilegu búi til ársins 1942. Umgengni í Eyrarteigi var umtöluð, allt hreint og fínt utan bæjar sem innan. Þarna ólst Aðalbjörg upp hjá foreldrum og systkinum, og vandist öllum ■heimilisstörfum bæði úti sem inni. Skólaganga var ekki önnur en barnafræðsla fyrir fermingu. Aðalbjörg var félagslynd og tók virkan þátt í ungmennafélagi sveitarinnar og einnig í kven- félagi. Hún var að eðlisfari hlédræg, en var glöð og innileg í vinahóp, hún var vinur vina sinna. Hún kom oft að Flögu og dvaldi stundum nokkra daga var þá margt spjallað bæði í gamni og alvöru. Heilsulcysi fór að þjaka hana á unga aldri, varð hún að dvelja á sjúkrahúsi á Seyðisfirði vegna bcrkla, en náði að yfirstíga þann voða sjúkdóm. Eftir það dvaldi hún heima í Eyrarteigi við allgóða heilsu. En svo er það sumarið 1950 að hún veikist hastarlega og verður að fara á sjúkrahús í Reykjavík, og eftir þau veikindi er hún svo illa farin að hún vistast á Elli og húkrunarhcintilinu Grund í Reykjavík. Þar undi hún sér vel og eignaðist marga góða vini. Eftir að hún kont að Grund, kom hún heint að Eyrateigi tvisvar að sumarlagi og dvaldi smátíma. Kom hún þá til okkar að Flögu og var nokkra daga. Henni fanst kraftar alveg þrotnir, og best væri að dvelja á Grund, þar væri öllum svo vel hjúkrað. Alltof lítið samband höfðum við hjónin við okkar tryggu vinkonu, þó sendum við henni við og við nokkrar línur og alltaf jólakort, og það gerði hún líka. Enn í vetur brá svo við að við fengunt ekki kort frá henni. Ekki leiddum við samt hugann að því að kornið væri að leiðarlokunt hennar hér á jarðríki. Við hjónin þökkum þér margar ánægjulegar samverustundir í gegnum árin og biðjum þér ■ blessunar Guðs. Hóseasi og öðrum vandamönnum sendum við kærar kveðjur. Stefán Bjarnason Flögu. Ingimundur Jón Guðmundsson frá Birgisvík, Árni Helgason bónda getið frá liðinni tíð. Hafi hann hjartans þökk fyrir samfylgdina og góð kynni. Þetta var kærkomin lausn úr því sem komið var. Það er sælt að mega sofna svona þjáningalaust svefninum langa, sáttur og sæll við allt og alla. Við Jónínu vinkonu mína vil ég segja það, að ég ber hlýjan hug til hennar og þá móðursystur hennar, sem var sem mín amma, því hún ól móður mína upp, sem sitt barn. Þakkir mínar á hún kærar í brjósti geymdar. Það er vegsauki og vinningur að eiga samleið með slíku fóki traustu og trygglyndu. Megi guðsfriður umvefja ykkur allar stundir. Aðstandendum öllum sendum við hjónin hugheilar samúðarkveðjur. Valgarður L. Jónsson. Frá Eystra-Miðfelli Fæddur 13. Október 1895 Dáin 23. janúar 1983 Það er söknuður í huga okkar. er viö kveðjum ástkætan langafa, hinsta sinni. Við vissum að hann gæti ekki verið hjá okkur öllu lengur - þar sem hann var búinn að vera svo mikið veikur að Guð hlaut að taka hann til sín. Þó eigum við bágt með að trúa að við getum ekki oftar heimsótt hann að Hrafnistu, en þangað getum við heimsótt langömmu og reynt að hlú að henni. Elsku langafi, til þín var alltaf svo gott að koma, þú áttir þann yl og birtu er vermdi okkur. Við gleymum ekki hlýju brosi þínu og mjúku stóru höndunum þínum, er þú straukst okkur um vanga. Samt erum við glöð yfir að vita að þú ert nú laus við allar kvalirnar og kominn til Guðs - þar sem þú tekur á móti okkur er lífshlaupi okkar lýkur. Við höfum svo mikið að þakka þér og söknum þín svo mikið. Við vitum að langamma saknar þín enn meira og viljum reyna að bæta henm upp missi sinn, meö að halda áfram að heimsækja hana og vera henni eins góð og við getum. Við viljum þakka öllum er veittu langafa hjálp og hjúkrun, í veikindum hanns. Öllu starfsfólki að Hrafnistu í Reykjavík, þökkum við sérstak- lega. Góði Guð, þakka þér fyrir að hafa gefið okkur langafa og allar þær góðu minningar cr við höfum um hann. Við biðjum þig að taka hann í náðarfaðm þinn. Blessuð sé minning um góðan dreng. Einar Þór, Valborg, Svanfriður og Hulda María 6 Islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.