Íslendingaþættir Tímans - 18.03.1983, Blaðsíða 4

Íslendingaþættir Tímans - 18.03.1983, Blaðsíða 4
Vafalítið má telja, að kynnin við föður minn, á næsta bæ við Vesturá, hafi orðið Rósberg hvati til ritstarfa og skáldskapur. Mun hann hafa látið orð falla í viðtali, sem hníga að því. Vísnasmiður var Rósberg frábær. Mér er til efs, að margir hafi þar staðið honum jafnfætis frá stríðslokum. Rímleikn- in, hnyttnin, líkingaauðgin og hlífðarleysið við siálfan sig og aðra setur mark sitt á stökur hans. Eg vil benda þeim sem vísum unna á Ijósasöfn Rósbergs. Síðasta bók hans kom út á sextugsaf- mæli höfundarins. Þar vil ég benda á kvæðið Grástein. Rismikið verk leyfi ég mér að segja. En þrátt fyrir mörg ágæt kvæði, er ég þeirrar skoðunar, að stökurnar muni lengst halda nafni Rósbergs á lofti. Stökurnar Dalurinn úr bréfi til æskuvinar, eru mér sendar upphaflega. Leyfi ég mér að birta hér nokkrar af þessum stökum, en rúmsins vegna sleppi ég flestum þeirra. Stökur þessar birtust upphaflega á prenti í tímaritinu Eimreiðinni (1. hefti 59. árg., 1953). Lít til baka litla stund, láttu hugann sveima, Manstu hlíðar, manstu grund, manstu dalinn heima? Yfir fjöllin flýgur þrá, flytur yl í hjarta, Fellur skuggi aldrei á œskuminning bjarta. Pegar hleypti í hlaðið vor hlýnaði innan veggja. Út í Ijósið lágu spor labbakúta tveggja. Líft ungu Ijúfan óð lindir sungu fjallsins. Æskuþrungin lög og Ijóð léku á tungu dalsins. Okkar tóku enda senn œskudagar heiðir. Börnin vaxa og verða menn, velja nýjar leiðir. Æskan líður okkurfrá, elfur tímans streyma. Bak við fjöllin blikar á bcejarþilin heima. Já, Rósberg batt ævitryggð við Dalinn. Þangað fór hann oft á sumrin. Síðast heimsótti hann æskustöðvamar á liðnu sumri. Þá var þreki hans allmikið tekið að hraka. Hann hugsaði ekki um að lifa sem lengst, heldur sér og öðrum til sem mestrar ánægju meðan lífið entist. Um skeið naut Rósberg nokkurra rithöfunda- launa af almannafé. Síðar var honum engin athygli veitt af þeim, sem því fé úthluta. Var það ómaklegt, því að Rósberg bar hátt merki þjóðlegr- ar arfleifðar í ljóðagerð. En það er nú einu sinni ekki í tísku að kveða með stuðlum og rími nú á síðustu áratugum. Mér er nær að halda, að þessi þögn um nafn Rósbergs á æðri stöðum síðasta áratuginn sem hann lifði og vel það, hafi dregið hann niður á skáldskaparsviðinu. Svo mikið er víst, að tiitölulega lítið kom frá hans hendi eftir að hætt var að veita honum opinbera viðurkenn- ingu fyrir verk sín. Sumir segja, að lítið muni um þetta fé fyrir fátækan mann, sem er að sækja fram á rithöfundarbraut. Og mikið rétt: Þetta segir 4 skammt til að lifa af því, en andleg uppörvun er það þó að vita að samfélagið meti einhvers hið andlega framlag. En það er að sjálfsögðu ekki úthlutunarnefnd listamannalauna sem kveður upp úr um það að Rósberg hafi verið skáld og rithöfundur eður ei, heldur þjóðin sjálf. Og spá mín er sú, að hann muni lifa í verkum sínum löngu eftir að þeir eru gleymdir, sem mest eru nú í tísku og hafa hæst. Því miður hittumst við Rósberg sjaldan eftir að við yfirgáfum Dalinn. Ég hélt suður, hann norður. En við skrifuðumst á. Jafnan voru bréf hans létt og skemmtileg. Hann sendi mér jafnan bækur sínar áritaðar. Vísnakver hans frá 1954, 25 hring- hendur, var gefið út í 50 eintökum. Líklega með allra minnstu bókúm að formi, sem gefin hefur verið út hérlendis. Ég gríp niður í bók þessa á þremur stöðum. Vetrarkvíði: Hœgt ég feta hálan veg, heldur letjast fœtur. Kuldahretum kvíði ég; komnar veturnætur. Leikslok: Varð mér heldur dropinn dýr, dómsins hrelldur bíð ég. Bftir kveldsins cevintýr undir feldinn skríð ég. Stolnar stundir Þó að syndin sumum hjá saurgi lindir tœrar, stolnum yndisstundum frá stafa myndir kærar. Slíkar stökur kveður ekki annar en sá, sem agað hefur mál sitt við stuðlanna þrískiptu grein, svo að vitnað sé til Jóns Helgasonar í Kaupmanna- höfn. Rósberg kvæntist ungur Hólmfríði Magnúsdótt- ur, hins þjóðkunna fræðimanns og rithöfundar á Syðra Hóli á Skagaströnd, og konu hans, Jóhönnu Albertsdóttur frá Neðstabæ í Norðurárdal. Kom ég oft á heimili þeirra og naut góðra veitinga og alúðar húsbændanna. Þau skildu að skiptum fyrir allmörgum árum. Börn þeirra urðu sex, þau eru: Húnn, flugumferðarstjóri á Akureyri, Hólm- steinn, húsasmiður á Akureyri, Aðalgunnur Gígja, húsfreyja að Dagverðareyri, Þórgunnur Harpa, býr í Svíþjóð og starfar að rúnalestri við norrænu þjóðfræðastofnunina í Stokkhólmi, Magnús Hreinn, bókavörður við Landsbókasafn um skeið, háskólanemi, og Guðni Bragi, bifvéla- virki á Akureyri. Þetta er ekki svo lítið dagsverk. Hlut Hólmfríðar í uppeldi barnanna skal og vissulega ekki gleymt. Það er mikið verk að koma upp mörgum börnum og koma þeim vel til manns. Það gerðu þau sannarlega, Rósberg og Hölm- fríður. Einn af sonum Laxárdals hefur kvatt jarðlífið. Um leið er þjóðin einum orðlistarmanni fátækari. Engin orð ná raunar yfir söknuð minn við fullvissu þess að Rósberg skuli nú þagnaður að eilífu, hann sem átti svo marga strengi í hörpu sinni. Mig langar til að kveðja hann með vísu þeirri er ég sendi honum á fimmtugsafmælinu: Æskutíð með töfrum sínum til þín líður hýr á brá. Kennast víða í kvœðum þínum Kárahlíð og Vesturá ■ Og samúðarkveðjur sendi ég afkomendum og ættingjum Rósbergs. Minningin um hann á lengi eftir að hlýja þeim um hjartarætur sem kynntust honum. Hann er ógleymanlegur maður. Auðunn Bragi Sveinsson frá Refsstöðum. t Krepkti að bœnum bjargarleysi. Baslið máttinn sveik. Listfeng sál í lágu hreysi las við týrukveik. Glœddist Ijós við glas á lampa. Glœddist reynsla dyr. Fæddist hrós með frœgðar glampa. Frœddist hugur skýr. Málið kjarnyrt, kýmni blandið. Kyngi mögnuð Ijóð leystu fjötra, flugu um landið. Funaði af innri glóð. Einfaranum ógnar hjarnsins auðnar kalda leið. Fjœr þó sjái sólskinsbarnsins sumarlöndin heið. Guðríður B. Helgadóttir Austurhlíð. t Þótt gleðibikar gjarnan tæmist fljótt og gœfuhnoðan undan renni skjótt, þótt grösin sölni bæði á akri og engi, er eilífðin til augnabliksins sótt og örskotsstundin getur varað lengi. Svo kvað skáldið og fræðarinn, Rósberg G. Snædal, sem nú hefur kvatt vora jarðnesku vist. „Vertu sæll" sagði hann við mig á börunum í sjúkrabílnum, sem flutti hann í sjúkrahúsið á Sauðárkróki, þarsem hann lést um kvöldið. Ekki átti ég von á því að þetta væri hinsta kveðja hans til okkar. Rósberg Guðnason Snædal fæddist 8. ágúst 1919 í Kárahlíð í Laxárdal í Austur-Húnavatns- sýslu. í Laxárdalnum ólst hann upp. eins og alþýða manna í þá daga, við heldur kröpp kjör en með vonameista í brjósti. „íslandi allt" var kjörorð æskufólks þeirra tíma. Rósberg G. Snæ- dal var ekki hlutlaus áhorfandi þegar íslenska þjóðin braut af sér viðjar erlends oks og aldabasls heldur var í fylkingarbrjósti þeirra, sem vörðuðu leið sjálfsbjargar og sjálfstæðis og börðust fyrir frelsi og jafnrétti allra manna. Fagttið þið, börn mjn, frelsi sumardags, fagnið, því nú er runnin langþráð stund, fagttið og njótið vOrsins Ijóðalags, lagt er hið dýra gull t ykkar mttnd. Rósberg G. Snædal átti vopn, sem hafa orðið íslensku þjóðinni drýgri til sigurs en járn og púður. Þau voru skáldskapargáfa og beinskeyttur penni. Með hvössum greinum, vísum og ljóðum vakti hann með þjóðinni og hvatti til dáða: íslendingaþaettir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.