Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Ķslendingažęttir Tķmans

og  
S M Þ M F F L
. . . . 1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |

Ašalrit:

Tķminn


Ašlaga breidd


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Ķslendingažęttir Tķmans

						fSLENDINGAÞAVTTIR

Miðvikudagur 21. sept. 1983 — 35. tbl.

TIMANS

Guðrún Andrésdóttir,

Beigalda

Fædd 12. júní 1930

Dáin 29. ág. 1983

Ég horfi yfir hafið

um hausí afauðri strönd

í skuggaskýjum grafið

það skilur mikil lönd.

Sú ströndin strjála og auða,

er stari ég héðan af,

er stróndin stríðs og nauða,

er ströndin hafsins dauða

og hafið dauðans haf.

En fyrir handan hafið

þar hillir undir land,

í gullnum geislum vafið

það girðir skýjaband.

Þar gróa í grænum hlíðum

með gullslit blómin smá,

i skógarbeltum blíðum

i blómslurlundum fríðum

má alls kyns aldin sjá.

Par sé ég sólu fegri

á súlum standa höll

í dýrð svo dásamlegri

hún drifin gulli er öll.

Par sé ég fylking fríða

og fagurbúna sveit

um Ijóssins sali líða

með Ijóssins ásýnd blíða

í unaðs aldinreit

Ég hljóður eftir hlusta

ég heyri klukkna hljóm,

hve guðleg guðsþjónusta

er guðs í helgidóm.

Ég heyri unaðsóma

og engla skcera raust,

um drottins dýrðarljóma

um drottins verk þeir róma

um eilífð endalaust.

Er þetta hverful hilling

og hugarburður manns?

Nei það er fögur fylling

á fyrirheitum hans,

er sýnir oss í anda

guðs eilíft hjálparráð

og stríðsmenn guðs þar standa

þar allter eilíf náð.

(Vald. Briem)

í þessum sálmi stendur allt sem ég vildi segja,

því okkur sem eftir stöndum verður oftast orðs-

vant þegar fólki eins og mágkonu minni er svipt

frá okkur svona fljótt, með starfsorku og þrek sem

hún var gædd í svo ríkum mæli að með ólíkindum

var. Hún veiktisl snögglega við vinnu sína 24. júlí.

Fyrst í stað stóðu vonir til að um bata mundi

vera að ræða, en er dagar og vikur liðu kulnuðu

vonirnar smátt og smátt uns yfir lauk. Ég man

Rúnu mína fyrst þegar hún var skírð, og þrótt-

mikla nafnið hennar hljómaði um litlu kirkjuna

heima í Álftártungu.

Hún var fimmta barn hjónanna Lilju Finnsdótt-

ur og Andrésar Guðmundssonar, sem bjuggu á

Saurum í Hraunhreppi. Eldri eru: Guðmundur

Ragnar f. 1926 Hervald f. 1927 Óskar f. 1928

Unnur f. 1929. sjötta barnið dó í fæðingu 1931,

Þorsteinn Arnarf. 1933GuðbjörgStefam'af. 1941

Ragnhildur f. 1947 og Bragi f. 1949.

Á Saurum ólst Rúna upp ásamt stóra systkina-

hópnum og má nærri geta að þar var stundum

þröng á þingi í litla húsinu, en virtist þar alltaf vera

rúm. Með mikilli elju, hagsýni og þrautseigju

komu þau hjón Lilja og Andrés sínum stóra

barnahóp upp með mikilli prýði, og er þeirra

afkomendahópur orðinn æði stór. En þau lifa bæði

í hárri og fagurri elli. Ég man þau koma til

kirkjunnar í Álftártungu með stóra hópinn sinn,

að sumri til, var gjarnan komið með þau minnstu

í hestvagni og var þá oftast fleira með en

heimabörnin, því það var nefnilega rúm á Saurum

fyrir lítið kaupafólk.

En árin liðu og fullorðinsárin tóku við, 3. apríl

1954 giftist Guðrún bróður mínum Árna Guð-

mundssyni, og hófu þau búskap að Beigalda í Borgar-

hreppi það vor, þar var þeirra heimili æ síðan.

Eignuðust þau 5 börn. Lilju f. 1954 þjóðháttafræð-

ing gift Jóni Bjarnasyni búsett í Reykjavík,eiga 1

dóttur. Guðmund f. 1958 trésmið heitm. Ragna

Sverrisdóttir heima á Beigalda eiga 1 son. Sesselja

f. 1961 nemi gift Eiríki Ingólfssyni búsett í

Reykjavík eiga 1 dóttur. Alda f. 1963 nemi í

Reykjavík. Steinunn Þórdís f. 1969 nemi.

Öll eru börnin vel gerð og fær um að taka á sig

byrðar lífsins. hef ég fylgst með vexti þeirra og

þroska frá fyrstu tíð, veit að þau eru föður sínum

sterkasta stoðin, ásamt litlu barnabörnunum. Það

var sannarlega hátíð þegar von var á þeim í

heimsókn, Rúnu voru þau óendanlega kær og var

það ein mesta gleði í lífi hennar, í vor þegar

heitmey Guðmundar flutti að Beigalda með litla

Arna.

5 dögum áður en Rúna veiktist bauð fjölskyldan

á Beigalda okkur hjónunum með í ferðalag niður

að Straumfirði, og voru þar með flestir fjölskyldu-

meðlimir þar á meðal 2 barnabörnin. Var Rúna

óþreytandi að hlaupa með nöfnu sinni um fjörur

í leit að skel og kuðung og ýmsu forvitnilegu litlu

barnsauga.

Þann dag var einn af fáum sólskinsdógum

sumarsins hér, þá var sannarlega bjart um Borg-

arfjörð og Mýrar og blasti þaðan við allur víði

fjallahringurinn frá Keili á Reykjanesi til konungs-

'.ns í vestri á Snæfellsnesi. Þetta voru fjöllin sem

við höfðum haft fyrir augum alla tíð en sjaldan

svona mörg í einu. Svo sannarlega hófum við augu

til fjallanna og út á víðáttu hafsins.

Eftir skoðun á fornum minjum og örnefnum,

var sest að snæðingi í grasigróinni brekku, var

nesti hjá Rúnu vel úti látið að vanda og hugsað

jafnt fyrir minnsta manninum í hópnum sem þeim

elsta.

Er við kvöddum þau á Beigalda síðar um

kvöldið datt mér ekki í hug að ég væri að kveðja

Rúnu mína í síðasta sinni.

Nú að leiðarlokum hér, er mér efst í huga

þakklæti til minnar kæru mágkonu, hún studdi

mig og hjálpaði af sínum mikla krafti og velvilja

alltaf ef égþurfti hjálpoghún komþvívið. Einnig

þakka Finnur og börnin mín samfylgdina, en við

vitum að við hittumst síðar.

Guðrún var lögð til hinstu hvílu í Borgarkirkju-

garði 3. sept. í fegursta veðri, áður fór fram fógur

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8