Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Ķslendingažęttir Tķmans

og  
S M Þ M F F L
. . . . 1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |

Ašalrit:

Tķminn


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Ķslendingažęttir Tķmans

						Þorvarður Kjerulf

Þorsteinsson,

sýslumaður og bæjarfógeti

Fæddur 24. nóvember 1917

Dáinn 31. ágúst 1983

í dag föstudaginn 9. september 1983, fer fram

frá Dómkirkjunni í Reykjavík líkför Þorvarðar

Kjerulf Þorsteinssonar áður sýslumanns í ísafjarð-

arsýslu og bæjarfógeta á ísafirði.

Þorvarður var fæddur á Egilsstöðum á Völlum

í Suður-Múlasýslu 24. nóvember 1917, sonur

Þorsteins Jónssonar, kaupfélagsstjóra og konu

hans Sigríðar Þorvarðardóttur Kjerulf, læknis og

alþingismanns, er þá áttu heimili á Egilsstöðum,

en fluttu næsta ár á Reyðarfjörð og áttu þar

heimili til dauðadags.

Þau hjónin eignuðust fjögur börn og var

Þorvarður elstur, en önnur eru: Margrét kona

þess er línur þessar ritar, Jón yfirlæknir á

lyflæknisdeild Landspítalans í Reykjavík og

Þorgeir lögreglustjóri á Keflavíkurflugvelli.

Þá tóku þau hjónin í fóstur frá barnæsku Ólaf

Bjarnason, nú deildarstjóra við tollstjóraembætt-

ið í Reykjavík.

Þorvarður ólst upp með systkinum sínum á

Reyðarfirði, gekk þar í barnaskóla, en var annars

á sumrum í sveit hjá föðurömmu sinni og frændum

á Egilsstöðum, en hann var ætíð mjög hneigður

fyrir búskap og hafði mikið dálæti á hestum.

Eftir fermingu fór hann í Menntaskólann á

Akureyri, lauk þaðan stúdentsprófi vorið 1938.

Síðan lá leiðin í Háskóla íslands, þar sem hann

las lög, og lagaprófi lauk hann með góðum

vitnisburði vorið 1944.

Síðla sumars það ár fór hann til starfa í

Stjórnarráði íslands, atvinnumálaráðuneyti, fyrst

þar fulltrúi, en síðan deildarstjóri.

Arið 1973 var hann skipaður bæjarfógeti á

ísafirði og sýslumaður ísafjarðarsýslu og var svo

hans úr hópnum. En mestur missir ástvina eigin-

konu og yngri kynslóðanna sem maður hittir svo

oft á heimili þeirra Björns og Bjarnýjar. Við

Margrét sendum þeim öllum innilegar samúðar-

kveðjur.

Vilhjálmur Hjálmarsson.

Brekku.

t

Kveðja frá Framsóknarfélagi Norðfjarðar.

Laugardaginn þriðja þ.m. barst sú sorgarfregn

um Neskaupstað, að Björn Steindórsson hárskeri

hefði orðíð bráðkvaddur skömmu eftir hádegi

þann dag.

Það er alltaf sársaukafullt. þegar svo snögglega

er skorið á lífsstreng vinar og samherja ekki síst

þar sem andlegt og líkamlegt þrek hans virtist eins

og best var á kosið.

Við vissum þó að hverju gat dregið. Björn fékk

hjartaáfall fyrir nokkrum árum og var þá hætt

kominn.

En hann náði góðum bata og hof aftur störf við

iðn sína og afskipti af félagsmálum.

En svo er því farið með þennan sjúkdóm, að

hafi hann einu sinni gert vart við sig getur hann

óvænt og fyrirvaralaust minnt á sig á nýjan leik.

Er sem falinn eldur.

Þetta vildi okkur gleymast í samvistum við

Björn. Slíkt var æðruleysi hans gagnvart þessari

vitneskju og til hinstu stundar var hann einkar

ræðinn og glaðlegur í viðmóti.

Með Birni Steindórssyni er fallinn frá einn

okkar ágætasti félagi. Um áratugaskeið var hann

í forystusveit norðfirskra framsóknarmanna.

Hann naut trausts og virðingar og eins og títt er

um slíka menn hlóðust á hann ófá trúnaðarstörf.

Oftar en einu sinni var hann kvaddur til

formennsku í Framsóknarfélagi Norðfjarðar og

það trúnaðarstarf hafði hann á hendi er hann féll

frá.

Það var ekki síst fyrir hans frumkvæði og

atfylgi, að félagið tók fyrir ári síðan í notkun ágætt

húsnæði fyrir starfsemi sína.

Um árabil kom það í hlut hans að veita

kosningaskrifstofu flokksins forstöðu bæði er

kosið var til sveitarstjórnar og Alþingis, auk þess

,að vera trúnaðarmaður flokksins á kjörstað.

A því skeiði er Austri, blað austfirskra framsókn-

armanna var prentað í Neskaupstað annaðist

Björn útgáfu blaðsins.

Hann starfaði í ýmsum nefndum fyrir byggðar-

lag sitt. var m.a. varaformaður skólanefndar um

árabil.

Björn var einlægur samvínnumaður. Hann átti

sæti í stjórn Kaupfélagsins Fram og lét sér mjög

annt um vöxt og viðgang félagsins.

Björn kom víðar við á vettvangi félagsmála og

hvar sem hann tók til hendi gat hann sér hið besta

orð.

Björn var grandvar maður og heiðarlegur og

gerði ekki á hlut nokkurs manns. Þess vegna naut

hann trausts og virðingar þeirra sem honum

kynntust og með honum störfuðu.

Hann var hvers manns hugljúfi í samstarfi en

geðríkur gat hann þó verið í umræðum og fastur

fyrir ef því var að skipta.

Af góðu einu var hann vel þekktur í sínu

byggðarlagi. Um margt sérstæður persónuleiki.

Einn af þeim, sem setti svip á bæinn.

Félagar í Framsóknarfélagi Norðfjarðar þakka

honum mikil og ómetanleg störf.

Eftirlifandi eiginkonu hans Bjarný Sigurðar-

dóttur, börnum og barnabörnum sendum við

okkar innilegustu samúðarkveðjur.

allt til hann í vor vegna vanheilsu baðst lausnar og

flutti suður og bjó að Miklubraut 74, Reykjavík.

Árið 1944 kvænfist Þorvarður Önnu Einarsdótt-

ur, verkstjóra, frá Akranesi, nú húsfrú að Kiða-

felli í Kjós, en þau hjónin skildu.

Börn þeirra eru:

Einar, umdæmisverkfræðingur á Austurlandi,

búsettur á Reyðarfirði. Kona hans er Hallfríður

Bjarnadóttir, kennari.

Sigríður, ritari, gift Paul Newton, verslunar-

manni, búsett í Reykjavík.

Margrét, hjúkrunarfræðingur, gift Árna Árnas-

yni, viðskiptafræðingi, búsett í Kaupmannahöfn.

Guðbjörg. dýralæknir, nú starfandi í Laugarási.

Þorsteinn, búfræðikandidat, nú í Kaupmann-

ahöfn.

Síðari kona Þorvarðar og eftirlifandi er Magðal-

ena Thoroddsen, Ólafs Thoroddsen, skipstjóra

frá Vatnsdal.

Þau hjónin eiga tvær dætur:

Ólínu við nám í Háskóla fslands, gift Sigurði

Péturssyni frá ísafirði, háskólanema.

Halldóra. guðfræðinemi, gift Sigurjóni Bjarnas-

yni, frá Hvoli í Ölfusi, háskólanema.

Tvær dætur átti Þorvarður utan hjónabands:

Dýrfinnu Sigríði. gift Garðari Einarssyni. kjöt-

iðnaðarmanni, Selfossi og Dagbjörtu Þyri. há-

skólanema, gift Guðna Kristinssyni. lyfjafræðingi,

búsett í Reykjavík.

Þorvarður hefir átt miklu barnaláni að fagna.

öll eru börnin vel gefin og gegnir þjóðfélagsþegn-

ar.

Ég kynntist Þorvarði þegar í Menntaskólanum

á Akureyri, vorum sambekkingar, brautskráðir

þaðan stúdentar vorið 1938. en síðan samtímis í

lagadeild háskólans og lukum báðir lagaprófi

vorið 1944.

Strax í menntaskóla varð Kjerulf, eins og hann

varætíðnefndurafbekkjarfélögum.mjögvinsæll.

islendingaþættir

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8