Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Ķslendingažęttir Tķmans

og  
S M Þ M F F L
. . . . 1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |

Ašalrit:

Tķminn


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Ķslendingažęttir Tķmans

						Snæbjörn Sigurðsson,

75 ára

Hinn 22. ágúst s.l. varð Snæbjörn Sigurðsson

fyrrum stórbóndi á Grund í Eyjafirði, 75 ára.

Hann er fæddur að Garðsá í Eyjafirði árið 1908

og var yngsta barn sinna foreldra og hið níunda í

röðinni. Af þessum stóra systkinahópi eru sex á

lífi enn.

Snæbjörn er enginn hversdagsmaður. Hann

gengur sínar eigin götu og lætur sig litlu skipta

hvað almenningi finnst um það ferðalag hans og

hann hikar hvergi né kvikar þótt sýnilegir erfið-

leikar séu á þeim leiðum. ísland á alltof lítið af

slíkum kjarnamönnum og einmitt þess vegna get

ég ekki látið hjá líða að minnast Snæbjarnar lítið

eitt á þessum tímamótum á ævi hans.

Ég kynntist Snæbirni fyrst þegar foreldrar hans

fluttu inn að Leyningi í nágrenni foreldra minna.

Þá var hann rétt kominn yfir fermingu. Ekki urðu

kynni okkar mikil í það sinn. en eftir að ég náði

fullorðinsaldri urðu þau meir og uxu sífellt með

árunum.

Ég hef alltaf haft gaman af því að hitta

Snæbjörn. Hann er maður hress í máli og

algerlega laus við allt víl og volæði. Hann talar

tæpitungulaust og kjarnmikla íslensku, sem stund-

um hefur keim af fornmálinu, enda hefur liann

lesið Islendingasögur meira en almennt gerist og

mig grunar að hann hafi lesið sumar þeirra ærið

oft, einkum Sturlungasögu. Hann kann ótrúlega

mikið af orðaræðum manna utanbókar og at-

burðarás flestra sagnanna getur hann rakið án

mikillar fyrirhafnar. Ýmis spakmæli og snjallyrði

sögualdarmanna og Sturlunga eru Snæbirni tungu-

töm og hann á oft létt með að segja það í einni

setningu, sem aðrir þurfa langt mál til að útskýra.

Þessi orðsnilld Snæbjarnar hefur valdið því að

hann á létt með að tala aðra menn inn á sitt mál

og á þann hátt hefur honum stundum heppnast

betur en öðrum að koma sínum hugðarefnum til

betri vegar. Aðrir menn hafa líka notið góðs af

þessum hæfileikum Snæbjarnar því að hann er

hjálpsamur maður að eðlisfari og hugkvæmur á

ráð til að leysa úr erfiðum vandamálum.

Eins og gefur að skilja hlaut maður eins og

Snæbjörn að verða settur í ýmis störf í sinni sveit.

Ég treysti mér ekki til að gera skrá yfir þau öll, en

ég veit að hann var árum saman formaður

skólanefndar Hrafnagilshrepps og leysti þar oft

erfið störf, einnig var hann lengi í stjórn mjólkur-

flutningafélagsins og hann var nokkurs konar

framkvæmdastjóri fyrir byggingu félagsheimilisins

Laugaborgar og það var langt frá því að vera

vandalaust starf.

Ég læt þessa upptalningu nægja og vík að

bóndanum Snæbirni og minnist lítillega á ætt

hans. Sjálfsagt finnst Snæbirni lítið til um þá

ættfærslu mína, því að hann er ættfróður með

afbrigðum. Foreldrar Snæbjörns voru hjónin

Hólmfríður Jónsdóttir og Sigurður Bjarnason,

fræðimaður, frá Snæbjarnarstöðum í Fnjóskadal.

Þau hjón bjuggu lengst á Snæbjarnarstöðum. Af

þeim hjónum er komin fjölmenn ætt sem kennir

sig við Snæbjarnarstaði.

8

Þegar Snæbjörn var 25 ára gamall kvæntist hann

Pálínú Jónsdóttur, ættaðri úr Hrísey. Hún var hin

mesta myndarkona í sjón og að handbragði, eins

og hún átti kyn til. Það sama ár byrjuðu þau

búskap í Hólshúsum, en sá bær stendur á hóli fyrir

utan og ofan höfuðbólið Grund og var hjáleiga

þaðan. Snæbjörn hafði þá verið ráðsmaður hjá

Margréti systur sinni í nokkur ár, en hún var þá

orðin ekkja eftir fyrri mann sinn, Magnús Sigurðs-

son. 1 Hólshúsum bjuggu Snæbjörn og Pálína í

einn og hálfan áratug. Jörðin var illa hýst svo þau

urðu að byggja öll hús að nýju. Það var stórt átak

fyrir ung og efnalítil hjón á krepputímum. Börn-

unum fjölgaði líka ört. Alls urðu þau sex.

Þau eru: Sigurður bóndi á Höskuldsstöðum í

Eyjafirði, Holmfríður löglræðíngur í Reykjavík,

Sighvatur læknir í Keflavík og einnig í Reykjavík,

Jón kennari í Hveragerði, Ormarr kennari við

Þelamerkurskóla og Sturla kennari við Gagn-

fræðaskóla Akureyrar.

Auk þess ólu þau Pálína upp einn sonarson

sinn, Þórð Sturluson.

Árið 1947 var hálflendan á Grund auglýst til

sölu. Ymsir höfðu hug á að eignast þá ágætu jörð,

en fáum þótti fært að leggja í þau kaup. Þess vegna

kom það flatt upp á marga, þegar það fréttist að

Snæbjörn hefði fest kaup á hálfri Grund. Það

þurfti dirfsku og áræði til að stíga þetta skref.

Vafalaust hafa þetta verið erfið kaup, en Snæbjörn

hafði gott fjármálavit og hann bjó á Grund svo

lengi sem hann var við búskap. Hann bjó þar

stórbúi og komst oftar en einu sinni í það að vera

hæsti mjólkurinnleggjandinn í Mjólkursamlagi

K.E.A. Grund seldi Snæbjörn ekki fyrr en hann

hafði misst konu sína, en hún dó-21. mars 1982.

Þá var Snæbjörn farinn að heilsu og dvelur nú á

Kristneshæli. Hið hress og glaða viðmót er ekki

lengur líkt því sem áður var, en hann talar þó enn

sitt kjarnmikla mál sem margir mættu taka sér til

fyrirmyndar. Minni hans má teljast allgott. Hann

getur enn þulið langa kafla úr Sturlungu utanbók-

ar ef svo ber við að horfa. Hann unir sér furðu vel

við lestur og vísnagerð. Hann hefur alltaf gert

vísur frá því hann var unglingur, en nú hefur hann

tíma til að fága þær og fægja og gera þær dýrt

kveðnar. Snæbjörnsendirekki lengur heillaskeyti

nema í bundnu máli og það eru ekki margorð ljóð

en það eru vísur sem tekið er eftir.

Að lokum óskum við hjónin þessum gráhærða

öldungi allra heilla á ævikvöldinu og afkomendum

hans guðs blessunar.

Angantýr H. Hjálmarsson.

Þeir sem   skrifa

minningar- eða afmælisgreinar

í Islendingaþætti

eru vinsamlegast beðnir

að skila vélrituðum

handritum

Islendingaþættir

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8