wm 3 QmÉts& '&&**¦¦ Við bjóðum yður velkomin á Aðalskrifstofu okkar í Ármúla 3. Starfsfólkið þar er reiðubúið til að ganga frá nauð- synlegum tr.yggingum fyrir yður og gera áætlun um heildartryggingaþörf yðar persönulega eða fyrirtækis yðar. Skoðunarmenn tjóna eru sérmenntaðir á sínu sviði og leggja kapp á að hraða uppgjöri hvers konar tjóna og láta sanngirni ráða við ákvörðun tjónbóta. Eftirlitsmenn á sviði eldvarna og tjónavarna veita yður leiðbeiningar um varnir gegn slysum á vinnustöðum og eldsvoða hjá atvinnufyrirtækjum. Við erum reiðubúin að leysa hvers konar vandamál yðar á sviði trygginga, tjóna og tjónavarna. Þér eruð velkomin í Ármúla 3. SÍMI 38500 SAMVINNUTRYGGINGAR