Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Heimilistķminn

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31 . . . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 1. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |

Ašalrit:

Tķminn


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Heimilistķminn

						og þá gerði Jörgensen sér grein fyrir,

hvað var a6.

Hun var að fæða. Hér i miðjum

skóginum!

Jörgensen hafði upplifan ýmislegt

einkennilegt i skóginum sinum, en þetta

var sannarlega fyrsta barnsfæðingin.

Hvers vegna i ósköpunum hafði stúlkan

leitað hingað?

Hann lagði höndina róandi á öxl henni. ¦

—- Hér getið þér ekki verið, sagði hann

rólega. Við verðum að ná i lækni. Þér

þarfnist hjálpar.

Hún svaraði ekki, lá aðeins og þrýsti

andlitinu niður i mosann og grét.

—  Ég vil það ekki, sagði hún skyndi-

lega. Ég vil deyja. Ég vil ekki eignast

þetta barn. Ég vil það ekki... ég hata það!

Hann svaraði ekki.

Hún var litil og grönn, og þar sem hún lá

þarna, leit hún helzt út fyrir að vera barn

sjálf, en liklega var hún um tvitugt.

Stúlka, sem          i hafði verið óheppin.

Þannig hlutir gerðust enn, þrátt fyrir

Pilluna og kynlifsfræðsluna. Hún var ekki

úr grenndinni, þá hefði hann þekkt hana,

en hver sem hún var, varð hann að hjálpa

henni.

En hvernig? Liklega var ekki um annað

að ræða en bera hana heim. Leiðin var

talsvert löng með svo þunga byrði. Hann

gat lika átt á hættu, að hún reyndi að

hlaupa burt eða gripi til örþrifaráða

gagnvart sjálfri sér eða barninu, ef það

fæddist meðan hann væri burtu.

—  Sjáið nú til, sagði hann i róandi tón.

Nu ætla ég að bera yður heim til konunnar

minnar. Hún veit hvað á að gera undir

svona kringumstæðum.

Hann reyndi að koma handleggjunum

undir hana til að lyfta henni, en hún

barðist á móti og æpti, að hann skyldi

fara. Hann hætti tilraununum og reyndi

að tala um fyrir henni, en hún lá bara með

andlitið niðri i mosanum og vildi ekkert

hlusta á hann.

—  Viltu endilega eignast barnið hérna i

skóginum? spurði hann lágt. Hún svaraði

ekki.

Þá mundi hann allt i einu eftir annarri

fæðingu, sem hann hafði orðið vitni að

hérna i skóginum fyrir mörgum árum.

Rádýrsmóðir hafði fætt kálf sinn svo að

segja fyrir augum hans. Hann mundi það

eins og það hefði gerzt i gær. Sú reynsla

var eitt af þvi dásamlegasta, sem fyrir

hann hafði komið i embætti skógareftir-

litsmanns. Þá hafði hann einmitt komizt

að raun um, hversu fagurt og auðugt lifið i

skóginum var fyrir þann, sem hafði auga

fyrir þvi.

Hann ákvað að segja stúlkunni frá þvi.

Ef til vill kæmist hann þannig i samband

við hana og gæti komið henni i skilning

um, að hún hafði skyldum að gegna gagn-

vart barninu sinu.

—  Einu sinni sá ég rádýr fæða hérna i

skóginum, sagði hann hægt. Það var

dásamlegt. Ef þér hefðuð séð það, skilduð

10

þér, hvað það er fallegt að sjá nýtt lif

kvikna. Hún hreyfði sig ekki.

Hann beið litla stund, en siðan tók hann

að lýsa rádýrsfæðingunni i smáatriðum.

Hann reyndi að finna orð, sem gerðu þetta

fallegt og hreint, en það leit ekki út fyrir

að stúlkan hlustaði. Að minnsta kosti

sýndi hún engin viðbrögð.

Hann hélt áfram og beitti sinni bliðustu

rödd, og þegar hann hafði talað dágóða

stund, fannst honum stúlkan róast. Hún

andaði reglulegar. Enn þrýsti hún

höndunum ai kviði sér og hann imyndaði

sér, að barnið gæti fæðst á hverri stundu.

Andartak varð hann skelfingu lostinn.

Hvað i ósköpunum átti hann að gera við

nýfætt barn úti i miðjum skógi á kóldum

vetrardegi? Hlyti það ekki að frjósa i hel

um leið og það fæddist?

Stúlkan kveinkaði sér, og brátt fór hún

að veina, og svo kom skerandi óp. Hún

hnipraði sig saman af kvölum.

Nú mátti engan tima missa. Hann varð

að gera eitthvað, ef barnið átti ekki að

fæðast   hér i skóginum.

Óttinn veitti honum afl. Hann kom

handleggjunum undir likama stúlkunnar

og lyfti henni upp. Hún var þyngri en hann

hafði búist við. Nú veitti hún enga

mótspyrnu.

Hann gekk með hana að eldvarnar-

beltinu, og hún lá grafkyrr i fangi hans og

horfði á hann sviplausum augum.

Ef hann hefði bara þorað að skilja hana

eina eftir, meðan hann sækti hjálp. Þá

hefði hann getað lagt hana i verkfæra-

skúrinn við enda eldvarnarbeltisins, en

hann þorði það ekki. Hann neyddist til að

halda áfram heim til sin, það var ekki

um annað að ræða.

Hann stytti sér leið, þegar hann kom að

eikarsvæðinu. Það sparaði honum

stóran krók, en hann fann, að kraftar hans

voru að dvina."

Allt i einu varð hún róleg. Hann nam

staðarogleitá hana.og nú varhann ekki i

vafa um, að fæðingin var á næsta leyti.

Nú var hún róleg, einkennilega róleg,

eins og hún væri búin að gera málið upp

við sjálfa sig og væri ekki lengur hrædd.

—  Leggið mig niður, sagði hún hægt.

Hann   hlýddi   ósjálfrátt,   og   næstu

minúturnar stóð hann og horfði á hana

hræddur. Andlit hennar afmyndaðist af

kvölunum, en hræðslan var horfin Ur

svipnum.

Svo kom barnið. Hann stóð og horfði á,

og varð gripinn undarlegri hátiðleika-

kennd. Hun tók barnið i fangið, og lá siðan

kyrr og horfði á það. Það fór að gráta, og

hún sveipaði sjali sinu um það.

—  Barnið mitt, hvislaði hún.

—  Biddu, sagði hann. Ég sæki hjálp.

—  Já, þakka þér fyrir, svaraði hún

rólega, hann breiddi úlpuna sina yfir

móður og barn, áður en hann fór, og hljóp

siðan gegnum skóginn áleiðis heim til sin.

Katrin leit undrandi á hann, þegar hann

kom hlaupandi, og spurði hvort eitthvað

hefði komið fyrir.

—  Já, svaraði hann.móður. Ung stúlka

fæddi barn i skóginum. Náðu i Hansen

lækni. Ég fer út á bilnum og sæki hana.

Búðu um rúm handa henni.

Barn, endurtók Katrin furðu lostin. Já,

en Karl, það hljómar ekki skynsamlega.

—   Það er það heldur ekki, hrópaði

hannum öxl, er hann hljóp aðbilnum. Það

er dásamlega heimskulegt, en ég skal

segja þér allt, þegar þetta er búið.

Svo ók hann af stað.

Þetta var aðeins fárra minútna akstur,

og hann var enga stund að koma stúlkunnL

og barninu upp i bilinn.

Læknirinn var kominn, þegar þau komu

heim. Katrin hjálpaði stúlkunni i rúmið,

og læknirinn rannsakaði hana.

—  Þér vitið vist þegar, að þér hafið

eignazt fallegan, stóran strák sagði hann

vingjarnlega, en hafið þér nokkuð á móti

þvi að segja mér, hvers vegna hann fædd-

ist i skóginum?

Hún hristi höfuðið. — Ég hljóp út i

skóginn, þegar ég vissi, að það var að

byrja, sagði hún hægt. Ég vildi deyja, og

barnið átti að deyja. Ég var hrædd, en ég

er það ekki kngur.

—  Við hvað, spurði læknirinn.

Hún lokaði augunum, og tár hrundu af

hvörmum hennar.

—  Ég var hrædd við að vera ein með

barnið ...okkar. Ég þorði ekki að bera

ábyrgðina ein.

Læknirinn kinkaði kolli. — Faðir

barnsins hjálpar yður áreiðanlega. Mér

skilst, að þið séuð ekki gift.

Hún horfði á lækninn meðan hún

svaraði: — Faðir sonar mins hefði

hjálpað okkur... en hann getur það ekki...

hann er dáinn... i umferðarslysi fyrir

tveimur mánuðum.

—  Nú, þannig, sagði læknirinn lágt. Þá

skil ég, að þér hafið verið

örvæntingarfullar. En fjólskyldan?

Hún hristi höfuðið.

—  Nei, foreldrar minir dóu, þegar ég

var litil.

—  Veslingurinn, sagði læknirinn i

meðaumkunartón. En það er gott, að

Jörgensen skógareftirlitsmaður fann

yður og gat hjáipað. Ég verð vist að

leggja yður inn á sjúkrahúsið, svo þér fáið

þá umhyggju, sem þér þarfnizt.

—  Er það nauðsynlegt, læknir? spurði

rödd að baki hans.

Hann sneri sér við og' sá, að það voru

Jörgensen og Katrin, sem þar stóðu.

—  Ekki ef stúlkan getur fengið þá

umhyggju annars staðar.

—  Hana get ég veitt henni, sagði Katrin

ákveðinni röddu. Það lá við, að hún ýtti

lækninum til hliðar, er hún gekk að

rúminu og settist hjá stúlkunni.

—  Hvað heitir þú?

—  Anna Gréta Thomsen, svaraði

móðirin nýorðna.

Framhald af bls. 46.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48