¦¦¦; .-.-M: ,- » .. ¦: ... ', , .- \ . Tannhirðing barna: Aldrei of snemmt að læra ÞAÐ Hún er á leiðinni... Nánustu ættingj- ar eru látnir vita og þeir fjarskyldari frétta það einhvern veginn. Svo biða allir Sþenntir. Loksins kemur hún svo fyrsta tönnin. Þegar tekið er tillit til þess, hvað þetta er mikill atburður, einkum þegar um er að ræða fyrsta barnið er undarlegt hvað fyrsta tönnin og hinar sem á eftir koma, virðast skiþta litlu máli fyrir heimilisfólk- ið þegar fram i sækir. Ekki þannig að skilja, að venjulegt hreinlæti sé ekki i lagi. Tennurnar eru burstaðar reglulega og tannlæknirinn heimsóttur tvisvar á ári. En þetta gæti þó verið betra. Ar frá ári fjölgar skólabörnum með skemmdar tennur. En Inger Bay, sem er yfir skólatannlæknum i Kaupmannahöfn er á þeirri skoðun, að skólabörn með skemmdar tennur eigi alls ekki að þurfa að vera til. Hún segir, að foreldrar viti i rauninni allt of lítið um tannhirðingu og geti þar af leiðandi ekki kennt börnum sinum. En hvað er það þá, sem foreldrar eiga að vita? Að sykur og bakteriur i sameiningu valda þvi óhjákvæmilega, að tennur skemmast. Hvernig má það þá vera, að sum smábörn fá skemmdir i tennur en önnur ekki, þó að tannhirðing og mataræði sé eins. Það er viss sannleikur i þvi, þegar sagt er: ,,Ég hef þessar slæmu tennur frá honum þabba". Við fæðumst öll með mis- «1». Snw*, ~~ w». Jö