Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Heimilistķminn

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31 . . . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 1. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |

Ašalrit:

Tķminn


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Heimilistķminn

						hafi fært þeim litla systur eða litinn bróður,

meðan mamma þeirra er á fæðingardeildinni.

—  En ég vil einmitt, að Jón viti allt um þessa

hluti, sagði mamma. Ég ætla nefnilega að eiga

barnið heima, og þá verður Jón að vita bæði

eitt og annað um börn.

—  Ætlarðu að vera heima? stundi amma, og

svo leið yfir hana við simann. Amma er nefni-

Iega svo yfirliðagjörn.

Jón heyrði ömmu detta og hljóp fram i

forstofu að simanum. Hann lagði bara á, og svo

skvetti hann fullu vaskafati af isköldu vatni

yfir hana ömmu. Amma raknaði fljótt við sér,

og hún var reið og leið. Hún var nýkomin úr

lagningu, og nú var Jón búinn að skemma hár-

greiðsluna hennar. Svo að Jón fékk skammir,

og átti þær líka skildar. Hvað var hann að aug-

lýsa fréttina um nýja barnið strax? Mamma

vissi næstum ekki með vissu, hvort þau fengju

nýtt barn eða ekki!

Það virtist þó ætla að verða eitthvað úr

þessu. Maginn á mömmu varð alltaf stærri og

stærri. Jón hafði það á samvizkunni, að hann

hefði stungið upp á þessu. Hann hafði mömmu

helzt grunaða um að hafa borðað litið barn, þvi

að manna sagði, að litla barnið væri inni i

maganum á sér.

—  Heldurðu, að það sé strákur? spurði Jón.

—  Það veit ég ekki, fyrr en barnið kemur,

svaraði mamma.

—  Mig langar að fá strák, sem getur farið í

fótbolta með mér, sagði Jón ákveðinn.

—  Kannski verður það stelpa, sagði

mamma.

—  Oj, barasta, sagði Jón. Ég þoli ekki

stelpur. Jón var nefnilega að verða sjö ára, og

á þeim aldri þola strákar helzt ekki stelpur,

nema þær séu frænkur þeirra eða stórar góðar

nema pær séu frænkur þeirra eða stórar, góðar

systur, já og svo auðvitað mömmur. Hann fékk

hátiðlegt leyfi til að skreppa til ömmu, sem

vildi gjarnan hafa hann hjá sér. Henni þótti

bæði skemmtilegt að fá Jón i heimsókn, og svo

vildi hún, að mamma fengi hvild, á meðan

barnið væri inni i maganum á henni.

Amma hafði hitað súkkulaði og ristað brauð

handa Jóni, en hún sá það á svipnum á honum,

að honum lá eitthvað á hjarta.

—  Hvað er að, Jón minn? spurði amma,

þegar Jón hafði hesthúsað átta ristaðar brauð-

sneiðar og drukkið fimm glös af súkkulaði. Jón

þagði og smurði sér niundu brauðsneiðina og

setti allvæna ostsneið ofan á hana. Amma fór

að hugsa um það, hvað Jóni þætti gott að borða.

Hún vonaði, að litla barnið yrði ekki jafn-

matlystugt og Jón. Það myndi hreinlega éta

hana út á gaddinn. Amma mundi eftir

gamalli visu um Jóna, og visan hún er svona:

Stóri Jón er stundum eins og strá i vindi,

skelfur hann og skellur flatur, skemmtir

honum góður matur.

Jón smurði sneiðina sina vel og vandlega.

Hann fékk sér lika stóra og feita ostasneið ofan

á hana. Hann tuggði lengi og vandlega. Hann

fékk sér meira súkkulaði og kyngdi og kyngdi.

Amma bara beið og þagði. Ömmur læra það

með aldrinum, þvi að þær eru búnar að ala upp

svo mörg börn, og þær hafa nú haft hann afa

lika. Svo fá þær barnabörnin i heimsókn ár og

tið, og þau vilja frekar fá að tala en láta tala

við sig, ja, nema ef vera kynni, að litill krakki

segi: — Æ, segðu mér nú sögu. Og þess vegna

þagði amma og beið eftir þvi, að Jón talaði.

Þegar Jón hafði lokið siðasta munnbitanum og

drukkið dreggjarnar af súkkulaðinu, sagði

hann loks:

—  Heyrðu amma, borðaði hún mamma min

litlu systur mina og litla bróðir minn i einum

munnbita? Þá skellti amma upp úr.

—  Nei, vinurinn minn sagði hún. Barnið vex

bara inni i maganum á henni og stækkar.

—  Hvernig komst það þangað þá? spurði

Jón. Mamma segir, að þau pabbi hafi búið

barnið til.

—  Jón minn, sagði amma alvarleg. Guðs

vegir eru órannsakanlegir, og ég segi þér það

dagsatt, að hér hefur Guð átt hlut að máli.

—  Jæja, hugsaði Jón. Þá bjuggu pabbi og

mamma litla barnið til, en Guð fékk að hjálpa

svolitið. Annars var mamma skrýtin i þessum

stóru viðu kjólum, sem hún gekk alltaf i. Hún

var eins og stór kjötbolla. Hann kallaði hana

lika mömmu kjötbollu, og hvorki mamma né

pabba sögðu neitt við þvi. Þau hlógu bara að

honum. Pabbi sagði, að barnið i maganum

hennar mömmu ætti að heita litla lús, og hann

klappaði alltaf á magann á henni, þegar hann

fór i vinnuna á morgnana. Jóni fannst það

skrýtið, og hann talaði um þetta við ömmu.

—  Mamma var orðin öðruvisi en venjulega.

Það var eiginlega ekkert hægt að ræða við

hana. Hún var alltaf að fara i skoðun eða

sauma og prjóna á litla barnið. Amma sagði,

að mömmur yrðu svona yfirleitt, þegar þær

Framhald

42

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48