Heimilistíminn - 21.11.1974, Blaðsíða 32

Heimilistíminn - 21.11.1974, Blaðsíða 32
Það á ekki að leggja Karþagó í rústir — Um allan heim eru forminjar í hættu. Karþagó er gott dæmi um það sem gert er til að bjarga þeim. — Og að endingu legg ég til, að Karþagó verði lögð i rústjr. Fyrir túmlega 2000 árum var þessi setning gerð ódauðleg I rómversku öldungadeildinni og nú á siðustu árum, er hún komin á dagskrá aftur, en nú snýr hún öfugt. Nú á sem sé að varðveita Karþagó. Rústirnar, sem eftir standa af þessari rómversku stórborg á norðurströnd Afriku eru að molna niður. Það er UNESCO, menningar- og visindastofnun Sameinuðu þjóðanna, sem gert hefur miklar áætlanir um uppgröft og verndun rústa Karþagó næstu fimm árin. öll aðildarlönd Sþ hafa fengið boð um að greiða hluta kostnaðarins og fornleifa- fræðingar frá fjölda landa munu á næstu fimm árum streyma til Túnis til að grafa. Það mun kosta tugi milljóna króna að varðveita rústir Karþagó handa af- komendum okkar og framkvæmdirnar við það verða svo miklar að hægt verður að likja þeim við það sem gerðist i Egyptalandi, þegar Assúan-stiflan var reist. Þá þurfti að bjarga fjölda fornra mustera undan vatni og þar var UNESCO einnig að verki. Flóð er einnig ástæða fyrir björgun Karþagó, en það er annars konar flóð. fJtreikningar benda til að innan tiu ára hafi ibúafjöldi Túnis tvöfaldast og að sjálfsögðu verður aukningin mest umhverfis borgarrústirnar, þvi Karþagó er útborg höfuðborgarinnar, Túnis. Borgarrústirnar standa á svæði, sem liggur ákaflega vel við Miðjarðarhafinu og þar hafa risið upp glæsileg ferða- mannahótel á siðustu árum. Sérfræðingar UNESCO óttast að tekið verði að ryðja rústunum brott til að byggja fleiri hótel. Enn hefur litið sem ekkert verið grafið i mikinn hluta borgarrústanna og þykir sérfræðingum timi til kominn, að alþjóða samvinna myndist um að bjarga þvi sem bjargað verður. M.a. er fyrirhugað að nota visindalegar aðferðir til að stöðva eyðingu þeirra verðmæta, sem þegar hafa komið fram i dagsljósið. En það eru ekki aðeins náttúruöflin sem eyða rústunum i Karþagó. Varzla er heldur slæm og ferðamenn hika ekki við að brjóta sér stykki úr súlu eða húsvegg og taka með sér heim sem minjagrip. Fyrst útlendingar eru svona hrifnir af rústunum, þá er ekkert undarlegt þó heimamenn ráðist á rústirnar og selji útlendingum þær i smástykkjum. Stranglega hefur verið bannað að fjar- lægja svo mikið sem steinvölu úr rúst- unum, en það er þó gert i stórum stil og jafnframt á sér stað mikið svindl með minjagripi. Seljendur bjóða ferða- mönnum hiklaust og ,,I algjörum trúnaði” gamla peninga eða keramikbrot, sem þeir segja aðhafi fundizt i rústunum. Margt af þessu eru góðar falsanir og þarf venju- lega sérfræðinga til aö skera úr um að hlutirnir séu ekki „ekta”, En eins og öllum er kunnugt, vilja allir láta gabba sig og þvi gengur sala „minjagripanna” alveg skinandi vel. 32

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.