Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

NT

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 . . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 95. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |

Ašalrit:

Tķminn


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



NT

						

I

Þriðjudagur 24. apríl 1984 2

Jóhanna

Tryggvadóttir

forstjóri

Heilsuræktar-

innar í Glæsi-

bæ:

Matarlaus

í mánuð

„Drekk soðið vatn með örlítilli mjólk út í og ekkert annað"

¦ Jóhanna Tryggvadóttir for-

stjóri Heilsuræktarinnar í

Glæsibæ er enn uppistandandi

og með ólíkindum hress þrátt

lyrir nær mánaðarlangt svclti.

Ilun hefur verið í hungurverk-

falli síðan 29. mars. Ég reyni að

hugsa   sem   minnst   um   það

hvemig mér líður, sagði hún í

gær, þegar NT spurði hana um

líðanina

Næristu á einhverju?

- Ég drekk soðið vatn með

örlítilli mjólk útí, ekkert annað.

Ég ætla að halda þessu áfram

þangað til égsigra kallana. Ekki

var á henni að heyra að neitt

þokaðist í samkomulagsátt milli

hennar og borgaryfirvalda. Hún

sagði það hörmulegt hvað nú-

verandi ráðamenn borgarinnar

skorti mikið skilning á málefn-

um heilsuræktarinnar.

- Alvar Alto hreifst hins veg-

ar svo af hugmyndinni um sam-

norræna heilsuræktarstöð fyrir

alla aldursflokka að hann teikn-

aði það hús sem ég vil nú láta

reisa, sagði Jóhanna Tryggva-

dóttir.

¦   Árni Johnsen

Gatið er

„albert"

¦    ÁrnikarlinnJohnsengetur

fleira en svarað fyrir sig að

sjómannasið. í góðra vina hópi

á þingi sunnlenskra sveitarfé-

laga fyrir skemmstu útskýrði

hann fjárlagagatið hans Al-

berts vafalítið að „sjómanna-

sið".

Göt eru misgóð sagði Árni. ¦

Þau sem eru loðin og teygjan-

leg eru afskaplega indæl. En

þessu er öðruvísi farið með gat

ríkisstjórnarinnar, það er ekk-

ert loðið heldur bara „albert"

Viðskiptastríð

í fámenninu!!

¦    Það þarf ekki neina risa

eins og Miklagarð og Hagkaup

til að heyja hið harðasta við-

skiptastríð. Eitt slíkt stríð er

nú sagt hafið á Laugabakka í

Miðfirði, rúmlega 100 manna

byggðakjarna í V-Hún., milli

fyrirtækja sem gamansamir

Húnvetningar hafa gefið nöfn-

in Eiríkskjör og Tröllagarður

(í stíl við Miklagarð).

Á Laugabakka hefur maður

að nafni Karl rekið Essó bensín-

stöð og svolitla sjoppu um

árabil og minnast Dropar þess

að heyra í viðtali við hann í

útvarpinu í fyrrasumar að við-

skiptin væru heldur lítil, enda

staðurinn fámennur. Að Karli

gengnum skrifaði þó hrepps-

nefndin Kaupféiaginu á

Hvammstanga og vildi fá það

til að koma upp útibúi á

staðnum. . Kaupfélagsmenn

voru seinir til svara þar sem

þeir töldu einsýnt að slíkt úti-

bú yrði aldrei rekið nema með

stórtapi.

Einn stjórnarmanna kaup-

fclagsins sá sér hins vegar leik

á borði, hélt til Reykjavíkur

og samdi við Essókónganá um

rekstur sjoppunnar. Auk

venjulegs sjoppuvarnings selur

hann nú í Eiríkskjöri nokkrar

brýnustu nauðsynjar svo sem

mjólk, brauð, tannkrem og

dömubindi, sem hann fær frá

Kaupfélaginu á Hvamms-

tanga.

Húnverskir hreppsnefndar-

menn bæru ekki nafn með

rentu létu þeir sigra sig svo auð-

veldlega, enda vilja slíkir

venjulega láta nokkuð eftir sig

liggja. Höfðu þeir hið snarasta

samband við Olískóngana í

Reykjavík, sem brugðu við

skjótt og létu hvorki stórhríðir

né frosthörkur á Porra hamla

sér frá að hefja gröft fyrir

nýjum Olístanki um 50 metra

frá Essótankinum á Lauga-

bakka. Þarna í Tröllagarði eru

nú auk tanksins risnir tveir

myndarlegir Olísskúrar þar

sem m.a. eru seldir vinnugall-

ar, vasahnífar, derhúfur og

fleira góss, allt sagt á góðu

verði og að sjálfsögðu merkt

Olís. Er nú svo komið að

Vestur-Húnvetningar sjást

vart búnir öðru en Olísgöllum

nema kannski einstaka sann-

kristnir Framsóknarbændur.

Tröllagarðskonur eru hins veg-

ar heldur sárar út í þjónustuna

ennþá, þar sem þeirra mánað-

arlega nauðsynjavara mun

ekki enn á vörulista Olís. Að

leita á náðir Eiríkskjörs gera

þær örugglega ekki fyrr en í

fulla hnefana svo annað hvort

er talið að þær muni nú í

hópum ráðast í barneignir hið

snarasta eða reyna að breyta

gangi náttúrunnar á einhvern

hátt.

Andlitslyfting

á Þjóðviljanum

¦ J>að eru fleiri en Tíminn

sem taka stakkaskiptum þessa

dagana, því Dropar heyra að

einmitt þessa dagana sé Þjóð-

viljinn   á   teikniborðinu   hjá

¦   Gísli B. Björnsson

Auglýsingastofu Gísla B.

Björnssonar. Stendur til að

gera verulega uppstokkun á

efni og útliti blaðsins, þó áfram

eigi það að þjóna Alþýðu-

bandalaginu dyggilega nú sem

fyrr. Eina sem vitað er er að

útsíðurnar eiga að vera kjurrar

á sínum stað, en aðra hluti á

eftir að fastsetja.

Erfið ráðn-

ing prests

¦ Eitt af erfiðustu hlutverk-

um hverrar kirkju er að kalla

góðan prest til starfa. Sóknar-

nefndarmaður nokkur, sem

staðið hafði í ströngu í þessum

efnum missti loks þolinmæð-

ina. Hann sá hvernig umsækj-

endunum var hafnað, hverjum

á eftir öðrum, vegna einhvers

sem hægt var að finna að þeim.

Loks stóð hann upp á sóknar-

nefndarfundi og las upphátt

bréf frá enn einum umsækj-

andanum.

í"ar stóð m.a.: „Mér skilst

að ykkur vanti prest. Mig lang-

ar til að sækja um stöðuna. Ég

er gæddur mörgum góðum eig-

inleikum. Ég hef predikað

lengi og hlotið mikið lof fyrir...

Ég er rúmlega fimmtugur að

aldri og hef aldrei predikað

samfleytt á neinum stað lengur

en þrjú ár. Sums staðar hef ég

horfið á braut eftir að hafa

komið af stað óeirðum og deil-

um. Ég verð að viðurkenna að

ég hef verið í fangelsi 3svar til

4 sinnum, samt ekki vegna

glæpsamlegs athæfis að ég

tel... Mér hefur aldrei samið

vel við trúarleiðtoga á þeim

svæðum sem ég hef dvalið á...

Að halda kirkjubækur er ekki

mín sérstaka hlið. Ég man t.d.

ekkí alltaf eftir þeim sem ég

hef skírt. Ef þið hafið þörf

fyrir mig mun ég gera mitt

.besta."

Sóknarnefndarmaðurinn

leit á hina og spurði: „Hvað

finnst ykkur? Eigum við að

kalla hann til starfa?"

Hinir frómu safnaðar-

leiðtogar voru bálreiðir. Að

kalla sjúkling, vandræðagepil,

tugthúslim, sem þar að auki

væri viðutan! Var sóknar-

nefndarmaðurinn orðinn rugl-

aður? Hvaða maður var þetta?

Hvernig dirfðist hann að sækja

um?

Sóknarnefndarmaðurinn

leit  í kringum sig og sagði

síðan: „Bréfið er undirritað:

Páll postuli."

¦ Ekki var hægt að sjá að tæplega eins mánaðar næringarskortur

væri farinn að hafa áhrif á Jóhönnu Tryggvadóttur í gær þegar

Ijósmyndari NT smellti þessari mynd af henni.

Við ákváðum að

verða kaþólskar

Tvær systur, 9 og 10 ára skírðar við

kaþólska messu á páskanótt

¦ „Pabbi og mamma vildu

láta okkur ráða hvort við yrðum

kaþólskar eða lúterskar, og við

ákváðum að verða kaþólskar."

Þetta sagði Harpa Katrín

Gísladóttir, 10 ára, í samtali við

NT, en Harpa Katrín og systir

hennar, Ásta Sif Theódóra 9

ára, voru skírðar við messu í

Landakotskirkju á páskanótt.

Það var kaþólski biskupinn á

íslandi, Hendrik Frehen, sem

framkvæmdi skírnina.

Harpa Katrín sagði, að það

hefði verið ágætt að láta skíra

sig, þó að hún væri orðin þetta

gömul, en það hefði kannski

verið svolítið skrítið, og hún

bætti við, að nú ætluðu þær

systur í messu á hverjum sunn-

udegi.

Foreldrar þeirra Hörpu og

Ástu heita Katrín Theódórs-

dóttir og Gísli Sigurðsson.

¦  Kuþólski biskupinn skírir Hörpu Katrínu Gísladóttur við messu á páskanótt.

Ásta Sif Theódóra systir hennar liorfír á.

NT-mynd Sverrir

(gte)plötubúdin

r^ therecordshoppe

Laugavegi 20 Sími 20181

*  Fyrstir með nýjar plötur

*  Gott úrval af litlum

*  Gottúrvalaf 12" plötum

*  Gott úrval af nýjum stórum plötum

Sérpöntum allar fáanlegar: Popp-

Rock - Diskó og millimúsík plötur.

Sendum í póstkröfu

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 24
Blašsķša 24