Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

NT

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 . . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 95. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |

Ašalrit:

Tķminn


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



NT

						ia:

Þriðjudagur 24. apríl 1984    |

Sj^rnrstrf^steilcritic*

Stutt - einfalt

en ekkert meir

¦ Matreiðslunámskeiðið.

Sjónvarpsleikrit eftir Kjartan

Ragnarsson. Leikstjóri: Kjart-

an Ragnarsson. Aðalhlutverk:

Gísli Halldórsson, Guðrún

Ásmundsdóttir, Guðmundur

Pálsson, Valur Gíslason,

Steindór Hjörleifsson, Valdi-

mar Helgason, Jón O. Orms-

son og Órn Árnason. Leik-

mynd: Snorri Sveinn Friðriks-

son. Myndataka: Ómar Magn-

ússon.   Hljóð:   Baldur   Már

Arngrímsson. Lýsing: Ingvi

Hjörleifsson. Tónlist: Sigurður

Rúnar Jónsson. Stjórn upp-

töku: Viðar Víkingsson.

Neyðin kennir víst naktri

konu að spinna, en fáar sögur

fara af því, að hún kenni

miðaldra karlmönnum að

kokka. Eina ráðið er því að

drífa sig á matreiðslunám-

skeið.

Leikrit Kjartans Ragnars-

sonar, sem sjónvarpið sýndi í

gærkvöldi greinir frá sex full-

orðnum karlmönnum, sem

hafa hver sína ástæðu fyrir

því að fara á námskeið í

eldamennsku. Sumir eru ein-

stæðingar, aðrir vilja komast í

takt við tímann og geta hjálpað

eiginkonunni í eldhúsinu.

Námskeiðinu stjórnar svo

matreiðslukennarinn Magnea.

Matreiðslunámskeiðið mun

vera eitt þriggja leikrita, sem

sjónvarpíð valdi úr hópi 20,

stwmtmvtM

SOLUBOÐ

LENI

ELDHUS-

RULLUR

W

IVA

frígg ÞVOTTAEFNI 2,3 kg

W

ÞVOL

frYgg ÞVOTTALÖGUR1/2 fI

TOMATSOSA

500 gr

O0fl[S SINNEP500gr

KORNIHROKKBRAUÐ

250 gr

L.vöruverð í lágmarki

Osvikin kátína

og hlátrasköll

- þegar rætt var um kjarnorku-

árás á ísland á föstudaginn langa

Kjarnorkuvetur,

geislavirkt úrfellí, hör-

undsbruni, dauði og skelf-

ing voru á dagskrá friðar-

viku '84 á föstudaginn

langa í Norræna húsinu.

Samkoman sem hér um

ræðir var haldin á vegum

Samtaka lækna gegn

kjarnorkuvá og Samtaka

eðlisfræðinga gegn kjarn-

orkuvá.           Asmundur

Brekkan var fundarstjóri

og hóf dagskrána með því

að ræða nokkuð um alvöru

þessa dags, lýsti því síðan

yfir að þetta yrði engin

skemmtisamkoma. Raun-

in varð líka sú að alvöru-

svipurinn á andlitum sam-

komugesta var í full-

komnu samræmi við um-

ræðuefni daesins.

Eina undantekningin

var erindi Guðjóns

Magnússonar, aðstoðar

landlæknis, en lýsing hans

á því hvaða nefndir og ráð

þyrfti að kalla saman á

u.þ.b. 5-10 mínútum í

upphafi kjarnorkustyrj-

aldar, vakti ósvikna ká-

tínu samkomugesta. Kvað

svo rammt að hlátrasköll-

unum undir erindi Guð-

jóns að Ásmundur sá sig

tilknúinn að „þakka Óm-

ari Ragnarssyni" fyrir

skemmtunina að því

loknu.

Það sem virtist þó vekja

mesta athygli á dagskrá

þessari voru lýsingar

nokkurra ræðumanna,

einkum Páls Bergþórsson-

ar á fimbulvetri þeim hin-

um mikla sem fylgja

myndi í kjölfar kjarn-

orkustyrjaldar. Kjarn-

orkuvetur þessi skapast af

gífurlegum reykjarmekki

sem hylja mun allt norður-

hvel jarðarinnar fyrstu

mánuðina eftir sprenging-

arnar og alla þá vítisbruna

sem þeim fylgja. Reykjar-

mökkinn kvað Páll myndi

verða svo mikinn að vöxt-

um að hann myndi útiloka

stóran hluta sólarljóssins

og þannig valda vetrar-

•hörkum, engu síður þótt

kjarnorkustyrjöldin yrði

að sumarlagi.

í NT á morgun verður

nánar sagt frá Friðarviku

'84.

Þorsteinn Vilhjálmsson útskýrir hlutföll efnis og orku.

NT-mynd Róbert

Gekk glimrandi vel

Ferðaklúbburinn 4x4 fór norður

fyrir Hofsjökul á jeppum

¦ Ferðaklúbburinn 4x4

braut blað í jeppaferðum

um hálendi landsins yfir

páskahátíðina. Um 25

manna hópur fór á 12

jeppum frá Hvera-

völlum, norður fyrir Hofs-

jökul, inn á Sprengisands-

leið við Tungnafellsjökul,

í    Nýjadal    og    þaðan

Sprengisand niður í Sig-

öldu, alls um 600 km leið.

Var það í fyrsta sinn, sem

slíkt hefur verið gert.

„Ferðin heppnaðist

glimrandi vel," sagði Haf-

þór Ferdinandsson, einn

leiðangursmanna, við NT.

Hafþór sagði, að engir

óvæntir erfiðleikar hefðu

komið upp. Veður hefði

verið gott, nema hvað

snjókoma og dimmviðri

hefðu verið á Sprengi-

sandsleið. Pá hefðu menn

bara keyrt eftir kompás og

loran-C. „Við erum það

vanir svona ferðum, að

það kemur okkur ekkert

á óvart," sagði Hafþór.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 24
Blašsķša 24