Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

NT

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 . . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 95. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |

Ašalrit:

Tķminn


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



NT

						Þriðjudagur 24. apríl 1984      10

/>% KRISTJfif)

SIGGEIRSSOn HF.

m

LAUGAVEGI KS. REYKJAVIK. SIMI 25870

STIGIÐI

VITIÐ

í Nokia stígvéíum

er óhætt að bjóða bleytu

og snjó byrgínn.

Nokia stígvéí

eru þrælsterk og þolín,

og þau endast

von úr vítí.

Það er því vít í að kaupa

Nokia stígvél.

Handunnin

gæðavara frá Finnlandi

IMOKIA

JT

¦ Sveit Jóns Hjaltasonar med Islandsbikarinn. Frá vinstri eru Jón Hjaltason, Símon Símonarson, Jón Ásbjörnsson og

Hörður Arnþórsson en Þóri Sigurðsson vantar á myndina. Þess má geta að Jón Hjaltason gaf þennan farandgrip á sínum

tíma og það fór vel á að hans sveit ynni þetta íslandsmót því nú er ekki pláss fyrir fieiri nafnskildi á fæti bikarsins.

NTmyndGSH.

Sveit Jóns Hjaltasonar vann íslandsbikarinn í bridge:

Hjátrúin bannaði

böð og fataskipti

¦ „Viðstaddir verða að

afsaka hvað við erum illa

til hafðir en við erum

hjátrúarfullir og þess-

vegna var stranglega

bannað að fara í bað í

morgun og skipta um föt",

sagði Jón Hjaltason þegar

hann tók við íslandsbik-

arnum fyrir hönd sveitar

sinnar sem varð Islands-

tneistari í bridge á pá-

skadag.

Sveit Jóns endaði með

115 stig, 22 stigum fyrir

ofan sveit Runólfs Páls-

sonar sem varð í öðru sæti

með 93 stig. í þriðja sæti

varó sveit Þórarins Sig-

þórssonar einnig með 93

stig en hafði tapað inn-

byrðisleik fyrir sveit

Runólfs. Með Jóni Hjalt-

asyni spiiuðu í sveitinni

Hörður Arnþórsson,

Símon Símonarson, Jón

Ásbjörnsson og Þórir Sig-

urðsson.

Strax í fyrstu umferð

mótsins voru teikn á lofti

um úrslitin þegar sveit

Jóns fékk 20 stig meðan

sveit Þórarins tapaði 2-18

fyrir sveit Ármanns J. Lár-

ussonar en fyrirfram var

búist við að keppnin um

íslandsmeistaratitilinn

yrði milli þessara sveita.

Jón hélt síðan forustunni

til loka mótsins, tapaði

aðeins fyrir sveit Þórarins

13-7. Þrátt fyrir það átti

Þórarinn smá möguleika

fyrir síðustu umferðina ef

hann ynni sinn leik hreint

meðan Jón tapaði sínum

leik 6-14. Þetta gekk þó

ekki eftir þar sem Jón

fékk 20 stig í sínum leik en

Þórarinn aðeins 12. Run-

ólfur vann síðan sinn leik

með 20 stigum og komst

um leið upp að Þórarni.

Flensan sem er að ganga

í Reykjavík setti mark sitt

á þetta mót og hjó skörð í

raðir spilaranna. Á tfma-

bili voru tveir spilarar for-

fallaðir í sveit Þórarins og

Jón Hjaltason þurfti einn-

ig sjálfur að láta í minni

pokann og lúta í lægra

haldi fyrir flensunni á

tímabili.

Sú sveit sem mesta at-

hygli vakti á mótinu yar

tvímælalaust sveit Ás-

gríms Sigurbjörnssonar

frá Siglufirði. I sveitinni

spila 4 bræður og þeir hafa

sýnt það áður að þeir eru

samkeppnisfærir þó þeir

hafi ekki spilað í úrslitum

Islandsmótsins fyrr. Eftir

fjórar umferðir af 7 hafði

sveitin unnið alla sína leiki

og var þá í öðru sæti. í

þrem síðustu Ieikjunum

þurftu bræðurnir að spila

við sveitir Jóns, Runólfs

og Þórarins og urðu að

sætta sig við stór töp.

Sveitin endaði samt sem

áður í 5. sæti með 57 stig.

„Gæti farið

að gjósa á

þessu ári"

- segir Ari Trausti Guðmundsson

um skjálftavirknina í Grímsvötnum

¦ Skjálftavirkni liel'ur

aukist á ný í Gríms-

vötnum.\ NT hafði sam-

band við Ara Trausta

Guðmundsson jarðfræð-

ing og fékk hjá honum

ýmsar upplýsingar um

málið.

Ari sagði að upptök

skjálftanna hefðu færst í

vestur, og skjálftunum

hefði fjölgað. Þetta mætti

túlka sem svo að kviku-

þrýstingur í kvikuhólfi

sem þarna væri undir væri

að aukast, og gæti það

hugsanlega endað með

nýju gosi. Yrði það þá á

þessu ári. Ekkert væri þó

hægt að slá föstu um

þetta, kvikuflæðið gæti

hætt skyndilega og ekkert

meira gerst. Ef færi að

gjósa mundi það koma

fram sem tíðirsmáskjálft-

ar.

Fylgst cr með skjálft-

unum.sem eru af stærð-

argráðunni 1 til tveir og

hálfur á Richter með

mælum við Grímsvötn.

Þessir mælar eru sjálfrit-

andi og knúnir af rafstöð

sem framleiðir rafmagn

úr hverahita. Hitanum er

breytt með sérstökum

varmaskipti í rafmagn,

,sem knýr skjálftamælinn

¦ Ari Trausti Guðmundsson

og litla sendistöð sem

sendir niðurstöðurnar

niður í Skaftafell.

Athuganir á skjálfta-

virkni í kvikuþróm hefur

verið að byggjast upp eft-

ir Kröfluelda, og er nú

fylgst með Kröflu,

Grímsvötnum, Kötlu og

Heklu, en vandræði hafa

verið með Heklumælana

sökum tíðra bilana.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 24
Blašsķša 24