Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

NT

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 . . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 95. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |

Ašalrit:

Tķminn


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



NT

						MEGRUmR

MRAMHJA?

RUGL?

En eí hún dregur úr matgrœðgi, hvaó þá?

llTIL WmMEUA

MIKILÁHRIF

„Ég er svangur" segir heilinn þegar blóðsykur minnkar

í likamanum, t.d. þegar dregur að nœsta matartíma.

Ayds moli eykur blóðsykurinn á ný og heilinn hœttir aó kvarta.

En Ayds molinn er ekkert lyí, hvað þá undralyí.

Honum er aðeins œtlað að draga úr

hungurtilíinningu þinni og hjálpa þannig upp á

viljastyrkinn svo þú látir þér minni

matarskammt nœgja.

JÁ,ENERUEMI

KARAMELLUR flWTDl?

í hverjum Ayds mola eru aóeins 25 hitaeiningar.

Það er allt og sumt, auk auðvitað A, B^ og B2 vítamína,

niacins, kalsíums, íosíórs og jórns; því íólk í megrun

þarí á bœtieínum að halda.

EMIrHÐAST

ÁBAÐVOGIMrW

Eigirðu í basli með vigtarskömmina þá íáðu þér

Ayds mola, einn eða tvo, hálítím^ fyrir hverja máltíð

og drekktu eitthvað heitt með þeim.

FÆST í ÖLLUM APÓTEKUM.

HHPS R£ TRAlN

VOUff APPETIÍf

/SLiMMlNG

rPLAN

TWO WEEK^

SUPPLY

VTTAMINAND MINEfiAl

ENR/CHE D CHBWY CUBf:

GSCALCm&P&tCtM-1

105 KltOjOUtfSJ

A fOOD SUm£M£NT

ONty effktiví

AS PART OfACAtöRiE-

CONTROUED DIET

soít cam fiAVOus

HftPSRE TFtM

YOUR APf'íTIK

/SLiMMil

fPLAN

TWO WBE

SUPPLY

VITAMiN ANO MINER.

ENRICHED CHEWY Cl.

fáSCALORIESPERCUl

105 KltQiOUtB;

A FOOD SUPPLEMEN

ONLY EfFECTIVE

AS PARTOFA CALOR.

CONTRQUfD DífT

HELPS RE-THAIN

YOUR APPETITE,

SLIMMING

'PLAN

TWO WEEKS

SUPPLY

VfTAM!NANOM!NERAl

ENfUCHEDCHEWYCUBES

{25CALORIESPERCWE-

105 KILOJOUiES)

AfOODSUPPLEMENT   ¦

ONLY EFFECTIVE

ASPARTOFACALORIE-

CONTROLLED DIET

Þriðjudagur 24. apríi 1984    12

hei

Jón Isberg, sýslumaður,

sextugur 24. apríl 1984

¦ Á sumardaginn fyrsta fyrir sextíu árum

mun Jón ísberg, sýslumaður þeirra Hún-

vetninga, hafa fyrst litið þennan heim. Nú

vill svo til, að þessum tímamótum í ævi

Jóns ísberg, ber ekki saman, sumarkom-

unni og afmælisdeginum. Húnvetningar

eru stórir í sér, því segir hugur mér, að

afmælisfagnaðurinn fylgi sumarkomunni.

Það er ekki eingöngu tilviljun að ævi-

skeið Jóns ísberg tengist sumarkomu, sem

að jafnaði boðar bjartsýni um breyttan og

bættan hag. Þetta eru tímamót þegar menn

búast til stórræða, sem oft skipta sköpum í

bráð og lengd. Ekkert tímaskeið í hringrás

árstíðanna einkennir betur manninn Jón

ísberg, vilja hans og lífsviðhorf sem skipar

honum frekar sess en margt annað. Það er

framkvæmdaþráin og hin vakandi hug-

myndaauðgi, en ekki síst áræðið, ásamt

hlífðarlausum dugnaði sem gerir hann

ómetanlegan, þegar til stórræðanna kemur.

Því er ekki að leyna, að það fór miður að

Jón ísberg skyldi ekki á unga aldri helga

krafta sína viðfangsefnum afhafnalífs og

viðskipta. Hann hefði sómt sér vel í hópi

umfangsmikilla iðnrekenda, þar sem stóru

hlutirnir gerast og athafnaþráin finnur

rétta farvegi og verkin tala méira mál, en

umbúðamennska sérfróðra falsspámanna,

sem telja að kerfismennska og skýrsluvað-

all sé til alls fyrst.

Jón ísberg er tengdur sinni heimaslóð

fastari böndum en almennt gerist. Hann

tók þann kostinn að ganga embættisveginn

og taka við grónu hlutverki héraðshöfðingja og

sýslumannsembætti föður síns, Guðbrand-

ar ísberg. í höndum Jóns hefur sýslumanns-

starfið orðið annað og meira en að sinna

lagaþrasi og innheimtustörfum, sem fram-

kvæmdastjórastarf þeirra verkefna í sýsl-

unni, sem sameinaði Húnvetninga um

lausn eigin mála, og ól með þeim héraðs-

metnað. Auk þessa bætti hann við sig

umfangsmiklu oddvitastarfi á Blönduósi á

umbrotatímum með stórframkvæmdum.

Blönduós óx á þessum árum að mannfjölda

mun meir en almennt gerðist í landinu og

hefur nú náð þeirri íbúatölu sem gerir

staðinn gjaldgengan sem kaupstað. Með

forystu sinni í sveitarmálum tókst honum

að virkja stærsta sveitarfélagið í austursýsi-

unni til stærri átaka í samstarfi við aðra

hreppa en ella var mögulegt, með því að

gera hinn órtvaxandi Blönduóshrepp að

samstarfsaðila við sýsluna um lausn fram-

kvæmdaverkefna, auk venjulegrar þátt-

töku Blönduóss að sýslunefnd.

Á sviði atvinnumála braust út athafna-

þrá Jóns. Hann átti hlut að fleiru en einu

fyrirtæki, en mest fór fyrir forystu hans í

plastiðnaðinum. Austur á Seyðisfirði var

föl verksmiðjuskemma í eigu bankanna.

Skemma þessi var flutt til Blönduóss og gerð

að iðngörðum. Allt gekk þetta fyrir sig með

þeim hraða, sem aðeins fáum mönnum er

lagið. Svo fór að upp úr rækjustríðinu við

Húnaflóa komst Blðnduós í tölu sjávar-

staða, meðeigin rækjuvinnslu. Næstu stór-

átök þeirra Húnvetninga er uppbygging

stærri iðnaðar í kjölfar Blönduvirkjunar.

Jón ísberg var óragur við að berjast fyrir

Blönduvirkjun. Hann er manna líklegastur

að vera í fylkingarbrjósti þeirra manna,

sem hugsa til stórræða að nýta Blöndu

heima í héraði.

Leiðir okkar Jóns ísberg lágu fyrst saman

1965, þegar ég á minni bæjarstjóratíð á

Húsavík beitti mér fyrir atvinnumálaráð-

stefnu norðlenskra byggða. Jón Isberg var

fundarstjóri þessarar ráðstefnu og sýndi

sem oftar að þar gekk röskur maður að

verki. Næst lágu leiðir okkar saman þegar

ég í árslok 1966 ferðaðist um Norðuríand

til að ræða við sveitarstjórnarmenn um

samstarf norðlenskra byggða og um fram-

tíðarhlutverk Fjórðungssambands Norð-

lendinga. Síðar lágu leiðir okkar saman á

Fjórðungsþingum og þar kynntist ég sam-

starfsvilja hans og áhuga fyrir sem breið-

astri samstöðu Norðlendinga. Hann var

formaður sambandsins, þegar ég tók við

starfi framkvæmdastjóra á vordögum 1971.

Allar götur síðan hefur hann átt sæti í

fjórðungsstjórn og fjórðungsráði og verið

einn af burðarásum í norðlensku samstarfi.

Á hættustundu um stöðu Fjórðungssam-

bands Norðlendinga snérist hann gegn

þeim öflum, sem í pólitískri skammsýni um

tilgang og eðli þess samstarfs sem samband-

ið er grundvallað á, vildu kljúfa það og þar

með sundra kröftum þess. Lóð hans vóg

þungt á þeirri vogarskál.

Jón er fulltrúi þeirra viðhorfa að hin

hefðbundnu héruð, sýslufélögin fái aukið

sjálfræði um framkvæmd héraðsmálefna.

Sýslurnar verði efldar með aukinni valda-

tilfærslu og fari með aukna héraðsstjórn.

Heildarsamstarf í Fjórðungssambandi

Norðlendinga byggist á samstillingu krafta

í meginmálum til sóknar og varnar, sem

grundvallist á jafnvægi milli héraðanna, en

ekki forræði heildarsamtaka um innri mál

héraða og sveitarfélaga. Þetta eru boðorð

Jóns ísberg. í þeim felst sú meginlína, sem

einkennir starfsemi Fjórðungssambands

Norðlendinga. Það er mikil gifta að hafa •

notið starfs Jóns ísberg í starfi sambands-

ins. Hann gengur umbúðalaust til verka.

Gagnrýninn þegar við á, en sá vinnur er til

vamms segir. Slíkir menn eru ómetanlegir

í málefnalegu samstarfi. Ég vil ekki ljúka

svo skrifi þessu að ég færi Jóni ekki þakkir

^samtaka þeirra, sem ég starfa fyrir og árna

honum allra heilla á þessum tímamótum.

Það kemur dagur eftir þennan dag. Það er

! trú mín að Jón muni um ókomin ár starfa,

' sem liðsoddi að málefnum Fjórðungssam-

bands Norðlendinga.

Áskell Einarsson.

Sérstök áskrift að

íslendingaþáttunum

- minningar - og af mælisgreinar birtar daglega.

¦ Framvegis verða afmælis- og minningargreinar birtar í blaðinu daglega, en

hætt verður vikulegri útgáfu íslendingaþátta eins og veríð hefur. í stað þess

hefur verið ákveðið að gefa út íslendingaþætti sjaldnar en efnismeiri, og bjóða

þá í sérstakri áskrift til þeirra sem áhuga hafa. Áhugafólk um íslendingaþættina

er beðið um að láta skrá sig niður á afgreiðslu blaðsins, Síðumúla 15,

Reykjavík, eða í síma 86300.

rítstj.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 24
Blašsķša 24