Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

NT

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 . . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 95. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |

Ašalrit:

Tķminn


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



NT

						.... ... :..   .    .

^s^BBP^ZZ^

Þiiðjudagur 24. april 1984   15

¦ Allt á fullu á ritstjóm-

arskrifstofum NT í morg-

un, þegar unnið var við að

leggja síðustu hönd á

fyrsta NT blaðið. Húsnæði

blaðsins hefur verið gjör-

breytt og endurskipulagt

í samræmi við þarf ir nýrra

tíma.

NT mynd: Róbert

ugnum

in, þau Heiður Helgadóttir,

Skafti Jónsson, Guðmundur

Sv. Hermannsson og Jón

Guðni Kristjánsson hafa nú

þegar fengið mikinn liðsauka

og fleiri eru á leiðinni. Að

undanförnu hafa fimm blaða-

menn hafið störf í deildinni:

Guðlaugur Bergmundsson,

fyrrum blaðamaður á Helgar-

póstinum og Dagblaðinu, Jón

Daníelsson, fyrrum ritstjóri

Norðurlands og útvarpsmaður

í Svíþjóð, Árni Daníel Jú-

líusson, áður á Vikunni og

Bjarni Harðarson, fyrrum rit-

stjóri Stúdentablaðsins. Þá

hefur Gunnar E. Kvaran, fjöl-

miðlafræðingur og fyrrum

fréttamaður á ríkisútvarpinu

hafið störf á blaðinu. Gunnar

mun gegna störfum á NT sem

deskstjóri. f>á má nefna, að

hinn þekkti skákmaður, Helgi

Ólafsson, verður skákdálka-

höfundur NT.

Sem fyrr munu þær Bjarg-

hildur Stefánsdóttir og Kristín

Leifsdóttir sjá um margvíslegt

innblaðsefni í blaðinu.

Atli Magnússon hefur fyrir

nokkru fengið Jón Ársæl

Þórðarson til liðs við sig hvað

helgarblað NT varðar. Þeir

félagar eiga svo von á liðsauka.

í íþróttadeildinni á sér stað

sú bylting, að íþróttafrétta-

maður blaðsins, Samúel Örn

Erlingsson, fær tvo í deildina

til viðbótar. Annar þeirra,

Björn Leósson körfuknatt-

leiksmaður, hefur þegar hafið

störf.

Oddur Ólafsson, sem nú

tekur við erlendu fréttadeild-

inni fær Ragnar Baldursson til

liðs við sig. Ragnar er mörgum

kunnur fyrir skrif sín um kín-

versk og japönsk málefni, enda

bjó hann í þeim heimshhita

um árabil.

Ljósmyndadeildin yerður

undir stjórn Róberts Ágústs-

sonar. Deildin á von á liðs-

auka, en þar eru nú fyrir þau

Árni   Sæberg,   Sverrir   Vil-

helmsson og Eygló Stefáns-

dóttir með myndasafnið. Guð-

jón Einarsson, sem áður var

yfir deildinni hefur tekið við

starfi sem skrifstofustjóri rit-

stjórnar.

í þessari upptalningu hafa

ekki verið taldir þeir fjölmörgu

fréttaritarar innanlands sem

utan, er munu tengjast frétta-

skrifum blaðsins' beint jafnt

sem óbeint.

Ritstjórar blaðsins verða

þeir Magnús Ólafsson og Þór-

arinn Þórarinsson og frétta-

stjóri Kristinn Hallgrímsson.

Lúrir þú á frétt?

Síðast af öllum verða mikil-

vægustu ritstjórnarmeðlimir

NT taldir upp, en það eru

lesendur blaðsins og aðrir

landsmenn. Til að auðvelda

þeim leikinn við að koma frétt-

um á framfæri bjóðum við

landsmönnum upp á að hringja

inn þær fréttir og hugmyndir

að fréttum, sem þeir kynnu að

lúra á. Við á ritstjórn NT

munum síðan vinna úr upplýs-

ingum ykkar og koma á fram-

færi. Við leggjum mikla

áherslu á, að farið verður með

nöfn þessa fréttamanna okkar

sem fyllsta trúnaðarmál. Til að

bæta ykkur upp fyrirhöfnina

og hugmyndaríkið veitum við

ykkur 1000 króna þóknun fyrir

hverja birta frétt og frétt mán-

aðarins er verðlaunuð með

myndarlegri upphæð sem

hvern munar um, þ.e. heilar

tíu   þúsund   krónur   (10.000)-

Svo skemmtilega vill til, að

Dagblaðið hrinti nýlega svip-

aðri hugmynd af stað. „Ein-

kennileg tilviljun," sögðu

sumir, sem vissu að þessi hug-

mynd hafði fyrir löngu verið

þróuð hjá okkur. „Eðlileg

þróun", segjum við hins vegar

á NT, „því nú sjáið þið að við

erum þegar farin að hafa áhrif

á íslenskum blaðamarkaði,

áhrif, sem eiga eftir að vera

öllum til góðs."

Málsvari frjálslyndis,

samvinnu og frjálshyggju

Útgefandi: Nútíminn h.f.

Ritstjórar: Magnús Ólafsson (ábm)

og Þórarinn Þórarinsson

Ritstjórn, skrifstofur og auglýsingar:

Síðumúli 15, Reykjavík. Sími:

86300. Auglýsingasími: 18300.

Kvöldsímar: 86387 og 86306.

Verð í lausasölu 25 kr.

Áskrift 250 kr.

Setning og umbrot: Tæknideild NT.

Prentun: Blaðaprent hf.       .___

Nýr Tími gengur í garð

¦ Nýr Tími er genginn í garð og jafnframt því

ein mesta bylting íslenskrar blaðasögu. Eftir nær

áratugs stöðnun í íslenskum blaðaheimi er gerð

tilraun til að rífa þennan heim upp úr djúpum

öldudal með því að bjóða upp á lifandi frétta-

blað, sem hæfir íslendingum á þessum tímum

tækni og hraða. Auðvitað eru það lándsmenn

einir, sem munu dæma árangurinn og við á NT

getum aðeins farið fram á, að sá dómur verði

felldur fordómalaust.

Ritstjórn nýja blaðsins mun í stjórnmála-

skrifum sínum leggja megináherslu á að styðja

þær stjórnmálastefnur, sem eru í anda frjáls-

lyndis, umbóta, samvinnu og félagshyggju. Við

munum hins vegar berjast af alefli gegn þeim

stjórnmálastefnum, sem eru öfgafullar hvort

sem þær nefnast hrein markaðshyggja eða

sósíalismi. Slíkar öfgar hafa ekkert erindi til

okkar fámenna þjóðfélags á íslandi þar sem

samvinna og samheldni í tengslum við sjálfstætt

framtak hins frjálsa einstaklings á frekar að sitja

í fyrirrúmi.

Á fortíð skal framtíð byggja, og það er því

ekki úr vegi að rifja upp þau orð, sem hinn merki

stjórnmálamaður Jónas Jónasson frá Hriflu, reit

í fyrsta tölublað Tímans 17. mars 1917. Jónas

skrifaði þá um stefnu blaðsins:

„Þetta blað mun eftir föngum beitast fyrir

heilbrigðri framfarastefnu í landsmálunum. Þar

þarf að gæta samræmis, hvorki hlynna um of að

einum atvinnuveginum á kostnað annars né

hefja einn bæ eða eitt hérað á kostnað annarra

landshluta, því að takmarkið er framför alls

landsins og allrar þjóðarinnar."

Þessi orð getum við á NT haft kinnroðalaust

að leiðarljósi, þrátt fyrir að þau séu skrifuð fyrir

meir en 67 árum.

Hvað fréttir varðar er stefna blaðsins að bjóða

landsmönnum upp á lifandi fréttablað, sem er

hannað með þarfir lesenda á þessum síðustu

áratugum 20. aldarinnar í huga. NT mun leggja

megináherslu á lifandi fréttir af mönnum og

málefnum, óháð flokkslínum og stjórnmála-

stefnum. Við munum leitast eftir að svara

hlutlaust þeim spurningum, sem þjóðin krefst

svara við.

Fyrir íslenskan almenning er mikið í húfi, að

okkur á NT takist vel upp með útgáfu þessa

blaðs svo og í samkeppninni við Mbl. og DV.

Hér er ekki einungis átt við, að þessi tvö

útbreiddustu blöð landsmanna, sem voru þróuð

fyrir áratugum, eru löngu stöðnuð fréttablöð og

því illa í stakk búin að sinna hlutverki sínu á

níunda áratuginum. Hér er frekar átt við, að

öllum sjálfstæðum og hugsandi íslendingum

hlýtur að standa uggur af þeirri staðreynd, að

risablöðin tvö skuli bæði styðja sömu stjórnmála-

stefnuna. Það er því augljós þörf á öflugu

mótvægi og við á NT munum gera okkar besta

til að tryggja það mótvægi.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 24
Blašsķša 24