Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

NT

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 . . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 95. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |

Ašalrit:

Tķminn


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



NT

						Barbara Bach gaf f úslega

p kvikmyndaferil sinn til

að gæta bús og barna

¦ Hvað kemur lil, þegar ung,

fögur og upprennandi kvik-.

myndastjama kastar frá sér

öllum framavonum á hvíta tjald-

inu og gerist einfaldlega hús-

móðir og kona manns síns?

Leikkonan Barbara Bach, sem

m.a. vakti mikia athygli í Bond-

myndinni „The Spy Who Loved

Me" en giftist síðar Bítlinum

Ringó Starr og dró sig út úr

skarkala kvikmyndaheimsins,

svarar einfaldlega með orðum

eins af hinum sígildu og frægu

lögum Bítlanna: „All You Need

Is Love".

Á þeim tíma, þegar John

Lennon var myrtur á götu í New

York, bjuggu þau Barbara og

Ringó í Bandaríkjunum og sáu

sér ekki annað fært en að um-

kringja sig með lífvörðum undir

alvæpni, ef það mætti verða til

þess að þau kæmust hjá svipuð-

um örlögum. -Þeim þótti þó,

einsýnt, að þetta væri ekki full-'

nægjandi vörn til lengdar og

Ringo bendir á, að ef ekki er

mögulegt að verja sjálfan for-

seta landsins fyrir tilræðis-

mönnum, sé lítH von til að

almenningur geti verið öruggur

og óhultur. Það varð því að

ráði, að þau fluttust til Englands

og settust að á herrasetri, sem

þegar haföi.verið í eigu Ringos

í mörg ár. Þar telja þau sig

fullvarin með því að halda tvo

stóra varðhunda og gefa þau

fyrirmæli, að enginn skuli koma

í heimsókn án þess að hafa gert

boð á undan sér.

Flutninguririn til Englands

var dýr fjárhagslega, þar sem

Ringo hafði upphaflega yfirgef-

ið heimaslóðirnar af skattaá-

stæðum. Reyndar átti það líka.

þátt í þessari ákvörðun hans, að

hann var um það leyti að skilja

við konu sína, Maureen, sem

hann hafði verið giftur í 10 ár og

átt með 3 börn. Hann setti

stefnuna á Monte Carlo til að

byrja með og gerðist þar ríkis-

borgari og síðar til Bandaríkj-

anna.

Fundum þeirra Ringos og

Barböru bar saman, þegar þau

léku saman í kvikmyndinni The

Caveman. Sú mynd þótti engum,

aðstandenda hennar tii fram-

;dráttar og það .eina góða og

varanlega, sem hún skilur eftir

isig, er hjónaband þeirra Bar-

böru og Ringos, sem sagt er

verða betra með hverju árinu,

sem líður!

íheimili hjá þeim hjónum

eru, auk varðhundanna tveggja,

tvö börn Barböru af fyrra hjóna-

bandi, Francesca 14 ára og Gi-

anni 9 ára. Barbara var í 10 ár

gift ítalska kvikmyndaframleið-"

andanum Augusto Gregorini og

bjó þá á ítalíu. Það þótti henni

merkilegur skóli, enda allar að-

stæður og sjónarrriið þar allt

önnur en hún hafði vanist í

uppvextinum í New York. Þar

voru þá uppi alls kyns nýjar

hugmyndir, á ítalskan mæli-

kvarða, til að berjast gegn rót-

gróinni íhaldssemi, hugmyndir,

sem Barbara hafði alltaf vanist

að væru í heiðri hafðar og kom

spánskt fyrir sjónir að væru ekki

álitnar aíveg sjálfsagðar. Mest

kom henni þó á óvart, hvað

erfiðlega gekk, og oftast alls

ekki, að hrinda þeim í

framkvæmd.

Það var á ítalíuárunum, sem

hún tók að hasla sér völl í

kvikmyndum. En sem sagt,

henni var ósárt um þann frama-

feril, miðað við að byggja upp

Ertuorðinneitthvaðverri Hemm

¦ - Við höfðum samráð um

þessa stellingu ég og hann Burt

Reynolds kunningi minn, okk-

ur fannst tími til kominn að við

karlarnir létum ekki kvinnurn-

ar um það einar að bjóða af sér

góðan þokka. - Það er Her-

mann nokkur Gunnarsson,

íþrótta-, frétta-, söngva- og

brandarakall sem svarar s'purn-

ingunni um það hvort hann sé

orðinn eitthvað verri að láta

hafa sig útí svona myndatöku.

Myndin sú arna þekur umslag-

ið á fyrstu sólóplötu kappans

sem nú er nýutkomin. - Það

var líka orðin spurning með

þessa fjóra sem aldrei hafa

hneykslast á mér, heldur

Hermann áfram, þetta ætti að

duga í þá. Annars eru þetta

páskabuxur, heiðgular og

skemmtilegar. Það kemur að

vísu ekki alveg nógu skýrt

- Nei, ívið betri

fram á svarthvítri mynd, en þá

reynir á hugmyndaflugið.

Nútímalistinsíðar

- Mér líður bara þrælvel,

þeir hafa verið að pressa á mig

með þetta, Geimsteinsmenn,

síðustu tvö árin. Ég ákvað að

slá þessu bara uppí kæruleysi

og láta slag standa, enda verð-

ur ekki aftur snúið, frekar en

hjá Gunnari Langbrókarmanni

forðum. Hermann bætti því

við að platan væri ekki hugsuð

sem einn af þessum milljón

listviðburðum, heldur bara

partýplata eins og þær gerast

geggjaðastar. - Nei ég er ekki

farinnútí að semja lögin sjálfur,

það skellur á síðar og mun þá

ef að líkum lætur flokkast

undir NÚTÍMA-list. Bleeess-

aaðuur.

¦ Það mætti halda að þessar

tvær konur byggju hvor á sinni

plánetu, svo ólíkar eru þær og

lífskjör þeirra. Samt er ýmislegt

líkt með þeim og afdrifaríkasta

atvik ævi þeirra beggja er órjúf-

anlega tengt. Þær búa báðar í

New York.

Önnur þeirra er 32ja ára

gömul, venjuleg, útivinnandi

eiginkona, sem býr nú ein í

lítilli íbúð, sem hún deildi áður

með manni sínum. Hin er 51 árs

gömul, margmilljónamæringúr,

valdamikil og heimsfræg.

Þær eru báðar japanskar og

hvorug þeirra getur hlustað á

plötu með Bítlunum, án þess að

í huga þeirra komi skelfilegasta

augnablik ævi þeirra. Önnur

þeirra var gift frægri rokk-

stjörnu, sem féll fyrir morðingja

hendi, hin er gift morðingjan-

um. Samúð alls heimsins hefur

beinst að þeirri fyrrnefndu,

Yoko Ono Lennon, ekkju

Johns Lennon. Sú, sem er heim-

inum gleymd og grafin, nema

þeim, sem hafa megnustu

skömm á henni og manni

hennar, er Gloria Chapman,

kona Marks Chapman, óhappa-

mannsins, sem hleypti af ban-

vænum skotum í átrúnaðargoð

sitt í geðveikiskasti.

Konurnar tvær hafa aldrei

hist. En Gloria hefur skrifað

Yoko til að segja henni, að hún

taki þátt í sorg hennar. „Ég

elskaði John líka," skrifaði hún.

Yoko fann sig ekki knúna til að

Yoko Ono um konu morðingja Johns:

Ég vorkenni

henni ekkert!

¦ Yoko Ono segist nú einungis lifa fyrir son sinn, Sean.

Einnig hefur tekist náið og gott samband með henni og syni

Johns af fyrra hjónabandi, Julian. Það fer sérstaklega vel

á með þeim bræðrum, og það er ósjaldan, sem Sean hringir

í bróður sinn yfir Atlantshafið og skeytir þá ekkert um,

hvort það er að degi eða nóttu!

svara og segir einfaldlega: -Ég

er ennþá reið. Ég get ekki

fyrirgefið ennþá.

Gloria hefur ekki í huga að

skilja við mann sinn, sem enga

von hefur um að losna úr fang-

elsi fyrr en í fyrsta lagi árið

2001. Þau skrifast á oft í viku,

en ýmsum eiginkonum fyndist

það ekki fullnægjandi hjóna-

band í 20 ár. Hún hefur hins.

vegar tekið þá afstöðu að halda

-tryggð við hann, vegna þess,

eins og hún segir: - Þegar ég

kynntist honum, eignaðist ég

ekki bara mann, heldur einnig

frelsandi vin. Það varhann, sem

kynnti mér trúna á Jesúm.

Hvað Mark Chapman snerti,

eignaðist hann ekki einungis

einhverja eiginkonu, heldur lif-

andi sönnun þess, að sitthvað

væri líkt með honum og þeirri

persónu,   sem   hann   dýrkaði

mest í lífinu og átti síðan eftir

að ræna lífinu.

Þegar Gloria giftist hægláta

náunganum, sem var vanur að

færa henni kleinuhringi á ferða-

skrifstofuna, þar sem hún vann

á Hawaii, árið 1979, grunaði

hana lítið hvað í vændum var.

Það var ekki fyrr en eftir voðaat-

burðinn í desember 1980, að fór

að renna upp fyrir henni ljós, að

ekki hafði allt verið með felldu

irieð hann. Ekki vill hún þó taka

undir það álit verjanda hans í

málaferlunum, að honurri hafi

ekki verið ljóst, hvað hann var

að gera sökum geðveiki. - Mark

gerði sér seinna ljóst, hvað hann

hafði gert og fann til sektar,

segir hún. Hannihefur líka sýnt

sektareinkenni í garð konu sinnar

á stundum, vegna þess, hvað

hann hefur á hana lagt. Þá hefur

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 24
Blašsķša 24