Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

NT

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 . . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 95. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |

Ašalrit:

Tķminn


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



NT

						lt

Þriðjudagur 24. apríl 1984    20

Vextir: (ársvextir)

Frá og með 21. janúar 1984

Innlánsvextir:

1. Sparisjóösbækur......................... 15,0%

2.  Sparisjóosreikningar, 3 mán.1'... 17,0%

3.  Sparisjóösreikningari 12. mán.1'   19,0%

4.  Verötryggöir 3 mán. reikningar....  0,0%

5.  Verötryggðir 6 mán. reikningar....  1,5%

6.  Ávísana- og hlaupareikningar..... 5,0%

7.  Innlendir gjaldeyrisreikningar:

a. innstæður í dollurum............... 7,0%

b. innstæöur í sterlingspundum... 7,0%

c. innstæöur í v-þýskum mörkum. 4,0%

d. innstæður i dönskum krónum .  7,0%

1) Vextir færðir tvisvar á ári.

Útlánsvextir

HÁMARKSVEXTIR

(Veröbótaþáttur í svíga)

1.  Víxlar, forvextir............ (12,0%) 18,5%

2.  Hlaupareikningar......... (12,0%) 18,0%

3.  Alurðalán, endurs........ (12,0%) 18,0%

4.  Skuldabréf................... (12,0%) 21,0%

5.  Visitölubundin skuldabréf:

a. Lánstími minnst 1 'A ár               2,5%

b. Lánstími minnst 2'/2 ár               3,5%

c. Lánstími minnst 5 ár                   4,0%

6. Vanskilavextir á mán....................  2,5%

Lífeyrissjóðslán:

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins:

Lánsupphæð er nú 260 þúsund krónur og er

lánið vísitölubundið með lánskjaravisitölu, en

ársvextir eru 2%. Lánstími er allt að 25 ár, en

getur verið skemmri, óski lántakandi þess, og

eins ef eign sú, sem veð er í er lítilfjörleg, þá

getur sjóðurinn stytt lánstimann.

Lifeyrissjóður verzlunarmanna:

Lánsupphæð er nú eftir 3ja ára aðild að

lífeyrissjóðnum 120.000 krónur, en fyrir hvern

ársfjórðung umfram 3 ár bætast við lánið

10.000 krónur.unz sjóðsfélagi hefur náð 5 ára

aðild að sjóðnum. Á tímabilinu frá 5 til 10 ára

sjóðsaðild bætast við höfuðstól leyfilegar

iánsupphæðar 5.000 krónur á hverjum árs-

fjóröungi, en eftir 10 ára sjóðsaðild er láns-

upphæðin orðin 300,000 krónur. Eftir 10 ára

aðild bætast við 2.500 krónur fyrir hvern

ársfjórðung sem líður. Því er í raun ekkert

hámarkslán í sjóðnum.

Höfuðstóll lánsins er tryggður með bygg-

íngavísitölu, en lánsupphæðin ber 2% árs-

vexti. Lánstiminn er 10 til 32 ár að vali

lántakanda.

Lánskjaravisitala fyrir aprilmánuð 1934

er 865 stig, er var fyrir marzmánuð 854 stig.

Er þá miðað vió vísitöluna 100 í júni 1982.

Hækkun milli mánaðanna er 1,29%.

Byggingavisitala fyrir apríl til júni 1984 er

158 stig og er þá miðað við 100 i janúar 1983.

Handhafaskuldabréf i fasteignavið-

skíptum. Algengustu ársvextir eru nú 18-20%

Gengisskráning nr. 77-18. apríl. 1984 kl.09.15

Kaup      Sala

O1-Bandaríkjadollar............................29.120     29.200

02-Sterlingspund................................41.460     41.574

03-Kanadadollar..................................22.762     22.824

04-Dönsk króna................................... 3.0090    3.0172

05-Norsk króna................................... 3.8402    3.8507

06-Sænsk króna.................................. 3.7216    3.7319

07-Finnskt mark.................................. 5.1668    5.1810

08-Franskur franki.............................. 3.5887    3.5986

09-Belgískur franki BEC.................... 0.5408    0.5422

10-Svissneskurfranki........................13.3242   13.3608

11-Hollensk gyllini.............................. 9.7932    9.8201

12-Vestur-þýsktmark.........................11.0525   11.0829

13-ítölsk líra........................................ 0.01786 0.01791

14-Austurrískursch........................... 1.5711    1.5754

15-Portúg. Escudo.............................. 0.2173    0.2179

16-Spánskurpeseti............................. 0.1948    0.1954

17-nJapansktyen.................................. 0.12998 0.13034

18-írskt pund.......................................33.839     33.932

20-SDR (Sérstök dráttarréttindi) 30/03.30.8340 30.9187

Belgískur franki BEL.....................0.5276     0.5290

DENNIDÆMALAUSI

¦>n

4-Z4>

,Hann hljóp í skarðið fyrir mig á meðan ég fór á

klósettið."

Kvöld- nætur og helgidagavarsla

apóteka i Reykjavfk vikuna 20. til

26. april er í Lyfjabúðinni löunni.

Einnig er Garos Apótek opið til kl.

22 alla virka daga.

Læknastofur eru lokaðar á laugar-

dögum og helgidögum, en hægt er að

ná sambandi við lækna á Göngu-

deild Landspítalans alla virka daga

kl. 20 til kl. 21 og á laugardögum frá

kl. 14 til kl. 16. Sími 29000. Göngu-

deild er lokuð á helgidögum. Borgar-

spítalinn vakt frá kl. 08-17 alla virka

daga fyrir fólk sem ekki hefur heimilis-

lækni eða nær ekki til hans (sími

81200) en slysa- og sjúkravakt

(Slysadeild) sinnir slösuðum og

skyndiveikum allan sólarhringinn

(sími 81200), en frá kl. 17 til kl. 8

næsta morguns i síma 21230 (lækn-

avakt). Nánari upplýsingar um lyf|-

abúðir og iæknaþjónustu eru gefn-

ar í símsvara 18888.

Neyðarvakt Tannlæknafélags is-

lands er í Heilsuverndarstöðinni á

laugardögum og helgidögum kl. 10 til

kl. 11 f.h.

Hafnarfjörður: Hatnarfjarðar apótek

og Norðurbæjar apótek eru opin á

virkum dögum frá kl. 9-18.30 og til

skiptis annan hvern laugardag kl.

10-13 og sunnudag kl. 10-12. Upplýs-

ingar i símsvara nr. 51600.

Akureyri: Akureyrar apótek og

Stjörnu apótek eru opin virka daga á

opnunartíma búða. Apótekin skiptast

á sína vikuna hvort að sinna kvöld-,

nætur og helgidagavörslu. Á kvöldin

er opið i því apóteki sem sér um

þessa vörslu, til kl. 19. Á helgidögum

er opið frá kl. 11-12, og 20-21. Á

öðrum tímum er lyfjafræðingur á

bakvakt. Upplýsingar eru gefnar í

síma 22445.

Apótek Keflavíkur: Opið virka daga

kl. 9-19. Laugardaga, helgidaga og

almenna frídaga kl. 10-12.

Apótek Vestmannaeyja: Opið virka

daga frá kl. 8-18. Lokaö í hádeginu

millikl. 12.30 og 14.

AUSTURBÆJARBIO

Atómstöðin -ísl. kl: 5,7,9

BÍÓHÖLLIN

Salur 1: Silkwood -am. kl:

5,7:30,10 Mjallhvít og dverg-

arnir sjö -am. kl: 3 Salur 2:

Heiðurskonsúllinn, kl:5,7,9,ll,

Bönnuð innan 14. Skógarlíf

(Jungle Book) -am. kl: 3 Salur

3: Maraþon maðurinn (Mara-

thon man) -am. kl: 5,7:30,10.

Bönnuð innan 14. Allt á hvolfi,

kl:3. Salur 4: Goldfinger -br.

kl: 3,9. Porkys II, kl: 5,7,9.

Bönnuð innan 12_________

HÁSKÓLABÍÓ

Staying alive -am. kl: 5,7,9,11

HAFNARFJARÐARBÍÓ

Hrafninn flýgur,  ísl.  kl:  5,9.

Bönnuð    innan    12.   JEinvígi

Kóngulóarmannsins, kl: 3

LAUGARÁSBÍÓ

Scarface, -am. kl: 5,9. Bönnuð

innan 16

NYJA BIO

Stríðsleikir (War games) -am.

kl: 5,7:15,9:30

REGNBOGINN

A-salur: Heimkoma hermanns-

ins-br. kl: 7,9,11 JónOddurog

Jón Bjarni -ísl. kl: 3,5 B-salur:

Bryntrukkurinn -am. kl.

3:05,5:05,7:05,9:05,11:05.

Bönnuð innan 14. C-salur:

Shogun -am kl: 9:10. Bönnuð

innan   12.   Gallipoli   ást.   kl:

3:10,5:10,7:10. Bönnuð innan

12. D-salur: Ég lifi -fr. kl: 9:15.

Hefndaræði         -am.         kl:

3:15,5:15,7:15 Bönnuð innan 14.

E-salur: Francis -am. kl: 3,6,9.

STJÖRNUBÍÓ

Educating     Rita     -br.     kl:

5,7,9,11:10.     B-salur:     Snar-

geggjuðkl: 3,5,7,9,11._______

TÓNABÍÓ

Svarti folinn

kl:3,5,7,9

snyr

aftur -am.

Kvikmystdlr-Laugarásbíó-Scarface

Undir-

heima

leikir

¦   Tony  Montana  (Al  Pacino)  er kominn  yfir toppinn  og

niðurleiðin er greið. Kókaínið hefur séð fyrir því.

¦ Scarface. Bandaríkin, 1983.

Handrit: Oliver Stone. Kvik-

myndataka: Hohn A. Alonzo.

Tónlist: Giorgio Moroder.

Leikendur: Al Pacino, Steven

Bauer, Michelle PfeifTer, Mary

Elisabeth Mastrantonio, Ro-

bert Loggia. Leikstjóri: Brian

DcPalma.

Brian DePalma hefur unnið

mikið þrekvirki með þessari

kvikmynd. Hún er tæpir þrír

klukkutímar og heldur áhorf-

andanum hugföngnum hverja

einustu mínútu.

Scarface er endurgerð sam-

nefndrar kvikmyndar Howards

Hawks frá árinu 1932 að því

leytinu til að beinagrind sögunn-

ar er sú sama, uppgangur og

hnignun glæpaforingja, auk

samskiptamunsturs aðalpersón-

anna. BrianDePalmahefurhins

vegar  flutt  atburðarásina  frá

Chicago bannáranna til Miami í

Florida á árinu 1980. Og í stað

áfengisins verslar undirheima-

lýðurinn með kókaín.

Tony Montana er einn þeirra

rúmlega eitthundrað þúsund

Kúbumanna, sem Fidel Castro

veitti brottfararleyfi til Banda-

ríkjanna árið 1980. Tony kemst

fljótlega í þjónustu eins at-

hafnamesta kókaíninnflytjanda

Flórída, ásamt með vini sínum

Manny. En Tony færir sig smám

saman upp á skaftið, uns hann

kemst sjálfur á toppinn. Og af

toppinum er aðeins ein leið,

niðurleiðin, sem er greiðfær

mjög.

Tilvera Tonys snýst um það

eitt að verða eitthvað, og í þeim

heimi sem hann lifir og hrærist í

eru það peningarnir einir sem

færa mönnum völdin. Brian

DePalma fylgir Tony þyrnum

stráða leiðina upp á toppinn af

stakri fagmennsku; sýnir okkur

aukin völd hans og áhrif með æ

stærri skömmtum af kóki, sem

fer upp í nösina á honum, sýnir

okkur falsvinina margfalda í

veggspeglunum; ekkert nýtt, en

allt gert á óaðfinnanlegan hátt.

Og þegar allt gengur í haginn

fyrir Tony, flýgur auglýsinga-

loftbelgur frá Pan Am flugfélag-

inu í baksýn og á honum

stendur: heimurinn er þinn. En

þessi orð fá aðra merkingu í

lokin, þegar Tony liggur dauður

í sínu eigin húsi og við sjáum

styttu, sem heldur á hnattlíkani,

þar sem standa þessi sömu orð.

Tony lítur á undirheimana

sem eins konar leiksvið. Hann

er alltaf að leika. Stingur jafnvel

upp á því að byrja upp á nýtt,

þegar hann sækir kókaín í fyrsta

sinn og atburðakeðjan verður

ekki eins og hún á að vera. Rétt

eins og hann væri í bíó. En

þegar hann hættir að leita og

lætur tilfinningarnar ráða, þá er

voðinn vís og glötunin á næsta

leiti.

Scarface er einkar vel heppn-

uð mynd, þar sem allir þættirnir

falla saman í sterka og sannfær-

andi heild. Það er sama hvort

það er handritshöfundur, leik-

stjóri eða leikarar, alls staðar

má sjá handbragð manna, sem

vita hvað þeir eru að gera og

kunna til verka. Scarface er án

efa ein besta myndin, sem boðið

er upp á um þessa páska vilji

einhver eiga skemmtilega

kvöldstund í bíó, ætti hann að

sjá AI Pacino og félaga. Við-

kvæmum áhorfendum skal hins

vegar bent á það, að myndin er

all hrottafengin á köflum og

orðbragðið eitt hið mesta, sem

heyrst hefur í einni kvikmynd í

langan tíma.

Guðlaugur Bergmundsson

Kvikmyndir Nýja bíó - Stríðsleikir

Sprengjuat

¦ Stríðsleikir (War Games).

Bandaríkin, 1982. Handrit:

Lawrence Lasker, Walter E.

Parkes. Kvikmyndataka: Wil-

liam A. Fraker. Tónlist: Arthur

B. Rubinstein. Leikendur:

Matthew Broderick, Dabney

Coleman, John Wood, Ally

Sheedy, Barry Corbin. Leik-

stjóri: John Badham.

Hvað gerist þegar tölvuleikja-

óður unglingur fer í stríðsleiki

við stýristölvu kjarnorkuvopna-

búrs Bandaríkjanna og þykist

vera Rússar í árásarhug? Jú,

það má engu muna að jörðin

farist.

Kvikmynd Johns Badham

kemur akkúrat á réttum tíma.

Tölvuleikir fara eins og eldur í

sinu um landið og baráttan gegn

kjarnorkuógninni hefur náð

hámarki sínu um páskana.

Stríðsleikir eru fyrst og fremst

skemmtimynd, þar sem allir

þætti hennar miða að því að ná

¦   Stríðsleikir er nokkuð vel heppnuð skemmtimynd

siðaboðskap.

með

upp hámarksspennu í lokin og

gefa áhorfendum síðan nokkrar

mínútur til að jafna sig. Sem

slík er myndin nokkuð vel_

heppnuð. Eftir stuttan formála,'

sem sýnir okkur hvað við eigum

í vændum, fer spennan smátt og

smátt stígandi uns hápunktinum

er náð. Og til stuðnings nokkuð

þéttu og góðu handriti er tækni-

vinna, sem er í fullu samræmi

við ætlunarverk höfundanna:

allt á að vera sem áhrifaríkast.

Þar helst allt að, kvikmynda-

taka, leikur og leikstjórn.

En það má líta á Stríðsleiki

sem meira en bara skemmti-

mynd. Hún hefur líka ákveðinn

siðaboðskap, sem gæslu-

mönnum kjarnorkuvopnabúrs

heimsins virðist oft veitast erfitt

að skilja, nefnilega þann að

enginn getur unnið kjarnorku-

stríð. Þegar stýritölvan hefur

farið yfir öll afbrigði kjarnorku-

styrjaldar, meira að segja ís-

landsafbrigðið, segir hún ein-

faldlega: eini möguleikinn á að

vinna þennan leik, er sá að

byrja ekki. Þá varar myndin

líka við þeirri oftrú, sem menn

hafa á tölvunni í tilvikum sem

þessum. Raunveruleikinn er

kannski ekki alltaf í samræmi

við það, sem tölvan segir.

Stríðsleikir hefur flest það til

að bera sem prýða má góða

afþreyingu, enda náði hún mikl-

um vinsældum vestanhafs. Eng-

in ástæða er til að ætla að annað

verði uppi á teningnum hér.

Guðlaugur Bergmundsson

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 24
Blašsķša 24