Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

NT

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 . . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 95. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |

Ašalrit:

Tķminn


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



NT

						Líinmiðar eru vinsæl og hagfcvæm

lausn tH hverskonar merkínga Við

prentum allskonar sjálflímaridi   miða og

merki til vörumerkinga vörusendinga og

framleiðslumerkinga. Ennfremur ýmsar

gerðir adressumiða, varúðarmiða leið-

beiningamiða og margt fleira.

Lertið upplýsinga um verð og

afgreiðslufrest.

Við erum miðsvæðis f Reykjavik


á

LÍMMERKI

Síðumúla 21

Sími 31244

Altt á rúllum í einum eða fleiri Ittum

Þriðjudagur 24. apríl 1984    22

Utlönd

Mitterrand kvittar

fyrir skuld Napoleons

¦ Svisslendingareruekkimik-

ið fyrir að gefa eftir skulda-

kröfur sínar og halda þeim lengi

til streitu eins og bæjarstjórnin

í smábænum Bourg Saint-Pierre

sannar. Árið 1800 lagði bærinn

fram skaðabótakröfu á hendur

franska ríkinu vegna skemmda

sem Napole on Bonáparte ogher

sveitir hans ollu er þær áttu

leið um bæinn fyrrgreint ár. Nú

hefur bæjarstjórnin fallist á að

þiggja táknrænar skaðabætur af

Mitterrand Frakklandsforseta

og telst skuldin þá að fullu

greidd og málið úr sögunni.

Skaðabótakrafan er byggð á

skriflegri skuldaviðurkenningu

sem Napoleon afhenti bæjar-

búum á sínum tíma. Krafan

nam um 43 þús. svissneskum

frönkum og átti að koma fyrir

'skemmdir á 2037 trjám sem

hersveitirnar ollu, 80 pottum

Drap Mikki mús Aquino?

¦ Morðið á helsta forystu-

manni stjórnarandstæðinga á

Filippseyjum, Bengino Aquino,

síðastliðið sumar hefur grafið

mikið undan trú manna á stjórn-

völdum. Lögregluyfirvöld halda

enn fast við þá sögu sína að

smáglæpamaðurinn Rolando

Falman hafi drepið Aquino en

ákaflega fáir virðast trúa þeirri

sögu.

Nýlega var gerð könnun með-

al 458 háskólanemenda víðsveg-

ar um Filippseyjar á því hver

þeir   teldu   að   drepið   hefði

Aquino. Mikill meirihluti

nemendanna taldi að ákveðnar

háttsettar persónur í æðstu

stöðum bæru ábyrgð á morðinu.

Aðeins einn þátttakandi í skoð-

anakönnuninni sagðist trúa

sögu stjórnvalda um það hvern-

ig dauða Aquino hefði borið að.

Svo var líka einn þátttakandi

sem sagðist telja að Mikki mús

hefði drepið Aquino og annar

ásakaði ljósálf þann sem gefur

börnum pening fyrir tennur sem

þau missa fyrir glæpinn.

-rb

og kastarolum sem hermennirn-

ir fengu lánaðar hjá bæjarbúum

en láðist að skila aftur, 3150

timburplankar sem notaðir voru

til að flytja fallbyssur á og að

síðustu var krafist launa fyrir

veitta vinnu sem bæjarbúar

inntu af höndum fyrir Napoleon

og menn hans.

Fernand Dorsaz sóknarnefnd-

arformaður í Bourg Saint-

Pierre sendi Mitterrand reikn-

inginn áður en forsetinn lagði

upp í heimsókn til Sviss í fyrra.

Mitterrand viðurkenndi fúslega

að greiða ætti skuldina en það

yrði að gerast með táknrænum

hætti.

Frakkar kostuðu gerð vegg-

skjaldar sem settur verður upp

í svissneska bænum 19. maí n.k.

Á skildinum stendur að eftir-

leiðis viðurkenni Frakkar ekki

að skulda bæjarbúum neitt og

að bæjarbúar muni ekki gera

frekari kröfur til skaðabóta á

hendur Frökkum. Það ætti að

vera auðvelt að standa við þessi

heit því að Frakkar sömdu um

að greiða engar skuldir erlendis

vegna Napoleons mikla á Vín-

arfundinum 1815.

Mitterrand forseti

Napoleon keisari

,;:-.':.:::-:.::.::.-:.:,,::::     ;., ¦ ;¦ ¦¦ ¦:;./:¦:..,:

¦       ¦      ¦¦¦ ¦


Fyrrverandi bandarískir hermenn

Kæra eiturnotkun

¦ í Víetnamstríðinu not-

uðu Bandaríkjamenn m.a.

sterkan illgresiseyði til að

eyða skógum í Vietnam.

Um 20.000 fyrrverandi

hermenn, ekkjur her-

manna og afkomendur

hafa nú kært bandaríska

efnafyrirtækið Dow sem

framleiddi eitrið. Þeir

halda því fram að fyrirtæk-

ið beri ábyrgð á margs

konar illkynja sjúkdómum

sem hrjáð hafa hermenn-

ina meira eða minna alla

tíð síðan.

Eitrið gengur undir

nafninu Agent Orange og

það hefur nú verið bannað

í Bandaríkjunum vegna

þeirra skaðlegu áhrifa sem

það getur haft á heilsu

manna. Pað var notað í

Vietnamstríðinu allt frá

árinu 1961. Eitrinu var

dreift á skóga og akra úr

flugvélum í gífurlegu

magni.

Markmiðið með notkun

eitursins var að svipta

skæruliða kommúnista

því skjóli sem þeir höfðu

af skógunum og eyðileggja

uppskeru bænda. Sam-

kvæmt         víetnömskum

heimildum urðu margir

bændur fyrir varanlegu

heilsutjóni vegna þessa eit-

urs og óeðlilegur fjöldi van-

skapaðra barna á sumum

svæðum í Víetnam er einn-

ig rakinn til eitursins Ag-

ent Orange.

Stundum var eitrinu

dreift yfir bandarískar

stöðvar fyrir mistök og því

var líka venjulega dreift í

miklu magni í kringum

bandarískar herstöðvar til

að koma í veg fyrir skyndi-

áhlaup skæruliða. Margir

bandarískir hermenn

önduðu þess vegna að sér

Agent Orange og urðu fyr-

ir heilsutjóni vegna eitur-

áhrifa þess. Eftir mikið

málþóf við opinbera aðila

ákváðu margir þessara

hermanna og aðstandend-

ur þeirra því að höfða mál

¦   Bandarískir   hermenn   í  frumskógum  Víetnams.

Margir þeirra önduðu að sér eiturefnum.

gegn efnafyrirtækinu Dow

sem framleiddi eitrið.

Dow-fyrirtækið neitar

alls ekki skaðlegum áhrif-

um eitursins en fullyrðir á

móti að ríkisstjórn Banda-

ríkjanna hafi verið full-

kunnugt um hættuna sem

fælist í notkun þess. Yfir-

völd hafi vitað að í eitrinu

hafi verið Dioxin sem vald-

ið hafi krabbameini og

vansköpun við fæðingu

hjá tilraunadýrum. Efna-

fyrirtækið heldur því fram

að bandarísk stjórnvöld

beri ein ábyrgð á heilsu-

tjóni hermannanna. En

samkvæmt bandarískum

lögum geta hermennirnir

ekki krafið bandaríska rík-

ið um skaðabætur. Þess

vegna hafa þeir aðeins

kært framleiðandann í von

um að fá að einhverju leyti

bættan skaða sinn.

Málið kemur fyrir dóm-

stóla í New Yoric þann 7.

maí næstkomandi en hætt

er við að nokkur tími liði

þar til hægt verður að

dæma í því þar sem miklar

fjárhæðir eru í húfi.

-rb.

15 mínútna

krossfesting

¦ Listamaður í Kenya,

David Mugo, bauðst tií

að greiða sjö mönnum

15 dollara hverjum til að

krossfesta sig um pásk-

ana. Mugo sem er 31 árs

að aldri vill láta negla sig

gegnum hendur og fætur

á krossinn og hanga þar

í 15 mínútur. Hann lét

ekki uppi hvar krossfest-

ingin átti að eiga sér stað

til að lögreglan gæti ekki

komið í veg fyrir hana.

Bæði lögreglan og

kirkja hafa lýst sig and-

víga fyrirætlan lista-

mannsins, en síðast þeg-

ar til fréttist sat hann

fastur við sinn keip og

ætlaði að láta krossfesta

sig í þakklætisskyni fyrir

að guð hefur bjargað lífi

hans þrisvar sinnum.

Fréttir hafa ekki borist

af því, hvort varð úr

framkvæmdum.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 24
Blašsķša 24