Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

NT

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 . . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 95. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |

Ašalrit:

Tķminn


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



NT

						Þrídjudagur 24. april 1984   23

"N^-

Bretland

Líbýumenn reknir heim og

sendiráðsbyggingin rannsökuð

¦ London-Reuter. Bretar hafa tilkynnt að þeir muni slíta

stjórnmálasambandi við Líbýu og loka sendiráði sínu í Tripoli og

kalla sendiherrann og allt starfsfólk þar lieim. Jafnframt krefjast

þeir að allir starfsmenn líbýska sendiráðsins í London yfirgefi það

á sama tíma og fari úr landi. í sex daga hafa bresk yfirvöld staðið

í látlausu samningaþófi við Líbýumenn um að fá að yfirheyra þá

sem í sendiráðsbyggingunni eru og leita þar vopna. Bresk

lögreglukona var skotin til bana og 10 manns særðir er skotið var

úr byggingunni á hóp líbýskra mótmælenda sem héldu fund við

sendiráðið.

Breski innanríkisráðherrann

sagði í gær, að þegar stjórn-

málasambandinu verður slitið

muni sendiráðið ekki njóta

neinna diplómatískra réttinda

og muni lögreglan þá fara inn í

bygginguna og leita þar vopna

og skotfæra. Starfsmenn sendi-

ráðsins munu fara úr landi án

þess að leitað verði á þeim eða

þeir yfirheyrðir.

Bandaríkjastjórn hefur lýst

yfir að þessar aðgerðir Breta

væru lofsverðar, en sjálfir lok-

uðu þeir sendiráði Líbýu í Was-

hington árið 1981. En lögreglu-

yfirvöld í Bretlandi og margir af

fylgismönnum Thatcher eru

óánægðir með að morðingjar

lögreglukonunnar verði látnir

sleppa.

Líbýsku sendiráðsmennirnir

segjast munu yfirgefa sendiráð-

1111	

III I l~ií »¦' i*iit IIIJI1	¦f

W£Xl*W"	

	*

¦ Hattur bresku lögreglukon-

unnar sem skotin var til bana lá

enn á götunni þar sem hún féll

á páskum.   Símamynd Polfoto

ið n.k. sunnudag, nokkrum

klukkustundum áður en stjórn-

málasambandinu verður slitið.

Útvarpið í Líbýu sendi út harð-

orðan leiðara sem birtist í tíma-

riti sem talið er að túlki viðhorf

Khadafys, þar sem hótað er

hörðum aðgerðum gegn Bretum

í samvinnu við hermdarverka-

menn írska lýðveldishersins.

Líbýumenn ásökuðu Breta fyrir

að stuðla að versnandi sambúð

með þessum aðgerðum og væru

þær runnar undan rifjum síon-

ista og undir þrýstingi frá

Bandaríkjunum.

Líbýska utanríkisráðuneytið

tilkynnti að engar aðgerðir yrðu

hafðar í frammi gagnvart 8 þús-

und breskum þegnum sem

starfa í landinu, flestir við olíu-

vinnslu og olíuiðnað og yrði

öryggis þeirra gætt.

Talsmaður breska utanríkis-

ráðuneytisins sagði að það væri

í þágu líbýskra hagsmuna að

gæta öryggis Bretanna í Líbýu

en talsverð viðskipti eru á milli

landanna. Líbýumenn kaupa

iðnvarning margs konar frá

Bretlandi, en Bretar geta auð-

veldlega fengið alla þá olíu sem

þeir þarnast þótt þeir hætti olíu-

kaupum frá Líbýu.

Líbýska fréttastofan Jana

sagði í gær, að sú ákvörðun

bresku stjórnarinnar að slíta

stjórnmálasambandi við Líbýu

væri greinilega tekin vegna

þrýstings frá Washington þar

sem Bandaríkjamenn gætu ekki

dulið þá staðreynd að þeir óttast

útbreiðslu líbýskra áhrifa.

¦ Lucy og Hugh Miles, böm breska sendiherrans í Tripoli voru þegar í gær farin að pakka saman

og undirbúa brottför sína frá Líbýu, eftir að breska stjórnin tilkynnti um stjórnmálaslit landanna.

Sambandinu verður slitið n.k. sunnudag.                                                            Símamynd Polfoto

31 kolanámumaðurferstí

námuslysi í Júgóslavíu

¦   Belgrad-Reuter.   í   námu-

slysi sem varð síðastliðinn laug-

¦    Vinir og ættingjar bíða við

júgóslavneska námu rétt hjá

Belgrad eftir sprengingu sem

þar varð.Símamynd POLFOTO

ardag í júgóslavneskri kola-

námu skammt fyrir utan Bel-

grad fórst 31 kolanámumaður

og 12 særðust. Yfirvöld segja að

sprenging hafi orðið í námunni

þegar kviknaði í jarðgasi þar.

Það er talið að mennirnir hafi

látist samstundis við sprenging-

una og fjórir hinna særðu eru

sagðir alvarlega slasaðir vegna

brunasára.

Friðarpáskar

víða um heim

, ¦ Páskarnir í ár voru fríðsamir

í flestum löndum heims enda var

sérstök áhersla lögð á friðarboð-

skap í mörgum löndum.

Á páskadag ávarpaði páfinn

350.000 manns á Torgi heilags

Péturs í Vatikaninu. Hann ásak-

aði ríki heims fyrir stríðsundir-

búning sem ógnaði heimsfriðn-

um.

Víða í Evrópu skipulögðu

kjarnorkuandstæðingar     mót-

mæli. Einna öflugust voru mót-

mæli þeirra í Vestur-Þýskalandi

en þar voru haldnar mótmæla-

aðgerðir í fjóra daga í röð.

Mótmælaaðgerðunum lauk í

gær en þá tóku um 400.000

manns þátt í mótmælagöngum

og mótmælafundum víðs vegar

um Vestur-Þýskaland sam-

kvæmt heimildum forystu-

manna mótmælenda. Þátttakan

nú í ár mun vera eitthvað slakari

en í svipuðum mótmælaaðgerð-

x^-'-mim-:- ¦¦¦¦:

-rsteide.v

'¦¦- '*m**:::/-*%%&

¦   Kjarnorkuandstæðingar í Vestur-Þýskalandi sýna áhrif kjarn-

orkusprengjunnar á táknrænan hátt.          Símamynd POLFOTO

um  í fyrra en mótmælendur

segjast samt ánægðir.

I Belgíu, þar sem kjarnorku-

vopnum var líka mótmælt, kom

hópur kjarnorkuandstæðinga

líkönum af kjarnorkusprengj-

um fyrir í garði utanríkisráð-

herrans en hann hafði áður sagt

að hann hefði ekkert á móti

kjarnorkuvopnum í sínum eigin

garði.

Kirkjusókn á þessari friðar-

hátíð kristinna manna var mjög

mikil í hinum ýmsu löndum og

þá ekki síður í löndum sem

kenna sig yfirleitt ekki við

kristna trú. í Sovétríkjunum

var kirkjusókn t.d. mjög góð og

í Kína fóru líka margir í kirkjur.

Samkvæmt hinni opinberu kín-

versku fréttastofu sóttu þannig

meira en 10.000 kínverskir ka-

þólikar messur í Peking á páska-

dag.

rb

Lenging

herskyldu

íVestur-

Þýskalandi

¦   Vestur-Þjóðverjar hafa

ákveðið að lengja herskyldu

hjá sér um þrjá mánuði.

Herskyldan hefur hingað til

verið 15 mánuðir fyrir pilta

yfir 18 ára aldri en árið 1988

á hún að lengjast upp í 18

mánuði. Talsmenn ríkis-

stjórnarinnar segja að leng-

ing herskyldunnar stafi af

fyrirsjáanlegri         fækkun

ungra karlmanna á her-

skyldualdri þar sem fæð-

ingum hafi fækkað í Þýska-

landi á sjötta og sjöunda

áratuginum frá því sem áður

var.

Vestur-Þjóðverjar hafa

enn fremur ákveðið að taka

konur í herinn í fyrsta skipti

nú á næsta ári. Þeir hyggjast

byrja á því að taka 1000 til

1500 konur í herinn sem

sjálfboðaliða til að byrja

með en fjölga þeím síðan

smám saman upp í um

15.000 manns.___________

Deilur um

hlutdeild

sjúklinga í

kostnaði við

heilbrigðis-

þjónustu

¦  "Frainnii fyrír guði og

lækninum eru allir menn

jafnir, segja þeir í Noregi og

eru flestir sammála um að

þannig eigi það að vera

áfram. En deilur eru risnar

um hvort það fái staðist

þegar nýr samningur við

læknasamtökin gengur í

gildi. Hann felst í því að hið

opinbera tekur ekki þátt í

lækniskostnaði nema að

takmörkuðu leyti í tiltekn-

um tilvikum.

Samkvæmt nýja sam-

komulaginu eiga sveitar-

stjórnir að ákveða hver er

hæfilegur fjöldi lækna á

hverjum stað. í hvert sinn

sem sjúklingur þarf að fara

til læknis á hann að greiða

45 kr. norskar, en á móti

greiðir hið opinbera 85 kr.

Deilan stendur um greiðslur

til þeirra lækna sem ofaukið

er, samkvæmt áliti sveitar-

stjórna.

Þeir sem standa á móti

samkomulaginu setja fyrir

sig að þeir sem meiri hafa

efnin geti keypt sér fljótari

og jafnvel betri læknisþjón-

ustu en þeir efnaminni, sem

skipta verði við opinberu

læknana. Því verður ekki

um jafnrétti að ræða í heil-

brigðisþjónustunni. Þeir

óttast einnig að hið opinbera

sitji uppi með kostnaðar-

samar skyldur og ábyrgð,

svo sem alla umönnun aldr-

aðra.

Þeir sem hlynntir eru

hinni nýju skipan segja að

úrtölur mótstöðumannanna

eigi ekki við rök að styðjast.

Þar að auki benda þeir á að

í Noregi eru útskrifaðir ár-

lega 200 fleiri læknar en

talin er þörf fyrir. Og hvað

á að gera við alla þá lækna?

Samkomulagið um heil-

brigðisþjónustuna hefur

verið samþykkt í Stórþing-

inu en sýslu- og sveitar-

stjórnir eru flestar mótfalln-

ar því. Ef samkomulagið

verður ekki samþykkt hóta

læknasamtökin verkföllum,

en deilan stendur enn sem

hæst og úrslit óviss.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 24
Blašsķša 24