Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

NT

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 . . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 95. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |

Ašalrit:

Tķminn


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



NT

						MMiAnnmi

ipmn ínv

Samúel Örn Erlingsson (áb), Gísli Ágúst Gunnlaugsson, Jón Ólafsson, Gylfi Kristjánsson

Stakk Einar af!

- Gottlieb Konráðsson vann í 30 km göngu á Landsmótinu

Frá Gylfa Kristjánssyni fréttaritara

NT á Akureyri:

¦   Vegna skafrennings vard

að fresta keppni í skíðagöngu

¦ Gottlieb Konráðsson -

þremur mínútum á undan Ein-

ari.

sem fram átti að fara á Skíða-

landsmótinu á páskadag.

Áformað var að keppnin færi

fram að morgni annars páska-

dags, en skafrenningur haml-

aði þá enn því að unnt væri að

keppa. Mótsstjórnin greip þá

til þess ráðs að færa keppnina

til Ólafsfjarðar þar sem hún

fór fram í gær. Brugðust Olal's-

firðingar vel við þessu þótt

fyrirvari væri enginn. Þokka-

legt veður var í Hlíðarfjalli

eftir hádegi í gær, þótt svo illa

hafi viðrað til mótshaldsins um

morguninn.

Úrslit í göngukeppninni

uröu þau að í 30 km göngu

karla sigraöi Gottlieb Kon-

ráðsson Ólafsfirði á 86,06

mín., annar varð Einar Ólafs-

son, Isafirði 89,28 mín. og Jón

Konráðsson, ísafirði, varð

þriðji á 92,39 mín.

15 km ganga 17-19 árapilta.

Fyrstur varð Haukur Eiríksson

Akureyri 45, 22 mín. Annar

varð Karl Guðlaugsson, Siglu-

firði, 49,03 mín. og þriðji varð

Bjarni Gunnarsson, ísafirði,

50,34 mín.

I kvennaflokki voru gengnir

7,5 km. Fyrst varð Guðrún

Pálsdóttir, Siglufirði, 27,17

mín., önnur varð María Jó-

hannsdóttir Siglufirði, 29,46

mín., og þriðja varð Guðbjörg

Haraldsdóttir, Reykjavík

32,07 mín.,

í flokki stúlkna 16-18 ára

voru gengnir 5 km og urðu

úrslit þau að fyrst varð Stella

Hjaltadóttir Akureyri 17,24

mín, önnur varð Svanfríður

Jóhannsdóttir,         Siglufirði,

18,38 og þriðja varð Auður

Ebenesardóttir, ísafirði 19,24

mín.

í göngutvíkeppni karla sigr-

aði Gottlieb Konráðsson,

Ólafsfirði og Guðrún Pálsdótt-

ir, Siglufirði, varð sigurvegari

í kvennaflokki. Haukur Ei-

ríksson varð sigurvegari í

göngutvíkeppni 17-19 ára pilta

og Stella Hjaltadóttir, ísafirði

í flokki 16-18 ára stúlkna

Skipting gullverðlauna á

Skíðalandsmótinu varð sú að

Ólafsfirðingar fengu 7 gull-

verðlaun, Akureyri 6, Siglufj-

örður 6, ísafjörður 5, Reykja-

vík 1.

Bengtson

varð Evrópu-

meistari

¦   Það var ekki einungis í

tennis sem Svíar voru sigur-

sælir um helgina. I Moskvu

varð Svíinn Bengtson Evr-

ópumeistari í borðtennis

með sigri á Pólverjanum

Andrzei Grubba, sem fyrir-

fram þótti sigurstranglegast-

ur á mótinu. Ulf Bengtson

hefur um skeið leikið fyrir

vestur-þýskt félag, en var

vikið frá því fyrir skemmstu

þar sem hann þótti ekki

nógu góður.

Feyenoord

þokast nær

titlinum...

¦   Feyenoord þokaðist nær

meistaratitlinum í Hollandi

nú um helgina er liðið gerði

jafntefli við Spörtu á heima-

velli. Þó að sigur hafi ekki

unnist þá kom það ekki að

sök því að næst efsta liðið,

PSV Eindhoven, tapaði í

Amsterdam á móti Ajax.

Feyenoord hefur þá þriggja

stiga forskot þegar fjórar

umferðir eru eftir.

Stórsigur FH

¦   FH-ingar fóru vel af stað

í síiiuiu fyrsta opinbera leik

á þessu knattspyrnutímabili.

Liðið lék gegn nágrönnum

sínum í Hafnarfirði, Hauk-

um, og vann stórsigur 7-0.

FH er þjálfað af Inga Bimi

Albertssyni, sem einnig sá

um þjálfun þess fyrir iáuiii

áriim. Ingi Björn var sannar-

lega á skotskónum á laugar-

dag. Hann skoraði tvö mörk

í leiknum.

Keflavík náði

jöfnu við b-lið

Tottenham

¦    Knattspyrnulið Kefivík-

inga er nú komið heim úr

Tottenhamferð sinni. Á

laugardag lék Keflavík við

b-lið Tottenham Hotspur, og

náði þeim góða árangri að

gera jafntefli, 3-3. Mörk ÍBK

skoruðu Ragnar Margeirs-

son, Helgi Sigurbjömsson og

Óskar Færseth.

Ipswich á uppleið

Allmargir leikir fóru fram I  Man. City-Huddersf. . .   2-3 1  norðanliðsins,      Manchester

í ensku knattspyrnunni á ann-

an páskadag og urðu úrslit

þessi í fyrstu og annari deild:

1. DEILD:

Birmingham-Arsenal .. 1-1

Everton-Wolverhampt .   2-0

Ipswich-Norvtich.....   2-0

Stoke-QPR........   1-2

WBA-Sunderland____   3-1

2: DEILD:

Barnsley-Blackburn ...   0-0

Cardiff-Derby   ......   1-0

Crystal Pal.-Charlton .. 2-0

Fulham-Brighton .... 5-1

Grimsby-Cambridge   ..   0-0

Newcastle-Carlisle ....   5-1

Ipswich á í harðri fallbaráttu

um þessar mundir en liðið náði

að treysta nokkuð stöðu sína

með sigri yfir nágrannaliðinu

Norwich City. Stoke er hins

vegar komið í harla erfiða

stöðu og úlfarnir féllu endan-

lega í aðra deild með tapi

liðsins gegn Everton.

Möguleikar Newcastle á að

endurheimta sæti í fyrstu deild

jukust hins vegar til muna við

stórsigur liðsins gegn Carlisle,

þar sem  helstu keppinautar

City, töpuðu illilega á heima-

velli sínum gegn Huddersfield.

Kevin Keegan var yfirburð-

armaður í liði Newcastle í gær,

eins og svo oft áður í vetur.

Hann skoraði tvö mörk í

leiknum í gær, en áhangendur

Newcastle urðu engu að síður

fyrir áfalli um helgina, er

hann gaf út yfirlýsingu þess

efnis að hann mundi leggja

knattspyrnuskóna á hilluna

eftir þetta leiktímabil.

- Sjá stöðuna í ensku knatt-

spyrnunni á bls. 30-31.

Janus sem óðast

að jaf na sig

eftir meiðslin

nýr þjálfari hjá

Fortuna

¦    i^váPlÍl          ^K\\V



¦ Janus Guðlaugsson er orð-

inn vél rólfær eftir meiðslin í

vetur, og verður að líkindum

kominn í leikæfingu fyrir

sumarið.

¦ Janus Guðlaugsson er nú

sem óðast að jafna sig eftir

meiðsli þau er hann hlaut í leik

með Fortuna Köln gegn Frei-

burg fyrr í vetur og urðu þess

valdandi að hann varð að gang-

ast undir skurðaðgerð í febrú-

ar. Janus losnaði við gifsið

hinn 5. apríl og hefur nú verið

í meðhöndlun og æfíngum til að

styrkja liðböndin sem slitnuðu

og sauma varð saman. í stuttu

spjalli við NT kvaðst Janus

vonast til að geta hafið

hlaupaæfingar nú í vikunni, en

sagðist ekki geta sagt um hvort

hann mundi leika meira með

liði sínu Fortuna Köln í vetur.

J?að er nú ákveðið að núver-

andi þjálfari Fortuna Köln,

Heese að nafni, hættir með

liðið eftir þetta leiktímabil og

hefur stjórn liðsins þegar ráðið

einn af núverandi leikmönnum

þess, miðvallarleikmanninn

Hannes Linssen til að taka við

þjálfun liðsins fyrir næsta

keppnistímabil.

Tony Knapp í V-Þýskalandi:

Ræddi við alla

„útlendingana"

¦ Eins og fram kom í fréttum

íslenskra blaða í síðustu viku

stóð til að Tony Knapp mundi

eiga fundi með íslensku at-

vinnumönnunum í knatt-

spyrnu í Vestur-Þýskalandi og

Belgíu á næstunni

Sainkvæmt heimildum NT

mun Knapp hafa rætt við ís-

lensku leikmennina í Vestur-

Þýskalandi á fundi í Diissel-

dorf nú umhelgina.Mun hinn

besti andi hafa ríkt á fundinum

og knattspyrnumennirnir vera

ánægðir með að fá Knapp

aftur í landsliðsþjálfai astólinn.

Einhver bið mun þó verða á

því að Knapp taki við stjórn

landsliðsins, þar sem hann er

samningsbundinn liði sínu í

Noregi fram á haust. í fram-

haldi af fundinum í Dússeldorf

hélt Knapp til Belgíu sl. sunnu-

dag, til að ræða við íslensku

leikmennina þar.    __________

Forest neitaði

- tilboöi frá Brest í

¦ Enska fyrstudeildarféiagið

í knattspyrnu, Nottingham

Forest, neitaði um heigina til-

boði sem franska fyrstudeild-

arliðið Brest gerði í skoska

landsliðsframherjann Ian

Wallace. Tilboðið frá franska

liðinu hljóðaði upp á 86 þús-

und steríingspund, 3 og hálfa

milljón ísl. kr.

Ian Wallace var keyptur frá

Coventry árið 1980 fyrir 1,2

milljónir sterlingspunda, um

lan Wallace

50 milljónir ísl. króna. Hann

hefur ekki náð að vinna sér

fast sæti í liði Nottingham

Forest í vetur. Samningur hans

við Forest rennur út í júní n.k.

Brian Clough, fram-

kvæmdastjóri Nottinghamliðs-

ins sagði eftir að tilboðinu var

hafnað: „Tilboðið frá Brest er

eina tilboðið sem ég hef fengið

í Wallace, og mér dettur ekki

í hug að taka því."

Skiptir Lárus um ffélag?

„Verður líklega

á hreinu í maí"

¦ „Ég vil ekki á þessu stigi

tjá mig um hvort ég fer frá

Waterschei, ég býst frekar við

að fara til annars liðs, en það

skýrist á næstu dögum hvað

verður," sagði Lárus Guð-

mundsson knattspymumaður

í Belgíu, er NT innti hann eftir

því hvort hann færi frá Wat-

erschei er samningur hans

rennur út í vor.

„Fyrst í maí veit ég nokkuð

örugglega hvar ég leik næsta

keppnistímabil", sagði Lárus,

en ýmis félög innan og utan

Belgíu hafa sýnt honum áhuga

undanfarið.

Illa gekk hjá Lárusi og fé-

lögum um helgina, liðið tapaði

fyrir Courtrai 2-3, enda vant-

aði 8 af fastamönnum liðsins,

5 í leikbanni vegna mútumáls-

ins og 3 voru meiddir. Wat-

erschei komst þó í 1-0, en hélst

ekki á því. Anderlecht, lið

Arnórs Guðjohnsen vann FC

Liege 3-1, og er í öðru sæti

þremur stigum á eftir Beveren.

Sævar Jónsson og félagar hjá

CS Brugge töpuðu 1-3 fyrir

Seraing.

Víðavangshlaup ÍR:

ÍR átti flokkakeppnina

¦ ÍR-ingar áttu hreinlega

Víðavangshlaup IR sem fram

fór á skírdag, sumardaginn

fyrsta. Þeir sigruðu í öllum

fimm flokka-hlaupunum. I

karlaflokki var keppt í 3, 5

og 10 manna sveitum og alls

staðar komu ÍR-ingar fyrstir í

mark. í kvennaflokki var

keppt í 3 manna sveit og þar

sigraði ÍR og í flokki 16 ára og

yngri karla sigraði ÍR.

1 einstaklingskeppninni

náðu ÍR-ingar þó aðeins að

sigra í sveinakeppninni. Það

gerði Steinar Jóhannsson. í

karlaflokki var hörkukeppni

og þar sigr;.ði Sieatrðtir P. Sig-

mundsson, en á hæla honum

komu þeir Hafsteinn Óskars-

son og Sigfús Jónsson, Haf-

steinn á undan. í kvennaflokki

sigraði svo Unnur Stefánsdótt-

ir HSK, en í öðru sæti varð

Rakel Gylfadóttir FH. Elsti

keppandinn í V'íðavangshlaup-

inu var Jón Guðlaugsson,

tæplega sextugur að aldri, en

síhress að vanda. Milli 50 og

sextíu manns tóku þátt í hlaup-

inu.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 24
Blašsķša 24