NT - 04.06.1984, Blaðsíða 25

NT - 04.06.1984, Blaðsíða 25
IXCI1' cu i ,> ~.t.rjarjjí'éH is' d $ V Mánudagur 4. júní 1984 25 X, ■ Ur leik Víkinga og Skagamanna. Það eru þeir Heimir Karlsson Víkingi nr. 11 og Olafur Þórðarson Skagamaður sem þarna áttust við um boltann og Ólafur hefur greinilega haft betur. Þeir Guðjón Þórðarson nr. 2, Ómar Torfason nr. 8 oe Raenar Gíslason nr. 3 fylgjast með. NT.mvnd Arni Bjarna Fjögur mörk og fjöldi marktækifæra - fjörugur opinn og skemmtilegur leikur í Laugardal ■ „Ég vona að áhorfendur hafi skemmt sér vel, þetta var opinn og skemmtilegur leikur" sagði Hðrður Helga- son þjálfari Skagamanna, eftir að meistararnir gerðu jafntefli gegn Víkingum á Valbjarnarvelli á laugardag. „Við leikum ávallt upp á sigur og ég er því ekki ánægður nema við sigrum. Það var betra að fátf itt stig úr þessum leik en að tapa. Víkingarnir eru mjög góðir og þeir eiga eftir að’vinna marga leiki í sumar“ sagði Hörður. Skagamenn höfu leikinn af krafti og strax á 2. mínútu skoruðu þeir fyrsta mark leiksins. Jón Leó Ríkharðs- son (Jónssonar) átti góða sendingu fyrir mark Vík- inga. Ogmundur markvörð- ur rann og náði ekki boltan- um og Hörður Jóhannesson afgreiddi hann í netið. Skagamenn sóttu áfram, en Víkingar komu meira inní leikinn þegar á leið og áttu nokkur hættuleg tæki- færi. Þeir komust þó ekki framhjá lokahindruninni, sem var Bjarni Sigurðsson markvörður Skagamanna, en hann varði oft meistara- lega. Staðan í hálfleik því 1-0 fyrir Skagamenm Síðari hálfleikur var mjög fjörugur. Skagamenn áttu hættulegt marktækifæri á47. ntín. þegar Sigurður Hall- dórsson skallaði rétt yfir. Á 50. mín. skaut Jón Leó rétt yfir, en rétt áður höfðu Skagamenn bjargað á línu, Sigurður Halldórsson rétt náði að bjarga skoti Heimis Karlssonar. Á 54. mín, var mikill darraðardans í víta- teig Víkings en ekkert varð úr. Víkingar snéru vörn í sókn, Heimir skaut góðu skoti að marki ÍA, en Bjarni varði. Hann hélt þó ekki boltanum og litlu munaði að Aðalsteinn Aðalsteinsson skoraði, en Bjarni varaðeins á undan. Hörkuskot Kristins Helgasonar af um 30 metra færi fór rétt yfir á 57. mín. Jöfnunarmark Víkinga kom á 65. mínútu. Ómar Torfason átti góða sendingu á Kristinn Guðmundsson sem gaf boltann af miklurn krafti inní vítateig Akurnes- inga. Þar var Aðalsteinn Aðalsteinsson á réttum stað og skoraði af stuttu færi. Tveimur mínútum síðar missti Guðbjörn Tryggvason boltann klaufalega frá sér á eigin vallarhelmingi, Krist- inn Guðmundsson náði bolt- anum en skot hans fór fram hjá. Þegar hér var komið sögu náðu Skagamenn yfir- höndinni í leiknum og sóttu mjög. Sveinbjörn Hákonar- son skaut í þverslá Víkings- marksins á 69. mín. og mark lá í loftinu. Á 77. mín. varð það að veruleika. Árni Sveinsson skaut firnaföstu skoti að marki Víkings og Hörður náði að pota boltan- um í hornið fjær, framhjá Ögmundi markverði Víkings. Víkíngar jöfnuðu metin öðru sinni á 81. mín. Ámundi Sígmundsson sendi boltann fyrir mark Skaga- manna og Aðalsteinn var á réttum stað og skallaði knöttinn f netið. Fleiri urðu mörkin ekki og þessum stórskemmtilega leik lauk með jafntefli. Sann- gjörn úrslit eftir gangi leiks- ins. Dómari var Friðgeir Hallgrímsson. Körfuboltinn: Kiddi Jör verður þjálfari IR-inga IS nú eitt úrvalsdeildarliða þjálfaralaust I HNOT- SKURN ■ Leikur tveggja goöra liða og leikurinn góður eftir því. Mjög opinn leikur og mikið um marktækifæri. Þar af leiðandi var hann skemmtilegur á að horfa. Mörk ÍA skoruðu: Hörður Jóhannesson á 2. mín. og 77 mín. Mörk Vikings: Aðalsteinn Aðalsteinsson á 65. mín. og 81 mín. Áhorf- endur 1014. Einkunnagjöf NT: VÍKINGUR Ögmundur Kristinsson . 5 Unnsteinn Kárason .... 3 Ragnar Gíslason...... 4 Kristinn Helgason.... 3 Magnús Jónsson ....... 2 Andri Marteinsson .... 4 Kristinn Guðmundsson . 3 Ómar Torfason........ 3 Ámundi Sigmundsson .. 2 Sigurður Aðalsteinsson . 5 Heimir Karlsson ...... 2 Aðalsteinn Aðalsteinsson 3 Skiptingar: Aðalsteinn kom inná fyrir Sigurð í leikhléi. ÍA Bjarni Sigurðsson .... 2 Guðjón Þórðarson ..... 4 Jón Áskelsson ........ 3 Sigurður Lárusson.... 5 Sigurður Halldórsson... 2 Hörður Jóhannesson ... 2 Sveinbjörn Hákonarson . 3 Ólafur Þórðarson ..... 3 Jón Leó Ríkharðsson ... 3 Guðbjörn Tryggvason .. 4 Árni Sveinsson....... 2 Birgir Skúlason...... 5 Skiptingar: Birgir Skúia- son kom inná fyrir Sigurð Lárusson á 55. min. ■ ,',Eg ætla mér að starfa áfram fyrir ÍR og þess vegna tók ég ekki boði IS um að þjálfa liðið næsta vetur. Eg get ekki unnið fyrir ÍR á einum vígstöðum og á móti IR á öðrum,“ sagði Kristinn Jörundsson formaður körfu- knattleiksdeildar ÍR í sam- tali við NT. Ég hef verið ráðinn þjálfari meistaraflokks karla hjá ÍR næsta vetur og mig dauð- langar að leika líka með liðinu“, sagði Kristinn. Kristinn þjálfaði meist- araflokk ÍR fyrir þremur árum, en tvö síðustu ár hefur hann þjálfað ÍS. Á síðasta keppnistímibili lék hann einnig með liðinu, sern vann sig uppí úrvalsdeildina. Á síðasta keppnistímabili þjálfaði Kristinn einnig kvennalið ÍR, sem aðeins var hársbreidd frá íslands- meistaratitlinum. „Sem formaður körfu- knattleiksdeildar IR get ég ekki þjálfað annað lið í sömu deild, þess vegna iief ég tilkynnt forráðamönnum ÍS að ég geti ekki tekið boði þeirra um að þjálfa áfram.“ Þar sem Kristinn verður þjálfari ÍR næsta vetur, er IS nú eitt liða án þjálfara, því hin úrvalsdeildarliðin, Valur, KR, Njarðvík og Haukar hafa öll enbdurráðið þá þjálfara sem voru með liðin síðasta vetur. Þessir þjálfa því úrvals- deildarliðin í körfuknattleik næsta vetur: Valur: Torfi Magnússon, KR: Jón Sig- urðsson, Njarðvík: Gunnar Þorvarðarson, Haukar: Ein- ar Bollason, ÍR: Kristinn Jörundsson, ÍS:???? ■ Kristinn Jörundsson 0 JL B m 1 J uruhls Hönnun Umboð: ABRU STARMASTER STIGAR 2,5 -7,6 METRA ABRU ALUVAL TRÖPPUR 3 - 7 PREPA ABRU ALUVAL HEIMILISTRAPPA Sölustaðir: Sambandið Byggingavörudeild Suðurlandsbraut 32 og kaupfélögin um land allt Innflutningsdeild Sambandsins Búsáhöld - Holtagörðum - Sími 812 66 Aksturshraða skal miða við o/Sc+cnrSi ir

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.