NT - 02.12.1984, Blaðsíða 10

NT - 02.12.1984, Blaðsíða 10
Einn Einn M ISæturlífíd í Reykjavík hefur mörg- um gledimanninum oft þótt daufíegt í áranna rás. En nokknð ætti þeim hinum sömu að þykja að hafí rofað til með framlengdum opnunartíma veitingahiísa til klukkan þrjú um helgar, - og þó sérlega með skara svonefndra „pöbha“ eða bjórstofa, þar sem af bestu getu er líkt eftir bjór í þessu öllausa landi. En nokkuð er um liðið frá því er reykvískir nátthrafnar tóku fyrst að andæfa gegn hálfeitt lokun vínveitinga- staðanna, eins og varhérí dentíð og vita skulu menn að hart var barist á stundum. En engir voru jafn stórhuga og þeir heimsmenn sem fyrir fímmtán árum hugðust opna næturklúbba í höfuðborg- inni. Petta fyrirtæki vakti mikla athygli sem von var, enda voru lög um slíka hluti strangari þá. Enn þann dag í dag eigum við ekki reykvískan næturkliíhb. En hvenær kemur að því..... Verður það næsta skrefíð. Við hugleiðum það atriði hér, en rifjum fyrst upp sögu næturklúbbanna frægu og örlög þeirra. ■ l.ogregliimcmi >i0 \|>|>nllo" kliililiinn oj> „('luli 7", cltir imiraiiiu 24. april 1%‘). V Sunnudagur 2. desember 1984 10 spaði sjúss Þegar Reykjavík eignaðist næturklúbba Nýstárleg þjónusta ■ Það var í byrjun árs 1969 að við Nóatún var opnaður samkomustaður undir nafninu „Club 7." Þótt þarna væri haft vín um hönd, þá var þetta ekki staður með gamla sniðinu, þar sem prúðbúinn þjónn stóð á bak við bar borðið og seldi sína vöru, heldur var „Club 7“ með klúbbsniði, eins og nafnið reyndar benti til. Gegn á- kveðnu ársgjaldi, sem var um 2500 krónur gátu góðir menn gerst félagar og jafnframt eig- endur í klúbbnum og notið allrar aðstöðu þar. Klúbbnum mátti líkja við stækkaða mynd af partíi í heimahúsi. Félagar lögðu fram áfengi og gosdrykki og útbúin voru nierki eða mið- ar sem giltu sem ávísun á þessar veitingar þegar þeir kölluðu eftir þeim, en klúbb- stjórnin geymdi flöskurnar. Þannig fóru engin peningavið- skipti fram í klúbbnum, en auðvitað þurfti að ráða fólk til að annast afgreiðslu, dyra- vörslu o.fl. Talið var í byrjun að með góðri lögfræðilegri aðstoð ætti klúbburinn að fá þrifist áreitni- Iaust og ekki var vitað betur en að innandyra færi allt fram með mestu spekt. Klúbbunum fjölgar Smám saman kom í Ijós að fleiri framtakssamir menn voru til en aðstandendur „Club 7“. Fljótlega bættust nýir klúbbar við og í byrjun mars voru þeir orðnir fjórir. Þá störfuðu auk „Club 7“ svonefndur „App- ollo“ klúbbur, „Playboy11 klúbburinn og „Start“ klúbb- urinn. Starfsemin var alls stað- ar með líku sniði, þótt það þekktist að merki og miðar á áfengið væru seldir við inn- ganginn sem ávísanir á veiting- ar. Þar var um að ræða meðal- verð og kostaði „sjússinn" af hvaða áfengi sem var 100 króríur. Yfirleitt mátti félagi taka maka sinn með og bjóða einnig tveimur gestum, til dæmis kunningjahjónum. Sagt var að all misjafnt væri hverjir sæktu hvern klúbb- anna. Þannig áttu það einkum að vera þjónar, leigubílstjórar og hljómlistarmenn sem sóttu „Club 7“, en svokallaðir „efri miðstéttarmenn", sem „App- ollo” sóttu, en sá staður var þar sem fyrrum hafði verið unglingaskemmtistaðurinn „Las Vegas,“ við Grensásveg. „Playboy" klúbburinn var í stöðvum klúbbs sem lengi hafði verið rekinn sem spila- klúbbur (Ásaklúbburinn) og var við Borgartún. „Start” klúbburinn var við Einholt og sagt að þar kæmu einkum fulltrúar bítlaæskunnar. Lögreglan fer á stjá En skjótt varð þess vart að klúbbarnir voru ekki öllum að skapi. Var rætt um að sérstak- lega væru það eigendur skemmtistaða af gamla taginu sem þótti illt er gestir tóku að tínast út löngu fyrir lokun til þess að njóta lífsins á einhverj- um næturklúbbnum. Aðfaranótt þriðjudagsins 11. mars 1969 gerðist það því klukkan þrjú um nóttina að lögreglumenn tóku sér stöðu utan við klúbbana fjóra og fylgdu þeim er út komu niður á lögreglustöð, alls um 45 manns. Var svo vörður staðinn við inngöngudyr til dagrenn- ingar. Fannst forstöðu- mönnum klúbbanna illa með sig farið að vonum, ekki síst þeim hjá „Start“ klúbbnum, en þar stóð í klúbblögum að hér væri um að ræða málfunda, fræðslu og ferðakiúbb, en ekki næturklúbb, þótt félagar dveldu undir þaki klúbbsins fram eftir nóttu við vín og söng, þegar svo bæri undir. Lögregluyfirvöld gerðu nú klúbbunum fjórum að loka klukkan eitt eins og aðrir skemmtistaðir og bann var lagt við að þar væri haft vín um hönd. „Appollo“ og „Club 7" rnunu hafa gert eitthvert hlé á starfsemi sinni í bili en „Playboy" klúbburinn og „Start" klúbburinn lýstu því þegar yfir að þeir myndu virða bannið að vettugi. Áðfaranótt laugardags þann 14. mars kom lögreglan því að „Appollo“ klúbbnum við Grensásveg og varnaði þeim inngöngu sem í klúbbinn vildu komast við áköf mótmæli eiganda hússins, sem kvaðst frjáls að því að hleypa þeim inn sem hann vildi og loka þá úti sem hann vildi. Klúbbarnir lifna við áný Þótt lögreglan hefði hótað stöðugri varðstöðu við klúbb- ana varð ekki mikið úr þeirri hótun, því afskiptalaust var látið um hríð að gestir gengju til fagnaðarins ef notast var við bakdyrnar en ekki aðaldyr. Því voru „Club 7“ og „Playboy” klúbburinn komnir á fulla ferð þann 20. mars. Lögreglan varðist allra frétta en sagði sakadóm vera að vinna í málinu. Senn voru klúbbarnir allir með tölu farnir að starfa sem ekki hefði í skorist og ekki bara það: Nýr klúbbur opnaði. Þetta var „Club de Paris" og var hann í húsakynnum Breið- firðingabúðar. Reykjavík var óðum að öðlast heimsborgar- brag. Lögreglan lét þó að sér kveða aðfaranótt skírdags er sakadómarar ruddust inn í alla klúbbana og gerðu upptæk öll vínföng þeirra í því skyni að nota þau síðar sem sönnunar- gögn. Að öðru leyti var allt kyrrt um hríð og starfsemin hélt áfram, þótt forstöðumenn klúbbanna og gestir þeirra hót- uðu eldi og brennisteini, mál- sóknum og fjárkröfum. Óvænt viðbót kom til sög- unnar í þessari starfsemi unr miðjan apríl: Morgunklúbbur var opnaður, er starfa skyldi frá klukkan sex að morgni og fram til hádegis. Var hann ætlaður starfsmönnum nætur- klúbbanna, sem létta vildu sér upp eftir annríki næturinnar. The Party is over En nú dró upp uggvænlegan dökkva á alstirndum himni þessa hamingjustands. Það var aðfaranótt fimmtu- dagsins 24. apríl að rannsókn- arlögreglumenn, sakadómarar og fulltrúar sakadómara fóru inn í alla klúbbana og lögðu þar hald á allt áfengi, meira að segja allar tómar flöskur, töldu upp úr peningakössum, - og handtóku forstjórana. Voru þeir úrskurðaðir í allt að sjö daga gæsluvarðhald. Eftir að lögreglan var horfin frá hélt starfsemin að vísu áfram til morguns, því meira áfengi var sótt og borið inn í húsin, en þær stundir urðu líka hinar hinstu á ferli klúbbanna. Kvöldið eftir stóð vörður við allar dyr og engum var hleypt inn. I hegningarhúsinu við Skólvörðustíg sátu sex uppá- búnir forstjórar. Þeir undu illa þessum mála- lokum og hugsuðu eigendum gömlu veitingastaðanna þegj- andi þörfina, enda töldu þeir ofsóknirnar eiga rætur að rekja til þeirra. Sannaðist það erþrír forstjórar fylktu liði á virtan veitingastað og kærðu það að kjötið er þeir fengu í matinn væri af annarri skepnu en sagt var - hrossi en ekki nauti. Ur þessu fékkst þó ekki skorið, vegna þess hve vel kjötið var steikt. Þann 8. maí reyndu ein- hverjir klúbbanna að hefja starfsemi á ný, en lögreglan mætti þegar á staðinn og gerði út af við tilraunina. Það var síðasta andvarpið. Dómur gekk í málinu eftir langa bið. Forstjórar nætur- klúbbanna þóttu sleppa heldur vel frá öllu saman og kátínu vakti að ekki þótti stætt á að gera upptækar vínbirgðir klúbbanna, heldur aðeins upp- takarana, sjússamælana og fleira slíkt! En hvað um það. Nætur- klúbbar hafa ekki skotið upp kollinum í Reykjavík frá 1969, en eigum við von á þeim aftur? Það er aldrei að vita....

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.