NT - 14.12.1984, Blaðsíða 14

NT - 14.12.1984, Blaðsíða 14
uii Tröll í Borg ■ í Gallerí Borg stendur nú yfir sýning á myndum sem Briun PilkTington geröi fyrir bók hans og Þráins Bertelsson- ar „Hundraö ára afmæli" og gefin er út af Nýju lífi. Á sýningunni cru yfir 30 vatnslitamyndir úr fyrrnefndri barnabók og eru þær allar til sölu í galleríinu, en þetta er í fyrsta sinn sem bókarskreyt- ingar Brians eru seidar og sýndar hér, en hann hefur myndskreytt fjölda bóka, m.a. bækur Guörúnar Helgadóttur, rith. og alþ. Þeir Þráinn og Brian árita bók sína í Gallerí Borg milli klukkan 14.00-16.00 á laugar- dag., Jól í Borg ! Opnuð hcfur vcriö sýning í Gallerí Borg, sem ber yfir- skriftina „Jól í Borg.“ Þar ber aö líta og er á boöstólum þaö nýjasta af ís- lenskri grafík og vatnslita- myndum, einnig olíumálverk' eftir yngri sem eldri íslenska myndlistarmenn. Auk þess er þar að fá og sjá tauþrykk, vefnað, gler, keramikhluti og keramikmyndir og bækur um íslenska myndlist og mynd- listarmenn. ■ Brian Pilkington mcöal mynda sinna. Föstudagur 14. desember 1984 14 Geoffrey Hendricks opnar sýningu á verkum sínum ■ í dag, föstud. 14. des., opnar bandaríski listamaður- inn Geoffrey Hendricks sýn- ingu í Nýlistasafninu Vatnsstíg 3 b. Sýningin er sú síðasta í röð sýninga sem listamaðurinn hef- ur haldið á þessu ári víðs vegar um Evrópu. Sýningunni lýkur á vetrarsólhvörfum, föstudag- inn 21. des. með gjörningi, sem hefst kl. 20.30. Geoffrey Hendricks er fæddur í Littleton. New Hampshire, 1931. Hann býr og starfar í New York, en undanfarið ár hefur hann dval- ist í Berlín á svokölluðum D.A.A.D.-styrk. Hendricks hefur haldið fjölda einkasýn- ■ Verk eftir Geoffrey Hendricks: Forest Bed. inga frá 1966 og tekið þátt í ótal mörgum samsýningum. Hann hefur einnig flutt ótal gjörninga. Frá 1956hefurhann kennt við Rutgers University í New Jersey. Verk eftir Hend- ricks eru í eigu margra þekktra safna, meðal annarra Museum of Modern Art í New York. Myndlistarsýning 5 listamanna á Kjarvalsstöðum - síðasta sýningarhelgi ■ Steingrímur, Pétur, Stefán, Magnús og Ómar (talið f.v.) ■ Undanfarnar tvier vikur hefur staðið yfir í austursal Sýning Valgarðs í Alþýðubankanum ■ í Alþýöubankanum stend- ur nú yfir kynning á verkum eftir Valgarð Stefánsson, rit- höfund og listmálara. Þetta er þriðja einkasýning Valgarðs, en hann hefur einnig tekið þátt í fjölmörgum samsýningum. Það eru Menningarsamtök Norðlendinga sem standa að kynningunni. Kjarvalsstaða myndlistarsýn- ing fimm listamanna sem íxer yfirskriftina Academian ’84. Þeir sem sýna eru: Steingrímur Þorvaldsson, sem er með málverk unnin á striga og útsagaðar tréplötur. Öll verkin voru gerð í Svíþjóð á þessu ári, þarsem hann hefur verið viö nám í Listaháskólan- um í Stokkhólmi síðast liðin tvö ár. Magnús V. Guölaugsson sýnir nokkrar „málaðar skissur" í stærra lagi, allt unnið á þessu ári. Þessi verk voru á einkasýningu hans í Middel- burg í Hollandi í mars á þessu ári, en þar sýndi hann í boði „De Vleeshaí" sáfnsins. Stefán A. Valdimarsson sýn- ir stór málverk gerö á þessu ári bæði á íslandi og í Hollandi. þar sem hann stundar nú nám í Jan Van Eyck Academie í Maastricht. Ómar Skúlason, en hann sýndi síðast í Listmunahúsinu fyrir hálfum mánuði, þar sem ntyndir hans hlutu misjafna dóma gagnrýnenda. Pétur Stefánsson sýnir blý- antsteikningar, en Pétur hefur verið kallaður fyrsti „pönk- málarinn" á íslandi. Sýningunni lýkur næstkom- andi sunnudag, 16. des. kl. 22.00. Norræna húsið um helgina: Finnsk form í Norræna húsinu ■ Sýning verður í Norræna húsinu um helgina, sem nefnist Finnsk form. Þetta er sýning á finnskum listiðnaði og hönnun gler, keramik, textílar, húsgögn, ljósabúnaður, skart- gripir og fleira. Ludvig Holberg - 300 ára minning ■ í anddyri Norræna hússins er sýning um Ludvig Holberg í tilefni 300 ára minningar hans. Þar eru sýndar ljósmyndir frá leiksýningum leikhúsanna og menntaskóla og bækur um og eftir Holberg. Norræn jól ■ Sunnudaginn 16. des. í fundarsal: Norræn jól - upp- lestur, Lúsía og þernur hennar, söngur o.fl. Þetta er jóladagskrá fyrir börn og full- orðna. Allir hjartanlega vel- komnir. Fyrri jólamynd Laugarásbíós 1984: Tölvuieikur ■ Fyrri jólamynd Laugarásbíós , 1984 hetir Tölvuleikur. Hún segir frá unguni pilti, sem verður svo heltekinn af því aö spiln tölvuleiki, aö þaö rcynist honum erfitt að gertt greinarmun á raunveruleikanum og lcikjunum. Meö aöalhluatverk í myndinni fara þeir Henry Thomas, sem gat sér frægð í kvik- myndinni E.T. scm Elliot. Einnig lék hann son Sissy Spach í „Ragg- edy Man". Faðir hans og vin úr tölvuleikjunum lcikur Dabeny Coleman, og má munacftir hontim úr „Tootsie", „Nine to Five" og „War games". Upplestur á Hótel Loftleiðum ■ Á sunnudag 16. des. kl. 16.00 verður upplestur nokkurra höfunda í Rástefnusal Hótels Loftleiöa á vegum Höfundamiðstöðvar Rit- höfundasambandsins í samvinnu við nokkra útgefendur. Átta höfundar lásu úr verkum sínum á fimmtudagskvöldið, en níu koma fram á sunnudaginn og lesa úr frumsömdum bókum og þýddum, nýútkomnum. . Á sunnudag kl. 16.00 lesa þessir höfundar: Árni Bergmann, Fríöa Á. Sigurðardóttir, Jón Öskar, Lilja K. Möller, Njörður l’. Njarðvík, Pétur Eggerz, Sveinn Einarsson, Þorsteinn frá Hamri og Þórarinn Eldjárn. Kynnir verður. Sigurður Pálsson. Áformaö er að gera upplestur höfunda úr nýjum bókum sínum og gömlum aö mánaðarlegum við- buröi í vetur. Jólatréssala í Mosfellssveit ■ Kiwanisklúbburinn Geysir Mosfellssveit heldur hina árlegu jólatréssölu helgina 14.-16. des- ember í glerverksmifljunni við Reykjaveg, gegnt fuglasláturhús- inu ísfugli. Það verður selt - auk jólatrjáa - greinar, jólapappír og jólakort. Jólatréin verða flutt heim endur- gjaldslaust fyrir þá Mosfellinga, sem þess óska, greiðslukort gilda. Allur ágóði rennur til kaupn á endurhæfingartækjum fyrir Reykja- lund. Gúmmígleði ■ Gúmmívinnustofan hf býður til Gúmmí gleði, að Réttarhálsi 2 n.k. laugardágog sunnudagklukk- an 13.00-19.00. " Tilefniö er að Gúmmívinnustof- an hf flutti fyrir einu ári. hluta starfsemi sinnar úr Skipholti 35 í 3000 ferm. húsnæði að Réttarhálsi 2. Um helgina gefst almenning kostur á að kynna sér starfsemi fyrirtækisins sem. auk alhliða hiól- barðaþjónustu, felst í framleiðslu sólaðra hjólbarða með fullkomn- ustu tækjum sem völ er á. Gestum verður boðið upp á veit- ingar; kökur, gos og kaffi á meðan þeir staldra við. Þá hefur Gúmmívinnustofan hf boðið myndlistarmanninum Tolla (Þorláki Kristinssyni) að sýna olíumálverk í húsnæði fyrirtækis- ins. Tolli lauk námi frá MHI 1983 og hefur síðan stundað nám í V- Berlín. Hér gefst tækifæri til að njota listar, léttra veitinga og fylgjast með íramleiðslu íslensks iðnvarn- ings í hæsta gæðaflokki. Kvikmyndaklúbb- urinn Norðurljós ■ Sunnudaginn 16. des. kl. 19.00 (ath. breyttan sýningartíma) sýnir Kvikmyndaklúbburinn Norðurljós danska sakamálagamanmynd: Kassinn stemmir.Leikstjóri er Ebbe Laggberg, en myndin er framleidd í Danmörku 1976. Leikarar eru: Buster Larsen, Axel Ströby, Jess Ingerslev, Mort- en Grundwald o.fl. Aðgangskort og miöar á sýning- una eru við innganginn í Nornena húsinu. Myndin segir frá þremur brodd- borgurum frá Árósum. sem eru að undirbúa mikið svindl, en svo koma aðrir þrír snjallir ungir menn með krók á móti bragöi. Þegar kvikmyndin var frumsýnd í Danmörku skrifuðu blöðin: „Nú getur sjónvarpið pakkað niður Columbo, Kojak. McClaudmynd- unum - hér kemur Ebbe Langberg." Keflavík fær jóla- tré frá Kristinan- sand ■ Föstudaginn 14. desember kl. 17.00 verða tendruð ljós á jólatré því sem Kristiansand, vinabær Keflavíkur í Noregi, gefur Keflvík- ingum. Björn Eiden, fyrsti sendi- ráðsritari norska sendisráðsins, af- hendir tréð. Hilmar Pétursson, for- maður bæjarráðs, veitir því við- töku. Lúðrasveit tónlistarskólans í Keflavík leiknr undir stjórn Jónasar Dagbjartssonar og kór Keflavíkurkirkju syngur jólalög undir stjórn Siguróla Geirssonar. Að lokum koma jólasveinar í heimsókn. Kveikt á jólatré í Garðabæ ■ Garöabæ hefur borist fallegt jólatré frá vinabæ bæjarins Asker i Noregi. Kveikt verður á trénu við Garðaskóla v/Vífilsstaðaveg, sunnudaginn 16. desember kl. 15.00. Dröfn Farestveit. varaforseti bæjarstjórnar, Oytur ávarp. Barn ur hópi viðstaddra verður beðið um að kveikja á trénu. Garðakór- inn syngur jólalög. Jólasveinar koma og bregða á leik og á eftir er boðið upp á smáveitngar. Norræna fclagiö í Garðabæ Áramótaferð Útivistar í Þórs- mörk ■ Farinverðurfjögurradagaferð um áramótin í Þórsmörk. Brottför er laugardaginn 29.desember kl. 8.00. Gist verður í hinum vistlega Útivistarskála í Básum. M.a. veröa gönguferðir, kvöldvökur. áramóta- brenna og blysför. Fararstjórar verða Kristján M. Baldursson og Bjarki Harðarson. Upplýsingar og farmiðar á skrifstofunni Ltekjar- götu 6a, sími er 14606 (símsvari). Farmiðar óskast sóttir í síðasta lagi 21. des. Ath. Útivist notar allt gistirými í Básum um áramótin. Hvammstanga- kirkja ■ Aðventukvöld verður sunnu- daginn 16. desember kl. 20.30 í Hvammstangakirkju. en barna- guðsþjónusta kl. 11.00. Jólasöfnun Hjálpræðis- hersins: Laugardags- söfnunin rennur til Eþíópíu ■ Jólasöfnun Hjálpræðishersins laugardaginn 15. desember rennur til hjálparstarfsins í Eþíópíu. Eins og vegfarendur hafa séð eru jólapottar Hjálpræðishersins komnir út á götur í Reykjavík. Akureyri og á Isafirði. Margir liafa þegar lagt sinn skerf í jólapottinn og má segja að söfnunin gangi nokkuð vel miðað við undanfarin ár. Vegna þeirrar miklu neyðar, sem ríkir í Eþíópíu. hefur Hjálp- rteðisherinn ákveðið að allt það fé, sem safnast í jólapotta hans laug- ardaginn 15. descmber skuli óskcrt varið til hjáiparstarfs í Eþíópíu. Hjálpræðisherinn hefur ákveðið a.ð afhenda Hjálparstofnun kirkjunn- ar það sem safnast inn. Frá Hjálp- ræðishernum í Noregi hefur frést, að þar muni einng vera safnað 15. desember og féð látið renna til „Kirkens Nödhjelp". Hjálpræðis- herinn treystir því, að íslendingar sjái til þess að það sjóði vel í jólapottum Hjálpræðishersins hér á landi laugardaginn 15. desember svo vel safnist til hjálparstarfsins í Eþíópíu. Sunnudagsferð FÍ ■ Sunnudaginn 16. desemberfer Ferðafélag Islands í dagsferð kl. 13.00. Gengið verður á Helgafell (338 m) við Hafnarfjörð, sem talin er stutt og létt gönguferð. Brottför verður frá Umferðar- miðstöðinni. austanmegin. Far- miöar við bíl. Frítt fyrir börn í fylgd fullorðinna. Fjölskyldusam- komaáHótel Borg ■ Landssamtökin Líf og land gangast fyrir fjölskyldusamkomu á aðventu á Hótel Borg Laugardag- inn 15. desember kl. 15.00. Til- gangur þessarar samkomu er að minna á boðskap jólanna og gefa fólki í jólaundirbúningi kost á að koma saman með börnum sínum, syngja og hlýða á jólasögu. Stjórnandi samkomunnar verð- ur dr. Gunnar Kristjánsson. prest- ur'a Reynivöllum í Kjós. Á sam- komunni mún Mótettukórinn syngja undirstjórn Harðar Áskels- sonar, Herdís Þorvaldsdóttir leik- kona les jólasögu og auk þess mun Hörður Áskelsson leiða fjölda- söng. Aðgangur er ókeypis. Áramótaferð FÍ í Þórsmörk ■ Ferðafélag Isalands fer í fjögurra daga ferð í Þórsmörk um áramótin. Brottför er kl. 08.00 á laugardaginn 29. desember og til baka þriðjudaginn 1. janúar. Dvalið verður í Skagafjörðs- skála í Þórsmörk, en þar er hin besta aðstaða, svefnpláss í 4-8 manna herbergjum, miðstöðvar- hitun og rúmgóð setustofa. Farmiðasala og allar upplýsing- ar á skrifstofu FÍ Oldugötu 3. Ath. að það er takmarkaður sætafjöldi. Ferðafélagið notar allt gistirými sitt í Þórsmörk um áramótin fyrir sína farþega. Jólagleði og aðalfundur ■ Félag dönskukennara heldur aöalfund og jólagleði í Norræna húsinu föstudaginn 14. desember kl. 20.30.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.