NT - 25.01.1985, Blaðsíða 4

NT - 25.01.1985, Blaðsíða 4
Hvað segja þau um niðurstöðurnar? Jón Baldvin Hannibalsson: Jafnaðar- menn orðnir sterkt af I ■ Það seni mér finnst eftir- tektarverðast við þessar niður- stöður er hve gífurleg umskipti hafa orðið á sköntmum tíma. Það eru ekki nema rúmir tveir mánuðir síðan veruleg breyt- ing varð á stefnu og málflutn- ingi Alþýðuflokksins og við höfum beint okkar orku að því að kynna þessa stefnu úti á landi. Þetta eru meiriháttar umskipti. Við fáum fylgi tæp- lega 16% þjóðarinnarsem mér telst vera fjögurra þingsæta aukning frá síðustu kosning- um. Fylgisaukningin er sam- kvæmt könnuninni mest úti á landi. Það sýnir að kynningar- herferð okkar þar hefur borið árangur. Það er mjög ánægju- legt því að Alþýðuflokkurinn hefur sætt ámæli fyrir það að vera Faxaflóaflokkur, hefur engan þingmann í jafn stórum kjördæmum og Suðurlandi og Austurlandi. Við erum ekki byrjaðir að kynna stefnu okkar hér á höfuðborgarsvæðinu, cn telj- um að hér eigum við mikinn óplægðan akur. Alþýðuflokkurinn er nú orð- inn stærsti stjórnarandstöðu- flokkurinn ogskoðanakannan- Föstudagur 25. janúar 1985 4 :koðanaki Stefán Benediktsson: Nokkuð ánægður ■ Mér sýnist að ykkar niður- stöður séu mjög í samræmi við niðurstöður Helgarpóstsins og ég get ekki annað en verið nokkuð ánægður fyrir okkar hönd þegar horft er til þess að ríkisstjórnin missir samkvæmt könnuninni aðeins þrjá þingmenn. Ég gerði ekki ráð fyrir að við hirtum obbann af þeim. Þá kemur það í ljós að hamagangurinn í Jóni Baldvin kemur ekkert niður á okkur, hins vegar kann ég engar skýringar á tilflutningi fylgis af Alþýðubandalaginu yfir á Al- ! þýðuflokkinn. Það á eftir að koma á daginn í hverju róttækni Jóns Baldvins felst. Hún felst að minnsta kosti ekki í því að hann vilji segja skilið við samtryggingar- kerfið samanber síðustu banka- ráðskosningar. Guðrún Agnarsdóttir: Orðið varar við vaxandi byr ir hafa aðeins einu sinni sýnt hann stærri en Alþýðubanda- lagið. Þegar við fórum af stað og töluðum um að sameina jafn- aðarmenn í einn flokk; afl vinstra megin við miðju, þá brostu menn út í annað. Én hvað er að gerast? Alþýðu- flokkurinn og Bandalag Jafn- aðarmanna hafa nú 22 xh% samkvæmt ykkar könnun og sameiginlega mynda þeir nú sterkt afl. ■ Ég er að sjálfsögðu mjög hress með þessar niðurstöður. Þó get ég ekki sagt að þær komi mér á óvart því að við höfum orðið varar við vaxandi byr, vaxandi áhuga á málefn- um okkar, ekki síst eftir ferð okkar um landið í sumar. Þessi vaxandi skilningur kemur til þrátt fyrir mikinn áróður gegn okkur og þrátt fyrir málgangsleysi, sem er mjög bagalegt, en það segir mér að málstaður okkar á er- indi til fólks. Karlinn í brúnni fiskinn á atkvæðin ■ Jón Baldvin Hannibalsson hefur sveiflað Alþýðuflokknum rækilega upp á við, síðan hann tók við formennskunni af Kjartani Jóhannssyni og það verður ekki betur séð en „karlinn í brúnni" sé bærilega fiskinn á atkvæðin. Hvort sem úrslit þessarar skoðanakönnunar eru borin saman við síðustu könnun okkar eða síðustu alþingiskosningar, er Ijóst að fylgi flokksins hefur vaxið gífurlega. Fylgisaukning Alþýðuflokksins kemur úr ýmsum áttum en þó trúlega mest frá Sjálfstæðisflokknum, sem samkvæmt skoðanakönnunum undanfarið virðist á stöðugu undanhaldi. Fylgi Sjálfstæðisflokksins í könnunum náði hámarki í april á síðasta ári, en fiokkurinn fékk meira en helming atkvæða. Síðan hefur jafnt og þétt hallað undan fæti. Hér við bætist að reynslan virðist sýna að flokkurinn fái yfirleitt heldur minna fylgi í kosningum en skoðanakannanir gefa til kynna. Við höfum áður varað fólk við því hér á síðum NT að taka skoðanakannanir of hátiðlega og skal það enn ítrekað hér, að óvissuþættir þeirra skoðanakannana, sem stundaðar eru hérlendis, eru of stórir tii að hægt sé að fullyrða að þær gefi rétta mynd af ástandinu. Það styður þó nokkuð niðurstöður okkar að þessu sinni, að skoðanakönnun Helgarpóstsins, sem birt var í gær, ber í stórum dráttum saman við þær. Töflur þær og línurit sem birtast hér í opnunni, eiga að skýra sig að mestu sjálf og má út úr þeim lesa niðurstöðurnar í smáatriðum. Á morgun ■ Hver er (eða var) merkasti stjórnmálamaður íslendinga á þessari öld? Hversu hátt hlutfall íslenskra kvenna hefur orðið fyrir nauðgun, eða tilraun til nauðgunar? Við leituðum svara við m.a. þessum tveim spurningum í skoðanakönnuninni sem framkvæmd var í fyrrakvöld. Sum svörin koma á óvart, Þú færð þau I NT á morgun. ■ Myndin sýnir hlutföllln milli stjórnmálaflokkanna allt frá siðustu kosningum til þessa dags, miöað við úrslit skoðanakannana er birtar hafa verið á timabilinu. Önnur línan neðan frá afmarkar fylgl stjórnarinnar en það hefur eins og sjá má rokkað frá rúmlega 56% upp í rúm 69%. Nýju flokkarnir tveir, sem komu inn á þlng í siðustu kosningum virðast eiga ser tilverurett áfram að mati kjósenda og Samtök um kvennalista virðast meira að segja vinna á hægt en Flokkur mannsins, sem i tveim síðustu skoðanakönnunum fékk 0,3% atkvæða er hér sýndur með „öðru“, þ.e. þeim sem kváðust myndu kjósa eitthvað annað en þá flokka sem sæti elga á þingi. Bilið hægra megin við punktalínuna sýnir þróunina frá síðustu skoðanakönnun NT, r nóvember á síðasta ári, og fram til dagsins i dag. Mesta gleikkun milli lina hefur orðið hjá Alþýðuflokknum, enda er þar um mesta fylgisaukningu að ræða. örugglega.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.