NT - 08.02.1985, Blaðsíða 12

NT - 08.02.1985, Blaðsíða 12
Ómar Hallsson, veitingamaöur í Naust- ■ Það er af nægu að taka, og allt sem tilheyrir þorramatn- um er til staðar. Sviðakjammar, hákarl, hvalur og annað rammíslenskt góðgæti. NT-myndir: Árni Bjarna Þorramatur í Naustinu ■ VeitingahúsiðNaustiðhef- ur haldið uppá þorrann í 29 ár, og jafnan haft á boðstólum þorramat, sem gestir geta keypt. Ömar Hallsson er eigandi Naustsins, og NT leitaði til hans um svör við nokkrum spurningum. Ómar sagði okk- ur að þorranum hefði verið vel tekið, og fólk væri mjög ánægt með þessa tilbreytni í matar- æði. „Þorrablót er forn siður eins og allir vita. Og eftir kristni- tökuna var blótið sem slíkt lagt niður, en þrátt fyrir það lifði sagan um þorrablótin með þjóðinni. Það er síðan á nítj- ánduöldsem íslenskirstúdent- ar í Kaupmannahöfn endur- vekja þennan sið árið 1873, og árið eftir blóta Akureyringar þorra. Þorrablót ná ekki al- mennri útbreiðslu fyrr en Naustið endurvakti þennan góða sið árið 1956, tveimur árum eftir að Naustið opnaði. Þáverandi veitingamaður var Halldór Gröndal, og naut hann góðrar aðstoðar Kristjáns heit- ins Eldjárns." Ómar taldi að mikið væri um að sömu andlitin kæmu ár eftir ár, og líkaði vel. Einnig var Ómar ánægður með hversu mikið væri um að ungt fólk virtist vera hrifið af þorramatn- um. „Það eru aðallega starfshóp- ar sem hingað koma, og sækja þá oftast í þorramatinn. Það sem er vinsælast eru hrúts- pungarnir, sviðakjamminn, há- karlinn og bringukollarnir. Það er mikil vinna á bak við góðan þorramat, og hefst undirbúningur strax uppúr sláturtíð. Við erum með sér þorrageymslur, þar sem við sjóðum niður lifrarpylsu, blóð- mör og hrútspunga. Þetta kost- ar talsvert umstang, þvt að fimm sinnum f viku þarf að fara út í geymsluna og fylgjast með sýrunni, fleyta ofan og annað þessháttar." Þorranum lýkur 23. þessa mánaðar og þá hættir Naustið með þorramatinn, og verður hann ekki á dagskrá fyrr en að tæpu ári liðnu. .............. .................................-........... VÖRUHÚSI KÁ, Selfossi Stendur frá 7. feb.-15. feb. Barnabuxur frá kr. 290 Barnaúlpur frákr. 390 Kvenbuxur frá kr. 490 Herrajakkar frá kr. 495 Herrabuxur frákr. 390 Smekkbuxur frá kr. 290 ÓTRÚLEGA HAGSTÆTT VERÐ Sokkar frákr. 55 Bolir frá kr. 79 Ullarteppi ákr. 425 Hespulopi 1/2kg ákr. 149 Gúmmístígvél ákr. 498 Húsgagnaáklæöi ákr. 199 pr. m. MISSIÐ EKKI AF EINSTÆÐU TÆKIFÆRI VÖRUHÚS KÁ MIÐSTÖÐ VIÐSKIPTANNA Á SUÐURLANDI

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.