NT - 22.02.1985, Blaðsíða 24

NT - 22.02.1985, Blaðsíða 24
 — ■ ll\/IA 68- Við tökum við ábendingum um fréttir allan sólarhringinn. Greiddar verða 1000 krónur fyrir hverja ábendingu sem leið ir til fréttar í blaðinu og 10.000 krónur fyrir ábendingu sem leiðir til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt NT, Síðumúla 15, Reykjavík, sími: 686300, auglýsingar 18300 Kvöldsímar: áskrift og dreifing 686300 • ritstjórn 686392 og 687695 • íþróttir 686495 — Nýjar búgreinar á Búnaðarþingi: Skartgripatennur og kanínupelsar Aukabúgreinar fyrir fólk sem vill eiga sitt heima í sveitunum, segir Sigurjón Friðriksson ■ Möguleiki á ræktun bjór- tegundarinnar Nútría, „mosku“ -anda og kanína til 10% frá- drátt fyrir fisk- vinnslu- fólk ■ Sighvatur Björgvins- son og Guömundur J. Guðmundsson hafa lagt frarn frumvarp um breyt- ingu á lögum um tekju- og eignaskatt í neðri deild Alþingis. Leggja þcir til að fisk- verkunarfólk fái 10% frá- drátt frá tekjum við álagn- ingu tekjuskatts og er lagt til að lög þessi öðlist þegar gildi og nái til álagningar tekjuskatts á árinu 1985 vegna tekna árið 1984. í greinagerð með frumvarp- inu segir m.a. að undan- farið hafi bilið milli tekju- hópa fariö breikkandi á Islandi og geti talsvert stórir hópar í landinu ráð- ið tekjum sínum sjálfir og komist hjá því að greiða sinn skerf til sameiginlegra þarfa. Bent er á þann vanda sem kvótakerfið hefur skapað í tekju- öflunarmöguleikum sjó- manna og fiskverkunar- fólks og segir að tilgangur frumvarpsins sé aö leysa hinn sérstaka vanda fisk- vcrkunarfólks með sama hætti og fordæmi er þegar fyrir í sambandi við fiski- mannafrádrátt. kjötframleiðslu sem aukabú- greinar bænda er meðal mála sem Austfirðingar leggja fyrir Búnaðarþing til athugunar. Nútría skepnan er pelsdýr en auk þess eru nýttar úr henni til skartgripa tvær rauðar tennur og kjötið er til manneldis. Að sögn Sigurjóns Friðriks- sonar, annars fulltrúa Búnað- arsambands Austfjarða á Bún- aðarþingi, er mál þetta enn á algjöru frumstigi. Örn For- leifsson, fyrrunr ráðunautur þar eystra, ferðaðist til Þýska- lands, Tékkóslóvakíu og Aust- urríkis á liðnu sunrri og kynnti sér ræktun þessara dýra. Reiknað er með að allar þessar skepnur megi ala á innlendu fóðri, grasi og úrgangsgarð- ávöxtum. Taldi Sigurjón að ræktun Nútríunnar kæmi helst til greina af þessum þremur tegundum smádýra sem nefnd eru í þingskjalinu. Loðdýra- rækt væri þegar hafin í landinu og ræktun þessara dýra ekki alls ósvipuð refa- og minka- rækt. Hvaö kanínurnar snertir þá eru þær bæði til pels- og kjöt- framleiðslu og er skinnið selt dýru verði erlendis. „Morsku“-öndin er svo nokk- urs konar blanda af önd og gæs og á kjöt af henni auknum vinsældum að fagna crlendis. Ef af ræktun einhverra þess- ara smádýra verður taldi Sig- urjón að þcss væri samt langt að bíða að framleiðsla yrði komin á markað. En kosti þessarar ræktunar taldi Sigur- jón ekki hvað síst aö hægt væri að nýta innlent fóður auk þess að fjölbreytni í kjötfram- leiðslu ykist í landinu. Mál þetta er nú fyrir búfjár- ræktarnefnd Búnaðarþings sem afgreiðir það væntanlega innan tíðar til umræðu á þing- inu. ■ 1. mars? Stóð á töflunni í einni skólastofu MA, og von er að nemendur spyrji. Kennarar á Akureyri: NT-mynd: Björn Þ. Vogar Vitl naí mannrétti in< Ja- sát :tmá la Evrópui rá ðsins -til stuðnings útgöngunni 1. mars ■ Kennarar Mcnntaskólans á Akureyri hafa sent mennta- málaráöherra bréf þar sem mót- mælt er neitun ráðherra um lausn frá störfum, og er þar m.a. vitnað í sáttmála Evrópu- ráðsins um vcrndun mannrétt- inda og mannfrelsis. í bréfínu er vitnað í 4. grein sáttmálans þar sem segir m.a. að eigi skuli krafist af neinum manni að hann vinni þvingunar- nénauð- ungarvinnu. Enn hafa engin svör borist frá ráðherra. Tuttugu og tveir kennarar MA, eða 70% fastráðinna kennara skólans, liafa sagt störf- um sínum lausum frá og með 1. mars n.k. og nú í vikunni var birt auglýsing frá 21 þeirra í Degi þar sem þeir óska eftir vinnu og góðum kjörum. Er auglýsing þessi að sögn kennara, birt til frekari árétting- ar því að viðkomandi kennarar hyggjast ekki starfa áfram nema viðunandi kjarabætur fáist. Nokkrir hafa nú þegar tryggt Laugardagur sér vinnu bæði hérlendis og erlendis og bíða nú eftir því hvort viðunandi kjör fáist. Hagsmunaráð nemendafé- lags MA boðaði til nemenda- fundar þar sem tveir kennarar skólans kynntu kjör framhalds- skólakennara og helstu baráttu- mál þeirra. Pétur Sigurvinsson forseti hagsmunafélagsins, reif- aði málin frá sjónarhóli nem- enda og lýsti yfir eindregnum stuðningi við kjarabaráttu Sunnudagur kennara. Aðrir, sem tóku til máls, tóku í sama streng. Að fundinum loknum skrifuðu 85% nemenda skólans undir áskorun þar sem hörmuð var sú þróun sem orðið hefur í launamálum kennara síðasta áratug og þess krafist að samningsaðilar reyni í alvöru að ná samningum hið fyrsta til að létta af þeirri óþol- andi óvissu sem nemendur þurfa að þola. Helgar- veðrið ■ A laugardaginn verður hæg SV-átt um mest allt landið, en NÁ-átt á Vestfjörðum. Skýjað að mestu á sunnan- og vestanverðu landinu og éljagangur, en heiðskýrt á Norðausturlandi og öllu kaldara. Á sunnudaginn gengur hann í norður og kólnar, heiðskýrt sunnanlands og skýjað fyrir norðan með éljum á annnesjum en léttir til með kveldinu.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.