NT - 07.03.1985, Blaðsíða 3

NT - 07.03.1985, Blaðsíða 3
Hvað segja þeir um fram ■ Sáttafundur hefur verið boðaður í dag í deilu sjómanna og útvegsmanna hjá sáttasemjara. í gær hélt sáttasemjari fund með Óskari Vigfússyni og Kristjáni Ragnarssyni, þar sem tekin var ákvörðun um fund í dag klukkan fjögur. NT hafði samband við nokkra af þeim mönnum sem staðið hafa í fremstu víglínu samninga viðræðnanna og leitaði álits þeirra á því hvernig raunhæft væri að ætla að framhald á viðræðum deiluaðila yrði svo og hvernig úrslit atkvæðagreiðslunnar um samkomulagið, sem undirritað var á mánudag, leggðist í menn. Steingrímur Hermannsson Óskar Vigfússon: Ekki frekari útgjöld ríkis- stjórnarinnar ■ Steingrímur Hermannsson sagði í viðtali við NT í gær, að það hefðu verið mikil vonbrigði að samningarnir hefðu verið felldir. Steingrímur taldi að ríkisstjórnin hefði gripið inn í deiluna á réttu augnabliki, og taldi hann að betur hefði tekist að hafa samráð við deiluaðila í sjómannadeil- unni, en nokkurn tíma áður. Steingrímur sagði að aðgerðir ríkis- stjórnarinnar myndu kosta 160-170 milljónir, án þess að aðgerðirnar myndu auka kostnað útgerðarinnar. Að lokum lagði Steingrímur áherslu á það að ekki yrði um frekari útgjöld að ræða frá ríkisstjórninni, en hún myndi beita sér fyrir því að leiða menn saman. Líkur á samn- ingum í heima- héruðum ■ Við lítum svo á að LÍÚ fari enn með umboð fyrir útvegsmannafélög á landinu til samningargerðar. Hins vegar höfum við heyrt raddir þar að lútandi að útvegsmannafélög víða um land séu farin að gefa stéttarfélögum sjómanna kost á viðræðum í heima- héruðum. Ef við fáum staðfestingu á þessum orðróm, förum við að efast um LÍÚ í þessu máli,“ sagði Óskar Vigfússon formaður SSÍ í samtali við NT í gær. Ef svo fer að samningar fara fram í heimahéruðum sjómanna, verður kostnaðarhlutdeildin ekki lengur mál númer eitt? „Nei, og það hlýtur að valda mér miklum vonbrigðum, vegna þess að rauði þráðurinn á öllum fundum sem haldnir hafa verið um þessa samn- inga, hefur verið óánægja með kostn- aðarhlutdeildina. Hins vegar ætla ég að vona, ef svo fer að samningar færast í heimahéruð, að formenn sjómannafélaga setji á oddinn þá hluti sem hvað verst eru farnir hjá hverju félagi.“ Kristján Ragnarsson: Atkvæða- greiðsla mikil vonbrigði ■ „Þetta olli okkur miklum von- brigðum, og við eigum erfitt með að skilja hvernig þetta gat farið svona, með hliðsjón af því hvernig yfirmannasamningarnir fóru,“ sagði Kristján Ragnarsson, form. LÍÚ. Verða áframhaldandi viðræður í heimahéruðum deiluaðila? „Það skal ég ekkert segja um. Okkar menn gera það ekki nema í samráði við okkur, ef til þess kemur. Við náttúrlega ráðum ekki hvort Sjómannasambandið er í einum eða tveimur pörtum, því ráða þeir.“ Telur þú að samstaða sjónranna sé brostin? „Mér þykir ekki ólíklegt að upp komi margvísleg vandamál hjá þeim, og má þá búast við því að þau verði hliðstæð þeim sem þeir þurftu að glíma við fyrr í verkfallinu, þegar togarar og bátar cru farnir til veiða.“ Guðlaugur Þorvaldsson: Átti von á úrslitunum ■ Guðlaugur Þorvaldsson ríkis- sáttasemjari sagði í samtali við NT að hann hefði átt von á þessum lyktum atkvæðagreiðslunnar, en ekki gert sér grein fyrir því að munurinn yrði svona afgerandi. Voru þetta vonbrigði fyrir þig? „Auðvitað vildi ég gjarnan að samningar hefðu tekist, en ég hef enga skoðun á því hvort um vonbrigði eða ekki er að ræða hjá mér. Það hefði hins vegar verið ágætt, ef þessu þrasi hefði verið lokið. Jón Sigurðsson: Átti ekki von á þessum mun ■ „Nei, ég átti ekki von á því að sjómenn myndu fella samkomulagið og ég held að enginn hafi átt von á því að svona færi, og því síður að munur- inn yrði jafn mikill og raun bar vitni,“ sagði Jón Sigurðsson, fulltrúi ríkisins í samningaviðræðunum. Þá var Jón ynntur eftir því hvort hans þætti væri lokið í þessum samn- ingaviöræðuin, og svaraði hann því til að ekki væri enn vitað hvert framhald viðræðna yrði, en Jóni fannst sem það lægi í loftinu að samningar myndu fara fram í héraði. VOKVASTYRI I LAPPANN Já nú er loksins hægt að fá traust og vandað vökvastýri í Volvo Lapplander. Allar festingar og greinargóðar leið- beiningar um ísetningu á íslensku fylgja hverju setti. Við getum ennfremur annast ísetningu ef óskað er. Hagstætt verð. ITDS/MMíDOð FUNAHÖFÐA 1 - REYKJAVÍK S. 91-685260 Jón Baldvin í dönskum f jölmiðlum um kjarnorkuvopnalaus svæði: Sammála dönsku hægri flokkunum ■ Slæmt samkomulag Jóns Baldvins Hannibalssonar við krata á hinum Norðurlöndunum vekur mikla athygli í grannríkj- um okkar. Sænska sjónvarpið hafði viö- tal við Jón í gær þar sem hann var með stóryrðar yfirlýsingar um utanríkisstefnu Svía, sem hann sagði að væri ruglingsleg og að sumar hugmyndir þeirra í utanríkismálum væru barnaleg- ar. Jón ítrekaði í þessu viðtali samanburðinn á Finnlandi og Afganistan. Sænsk dagblöð skýrðu líka frá því í gær að forsætisráðherra Finna hefði ekki þegið boð sem Jón hélt leiðtogum norrænna sósíal- demokrata nú á mánudaginn vegna yfirlýsinga Jóns um að kjarnorkulaus svæði á Norður- löndum væri fyrsti áfanginn í að „Finnlandísera" öll Norður- löndin. Dönsku blöðin tóku sam- skipti Jóns og Anker Jörgensens formanns danska sósíaldemo- krataflokksins einnig sgrstak- lega fyrir í gær. Þau sögðu að Jón hefði fengið Anker til að draga til baka ræðuhöld á stofn- fundi nýrra friðarsamtaka á Is- landi. Þau hafaeftir Jóni aðeigi Norðurlöndin að verða kjarn- orkulaus eigi það að gerast innan NATO, að þessu leyti væri hann sammála hægri flokkunum í Danmörku. Blöðin hafa það eftir Anker Jörgensen að ís- lcnskir kratar hafi breytt um stefnu í öryggismálum. Norska útvarpið fjallaði einn- ig um þessi mál í gær og Finnar fylgjast einnig grannt með hægra- flugi Jóns Baldvins Hanni- balssonar og svívirðingum i garð fyrrum skoðanabræðra. Fimmtudagur 7. mars 1985 Útifundur um ríkisstyrk Norðmanna til sjávarútvegs: Engin stefnubreyting í norskum sjávarútvegi - segir Gro Harlem Brundtland formaður norska Verkamannaf lokksins ■ „Tilefni þessa útifundar er að vekja athylgi á því hversu óheiðarlega er að þessum mál- um staðið hjá Norðmönnum en þessa umræðu hefur alveg vant- að á dagskrá þessa Norður- landaráðsþings" sagði Jón Baldvin Hannibalsson á blm. fundi á þingi Norurlandaráös í gær þar sem rætt var um ríkis- stuöning Norðmanna við sjávar- útveginn þar í landi. Furðaði Jón sig á því hvers vegna ráðamenn Islensku þjóð- arinnar hefðu ekki tekið þetta málefni upp á þinginu og vitnaði til ummæla þeirra í umræðum um þessi mál 'á Alþingi fyrir nokkru. Eiður Guðnason hefur hreyft þessu ntáli á vettvangi Norðuriandaráðs, einn þingfull- trúa íslendinga, en aðrir hafa ýjað að því án þess að gera neitt frekar. Gro Harlem Brundtland for- maður norska Verkamanna- flokksins sagði í samtali við NT í gær að engin stefnubreyting vona að íslendingar dyttu ekki í hefði átt sér stað í norskum þann barnaskap að fara að ræða sjávarútvegi s.l. 25 ár og þvt þessi mál á þingi Norðurlanda- skildi hún ekki hvernig norsk ráðs því hvað gætu Norðmenn byggðastefna ætti allt í einu að ■ sagt um allar þær gengisfellingar skaða hagsmuni íslendinga. Hér ! sem átt hafa sér stað hér á landi væri um markaðsvanda að ræða sem báðar þjóðirnar ættu við að etja vegna þeirrar þróunar sem hefði átt sér stað í Kanada en hún undirstrikaði að það hefði engin stefnubreyting orðið í norskum sjávarútvegi. Stefán Benediktsson sagðist því gengisfellingar væru ekkert annað en byggðastefna og það ruddaleg byggðastefna ef litið væri á hvaða áhrif þær hefðu á samkeppni landa á mörkuðum erlendis. Loðna til Eyja ■ Margir bátar komu ineð loðnu til Vestmannaeyja í fyrradag, bæöi til frystingar og bræðslu. í gær var aftur á nióti lítið um að vera hjá loðnuskipuiu frá Eyjum. Netabátarnir voru hins vegar að koma inn þá með sæmi- legasta afla, 10, 15 og upp í <20 tonn. Þeir lögðu netin aftur í gærkvöldi, en verða að hafa tckið þau upp fyrir kl. 18 í dag. Myndin er frá loðnulöndun í Vest- mannaeyjum í fyrradag, þeg- ar öll hjól fóru að snúast þar á ný eftir vcrkfallið, sem skelíur svo á aftur nú í kvöld. NT-mynd: Inga Gísla.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.