NT - 10.03.1985, Blaðsíða 14

NT - 10.03.1985, Blaðsíða 14
Sunnudagur 10. mars 1985 14 ■ Ettir uppgjöf Þjóðverja á Borgundarhólmi höfðu Rússar herlið á eyjunnií 11 mánuði, eða fram íapríl 1946. Sambúðin milli hermannanna og íbúanna vargóð, ekki sísl vegna þess hve skjótt tók að fíytja burt þýska hermenn og tlóttafólk. Yfirmaður Rússa, Korotkov hershöfðingi, sést hér í hádegisboði í Kristjánsborgarhöll 1. júní1945, milli Ingiríðar, þá krónprinsessu og þá verandi ráðherra án stjórnardeildar, Axel Larsen. ■ 8. maí n.k. verða hátíðahöld víðs vegar í Evrópu og Bandaríkjunum til að minnast þess að 40 ár eru liðin frá lokum heimsstyrjaldarinnar síðari í Evrópu. Þó ágreiningur sé um hvort ýfa beri upp gömul sár gagnvart Þýskalandi, þá verður þessi dagur tilefni til hátíðabrigða í velfiestum löndum Evrópu. Sum hernumdu landanna, líkt og Danmörk og ísland, áttu því láni að fagna að þar urðu bein hernaðarátök næsta engin. En í aust- asta hluta danska ríkisins, á Borgund- arhólmi, er hætt við að menn haldi upp á þessi þáttaskil með trega, því rneðan samlandar þeirra á meginland- inu fögnuðu stríðslokum byrjaði harmleikur í sögu þeirra. Birgda- og tilraunastöd 10. apríl 1940, daginn eftir hernám Danmerkur, komu þrjú þýsk skip með 1200 manna hernámslið til Borg- undarhólms. Þetta voru fótgöngulið- ar, en frá júlímánuði 1940 og þar til þýska hernáminu lauk, þá sá þýski sjóherinn um gæslu eyjarinnar. Meg- inhluti heraflans var staðsettur í tveimur helstu bæjunum á Borgund- arhólmi, Rönne og Nexö. Hernám Þjóðverja olli töluverðri röskun fyrir eyjaskeggja, því fjöldi herflutninga- skipa kom við í höfnunum, sérstak- lega Rönne og Nexö, og vörukaup þeirra leiddu oft til tímabundins skorts meðal íbúanna. Þjóðverjar byrjuðu fljótt að nota Borgundarhólm undir fjölmargar tæknilegar tilraunir er tengdust hern- aði. Um haustið 1940 hófu þeir bygg- ingu mikilla varnarvirkja hjá Du- eodde, sem þeir hættu þó við vorið eftir. Tvær hlustunarstöðvar, önnur á austurströndinni og hin á vestur- ströndinni, voru reistar árið 1942 í þeim tilgangi að æfa kafbátaáhafnir, og því voru oft veiðar og umferð bönnuð á fiskimiðum eyjaskeggja. Þjóðverjar juku svo enn umsvif sín árið 1943, þegar þeir komu fyrir loftvarnarbyssum og ratsjárútbúnaði á eyjunni. Ómetanleg vitneskja Sumarið 1943 komust njósnadeildir Breta að því að eitthvað óvenjulegt M Ömóttækilegur fyrir öllum skynsömum ráðum yfirgefurþýskiyfirmaðurinn von Kamptz hér bækistöð sína íRönne, og kallaði þar með stríðseyðingu yfir eyjuna. Frá því að vera vinalegir smábæir voru Rönne og Nexö daginn eftir lítið annað en rjúkandi rústir. T.h. sést svæðið bak við bækistöðvar von Kamptz að loknum sprengjuárásum Rússa. var á seyði við Eystrasalt. Könnunar- flugvélar höfðu tekið eftir því að umtalsverðar framkvæmdir áttu sér stað við Peenemúnde, og settu það í samhengi við hið nýja leynivopn, sem Göbbels og félagar í áróðursráðu- neytinu voru farnir að auglýsa til að hressa upp á andann á heimavígstöðv- unum. Það fengust sannanir fyrir því að tilraunir væru hafnar við Eystra: saltsströndina, en ekki fékkst vitn- eskja um hvers slags vopn væri um að ræða. En um miðjan ágúst 1943 mistókst tilraunaskot frá Peenemúnde og eld- flaug af V-1 gerð jenti á suðurhluta Borgundarhólms. Áður en þýski her- inn fann flaugina og gat girt svæðið af, komu á staðinn yfirmaður danska sjóhersins í Rönne, Christian Hasag- er Christiansen og Johannes Hansen, lögregluþjónn í Rönne, og þeim tókst að ljósmynda, teikna, mæla og lýsa flauginni. Þegar þeir voru að ljúka því verki komu Þjóðverjarnir að þeim. Og þegar Þjóðverjarnir spurðu hvort teknar hefðu verið myndir, neitaði Christiansen því. Þessum upplýsingum var síðan komið til London, í gegnum Stokkhólm, en til öryggis var þetta sent í tveimur eintökum, eftir sitt hvorri leið. Önnur leiðin lá um Málm- ey, en hin um Helsingjaeyri. Seinni sendingin mistöks, sá sem venjulega sá um hana, stýrimaður á ferjunni, var í fríi þann dag og varamaðurinn lenti í tollskoðun hjá Þjóðverjum og þar með lentu skjölin í höndum Þjóðverja. En óhappið á Helsingja- eyri varð til þess að Christiansen fékk heimsókn af Gestapo, og við yfir- heyrslur fékk hann að kynnast raf- magnsfræði Þjóðverja. Eftir þær varð að koma honum fyrir á spítala, en þaðan var honum bjargað að undir- lagi andspyrnuhreyfingarinnar og komið til Svíþjóðar. Upplýsingar Christiansen af V-1 flauginni á Borg- undarhólmi voru merkilegasta vitn- eskjan sem barst til London frá Dan- mörku. Danska andspyrnuhreyfingin fékk mikið lof fyrir frammistöðu Christiansen. Stjórnin í London fékk þannig vitneskju um hvers væri að vænta ári áður en fyrstu V-1 flug- skeytunum fór að rigna yfir S- England, og gat gert nauðsynlegar gagnráðstafanir. Ómissandi flóttaleið Eftir að danska stjórnin sagði af sér 29. ágúst 1943, hertu Þjóðverjar tök sín á Danmörku og í byrjun árs 1944 kom Gestapo til eyjarinnar til að hafa eftirlit með áætlunarsiglingum og hlera símtöl. Andspyrnuhreyfingin á Borgundarhólmi var sterk og vel skipulögð, þar sem miklir vopna- og fólksflutningar áttu sér þar stað milli Danmerkur og Svíþjóðar. Hreyfingin lagði sig í líma til að komast hjá átökum við hernámsliðið. Margir sem Gestapo leitaði eftir komust til Svíþjóðar, annað hvort með því að stökicva frá borði á áætlunarbátnum þegar hann fór í gegnum skipaskurð- inn hjá Falsterbo eða með fiskibátum frá Borgundarhólmi. Talsvert magn vopna og skotfæra fór sömu leið, frá Svíþjóð til dönsku andspyrnuhreyf- ingarinnar. Um vorið 1945 fjölguðu Þjóðverjar varnarliðinu í 2000 menn, og á sama tíma streymdi flóttafólk frá austur- héruðum Þýskalands, bæði óbreyttir borgarar og hermenn til eyjarinnar. Skólar, hótel og opinberar byggingar fylltust af særðum og sjúkum. Nýr þýskur yfirmaður, von Kamptz, reyndi að efla varnir eyjarinnar og sendi eins mikið og hann gat af óbreytium borgurum til baka. Og þegar Þjóðverjar gáfust upp voru um

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.