Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

NT

og  
S M Þ M F F L
. 1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |

Ašalrit:

Tķminn


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



NT

						w

Fimmtudagur 4. ápríl 1985       17

„Starfsemi okk-

ar lík Samein-

uðu þjóðunum"

- segir Isfahani Sameen,

varafforseti JC hreyf ingar-

innar, í NT viðtali

¦ Nú á dögunum var á ferð

hér á landi eihn af varaforsetum

JC hreyfingarinnar, Isfahani

Sameen frá Sri Lanka. Isfahani

liel'ur yfirumsjón með JC deil-

unum á Norðurlöndunum. Við

báðum hann að Iýsa stuttlega

fyrir okkur JC hreyfingunni,

markmiðum hennar o.fl.

„JC hreyfingin er starfandi í 75 löndum í

dag og meðlimir hennar eru um 450 þúsund.

Starfsemi okkar er að mörgu leyti lík

starfsemi Sameinuðu þjóðanna, t.d. nú á ári

æskunnar erum við með svokaílað Norður-

Suður verkefni sem gengur út á aðstoð

þróuðu ríkjanna við þróunarríkin í þriðja

heiminum. JC þjálfar ungt fólk til þess að

það verði hæft til að taka að sér ýmis

stjórnunar og leiðtogastörf. Margir af fræg-

ustu leiðtogum heims hafa hlotið þjálfun

sína hjá okkur. S.s forsætisráðherra Japan,

Richard Nixon fyrrverandi Bandaríkjafor-

seti o.m.fl. Við teljum að víða í heiminum

sé pottur brotinn í málefnum æskufólks, og

góð leið til að bæta úr því er að þjálfa hæfa

leiðtoga sem hafa frið og framfarir að

markmiði."

-  Nánar um þetta Norður-Suður verk-

efni?

„Þróuðu ríkin veita þriðja heimínum

ýmiskonar aðstoð í gegnum samtökin. Á

Islandi t.d. var safnað fé á síðasta ári sem

varið var til uppbyggingar skóla fyrir fötluð

börn í Kenya og fyrirhugað er að halda

þeirri aðstoð áfram á þessu ári. Söfnunin var

á því formi að seld voru slökkvitæki og

reykskynjarar og hagnaðurinn fór síðan til

þess verkefnis."

-  Hvað finnst þér um JC deildirnar á

íslandi miðað við önnur lönd?

„Ég er mjög ánægður með starfsemina

hérna. Ég er búinn að vera hér í fimm daga

og hef farið eins víða og ég gat til að kynna

mér stöðuna, og að sjálfsögðu einnig til að

samræma og útskýra starfsemi JC í öðrum

löndum. íslensku JC félögin eru mjög virk

og námsskeiðin eru afar vönduð. Hér er

boðið upp á námskeið í félagsmálum, fund-

arsköpum og ræðumennsku með mjög hæf-

um leiðbeinendum, auk margra hagnýtra

námskeiða af léttara tagi. JC hreyfingin á

íslandi er með þeim sterkari í heiminum þó

að hún sé ekki stór."

- Nú hefur maður mikið heyrt talað um

róstur og erjur í heimalandi þínu, Sri

Lanka. Getur þú skýrt nánar um hvað málin

snúast og hvað er að gerast þar?

„Ég var mjög hissa þegar ég varð þess var

hve vel menn hér fylgjast með gangi mála á

Sri Lanka. Þar stendur styrrinn á milli

minnihlutahóps ca. 17% af (búum sem vill

skipta þjóðinni í tvennt og stofna sjálfstætt

ríki á norðurhluta Sri Lanka, og hinna sem

telja að landið sé það lítið að ekki sé-

grundvöllur fyrir tveimur aðskildum ríkjum

enda er menning okkar og saga hin sama.

Vandinn er þó í rauninni sá að nágrannar

okkar Indverjar eru mun áhugasamari um

þennan vanda en við sjálfir. Hryðjuverka-

menn fá æfingu í búðum á Indlandi og geta

alltaf flúið þangað ef þrengir að þeim

heima. Ég tel að Indverjum væri nær að líta

í eigin barm og koma fyrst stjórn á alla sína

aðskilnaðar hópa áður en þeir fara að skipta

sér af öðrum þjóðum. Ef við hefðum fengið

að fást við okkar mál í friði þá værum við

löngu búnir að leysa þau."

¦ Fyrstur f.h. Isfahani Sameen, varafor-

seti JC, Ragnheiður Karlsdóttir, varalands-

forseti JC á íslandi og Ingimar Sigurðsson

landsforseti.

NT-mynd: Árni Bjanu.

"l~l^-»^"»"^^-«w*.^

Jarnvel rotgronir

kaupsýslumenn

velja

H -vax tareik ning

HvaÓum

Þú þarft ekki endilega aö vera

stóreignamaöur til aö geta haft not af

Hávaxtareikningi Samvinnubankans.

Innborgunin parf ekki aö vera há

fjárupphæö, en fyrir hverrí innborgun

færöu stofnskírteini sem er ávallt laust til

útborgunar. Hávaxtareikningurinn er

verötryggöur meö vöxtum miöaö viö

kjör 3ja og sex mánaöa bundinna

reikninga hjá bankanum. Þaö þarf svo

sem enga rótgróna kaupsýslumenn

til aö sjá aö Hávaxtareikningur er góö

leiö til aö ávaxta fé sitt á aröbæran hátt.

vaxtareikningur

ArÖbær ávöxtun.       w

Betri kjör bjóðast varla

Samvinnubankinn

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32