Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

NT

og  
S M Þ M F F L
. 1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |

Ašalrit:

Tķminn


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



NT

						w

Fimmtudagur 4. apríl 1985      28

Utlönd

Bretland:

Fullir íhaldsdrengir

ganga berserksgang

London-Reuter

¦   Hópur fullra ungmenna,

sem síyðja Margréti Thatcher

forsætisráðherra Breta, gengu

berserksgang í Loughbrough á

Mið-Englandi  þar sem  þeir

sátu þing Sambands Qialdsamra

stúdenta nú síðastliðið mánu-

dagskvöld.

Filipseyjar:

Glæpamenn krossfestir

á fösf udaginn langa

Manila-Reuter

¦Dæmdur morðingi og tvcir þjóf-

ar sveittust við það í gær að ljúka

við þrjá trékrossa sem þeir verða

krossfestir á í minngingu um dauða

Jesú Krists á föstudaginn langa.

Fengelsisgarðurinn í rammgirtu

fangelsi fyrir sunnan filipínsku

höfuðborgina verður þeirra Gol-

gata. Morðinginn verður negldur

á sinn kross en þjófarnir verða

festir með reipum á sína krossa sitt

hvoru megin við morðingjann.

Menn þessir eru meðal fjölda

annarra Filipseyinga sem sýna

guðrækni sína með því að láta

binda sig eða negla á krossa eða

með því að hýða sjálfa sig.

Þessi helgihöfn cr hápunktur

páskaföstunnar á Filipscyjum,

eina kristna landinu í Asíu, þar

sem 80% þjóðarinnar, sem er

um 40 milljónir, eru rómversk

kaþólsk.

Kirkjan er lítt hrifin af guðrækni

af þessu tagi, cn er ófær um að

stöðva fjölda karla og kvenna sem

kjósa að lí.kja eins nákvæmlega og

unnt er eftir þjáningum Krists.

Fáir eru þó raunverulega negldir

á krossa og þá aðeins í nokkrar

sekúndur eða mínútur. En þeir

sem hýða sig rífa líkama sína svo

btóðið streymir er þeir berja sjálfa

sig með bambusvöndum.

Gerardo Calubag, dæmdur

morðingi, cyddi nokkrum óþægi-

legum klukkstundum á krossi í

fyrra þegar félagar hans í fangels-

inu krossfestu hann úti í garði en

lentu svo í erfiðleikum með að ná

honum niður aftur.

„Ég hef hlakkað til þessa at-

burðar," sagði Calubag sem ætlar

að endurtaka krossfestinguna í

Bilibid fangelsinu fyrir sunnan

Manila á föstudaginn langa. „Ég

mun gjalda fyrir syndir drengja

þjóðfélagsins."

Calubag, sem er 39 ára gamall,

var dæmdur til dauða 1967 en

dómnum var síðan breytt í l ífstíð-

arfangelsi.

Calubag er tattóveraður frá

toppi til táar, eins og flestir félagar

hans í fangelsinu. Snákur skríður

um handleggi hans, á bakinu er

eldspúandi dreki og bringuna ¦

skreytir það sem lítur úr fyrir að

vera Jesú Kristur með sólgleraugu.

Á ennið er greypt nafn vinar

hans, sem féll í átökum í fangels-

inu, ásamt titlinum „morðingi",

„Nöfn þeirra vina minna sem hafa

látist í fangelsinu er tatóveruð á

ýmsa staði á líkama mínum,"

sagði hann fréttamanni Reuters.

Hann sagðist ennfremur safna

skeggi til þess að reyna að líkjast

Kristi svo helgiathöfnin yrði raun-

verulegri í augum hinna 7.000

fanga, þ.á.m. 600 dauðadæmdra.

„Ég myrti mann í átökum í

fangelsinu fyrir mörgum árum og

ég hef beðið guð um fyrirgefningu,"

sagði Calubag. „Mig langar til að

gefa gott fordæmi og ætla því að

gera þetta á hverju ári það sem

eftir er fangelsisvistar minnar."

Ungmennin brutu upp dyr,

mölvuðu rúður, mökuðu

mannaskít upp um veggi og

svínuðu út á baðherbergjum

Loughbrough-háskóla. Níargir

af stuðningsmönnum That-

chers á breska á þinginu eru

æfir yfir hegðun stúdentanna

sem hafa fengið mikla styrki

frá íhaldsflokknum.

Skrílslæti íhaldsungmenn-

anna komu sér einstaklega illa

fyrir Margréti Thatcher sem

nýlega skar upp herför gegn

ólátum og skrílshætti knatt-

spyrnuunnenda. John Gumm-

er formaður íhaldsflokksins

fór í fyrrakvöld til fundar við

stúdenta til að áminna þá um

að sýna meiri stillingu. Hann

sagði að 30.000 punda (1,5

mdljónir ísl. kr.) styrkur

íhaldsflokksins við stúdenta

yrði felldur niður vegna þessara

atburðaogeinn af þingmönn-

um íhaldsflokksins sagðist

frekar vilja missa völdin en að

ná þeim með stuðningi þessa

skríls.

Um sextíu félagar í Sam-

bandi íhaldsstúdenta tóku þátt

í skrílslátunum eftir drykkju-

veislu í Loughbrough-háskóla.

¦ Kim Dae-Jung (t.v.) og Kim Young-Sam eru helstu

leiðtogar Nýja lýðræðisflokksins í Kóreu sem nú er litlu

minni en stjórnarflokkurinn, Lýðræðislegi réttlætisflokkur-

inn. Báðir þykja þeir róftækir í andstöðu sinni við

stjómvöld en Kirn Dae-Jung þó róttækari enda var hann

lengi í útlegð í Bandarikjunum.

Stjórnarandstaðan í

S-Kóreu sameinast

Seoul-Reutcr

¦ Leiðtogar Lýðræðis-

flokksins í Kóreu skýrðu frá

því í gær að þeir myndu

sameina flokk sinn Nýja lýð-

ræðisflokknum sem er undir

forystu Kim Dae-Jung og

Kim Young-Sam.

Eftir sameininguna mun

flokkurinn hafa samtals 106

þingsæti af 276 á þinginu í

Suður-Kóreu eru stjórnar-

flokkurinn.Lýðræðislegi rétt-

lætisflokkurinn. hefur 148

þingsæti. Skömmu áður en

formaður Lýðræðisflokksins

lýsti yfir sameiningu flokks-

ins við Nýja lýðræðisflokks-

ins höfðu 20 af 35 þingmónn-

um hans gengið yfir til Nýja

lýðræðisflokksins með það

fyrir augum að þvinga fram

sameiningu.

Nýi. lýðræðisflokkurinn

hafði í frammi mun harðari

stjórnarandstöðu og gagn-

rýni á stjórnvóld en Lýðræð-

isflokkurinn fyrir kosning-

arnar í seinasta mánuði. Rót-

tækni flokksins átti greini-

lega hljómgrunn meðal kjós-

enda og flokkurinn fékk 71

þingsæti í kosningunum þótt

hann væri nýstofnaður. For-

maður Lýðræðisflokksins,

Cho Yun-Hyong, sagði á

blaðamannafundi í gær að

ákvörðun flokksins um að

sameinast Nýja lýðræðis-

flokknum endurspeglaði ósk

almennings um sterkari

stjórnarandstöðu sem berð-

ist fyrir því að lýðræði yrði

komið á að fullu í Suður-

Kóreu.

FERMINGARGJARR

BIBLIAN

OG

Sálmabókin

Fást í bókaverslunum og

hjá kristilegu félögunum.

HIDÍSL.BIBLÍUFÉLAG

(fmtibranltéátofu

Hallgrimskirkja Reykjavlk

sími 17805 opi6 3-5 e.h.

Aðgerðir

gegn kók-

aínsmygli

La Paz.Reuter

¦ Heman Siles Zuazo forseti

Bólivíu hefur mótmælt því harka-

lega sem bandarískur öldunga-

deildarþingmaður hélt fram ný-

lega að Bóliviumenn standi sig

ekki nægjanlega vel í baráttunm'

gegn kókaínsmyglurum.

Siles Zuazo segir að lögreglan

hafi nú í vikunni gert upptæk

1.260 kíló af kókaíni, handtekið

fjölda manns og náð miklu magni

vopna og nokkrum farartækjum

sem eiturlyfjasmyglarar hafi

notað. Hann segir að þetta sanni

einlægni Bólivíustjórnar í barátt-

unni gegn kókaínversluninni.

Bandaríski öldungadeildarþing-

maðurinn Paula Hawkins sagði í

seinustu viku að hún myndi leggja

fram frumvarp um að draga úr

efnahagsstuðningi Bandaríkja-

manna við Bólivíumenn ef hinir

síðarnefndu sýndu ekki meiri

framtakssemi í baráttunni við eit-

urlyfjasmyglara.

¦   Fairmount-hóte! í Texas er dregið um miðborg San

AntonÍO-borgar.                                       Símamynd-POLFOTO

Hótel á hjólum

San Antonio-Reuter

¦ Nú í víkunni hafa staðið yfir miklir og óvenjulegir

flutningar í borginni San Antonio í Texas í Bandaríkj-

unum. Kranabílar hafa dregið 1,4 milljón kílóa hótel

um miðborgina á nýtt hótelstæði þar sem því er ætlað

að standa.

Hótelið, sem heitir Fairmont, var byggt árið 1906.

Það hefur ekki verið starfrækt frá því árið 1968 og

hefur heimilislaust fólk tekið sér bólfestu í því. Það

verður opnað aftur á nýja staðnum á næsta ári sem

lúxushótel.

London:

Margrét prinsessa fær sér

smók eftir lungnauppskurd

London-Reuter

¦ Margrét prinsessa, litla

systir Elísabetar Englands-

drottningar, hafði í gær ráð-

leggingar lækna að engu

með því að kveikja sér í

sígarettu á almannafæri, í

fyrsta sinn eftir lungnaupp-

skurðinn sem hún gekkst

undir fyrir þremur mánuð-

um.

Þegar búið var að fjarlægja

hluta af vinstra lunga prinsess-

unnar, sem er 54 ára gömul,

kom í ljós að hún var ekki með

krabbamein. Henni var samt

sem áður ráðlagt að láta af þeim

vana sínum að reykja 60 síga-

rettur á dag.

í gær reykti hún gegnum síga-

rettumunnstykki úr silfri þar

sem hún var viðstödd verð-

launaafhendingu sjónvarps í

London og var það í fyrsta sinn

sem hún kemur fram opinber-

lega eftir að hún kom frá því að

jafna sig eftir uppskurðinn á

eyjunni Mustique í Karabíska-

hafinu.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32