NT - 01.06.1985, Blaðsíða 8
■ Guðsþjónustur í Reykja-
víkurprófastsdæmi sjó-
mannadaginn 2. júní 1985.
Árbæjarprestakall
Guðsþjónusta í safnaðar-
heimili Árbæjarsóknar kl.
11.00 árd. Organleikari Jón
Mýrdal. Sr. Guðmundur
Þorsteinsson.
Áskirkja
Guðsþjónusta kl. 11.00. Sr.
Árni BergurSigurbjörnsson.
Breiðholtsprestakall
Sumarferð safnaðarins á
sunnudag, 2. júní. Farið
verður frá Breiðholtsskóla
kl. 9.30. Safnaðarnefndin.
Bústaðakirkja
Guðsþjónusta kl. 10.00.
Ath. breyttan tíma. Organ-
leikari Guðni t>. Guðmunds-
son. Sr. Ólafur Skúlason.
Dómkirkjan
Sjómannamessa kl. 11.00.
Biskup íslands herra Pétur
Sigurgeirsson prédikar og
minnist drukknaðra sjó-
manna. Sr. Hjalti guð-
mundsson þjónar fyrir altari.
Sjómenn lesa úr ritningunni.
Sr. Hjalti Guðmundsson.
Elliheimilið Grund
Messa kl. 10.00. Sr. Árelíus
Níelsson.
Fella- og Hólakirkja
Guðsþjónusta kl. 11.00. Sr.
Solveig Lára Guðmunds-
dóttir messar. Organleikari
Guðný Margrét Magnúsdótt-
ir. Sóknarprestur.
Fríkirkjan í Reykjavík
Sjómannadagsmessa kl.
14.00. Fríkirkjukórinn
syngur, organleikari Pavel
Smid. Bænastundir eru í
kirkjunni þriðjud., mið-
vikud., fimmtud. og föstu-
daga kl. 18.00 og standa í
stundarfjórðung. Sr. Gunnar
Björnsson.
Grensáskirkja
Safnaðarferð í Þjórsárdal
sunnudaginn 2. júní. Messa í
Stóra-Núpskirkju kl. 2.00.
Lagt af stað frá Grensás-
kirkju við Háaleitisbraut kl.
10.00 f.h. Sr. Halldór
Gröndal.
Hallgrímskirkja
Messa kl. 11.00. Altaris-
ganga. Sr. Ragnar Fjalar
Lárusson. Þriðjudag, fyrir-
bænaguðsþjónusta kl. 10.30,
beðið fyrir sjúkum.
Landspítaiinn
Guðsþjónusta kl. 10.00. Sr.
Karl Sigurbjörnsson.
Hátcigskirkja
Messa kl. 11.00. Sr. Tómas
Sveinsson.
Kópavogskirkja
Guðsþjónusta kl. 11.00. Sr.
Þorbergur Kristjánsson.
Langholtskirkja
Guðsþjónusta kl. 11.00.
Prestur sr. Pjetur Maack.
Organleikari Kristín Ög-
mundsdóttir. Ljóðakórinn
annastsöng. Sóknarnefndin.
Laugarneskirkja
Messa kl. 11.00. Altaris-
ganga. Sigríður Jónsdóttir,
sem leyst hefur organista
kirkjunnar af í 2 ár, hættir nú
störfum. Verður þetta því
jafnframt kveðju messa fyrir
hana. Þriðjudag 4. júní,
bænaguðsþjónusta kl. 18.00.
Sóknarprestur.
Neskirkja
Guðsþjónusta kl. 11.00. Sr.
Frank M. Halldórsson. Mið-
vikudag 5. júní, fyrirbæna-
messa kl. 18.20. Sr. Frank
M. Halldórsson.
Scljasókn
Guðsþjónusta kl. 11.00 í
Ölduselsskólanum. Fyrir-
bænasamvera fimmtudaginn
6. júní kl. 20.30 í Tindaseli
3. Sóknarprestur.
Stokkseyrarkirkja
Messa kl. 10.30. Sr. Úlfar
Guðmundsson.
Eyrarbakkakirkja
Messa kl. 2.00. Sr. Úlfar
Guðmundsson.
Staðarbakkakirkja.
Messa nr. sunnudag kl. 14.
Kór Flensborgarskóla undir
stjórn Hrafnhildar Blómster-
berg syngur í messunni. Alt-
arisganga. Sónarprestur.
Jón Erlingur Guðmundsson
Fæddur 1. ágúst 1899. Dáinn 27. maí 1985.
■ Á skilnaðar- og saknaðarstund
langar mig til að minnast tengda-
föður míns með nokkrum þakkar-
orðum.
Erlingur fæddist þann l. ágúst
1899 að Fjalii á Skeiðum. Foreldr-
ar hans voru þau Guðmundur
Ófeigsson, bóndi Fjalli og Guðríð-
ur Erlingsdóttir frá Stóru-Mörk,
kona hans. Erlingur var einn
þriggja systkina. Önnur systra
hans var Sigríður, lengi húsfreyja
í Núpstúni í Hrunamannahreppi,
hún lést 1980. Hin systirin Vilborg,
sem ein er eftir á lífi af þeim
systkinum býr að Sörlaskjóli 14 í
Reykjavík.
Erlingur ólst upp í foreldrahús-
um, lengst af í Fjalli á Skeiðum,
en einnig bæði í Laugarási og á Iðu
í Biskupstungum.
Árið 1924 flyst hann ásamt for-
eldrum sínum að Galtastöðum í
Flóa, en foreldrar hans bjuggu þar
til ársins 1932, er þau létu af
búskap.
Þann 8. júlí 1928 giftist Erlingur
unnustu sinni af næsta bæ, Guð-
laugu Jónsdóttur frá Syðra-Velli.
Þau taka síðan að fullu við búskap
á Galtastöðum árið 1932 og búa
þar til ársins 1953. Þau eignuðust
sex börn. Fyrsta barn þeirra dó í
fæðingu, annað á 1. ári, en fjögur
komust til fullorðinsára. Þau eru:
Guðmundur, býr í Bandaríkjun-
um, Arndís, húsfreyja að Galta-
stöðum, Sigurjón, búsettur á Sel-
fossi og Árni, einnig búsettur á
Selfossi.
Eftir að þau Erlingur og Guð-
laug hættu búskap voru þau áfram
á Galtastöðum í skjóli dóttur og
tengdasonar er þar tóku við búi.
Síðustu árin dvaldi Erlingur um
skeið að Ási í Hveragerði, síðan á
Elliheimilinu Grund í Reykjavík,
en nú síðast á langlegudeild
Sjúkrahúss Suðurlands, Ljósheim-
um á Selfossi, frá því sú stofnun
tók til starfa í ársbyrjun 1984.
Guðlaug kona hans lést 1981.
Þannig er hinn ytri rammi um
ævi tengdaföður míns. Hann elst
upp við sveitastörf þeirrar tíðar, á
yngri árum vann hann einnig um
tíma við gerð Skeiðaáveitunnar,
var auk þess sjómaður á Suður-
nesjum, og um skeið verkamaður
í Hafnarfirði.
Byrjar síðan eigin búskap á
mestu kreppuárum þessarar aldar,
og býr fram til þess tíma að farið
er að rofa til í aíkomu bænda með
aukinni ræktun og betri húsa- og
vélakosti.
Árið 1955 hófust kynni mín og
þeirra hjóna Erlings og Guðlaug-
ar. Kom ég þá ung að árum að
Galtastöðum, sem unnusta Sigur-
jóns, sonar þeirra. Mér var strax
tekið sem þeirra dóttur og bar
aldrei skugga á þau kynni.
Erlingur tengdafaðir minn var
einn þeirra manna, sem ekki bár-
ust mikið á, hlýr en fáskiptinn.
Hann var mikill ljóðaunnandi og
kunni góð skil á kvæðum gömlu
Olafur Guðmundsson
á Hvanneyri
■ Nú kveðjum við góðan vin,
kennara og samstarfsmann, Ólaf
Guðmundsson búfræðikandídat
og deildarstjóra á Hvanneyri.
Okkur sctur liljóða þegar hann
svo skyndilcga er kvaddur yfir
nióðuna miklu - frá eiginkonu,
börnum, föður - systkinum og
samstarfsmönnum. Hann lést eftir
skamma sjúkrahúslegu á Akranesi
26. maí.
Jón Ólafur eins og hann hét
fullu nafni var fæddur í Reykjavík
10. nóvember 1927, en foreldrar
hans eru Guðmundur Jónsson
fyrrv. skólastjóri á Hvanneyri og
kona hans Ragnhildur Ólafsdóttir.
Kona Ólafs er Sigurborg Jónsdótt-
ir og eiga þau 5 börn - öll uppkom-
in.
mun söknuður staðarfólks á
Hvanneyri og samstarfsmanna
mikill.
Fjölskyldan á Báreksstöðum var
samhent og lagði rækt við hesta-
mennsku og hrossarækt í frístund-
um. Þann þátt tileinkaði Ólafur
Sigurborgu og naut þess að hún
stundaði holla útiveru og og íþrótt-
ir með börnunum - á svo þjóðleg-
an liátt.
Þannig er margs að minnast og
þakka þegar horft er til liðinna
ára. Fjölskyldurnar á Hvanneyri
nutu í Ólafi hans hlýju framgöngu
í daglegum samskíptum og gleði í
tónlistinni en kalla mætti þetta
samfélag þar - eitt af stærstu
heimilum í landinu.
Ég bið góðan Guð um að styrkja
Sigurborgu og börnin auk aldraðs
föður í þungbærum missi.
Við Elín viljum þakka þessu
góða fólki öllu fyrir samfylgd og
leiðsögn, vináttu og uppörvun á
liðnum árum og minningin um góð-
an dreng mun lifa.
Gunnar Gunnarsson.
þjóðskáldanna. Oft mælti hann
fyrir munni sér ýmiss erindi og
hendingar, ekki síst úr kvæðum
móðurbróður síns Þorsteins Erl-
ingssonar, sem hann hafði sérstakt
dálæti á. „Það var fallegur maður"
sagði hann eitt sinn, en hann
mundi Þorstein vel.
Erlingur sagði mér þá sögu að
eitt sinn er þau systkinin í Fjalli
voru í foreldrahúsum, ung að
árum, bar þar bóksala að garði.
Var hann með nýútkomin ljóð-
mæli Hannesar Hafsteins. Þau
systkinin langaði mjög til að eignast
bókina en fjárráð voru lítil. Með
því að þau lögðu öll saman fram
aleigu sína í peningum tókst þeim
að kaupa bókina.
Þetta segir sína sögu um áhuga-
mál þeirra systkina. Passíusálma
Hallgríms Péturssonar hafði hann
ætíð við hönd sér og fylgdi sú bók
honum í hinstu hvíluna, þar sem
hann hafði sjálfur kosið sér stað, á
bakka þess fljóts sem hann fæddist
við -,, í von um að ég heyri þunga
sigursönginn hennar Hvítár, ég
hefi lifað svo margar glaðar stund-
ið á bökkum hennar" - eins og
hann komst sjálfur að orði.
Erlingur verður jarðsunginn frá
Selfosskirkju þann 1. júní við hlið
konu sinnar í Selfosskirkjugarði.
Ég vil því að leiðarlokum þakka
honum og þeim hjónum báðum
fyrir mig og mín börn, sem mátu
afa sinn og ömmu mikils.
Blessuð sé minning þeirra
sæmdarhjóna Erlings og Guðlaug-
ar.
Gulla.
Að loknu búfræðinámi á
Hvanneyri stundaði Ólafur nám
við menntaskólann í Reykjavík
og lauk svo búfræðikandídatsnámi
fra Hvanneyri árið 1951. Að loknu
sérnámi í bútækni við búnaðarhá-
skólann í Ultuna í Svíþjóð, tók
hann við framkvæmdastjórn Verk-
færancfndar ríkisins sem 1966
þreyttist í Bútæknideild Rann-
sóknarstofunar landbúnaðarins
og veitti hann þeirri stofnun for-
stöðu síðan.
Þar vann hann að umfangsmikl-
um verkefnum fyrir bændur við
ráðgjöf og prófun varðandi búvél-
ar og verkfæri og innti mikið starf
af hendi á þessu sviði fyrir land-
búnaðinn. Ölafur vann traust og
virðingu samferðamanna sinna
með traustu fasi og glaðværð og
var hann því hvers manns hugljúfi.
Ólafur bjó yfir ríkri tónlistargáfu
og starfaði sem kirkj uorganisti á
Hvanneyri auk þcss sem skóla-
sveinar á Hvanneyri nutu leiðsagn-
ar og skemmtunar með- Ólafi í
söng, og hljóðfæraleik. Ólafur var
víðsýnn og heilsteyptur félagi og
Afmælis-
og
minningar
greinar
Þeim, sem óska birtingar
á afmælis- og eða
minningargreinum í
blaöinu, er bent á, aö
þær þurfa aö herast
a.m.k. tveim dögum
fyrir birtingardag. Þær
þurfa aö vera vélritaðar.
80ára
Ingibjörg Jóhannsdóttir
frá Löngumýri
Ein af merkustu konum okkar
samtíðar, Ingibjörg Jóhannsdótt-
ir, fyrrv. skólastjóri á Staðarfelii
og Löngumýri er 80 ára í dag.
Kynni okkar hófust árið 1941
þegar ég kom sem nemandi í
húsmæðraskólann á Staðarfelli. í
endurminningu minni finnst mér
að aldrei hafi verið myrkur þennan
vetur, heldur samfelld birta og
yiur. Ég þykist vita að þessi birtu-
tilfinning í hugskoti mínu stafi frá
umhyggjusömu og hlýju viðmóti
húsráðenda, ásamt ólýsanlegri
litadýrð himinsins yfir Hvamms-
firði, einkum þegar líða tók á vetur
og vor. Hún er mér afdalabarninu,
sem varla hafði séð til sjávar,
ógleymanleg.
Eitt atvik er mér öðrum minnis-
stæðara frá þessum vetri og þó
fremur vorinu. Mér hafði verið
sett fyrir það verkefni a lefigia
kartöflur til spírunar. En áhuga-
svið Ingibjargar Jóhannsdóttur
beindust ekki eingöngu að ræktun
huga og handai, heldur einnig að
ræktun hyers konar jtu-ðargróða. Ingi-
björgu bar þar að, sem ég sat yfir
kartöflunum og eftir að hafa setið
hjá mér góða stund spurði hún:
„Langar þig ekki til að verða vefn-
aðarkennari?" „Mer þykir gaman
að vefa,“ svaraði ég, en um lengra
nám en þennan vetur í húsmæðra-
skóla lét ég mig ekki dreyma.
Á þessum tíma var fátæktin
jafnsjálfsagður förunautur nám-
fúsra unglinga eins og allsnægtir
unglinganna á okkar dögum. Er
ekki að orðlengja það að Ingibjörg
lagði grundvöllinn að lífsstarfi
mínu og fyrir það á ég henni ævar-
andi þakkarskuld að gjalda.
Að námi mínu loknu áttum við
margra ára samstarf í skólanum
sem hún stofnaði árið 1944ograká
föðurleifð sinni Löngumýri í
Skagafirði um áratuga skeið. Á
þeim tíma þekktust engin bjart-
sýnisverðlaun, annars hefði hug-
sjónakonan Ingibjörg á Löngu-
mýri orðið margfaldur verðlauna-
hafi. Saga skólastofnunar og
skólastarfsins á Löngumýri væri
verðugt viðfangsefni ritfærra
manna.
Víst voru aðstæður allar frum-
stæðar á Löngumýri fyrstu árin og
þrengslin ekki „mannsæmandi"
vegna mikillar aðsóknar. En hún
Ingibjörg stóð aldrei ein. Með
henni fluttist að Löngumýri sam-
kennari hennar frá Staðarfeili,
Björg Jóhannesdóttirfrá Móbergi.
Alla tíð stóð hún sem óbifandi
bjargvið hlið Ingibjargar, ogeinn-
ig hún lagði aleigu sína undir að vel
mætti til takast um skólastarfið.
Enn standa þær Ingibjörg og
Björg hlið við hlið á heimili sínu
Reynimel 22 í Reykjavík, og enn
njóta þær ávaxtanna af fórnfúsu
starfi sínu umvafðar vinsemd og
óvenjulegri ræktarsemi gamalla
nemenda sinna. Kæru vinkonur,
Ingibjörg ogBjörg. Megi forsjónin
enn um sinn leyfa ykkur að njóta
friðar og farsældar á fallega og hlý-
lega heimilinu ykkar.
Guðrún Bergþórsdóttir
70 ára
Magnús
Þórarinsson
listmálari
Sjötugur 1. júní 1985
Ungur ert þú
þótt eigir
árin sjötíu liðin
er sífellt hefur
með sæmdum
sagan skráð og geymt.
Orsök þess
erávallt
einart hjarta sem skilur
öðrum betur
hið innra
sem aflgjafann stærsta á jörð.
Ingólfur Jónsson
frá Prestbakka