NT - 08.06.1985, Blaðsíða 23

NT - 08.06.1985, Blaðsíða 23
 m ~P 8. júní 1985 23 ld íþróttir Þórdís og Broddi á HM í badminton ■ Tveir íslendingar, Broddi Kristjánsson og Þórdís Edwald, munu keppa á Heimsmeistara- mótinu í badminton, sem fram fer í Calgary í Kanada 10.-16. þessa mánaðar. Þau urðu hvort um sig efst á styrklcikalista Badmintonsambandsins, sem reiknaður er út eftir punktamót- um s.l. vetrar. í einliðaleik mætir Broddi keppanda frá Nígeríu í 1. um- ferð og ætti að eiga þokkalega vinningsmöguleika. Hætt er við að róðurinn verði þyngri hjá Þórdísi, sem í einliðaleik 1. umferð leikur gegn Christinu Magnússon frá Svíþjóð. 1 tvenndarleik spila Broddi og Þórdís saman og drógust í 1. umferð á móti pari frá Indlandi. í tvíliðaleik spilar Broddi með Júgóslavanum Berder og keppa þeir við lið frá Kína í 1. umferð. Þórdís spilar með skoskri stúlku, G. Martin, í tvíliðaleik og ættu þær að eiga meiri mögu- leika á að komast áfram, því mótherjar þeirra verða stúlkur frá Perú. ■ Þórdís Edwald og Broddi Kristjánsson, sem bæði eru í TBR, keppa á heimsmeistaramótinu í Calgary. Með þeim á myndinni er fararstjóri þeirra,Daníel Stefánsson. Jafntefli ■ Selfoss og ÍK skildu jöfn 1-1 á Selfossi í A-riðli 3. deildar í knattspyrnu í gærkvöldi. í hálfleik hafði Selfoss yfir 1-0 og gerði Daníej Gunnarsson það mark. ÍK jafnaði er um 10 mínútur voru eftir af leiknum með niarki Þóris Gíslasonar. Selfyssingar höfðu mikla yfirburði í fyrri hálfleik og höfðu þá átt að vera búnir að gera út um leikinn, en Kópavogs- búar hresstust mjög í þeim síðari. Útisigur ■ Þá var einn leikur í B-riðli 4. deildar. Hvera- gerði vann Þór Þ., 1-2 á útivelli. Guðmundur Gunnarsson skoraði mark heimamanna. Úrslitin í keilunni ■ Undanrásir í flokki karla á ís- landsmeistaramótinu í Keilu voru leiknar um síðustu helgi. Á laugar- dag léku 40 keilarar um 20 sæti í undanúrslitunum, og þeir 20 sem þangað komust léku svo þrjá leiki af sex á sunnudag. Hinir þrír verða svo leiknir á sunnudagsmorgun kl. 9.30 og kl. 13 hefjast svo úrslitin milli fimm efstu manna. Þann sama dag fer svo einnig fram keppni í flokki kvenna. Það er Keilu- og veggboltafélag Reykjavíkur, sem stendur fyrir keppninni og er staða þeirra 20, sem í undanúrslitin komust nú þessi. 1. Bjarni Sveinbjörnsson 538 2. Jóhannes Sölvason 535 3. Hjálratýr Ingason 531 4. Halldór Halldórsson 519 5. Alois Raschhofer 515 6. Ásgeir Heiðar 497 7. Halldór R. Halldórsson 481 8. Jón Á. Jónsson 480 9. Gestur Sigurðsson 461 10.-11. Ólafur Á. Ólafsson 459 10.-11. Sigurður E. Ingason 459 12. Þór P. Magnússon 451 13. Helgi Bergþórsson 448 14. Jóhann Ingibergsson 437 15. ólafur Benediktsson 431 16. Höskuldur Höskuldsson 424 17. Daníel Guðlaugsson 420 18. Ólafur Skúlason 416 19. Stefán Bjarkason 385 20. Jón M. Gunnlaugsson 304 Mótið er opið mót og er öllum velkomið að fylgjast með keppn- inni án endurgjalds. Frí í 1. deildinni ■ Enginn leikur verður í 1. deild íslandsmótsins í knattspyrnu um helgina, vegna landsleiksins við Spán á miðvikudag. I 2. deild verður aðeins einn leikur, KA og Fylkir leika á Akureyrarvelli kl. 15 í dag, laugardag. í Vestmannaeyjum verður bikar- keppnin á dagskrá í dag. ísfirðingar sækja Eyjaskeggja heim og hefst leikur þeirra í 2. umferð kl. 14.30. Á ísafirði leika heimamenn við Þór, Akureyri í 1. deild kvenna og á mánudagskvöld verða þrír leikir í bikarkeppni kvenna. ÍR leikur við FH, Selfoss við Fram og Valsstúlk- urnar taka á móti stöllum sínum úr Stjörnunni. í 3. og 4. deild verða fjölmargir leikir. í A-riðli þeirrar fyrrnefndu leika HV-Grindavík, Ármann- Stjarnan og Reynir S.-Víkingur Ól. í dag og þá verða einnig fjórir leikir í B-riðli. Leiknir F. leikur við Tindastól, Austri við Val Rf., Þróttur N. við HSÞ og Einherji við Hugin . Fimmtán leikir verða svo í 4. deild um helgina. Þrír á kraftlyftingamót ■ Þrír íslendingar taka þátt í Norðurlandameistaramóti ungl- inga í kraftlyftingum, sem haldið verður í Pargas í Finnlandi nú um helgina. Matthías Eggertsson keppir í 110 kg flokki, Hjalti Árna- son í 125 kg flokki og Torfi Ólafs- son keppir í yfir 125 kg flokki. Kvennamót í golfi ■ Opið kvennamót í golfi verður haldið hjá Keili á sunnudag. Keppnin hefst kl. 11 og verða leiknar 18 holur með og án for- gjafar.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.