NT - 19.06.1985, Blaðsíða 1

NT - 19.06.1985, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 19. júní 1985 Borgarnes samþykkti ■ Verkalýðsfélag Borgarness samþykkti á fundi sínum í gær nýgerðan kjarasamning ASI og VSÍ. Fundarsókn var allgóð og var samningurinn samþykktur með ölium greiddum atkvæð- um gegn einu. Datt af þakinu ■ Seint í gærkvöld datt ungur drengur ofan af þaki verslun- armiðstöðvarinnar við Lóuhóla og meiddist á höfði. Er blaðið fór í prentun var ekki kunnugt um mciðsli barnsins. Að sögn lögreglu er töluvert um að börn séu að príla á þökum bygginga og beinir lögreglan þeim til- mælum til foreldra að þeir fylgist með börnum sínum. Mótmæla byggingu í landi Alaska: „Hvað hef ég eiginlega gert þessu fólki?“ spyr byggjandinn, Jón H. Björnsson ■ „Hvað hef ég eiginlega gert þessu fólki? Ég hef átt þetta land síðan 1960 og alla tíð ætlað mér að byggja hér. Mér hefur aldrei dottið í hug að kvarta þó að hús hafi risið allt í kring. Én svo þegar ég ætla að fara að byggja gera nágrannarnir, eða Sigurður Thoroddsen, allt tii að stöðva mig. Allt tal um að ég hyggist byggja á fornminjum er úr lausu lofti gripið." Þetta sagði Jón H. Björnsson, eigandi gróðrarstöðvarinnar Al- aska í Breiðholti, meðal annars á opnum fundi sem hann efndi til vegna deilna sem risið hafa meðal hans og nágranna hans vegna húss sem Jón hyggst byggja á landi sínu. Jón hafði fengið samþykki byggingar- nefndar borgarinnar fyrir hús- byggingunni en borgarstjórn frestaði nýlega staðfestingu á samþykkinu „til þess að kynna sér málið betur vegna tiltekinna mótmæla“ eins og segir í bókun. Á fundinn í gær voru mættir borgarfulltrúar, þjóðminja- vörður, nágrannar Jóns auk nokkurra blaðamanna. í opnum umræðum um málið kom fram, að samkvæmt tuttugu ára gömlu skipulagi á land Alaska að vera svokallað „grænt svæði“ og sagði Sigurður Thoroddsen, arkitekt og forvígismaður ná- grannanna, að hér væri um „prinsipmál" að ræða. „Við höf- um frá upphafi staðið í þeirri trú að hér yrði grænt svæði og viljum að svo verði,“ sagði Sig- urður. í einu dagblaðanna var um daginn fullyrt að Jón hyggðist reisa húsið á fornminjum, í landi gróðrarstöðvarinnar eru elstu fornminjar Breiðholts, kirkja og kirkjugarður frá fjór- tándu öld og munu mannabein hafa verið grafin upp úr garðin- um einhvern tíma. Þór Magnús- son, þjóðminjavörður, semfrið- lýsti umrætt svæði árið 1981, sagði að staður hússins, sem Jón hyggst byggja, væri utan við hinn friðlýsta reit. ■ Hér standa þeir andspænis hvor öðrum, Sigurður Thoroddsen og Jón H. Björnsson í Alaska. BorgarfuUtrúar og þjóðminjavörður voru einnig á fundinum. NT-mynd: Ámi Bjama. - í kjölf ar nýrra laga ■ „Það er fullur hugur í okkur, en við höfum ekkert á- kveðið ennþá. Við erum búnir að festa okkur nafnið Frjálst útvarp og ákveðum endanlega í haust hvað við gerum,“ sagði Kjartan Gunnarsson formaður Félags um frjálsan útvarps- rekstur, í sambandi við NT í gær. Kjartan og félagar hans í Sambandi ungra sjálfstæðis- manna ráku útvarpsstöð í BSRB verkfallinu í haust, Val- haHarútvarpið svonefnda. íslenska útvarpsfélagið með þá Jón Ólafsson í Skífunni og Magnús Axelsson fasteignasala í broddi fylkingar ætla að hefja útvarpsútsendingar strax og nýju útvarpslögin taka gildi. Væntanlega fylgja í kjölfarið margar útvarpsstöðvar víðs vegar um landið. Við höfum fregnað af stöðvum í Vest- mannaeyjum og í Keflavík, en ekki fengið staðfestar fréttir af útvarpsstöðvum á Norður- og Austurlandi. Landsmálablaðið Dagur á Akureyri rak útvarpsstöð í BSRB verkfallinu og sögðu þeir Dagsmenn neistann sem þá kviknaði enn í fullu fjöri, en þeir hafa ekki tekið ákvörð- un um áframhaldandi útvarps- rekstur. ■ Margt forvitnilegt bar fyrir augu á 17. júní, m.a. mátti sjá litla græna kallinn sem venjulega stendur inni götuvitanum stíga út til að sjá betur. NT-mynd Árni Bjarna Sjómannadeilan leyst: Sjómenn og útvegsmenn skrifuðu undir í gær ■ Samingar náðust milli Sjó- imannafélags Reykjavfkur og Landsambands íslenskra út- vegsmanna um klukkan tíu í gærkveldi. Samningurinn er háður samþykki félagsfundar Sjómannafélagsins haldinn nú í morgun í húsakynnum ríkissátta- semjara. Þegar blaðamaður NT hitti fulltrúa útgerðarmanna, Jakob Sigurössoiij og fulltrúa Sjó- mannafélagsins, Guðmund Hallvarðssonj að máli í gær- kveldi vildu hvorugir greina frá efnisatriðum samningsins fyrr en eftir félagsfund sjómanna í morgun. Ríkissáttasemjari Guðlaugur Þorvaldsson sagði í gærkveldi að engir formlegir fundir hefðu verið haldnir fyrr en milli níu og tíu í gærkveldi - menn hefðu aðeins rætt óformlega saman. „En auðvitað slógu báðir af sínum kröfum.“ Deila sjómanna og útvegs- manna var komin á hættulegt stig í gær áður en samningar tókust. Vinnuveitendasamband ís- lands sendi Sjómannafélagi Reykjavíkur í gær bréf þess efnis að VSÍ teldi samúðarverk- fallsboðun Sjómannafélagsins ólögmæta og myndi grípa til aðgerða samkv. því ef á reyndi. Verkamannafélagið Hlíf í Hafnarfirði var viðbúið því að reyna að stöðva löndun á skip- inu Keili ef það kæmi til hafnar í Hafnarfirði því Alþýðusam- band íslands hafði áður lýst yfir afgreiðslubanni. Sjómannafélagið lýsti yfir samúðarverkfalli allra farskipa og olíuskipa í gær og hefði sú verkfallsboðun tekið gildi 25. júní. Auglýsingastofa þriggja stórra - auglýsingastofur missa mi 11 jónavi ðskipti 8 ■ Auglýsingastofur borg- arinnar munu ef að líkum lætur missa vænan spón úr aski sínum á næstu mánuð- um. Þrjú fyrirtæki, sem sam- eiginlega auglýsa fyrir mill- jónir árlega, hafa stofnað eigin auglýsingastofu, Studío X. Fyrirtækin eru Vöru- markaðurinn hf.,Gunnar Ás- geirsson hLog ferðaskrifstof- an Atlantik. Stefán Friðfinnsson, fram- kvæmdastjóri Vörumarkað- arins, sagði í samtali við NT, að hið nýja fyrirtæki myndi eingöngu annast auglýsingar fyrir fyrirtækin þrjú. Hann sagði að ákvörðun um stofn- un þess hefði ekki verið tekin vegna óánægju með þá þjón- ustu sem auglýsingastofur veittu. „Við vonumst hins vegar eftir því að við getum nýtt það fé sem við notum til auglýsinga betur með því að hafa okkar eigið starfsfólk sem ber hag fyrirtækjanna fyrir brjósti,“ sagði Stefán. Bjarni Dagur Jónsson hef- ur haft auglýsingar Vörumark- aðarins með höndum en Gunnar Ásgeirsson og Atl- antik hafa skipt við nokkrar auglýsingastofur í gegnum árin.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.