NT - 18.08.1985, Blaðsíða 2
NT Sunnudagur11.ágúst 1085 2
■ Appelsínugulur morgunn eftir Þórdísi Sigurðardóttur sem er sérstakur gestur sýningarinnar.
Ljósm. Guðm. Pétursson
■ Guðrún Gunnarsdóttir.
Straumar. Vefur. 210x286 cm
(tveir hlutar)
Norræn
vefjarlist
Textíltriennalinn hefur staðið
af sér öll
■ Um bessar mundir stendur yfir
merkileg sýning á Kjarvalsstöðum í
Reykjavík. Hér erumað ræðafjórðu
Norrænu vefjarlistarsýninguna en það
er farandsýning eins og hinar fyrri og
verður henni komið upp á öllum
Norðurlöndunum á þessu ári og því
næsta. Sýningin kemur hingað frá
Noregi, þar sem hún hóf göngu sína í
júní síðastliðnum. Þegar henni lýkur
að Kjarvalsstöðum mun hún fara til
Færeyja og þaðan til Danmerkur,
Finnlands og að lokum verður hún
sett upp í Norrbotten í Svíþjóð
snemmsumars á næsta ári.
Þessi fallega en hljóðláta sýning er
gott dæmi um samnorrænt átak og
sönnun þess að þær þjóðir, sem að
baki henni standa, eiga samleið á
vegferð þjóðanna.
Á sýningunni gefur að líta um 80
verk og mun sýningarnefndin hafa
staðið í ströngu því alls bárust á sjötta
hundrað verk víðs vegar að frá
Norðurlöndunum sem síðan var valið
úr. Við val myndverkanna var lögð
áhersla á það að sýningin gæfi sem
besta mynd af öllu því sem væri á
döfinni í norrænni vefjarlist í dag.
í vandaðri sýningarskrá, sem þó
ber þess merki að hafa ekki verið
prentuð á íslandi segir Hildur Há-
konardóttir meðal annars: „Ósk
okkar um að vernda oe efla textíllist
má aldrei verða til þess að einangra
hana. Á þessu ári höfum við stigið
markvisst skref til að opna þennan
vettvang verkurn sem hafa yfir sér
meiri tilraunablæ og eru verr hamin á
vegg og hafa því ekki fallið að formi
farandsýningarinnar. Sérhvert það
land sem sýningin gistir mun fyrir sitt
leyti kanna hvað er á döfinni í þessum
efnum og hefur því tækifæri á því að
koma á framfæri er Tríennalinn
stendur yfir. Með þessum hætti von-
umst við til að fylgjast stöðugt með
él í 11 ár
breyttum tímum jafnframt því að
standa vörð um fyrri hefðir og vera
sönn loftvog þess sem efst er á baugi
innan textíllista."
Að sýningunni standa fjölmargir
listamenn frá öllum Norðurlöndun-
um. Fyrir íslands hönd sýna þær
Guðrún Gunnarsdóttir, Guðrún Mar-
inósdóttir, Hólmfríður Árnadóttir og
Sigurlaug Jóhannesdóttir. Allar eiga
þær að baki langt starf þar sem
myndvefnaður hefur verið í fyrir-
rúmi. Auk þessara kvenna hefur
Þórdís Sigurðardóttur frá Sámsstöð-
um verið boðið að sýna eitt verk sem
sérstakur gestur sýningarinnar. Það
kallar Þórdís „Appelsínugulan
morgunn" og er um að ræða um-
hverfisverk sem komið hefur verið
upp sunnan undir húsinu.
Samnorræni Textíltríennalinn er
styrktur af Norræna menninearmála-
sjóðnum og mennta- og menning-
armálaráðuneytum landanna. Sýn-
mgrstaðirnir sem sýninguna hýsa
munu einnig fella niður leigu auk þess
sem þeir í sumum tilvikum styrkja
sýningun á annan hátt.
Á flestum hinna Norðurlandanna á
vefjarlist sér langa sögu. Eins og svo
oft þegar að baki liggur árhundraða
hefðir í handverki hefur vefnaðurinn
verið á mörkum iðnaðar og lista.
Á íslandi er þessu nokkuð öðru vísi
farið því hefðin er ekki eins rík og
meðal nágrannaþjóðanna. Þeir sem
unnið hafa brautryðjendastarf í þess-
um efnum her á landi hafa allir verið
í tölu listamanna og má þar meðal
annarra nefna Barböru Árnason, Jú-
líönu Sveinsdóttur, Vigdísi Kristjáns-
dóttur og síðast en ekki síst Ásgerði
Búadóttur.
Það er full ástæða til að hvetja
listunnendur til að skoða sýninguna
að Kjavalsstöðum að þessu sinni en
henni lýkur 25. ágúst.
JÁÞ.
Landslagstema. Pappír-textíl. 5
verk: 67x52 cm
■ Sigurlaug Jóhannesdóttir.
In memoriam. Blönduð tækni.
50x205x10