NT - 16.10.1985, Blaðsíða 1

NT - 16.10.1985, Blaðsíða 1
NEWS SUMMARYIN ENGLISH SEEP. 7 Svavar Gestsson um aukaf járveitingarnar: „Fjölbreyttur jurtagarður“ - og krefst skýringa af Albert flutningsmanna að það væru fyrst og fremst fjármálaráð- herraskiptin sem lægju að baki beiðninni. „Við viljum sjá hvað það er sem hefur verið afgreitt að undanförnu. Við höfum grun um að þetta sé svona býsna fjölbreytileg- ur jurtagarður og við viljum fá að sjá hvað þarna er á ferðinni." ■ Níu þingmenn Alþýðu- bandalagsins hafa lagt fram beiðni um skýrslu í samein- uðu Alþingi. Par er fráfar- andi fjármálaráðherra Al- bert Guðmundsson krafinn skýringa á aukafjárveiting- um „sem ekki eiga rætur að rekja til breytinga á forsend- um fjárlaga“. í samtali við NT sagði Svavar Gestsson sem er einn Reykvískir foreldrar: Reyndu að smygla heróíni ■ Laust fyrir klukkan átta í gærkvöld varð harð- ur árekstur á mótuni Borg- arholtsbrautar og Uröar- brautar i Kópavogi. Citroen bifreiðinni sem sést hér á myndinni var ekið vestur Urðarbraut þegar hún lenti í árekstri við Mazda 323 bifreið sem kom suöur Urðarbraut. Mikil síld i Djúpinu - söltun á Suðvesturlandi ■ Mikil síldveiði var í ísa- fjarðardjúpi í fyrrinótt. Þar veiddust um 600 tonn og í gærkvöld voru nokkrir bátar á leið í land með afla, aðrir voru enn á miðunum og búnir að fá talsvert af síld. Fjölmargir bátar voru á leið á miðin. Engin síldarsöltun er við ísafjarðardjúp og sigla bátarnir því með aflann suður á svæðið frá Akranesi til Keflavíkur. í gærkvöldi voru þrír bátar á leið til Grindavíkur, einn til Akra- ness og einn í Sandgerði. Véiðin gekk ekki eins vel fyrir Austurlandi í fyrrinótt. þar veiddúst um 200 tonn. Síldin þar var stygg, en þó stóð hún ekki eins djúpt og verið hefur. í fyrradag höfðu verið saltað- ar um 38.000 tunnur og í gær fór þessi tala upp í 42-43 þús. tunnur. Margir síldarbátanna eru nú langt komnir með kvót- ann og sumir alveg búnir með hann og er talsvert um að kvótar gangi kaupum og sölum. Síldin hefur verið góð það sem af er, nema við Suðausturiand þar sem beita þurfti skyndilokun í viku tíma vegna þess hvað hún var smá. ■ Frá opnun á afmælissýningar á verkum Kjarvals í gær. í forgrunni eru þau Davíð Oddsson, borgarstjóri, eiginkona hans, frú Ástríður Thorarensen, Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands og Alfrcð Guðmundsson, forstöðumaður Kjarvalsstaða. Yfir þeim og allt um kring má sjá hina umdeildu loftlýsingu Kjarvalsstaða, en nú hcfur verið kveðinn upp lögbannsúrskurður á breytingar á lofti hússins. NT-mynd; Árni Bjarna Lögbann á loft Kjarvalsstaða ■ Um svipað leyti og Davíð Oddsson, borgarstjóri, opnaði afmælissýningu á verkum Jóhannesar Kjarvals, sem hefði orðið hundrað ára í gær, var kveðinnupp lögbannsúr- skurður á breytingar á loftlýs- ingu Kjarvalsstaða hjá embætti Borgarfógeta Reykjavíkur gegn 100 þúsund kr. tryggingu. Lögbann þetta er sett á að ósk HannesarKr. Davíðssonar sem er arkitekt hússins. Peg- ar NT hafði samband við Hannes í gær, sagðist hann ekkert hafa að segja um þetta. Sagði hann að einn maður hefði viljað breytingar á þess- um ljósabúnaði, en það væri Einar Hákonarson. Ástæðan fyrir því að áhugi er á að breyta loftlýsingunni á Kjarvalsstöðum núna, er fyrst og fremst að hingað til lands er væntanleg sýning á verkum Picassos og þegar ekkja hans heimsótti sýningarstaðinn, hafði hún ýmislegt út á lýsing- una að setja. Hvort lögbanns- úrskurður þessi valdi því að ekkert verði úr Picassosýning- unni er óvíst en höfða þarf mál til staðfestingar lögbanninu. NT reyndi árangurslaust að ná í Einar Hákonarson í gær. Fíkniefnalögreglan hefur undanfarið haft gætur á fólki sem grunur lék á að stundaði innflutning á fíkniefnum. Hjón- in tvenn , sem handtekin voru, eru talin hafa verið milligöngu- menn en ekki beinir innflytjend- ur. Á ungbarninu fundust 25 grömm af heróíni, 650 grömm af hassolíu og 100 grömm af hassi. í kjölfar þessa var gerð leit á hópi farþega sem kom með flugi frá Ámsterdam um helgina og voru farþegarnir m.a. gegnumlýstiraðóskfíkni- efnalögreglunnar. Ekkert fannst við þá leit en karlmaður úr þeim hópi var úrskurðaður í 30 daga gæsluvarðhald. Samkvæmt heimildum NT leikur grunur á að þetta fólk, sem aldrei hefur komið áður við sögu fíkniefnalögreglunnar, hafi stundað það í talsverðan tíma að flytja fíkniefni til lands- ins og að við húsrannsókn í tengslum við málið, hafi fundist sérstakur umbúnaður sem kon- ur hafa borið á sér til að sýnast vera þungaðar og þannig slopp- ið við leit tollvarða. Foreldrarnir voru sendir til ís- lands í gærkvöldi en þau hafa verið í vörslu hollensku fíkni- efnalögreglunnar. í samtali við NT sagði Arnar Jensson deildarstjóri fíkniefna- lögreglunnar að þetta væri í fyrsta skipti sem uppvíst yrði Þrír inenn voru í Citrocn bifreiðinni og ein kona í Mazda bílnum og voru allir fluttir mcð alvarleg meiðsl á slysadeild. Málið var cnn í rannsókn þcgar NT fór í prcntun í gær- kvöldi, en ökumaður Citroén bílsins er grunað- ur uin ölvun. á ársgömlu barni sínu ■ Ung íslensk hjón reyndu á föstudaginn að flytja talsvert af eiturlyfjum, þar á meðal heróíni, til landsins frá Amsterdam með því að fela lyfin innanklæða á IV2 árs gömlu barni sínu. Eiturlyfin fundust við leit á flugvellinum í Amsterdam og í kjölfar þessa hefur íslenska fíkniefnalögreglan handtekið nokkra fleiri, þar á meðal önnur íslensk hjón sem úrskurðuð hafa verið í gæsluvarð- hald. um smygl á heróíni hingað til lands svo nokkru næmi. Lög- reglan hefði heldur ekki orðið vör við að heróín væri notað hér á landi. Pessi heróínfundur kæmi þó í sjálfu sér ekki á óvart því alltaf hefði mátt búast við að heróín skyti hér upp kollinum eins og annarsstaðar.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.