NT - 26.10.1985, Blaðsíða 9

NT - 26.10.1985, Blaðsíða 9
Vettvangur Laugardagur 26. okióber 1985 9 Hlín Pétursdóttir Behrens: Að vinna í frystihúsi nefnir eignakostnað hjá Kaupfélagi Borgfirðinga og telur hann háan. Hér á hann væntanlega við það sem venja er að kalla fjár- magnskostnað og felur í sér afskriftir og vexti. Um það segir greinarhöfundur: „Það er hins vegar ekki venja að menn greiði fyrir afskriftir af eigin eignum.“ Pessi fullyrðing hans er hrein fásinna í þessu tilviki, þ.e. þegar um fyrirtæki er að ræða. í þessu sambandi má nefna nokkur atriði. í fyrsta lagi er uppfærsla eigna og skulda regla og í verðbólguþjóðfélagi vita allir að þar er um háar upphæðir að ræða. I öðru lagi voru lán, sem veitt voru til uppbyggingar sláturhúsanna á sínum tíma, að meginhluta til gengistryggð í dollurum. í þriðja lagi eru afskriftir og vextir í þessum rekstri hjá kaupfélögunum reikn- uð samkvæmt gildandi skattalögum á hverjunt tíma. í fjórða lagi verður stöð- ugt að leggja fjármuni í það að endurnýja tæki og búnað vegna aukinna og eðlilegra krafna jafnt innlendra sem erlendra kaupenda. Mikil vöruþróun hefur átt sér stað í landbúnaðarvörunum og stanslaust er leitast við að bæta þjónustuna við neyt- endur. Þetta er forsenda þess að hægt sé að markaðs- setja vörurnar með nútíma- hætti. Séu fjármunir ekki ætlað- ir til þessara hluta getur afleiðingin aldrei orðið nema ein. Smám saman myndi allri þjónustu í þess- ari mikilvægu neysluvöru þjóðarinnar hraka og endir- inn gæti orðið alger stöðnun í þessum rekstri. Ekki gæti slíkt heitið að gæta hags- muna framleiðenda. Mér þótti rétt að láta ofangreindar athugasemdir koma fram hér á prenti, þar sem vegið var beint að sláturhúsarekstri kaupfé- laganna. Jafnframt tek ég fram að þessari umræðu er hér með lokið af minni hálfu, enda ætla ég þessari grein fyrst og fremst að vera til upplýsingar og leiðréttingar fyrir þá sem vilja hafa það sem sannara reynist í hverju máli. - hvað má ■ Vandi sjávarútvegs og fiskiðnaðar er umræðuefni allra tíma, enda er hann undirstaða efnahagslífs okkar. Ýmsir benda á leiðir til úrbóta og sýnist sitt hverjum. A sumrin berst mikill og verðmætur afli að landi til vinnslu, þá er brýnt að starfsfólk frystihúsanna leggi sitt af ntörkum svo hið góða hráefni lendi í hæsta gæðaflokki og sem mestur gjaldeyrir fáist í þjóðarbú- ið. Menn hafa kvartað og barmað sér yfir því í fjöl- miðlum að nýting þessa góða hráefnis sé ekki sem skyldi því að megin starfs- kraftur frystihúsanna á sumrin sé skólafólk sem kunni misjafnlega til verka og því sé nýting hráefnisins slæm. - Oft hefur skólafólk hlaupið undir bagga í sjáv- arplássum ef vantað hefur starfskraft til vinnslu sjávarafla þegar aflahrotur ber að landi. Þá eru menn fegnir að grípa til krakk- anna. Þeim er gefið skóla- leyfi og enginn nefnir að þau kunni ekki til verka. Forráðamenn frystihús- anna ættu að sjá sóma sinn í því að veita unga fólkinu þá fræðslu, vinnuaðstöðu og umönnun sem þau þurfa svo að allir megi vel við una. Þá yrði nýting aflans betri, fólk fengi hærri laun og vara frystihúsanna kæm- ist í hærri gæðaflokk. - Pað er klárt mál að „bónusdrottningar“ frysti- húsanna bera hag fisk- vinnslunnar fyrir brjósti og að það skiptir þær máli hvort hráefnið er gott eða bæta? vont. f>að verður að innræta skólafólkinu sama hugsun- arhátt svo það beri virðingu fyrir því sem það er að gera, en finnist það ekki vera eins og tannhjól í verk- smiðju, heldur sé meðvitað um allan framleiðsluferil- inn og skynji mikilvægi þess sem það er að gera. - Það verður að breyta ímynd alls fiskiðnaðarins. Á meðan launin eru lág og álitið er þannig útá við að fólk segir „Ég vinn nú bara í frystihúsinu í sumar“;, breytist ekkert. - Kennsla (nýliða) í frystihúsum verður að vera samræmd. Fyrirkontulagið má ekki vera þannig að nýliðinn konri, fái hníf í hönd og sé kennt hvernig hann eigi nú að fara með þetta flak og svo ekki sög- una meir þangað til að næsta lið er komið. Það verður að útskýra allt í samhengi. Hver var með fiskinn áður en maður fær hann í hendurnar og (hver tekur við honum). Fólk á ekki að þurfa að spyrja um þetta eða frétta þessa hluti á kaffistofunni. - Til að starfsmenn fái virðingu fyrir hráefninú' verður að útskýra fyrir þeim verðmæti hverrar fiskteg- undar og verðgildi pakkn- inganna þegar út á markað- inn er komið. - Bónusútreikningurinn og launakerfið þarf að vera þannig að það borgi sig að vanda sig fremur en að flýta sér um of. Með góðri fræðslu í upp- hafi starfsferils skólafólks- ins geta verkstjórar og fisk- eftirlitsmenn sparað sér sporin og skammirnar. - Það hlýtur að borga sig að taka á vandanum í sntærri einingum. Kíkja inn í fiskvinnslusalina og vita hvað er að gerast. Athuga I hvernig gæði framleiðsl- unnar hafa verið undan- farna rnánuði og hvað hefur verið gert til að bæta þau. Lokaorð Að lokum vil ég taka það fram að ég vann um skeið í frystihúsi í sumar, og hafði gaman af. Af tilviljun rakst ég þar á bækling nokkurn, mjög vandaðan •, gefinn út af sjávarútvegsráðuneyt- inu, handa starfsfólki frysti- húsa. Hann gaf mér svör við flestum mínum spurn- ingunt og þyrfti að athuga betur hvernig dreifingu hans er háttað. Keldnakoti 19. okt. 1985 Hlín Pétursdóttir Behrens Aftur á móti er skörin heldur farin að færast upp á bekkinn þegar skammirnar eru komnar inn á síður fjöllesins dagblaðs og þar vegið að samvinnuhreyfingunni. Þá er mál til andsvara. Forráðamenn frystihúsanna ættu að sjá sóma sinn í því að veita unga fólkinu þá fræðslu, vinnuaðstöðu og umönnun sem þau þurfa svo að allir megi vel við una. Þá yrði nýting aflans betri, fólk fengi hærri laun og vara frystihúsanna kæmist í hærri gæðaflokk. um tímamótum að ungum list- fræðingum hefði verið fengið það verkefni að rannsaka lista- mannsferi) Jóhannesar Kjarv- als og meta æviverk hans á mælistiku nýrrar kynslóðar, sem líklegt er að standi á þeirri sjónarhæð og með þá fjarvídd fyrir augum, sem eitt gerir það fært að mæla stærðir í mann- kynssögunni og meta afrek einstakra manna og bera verk þeirra saman við það sem aðrir voru að gera á sama tíma. Skrif um Kjarval þurfa að komast af því stigi að vera minningaglefsur um einkenni- legan mann upp á það að vera sagnfræði, helguð miklum listamanni og hugsuði. Nóg komið af tröllasögum Jóhannes Kjarval var að vísu sérstæður maður, og svo skrýt- inn og tiltektasamur, að hann varð að þjóðsagnapersónu í lifanda lífi. En íslendingareiga slíkt afbragðssafn af kynlegum kvistum, æru-tobbum, drykk- felldum prestum, áflogagjörn- um sýslumönnum, útilegu- mönnum og hálf-tröllum, að ekki sæi högg á vatni þótt orðstír Kjarvals fengi að lifa í listaverkum hans og spakleg- um ritsmíðum en ekki trölla- sögum, sem tengjast viðskipt- um hans við embættis- mannaaðal og kaupsýslustétt Reykjavíkur og aðra „vildar- vini" hans gegnum árin. 1000 ár Jóhannes Sveinsson Kjarval var ósvikinn forn-íslendingur í .eðli, útliti, hugsun og háttum, íslenskur sveitamaður, sem að vísu sigldi út í hcim, og svo óreykvískur sem nokkur hvít- ur maður getur orðið. Síst af öllu var hann reykvískur lista- maður. Það var hrein hending ef hann lagði það á sig að mála svo mikið sem húsgafl í höfuð- borginni og veigraði sér yfir- leitt við því að draga upp myndir af andlitum reykvískra góðborgara, sem gert hafa sér svo títt um manninn. Hann var málari íslenskrarsveitanáttúru og fann sér myndefni í ásjónu og svip sveitafólksins eins og það var á fyrri hluta þessarar aldar og hafði verið í svo sem eitt þúsund ár, og geta menn reynt að skynja hvað það er langur tími. í augum Kjarvals höfðu 1000 ár áreiðanlega djúpstæða merkingu. Síðasti sveitamaðurinn Afmælishátíð Kjarvals er einkafyrirtæki Reykvíkinga og allt sem um hann er sagt á þessum tímamótum. Engin til- raun er gerð til þess að gefa aiþýðu landsbyggðarinnar tækifæri til þess að taka þátt í þeirri viðhöfn, sem nú er sett á svið í minningu eins hins magn- aðasta sveitamanns, sem uppi hefur verið á íslandi, reyndar síðasta sveitamannsins í viss- um skilningi - því síðan hann leið hafa íslenskir listamenn sagt skilið við sveitina, hún er drungaleg fortíð, fátækt, fá- sinna, merkingarlaus þúsund ár og „saga blot“. Gestur í Vík

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.