NT - 17.11.1985, Blaðsíða 12

NT - 17.11.1985, Blaðsíða 12
12 Sunnudagur 17. nóvember NT Okurmálið í algleymingi: TORLAXARNIR INNAN SEILINGAR Bóksali tengdur Hermanni Björgvinssyni kærði þann síðar- stjórnanda rannsóknarinnar kemur fram að stórlaxarnir eru í nefnda fyrir okur fyrir liðlega hálfum mánuði. Þessi kæra hefur sjónmáli. leitt til umfangsmestu rannsóknar sem rannsóknarlögreglan á Hermann, sem talinn er milliliður er vel kunnur undirheimum íslandi hefur fengist við til þessa, ef Geirfinnsmálið er undan Reykjavíkur. Hann hefur skipt við fíkniefnasala og marga aðra skilið. sem sniðganga lögin. Hann hefur áður hlotið dóm á þessu ári Okurmálið hefur sérstöðu, ef miðað er við umfangsmeiri mál. fyrir okurlánastarfsemi. Rannsókn hefur gengið sérstaklega vel, og í viðtali við Hermann varð ríkur á því að ávaxta fé fyrir þungavigt- armenn í þjóðfélaginu. í dæmi á opnunni er sýnt hvernig hann varð ríkur. Þegar athafnamaðurinn græddi tólf þúsund á mán- uði hagnaðist Hermann um þrjú þúsund. Honum var sama hvaðan gróðinn kom. Hverskonar viðskipti urðu að veruleika fyrir tilstuðlan „heitu peninganna" sem hann velti til hinna ýmsu lánþega. Hann skipti m.a. við fíkniefnasala, sem fóru erlendis til að kaupa fíkni- efni. Nafn Hermanns hefur oft komið upp við yfirheyrsl- ur hjá fíkniefnalögreglunni, án þess að hægt væri að sanna nokkuð á hann. Handtaka Handtaka á heimili Hermanns Björgvinssonar, var upphafiö á einu umfangsmesta máli sem Rannsókn- arlögregla ríkisins hefur fengiö til rann- sóknar. Húsleit fylgdi í kjölfarið og fundust um tvö hundruð milljónir í ávísunum, skuldaviöurkenningum og reiðufé. Tæpartíu milljónir í gjaldeyri voru einnig í peningaskáp á heimili Hermanns. Yfirheyrslur yfir Hermanni hófust strax fyrsta daginn. Reikningi hans í Samvinnubankanum var lokað, um leið og Ijóst var að margar ávísanir voru í umferð í viðskipta- heiminum, og ekki var innistæða á reikningi Hermanns til að leysa þær út. Taka Hermanns fréttist Strax morguninn sem Hermann er tekinn.frétta nánustu samstarfsmenn hans um handtökuna. Viðbrögðin eru margvísleg. Menn rjúka upp til handa og fóta og reyna að bjarga því sem bjargað verður. Sumir rifu ávísanir og reyndu að kaupa sig út úr málinu, með því að ganga til skuldara sinna og kaupa af þeim skuldaviðurkenn- ingar. Margir urðu fyrir miklum fjár- hagslegum skakkaföllum i þeim leik. Hermann talar og talar Fregnir berast af því að Hermann sé málglaður í gæsluvarðhaldinu. Meðeigendur og viðskiptamenn verða enn órólegri við þær fregnir. Þórir Oddsson vararannsóknarlög- reglustjóri sagði í samtali við NT að yfirheyrslur hefðu ekki hafist að neinu gagni fyrr en fjórum til fimm dögum eftir að Hermann er handtekinn. „Það þýðir ekkert að rjúka blint á foraðið. Við urðum fyrst að kanna málið og afla gagna, og það er fyrst og fremst í gegnum gagnasöfnun sem maður kemst á slóðina. f framhaldi af því er fólk kallað til yfirheyrslu. Það er ekkert sniðugt að kalla fólk til yfir- heyrslna eða handtaka, ef ekki er traustur grunnur til að standa á. Viö urðum að vita nokkuð hvað við vorum að fara,“ sagði Þórir. Allt tiltækt lið lögreglunnar Strax, eftir handtöku Hermanns varð Ijóst að um mjög umfangsmikið mál var að ræða. Sex menn lögðu nótt við dag við að ná utan um okurlánamálið. Eftir að yfirheyrslur hófust hjá Rannsóknarlögreglu var rannsóknin unnin á þá leið að mennirnir sex skiptu með sér rann- sóknarverkefnum að morgni og siðan gengu menn í yfirheyrslur og rann- sóknir á ýmsum skjölum sem athug- unar þörfnuðust. Á kvöldfundum báru menn síðan saman bækur sínar og staðan var könnuð að nýju. Fjöldinn allur af mannskap var yfirheyrður og skipta þeir tugum sem hafa verið yfirheyrðir vegna málsins. Enn hefur þó enginn verið handtekinn.eða úr- skurðaður í gæsluvarðhald vegna rannsóknarinnar, nema Hermann. Ástæðuna fyrir því, er kannski að finna í ummælum Hallvarðar Ein- varðssonar rannsóknarlögreglu- stjóra, í frétt Mbl. 8. nóvember. Þar er haft eftir Hallvarði: „Raunar tel ég sönnunarbyrði í þessu máli léttari en oft áður.“ Okurlán ekkert nýnæmi „Okurlán hafa fylgt mannskepn- unnigegnum tíðina, þ.e. að menn séu að lána með okurvöxtum. Þetta hefur verið viðloðandi og mál af þessum toga eru alltaf erfið í sönnun. Þó að manni takist vel upp, er víst að mál af þessari gerðinni munu endurtaka sig síðar, eins og flest brot,“ sagði Þórir Oddsson í samtali við NT. Hermann Björgvinsson hefur rekið fyritæki sitt Verðbréfamarkaðinn í Hafnarstræti í tvö ár. Megnið af þeim tíma stundaði hann okurlánastarf- semi. Á þeim tíma var hann dæmdur fyrir brot á okurlögum, þar sem upp- víst varð um okurlán, þar sem Her- mann tók rúmlega tvö hundruð prós- ent ársvexti. Dómur féll í málinu og var Hermanni gert að greiða 245 þúsund krónur í sekt. Sektin var fjórfaldur ólöglegi gróðinn af láninu, og rann í ríkissjóð. Glóbus fjárdrátturinn Starfsstúlka hjá Globus leiddist á sínum tíma út í það að draga sér fé frá fyrirtækinu. Hún var úrskurðuð f gæsluvarðhald á meðan rannsókn málsins fór fram. Ástæða sem hún gaf upp var að okurlánari var á hælum hennar, og vildi fá greiddar afborganir af láninu sem var með svimandi háum vöxtum. Ef það kom fyrir að afborgun var í seinna lagi fékk stúlkan upphringingar að nóttu til, þar sem útskýrt var fyrir henni hvernig færi fyrir hinum ýmsu líkamspörtum hennar stæði hún ekki í skilum. Óttinn var það mikill að stúlkan lét sig hafa það að gerast brotleg við fyrir- tæki það sem hún vann hjá, og um leið landslög, til þess eins að uppfylla svæsnar kröfur miskunnarlausra okur- lánara sem héldu henni í járn- klemmu. Hótanir viðhafðar í máli Hermanns? Þórir Oddsson vararannsóknarlög- reglulstjóri sagði að ekkert þessháttar hefði komið inn á borð til þeirra, þ.e.a.s. beinar hótanir um líkams- meiðingar. „Menn geta skilið hótanir með ýmsum hætti. Það er hægt að setja þær fram á ýmsa vegu þannig að menn skilji fyrr en skellur í tönnum." Efalítið er að hótanir hafa verið viðhafðar, á þá leið að hús eða bílar skuldara yrðu teknir ef ekki yrði staðið í skilum. Bílafloti Hermanns í frétt NT föstudaginn 8. nóvember er sagt frá því að einn fjölskyldumeð- limur Hermanns Björgvinssonar aki um á afborgun, þ.e. bíl sem tekinn var upp í skuldir af okurláni. Heimildir NT herma að fleiri bílar muni vera í eigu Hermanns og þeir faldir meðal vina og kunningja. Sjálfur ekur Hermann, þegarhann losnarúrgæsl- unni, um á sérstakri útgáfu á BMW. l’búðir hafa líka blandast inn í myndina. Einslíkfóráfyrranauðung- aruppboð á fimmtudag. Átján lög- fræðingar gerðu kröfu í húsið, þar af tveir sem NT hefur heyrt orðaða við starfsemi Hermanns. Eigandi húss- ins er maður sem NT skýrði frá í frétt sinni föstudaginn áttunda nóvember. Lánið sem húseigandinn tók var með 300 prósent ársvöxtum og sennilega met í okurlánaheiminum íslenska. Okurlánarar í varnarstöðu Okurlánabankar eru nú víðast hvar lokaðir vegna hreingerninga. Flestir halda að sér höndum vegna yfirgrips- mikillar rannsóknar rannsóknarlög- reglunnar. Þá hefur það einnig frést að víða séu okurlánarar komnir í varnarstöðu, einmitt vegna máls Hermanns. Skuldarar hreinlega hóta kærum, ef okurlánari gerist ágeng- ur. „Þú ert búinn að fá meir en nog væni minn og þú skalt bara hafa þig hægan, annars kæri ég þid." Viðbúið er að fljótlega eftir að mestu lætin út af okurlánamálinu þagna og okurlán- arar verða aftur rólegir og öruggir um sig, að slíkar athugasemdir, sem hér að ofan, verði ekki teknar gildar. Þeir stóru nást Við rannsókn mála af þeirri gerð- inni sem hér er á ferðinni, fer oft á þá leið að „stóru mennirnir" ná að hylja spor sín og sleppa þar með undan armi laganna. Þórir Oddsson var spurður hvort stórlaxarnir næðust að þessu sinni. „Ég held það. Það er ekkert sem bendir til þess að þeir sleppi. Við erum hinsvegar ekki búnir að ná utan um þetta. Við erum mjög vongóðir með það, enda hefur rannsóknin gengið mjög vel hingað til.“ Hermann yfirheyrður af fíkniefnalögreglu Hermann Björgvinsson hefur verið yfirheyrður af fíkniefnadeild lögregl- unnar, vegna þess að nafn hans hefur verið nefnt í yfirheyrslum hjá deildinni, sem fjármagnandi. Björgvin Björgvinsson hjá fíkniefnadeild lög- reglunnar sagði að oftar en einu sinni , hefði nafn Hermanns verið nefnt þegar fíkniefnainnflytjendur hefðu verið yfirheyrðir. Björgvin benti þó á að aldrei hefði verið hægt að sanna að Hermann hefði gerst brotlegur við fíkniefnalöggjöfina, þar sem engar sannanir fengust á því að hann hefði vitað til hvers peningarnir yrðu notað- ir. „Það er mjög lítill pappír í kringum lán af þessari gerðinni," sagði Björgvin. Hann sagði viðskiptin hafa verið á þá leið að maður sem hugðist fara erlendis skrifaði ávísun, svo dæmi sé nefnt upp á 180 þúsund krónur, og fékk hjá Hermanni eða einhverjum öðrum reiðufé sem sam- svaraði 150 þúsund krónum. „Það verður sífellt algengara að við heyr- í dómsorðum segir: Ákærða er gefið að sök að hafa á árinu 1982 og fram á árið 1983 áskilið sér hærri vexti en heimilt var af peningalánum. Síðar segir: Framanlýst brot ákærða Her- manns Björgvinssonar telst varða við 2.mgr,. 6 gr. laga nr. 58/ 1960 um bann við okri, dráttarvöxtum o.fl. Umrætt mál er dómur sem kveðinn var upp í sakadómi Kópa- vogs í júlí í sumar yfir Hermanni. Undirstrikað er, þar sem 203,65% ársvextir voru teknir.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.