Lesbók Morgunblaðsins - 04.09.2004, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 04.09.2004, Blaðsíða 1
Laugardagur 4.9. | 2004 [ ]Haustbækurnar | Væntanlegar skáldsögur, smásögur, ljóð, ævisögur og þýðingar | 6Smile | Brian Wilson er loksins að senda frá sér meistaraverkið eftir 37 ára bið aðdáenda | 13Mamma, mamma | Steingrímur Eyfjörð sýnir peð sem kalla á mömmu í Galleríi 101 | 3 LesbókMorgunblaðsins E rlendur Guðmundsson, vinur Halldórs Lax- ness og velgjörðarmaður, fékk mörg bréf um sína daga einsog kom í ljós þegar opn- aður var kassi úr fórum hans í Lands- bókasafninu fyrir nokkrum árum. En hann virðist ekki hafa skrifað mörg bréf sjálfur. Þó er til skemmtilegt bréf sem hann sendi Halldóri til Kaupmannahafnar 15. desem- ber 1934 til að segja honum frá því að nú hafi öll Reykjavík verið undir hans merki. Dómar um útgáfu á Sölku Völku í Danmörku hafa leitt til þess að ólíklegustu menn hafa uppgötvað hann hér heima. Mest gaman hafði Erlendur af því þegar Eggert Stef- ánsson söngvari kom til hans í sjöunda himni yfir væntanlegri heimsfrægð Halldórs: „Hann sagðist hafa farið kvöldið áður í bíl upp að Laxnesi, þér til dýrðar. Hann sá í anda veglegt hlið heim að bænum og glæsilega marmaraplötu þar sem á var letrað: Hér fæddist skáldið H.K.L. o.s.frv. Ég sagðist verða að gleðja hann með því að þú værir Reykvíkingur eins og við, fæddur í fyrsta borgarastræti Íslands.“ Nú, sjötíu árum síðar, er Eggerti samt að verða að ósk sinni, í ögn breyttri mynd. Heimili Halldórs örskammt frá Laxnesi er að verða safn með veglegu hliði og áletruðum plötum. Þar verður því að vísu ekki haldið fram að skáldið hafi fæðst í sveitinni, því hann fæddist í húsi við Laugaveg í Reykjavík, en hann fluttist með for- eldrum sínum að Laxnesi árið 1905 og er þar næsta áratuginn eða svo. Í Laxnesi var þá allgott hús úr timbri og bárujárni en allir aðrir bæir í Mosfellsdal voru torfbæir. Jónas Magnússon, bóndi í Stardal, segir frá því að Guðjón faðir Halldórs hafi látið gera fyrsta mölborna heimreiðarveginn í byggðarlaginu. Mosfellssveit bar allan svip fyrri alda þegar Halldór kom þar barn, þótt hún sé svona örskammt frá Reykjavík. Vitrun við stein Strax í bernsku fær Halldór dálæti á ákveðnum stað rétt hjá Lax- nesi, einsog hann sagði við Matthías Johannessen í bókinni Skeggræður gegnum tíðina: „En í holtinu fyrir ofan Laxnes er steinn sem heitir Gljúfrasteinn og stendur við gljúfur, sem verður í ánni þar sem hún kemur ofan af heiðinni. Hjá þessum steini Morgunblaðið/Kristinn „Í holtinu fyrir ofan Laxnes er steinn“ Í dag verður Safn Halldórs Laxness opnað að Gljúfrasteini en á undanförnum misserum hefur verið unnið að endurbótum á húsi skáldsins. Í þessari grein er rifjað upp hvernig það kom til að Halldór byggði sér hús á Gljúfrasteini en í einni af elstu smásögum sínum segir hann frá því að Kristur vitraðist honum sjö ára við stein í holtinu fyrir ofan Laxnes. Eftir Halldór Guðmundsson halldor.gudmunds- son@heima.is  4 Um Gljúfrastein og Halldór Laxness

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.