Morgunblaðið - 17.07.2004, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 17.07.2004, Blaðsíða 37
KIRKJUSTARF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 2004 37 Hjaltastaðarkirkja Á ÞESSU ári er kirkjan á Hjalta- stað í Hjaltastaðarþinghá á Austur- Héraði 120 ára. Þess verður minnst sunnud. 18. júlí með hátíðarmessu kl. 14. Þar mun prófastur Múla- prófastsdæmis, sr. Sigfús J. Árna- son á Hofi, prédika og þjóna fyrir altari ásamt sóknarpresti. Org- anisti verður Kristján Gissurarson. Hjaltastaðarkirkja er timbur- kirkja. Bygging hennar hófst árið 1880 en ýmsum verkþáttum svo sem málningu og lokafrágangi á grunni varð eigi lokið fyrr en árið 1884. Hjaltastaður var prestssetur til ársins 1919 en eftir það þjónað frá Kirkjubæ til 1956 og síðan frá Eiðum. Núverandi sóknarprestur er sr. Jóhanna I. Sigmarsdóttir, Eiðum. Sóknarnefnd býður til kaffi- samsætis í Hjaltalundi eftir messu. Svissneskur kór í Grafarvogskirkju SVISSNESKUR kantötukór sem staddur er á kóramóti, – Europa Kantat, syngur við guðþjónustu nk. sunnud. kl. 11 í Grafarvogskirkju. Sr. Lena Rós Mattíasdóttir prédik- ar og þjónar fyrir altari. Kirkju- kórinn syngur, organisti Guð- laugur Viktorsson. Skálholtshátíð 2004 HELGINA 17. til 18. júlí verður hin árlega Skálholtshátíð haldin. Laugard. 17. verða tvennir tón- leikar erlendra barnakóra í Skál- holtskirkju kl. 17 og kl. 20.30. Kl. 14 sunnud. 18. júlí verður há- tíðarmessa. Séra Sigurður Sigurð- arson vígslubiskup syngur messuna og prédikar en með honum þjóna séra Egill Hallgrímsson og séra Bernharður Guðmundsson. Eftir messuna er boðið í kaffi í Skál- holtsskóla. Kl. 16.30 verður samkoma í kirkjunni og minnst að 30 ár eru liðin frá dauða dr. Róberts A. Ott- óssonar, en hann kom verulega við sögu tónlistarlífs í Skálholti. Á samkomunni mun séra Kristján Valur Ingólfsson halda erindi um líf og starf dr. Róberts en Haukur Guðlaugsson leikur á orgel og Mar- grét Bóasdóttir syngur einsöng. Þessa daga verður sýning í kirkj- unni á íkonamyndum Fannýjar Jónmundsdóttur. Einnig verður í fyrsta sinn hægt að sjá nýuppsetta sýningu Þjóð- minjasafnsins í kjallara kirkjunnar. Í tengslum við Skáholtshátíð verður haldið námskeið um tíða- söng og eru aðal leiðbeinendur þar Glúmur Gylfason og Smári Ólason. Þess vegna verður líka hægt að taka þátt í tíðasöng þrisvar á dag í kirkjunni frá fimmtudegi til sunnu- dags, kl. 9, kl. 18 og kl. 22. Aðgangur að öllum atburðum Skálholtshátíðar er ókeypis og allir velkomnir. Sigurður Sigurðarson. Morgunstundir í Hafnarfjarðarkirkju TVO síðustu sunnudagana fyrir Verslunarmannahelgina verður helgihald í Hafnarfjarðarkirkju með sumarsniði. Haldnar verða morgunstundir kl.11 sem einkenn- ast af léttum söng og íhugun um málefni líðandi stundar í ljósi boð- skapar Biblíunnar. Sunnudaginn 18. júlí mun KK sækja heim kirkj- una og syngja og leika. Íhugunar- efni dagsins ber heitið „Jerúsalem, þú sem myrðir spámennina“ og fjallar um ástandið í Ísrael í dag. Prestur er sr. Þórhallur Heimisson. Þorláksmessa á sumri í Álftaveri Í tilefni af Þorláksmessu á sumri, sem er kirkjudagur Þykkva- bæjarklausturskirkju, verður sókn- arnefndin með kaffisölu í Herjólfs- staðaskóla þriðjudaginn 20. júlí nk., kl. 14–19 og svo eftir guðs- þjónustuna um kvöldið. Ágóðinn rennur til byggingar þjónustuhúss við Þykkvabæjarklausturskirkju. Af sama tilefni verður einnig efnt til gönguferðar um gervigíga- röðina við Skálm í Álftaveri, undir leiðsögn Gissurar Jóhannessonar frá Herjólfsstöðum. Lagt verður af stað frá Herjólfs- staðaskóla kl. 14. Gönguferðin tek- ur u.þ.b. tvo tíma. Sóknarnefndin heitir á vel- unnara kirkjunnar að leggja góðu málefni lið. Sóknarnefndin. Til sölu stór og þægileg Gracco kerra sem lítur mjög vel út. Selst á 10.000 krónur. Upplýsingar í síma 897 6926. Mörk - 6 gerðir Vorum að fá mikið úrval af fót- boltamörkum. Verð frá 6.690. Barnasmiðjan, Grafarvogi, sími 587 8700. Opið mánud.-föstud. 8.30-18.00, laugard. 10.00-16.00. Sumartilboð - 30%! Full búð af nýjum vörum fyrir hunda ketti og önnur gæludýr. 30% afsláttur af öllum vörum. Opið mán.-fös. 10- 18, lau. 10-16, sun. 12-16. Tokyo, Hjallahrauni 4, Hafnarfirði, sími 565 8444. Bræður vantar nýtt heimili Tvo eins árs gamla högna vantar gott heimili. Báðir dökkbröndóttir, fallegir og ljúfir. Annar þeirra er loðinn eins og skógarköttur. Hulda, símar 693 3961/865 1172. Fyrir fólk sem vill gæði! Á besta stað á Mallorca, Port d'Andratx: Íbúðir og raðhús: www.la-pergola.com Hótel: www.hotelmonport.com Frábærir veitingastaðir og sund- laugagarðar. Fjórhjólaferðir í Haukadalsskógi www.atvtours.is Símar 892 0566 og 892 4810. Vestmannaeyjar Til leigu smá- hýsi í sérstöku umhverfi. Símar 481 1458 verslun, 481 1109 heima og 695 2309 farsími. Gisting í Kaupmannahöfn. Ró- legt og notalegt umhverfi. Heima- síða: www.gisting-is.dk Netfang: hildur@gisting-is.dk Sími: 0045 3677 1112 Gsm: 0045 22518014. Skessubrunnur Opið laugardaga og sunnudaga í sumar. Humar, lambafillet og réttir dagsins. Panta þarf fyrir hópa. S. 433 8956 og 861 3976. Nýbýlavegi 20, s. 554 5022 Súpa og fjórir réttir. Verð 1.390 á mann. Tekið með, verð 1.250. Heimsendingarþjónusta TF- REX Þessi fallega flugvél (Jodel) er til sölu eða leigu. Ný innflutt. Ódýr í rekstri. Uppl. í s. 898 6033 eða 698 9874. Til sölu nokkrir notaðir og yfir- farnir Gram kæliskápar með og án frysti. Stór Gram frystiskápur, Asko þurkari. Gott verð. Sími 893 1205. Njóttu lífsins í garðinum heima Erum með amerísk garðhúsgögn fyrir veröndina, sumarbústaðinn eða sólstofuna. Sjón er sögu rík- ari. Uppl. í síma 891 9530. HÅG skrifstofustólarnir eru við- urkenndir af sjúkraþjálfum og eru með 10 ára ábyrgð. EG skrifstofuhúsgögn, Ármúla 22, s. 533 5900, www.skrifstofa.is Sumar og sól á Spáni og Portúgal Til sölu villa í Cascais, flottasta hverfi Portúgals. 3 stof- ur, 7 baðherbergi, 5 svítur. Mjög falleg og stílhrein. Sími 697 4314, www.intercim.is Hjálp, vantar íbúð! Tvær systur vantar íbúð, helst í nágrenni MH/ HÍ, ekki nauðsynlegt. Þurfa að vera 2 svefnherb. eða stofa sem hægt er að nota sem slíka. Uppl. í símum 487 4863, 893 4863, elin1008@hotmail.com Til leigu verslunarhúsnæði í Ingólfsstræti 6, hundrað og fjór- tán fermetrar og þrjátíu og átta fermetra húsnæði í kjallara. Allar nánari upplýsingar veittar í síma 553 5124 eða 561 4467. Skrifstofuhúsnæði í Dugguvogi til leigu. 3 herbergi, 15, 60 og 70 fm. Góð aðkoma og bílastæði. 4m bar til sölu á sama stað. Upplýsingar í síma 617 7760. Iðnaðarhúsnæði til leigu við Vagnhöfða. 240 fm húsnæði á tveimur hæðum til leigu. Grunn- flötur 120 fm, neðri hæð með 3 m x 3 m. Uppl. í s: 587 2330 og 699 5390. Atvinnuhúsnæði í Mosfellsbæ til leigu, 145 fm, stórar innkeyrsl- udyr, malbikað plan, mjög gott út- isvæði. Einnig efri hæð í sama húsi, 145 fm sem skipt er í tvennt. Uppl. í síma 897 0630. 400 fm fjölnota húsnæði, iðnað- ur- verslun- skrifst.- lager, vel staðsett. Mjög gott. Laust strax. Leiga 5-600 pr. fm. Sala 58.750 pr. fm. Uppl. í síma 898 8577. Til leigu og sölu lóðir í landi Þórisstaða í Grímsnesi. Smíðum sumarhús, hurðir, glugga o.fl. Sýningarhús á staðnum. Heitt og kalt vatn. Uppl. í s. 892 4605 og 897 1731. Til flutnings - Kirkjubraut 40, Akranesi. Til sölu einbýlishús, kjallari, hæð og ris (156,2 m²) til flutnings. Staðsett á Akranesi. VERÐTILBOÐ. Uppl. gefur Fa- steignasalan HÁKOT s:431 4045. Sumarhús — orlofshús Erum að framleiða stórglæsileg og vönduð sumarhús í ýmsum stærðum. Áratuga reynsla. Höfum til sýnis á staðnum fullbú- in hús og einnig á hinum ýmsu byggingarstigum. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, símar 892 3742 og 483 3693, netfang: www.tresmidjan.is Rotþrær frá kr. 55 þús. Allar stærðir. Vatnsgeymar frá 100L. upp í 75.000L. Einangrunarplast í grunninn, allar þykktir Fráveitubrunnar í siturlagnir BORGARPLAST Seltjarnarnesi: S 561 2211 Borgarnesi: S 437 1370 www.borgarplast.is Alicante/Torrevieja/Playa Flamenca 3ja herbergja jarðhæð til leigu frá 29. september. Langtímaleiga ef óskað er. Göngufæri í alla þjónustu. Geymið auglýsinguna. Sólrún, hofs@símnet.is, símar 482 1835 og 898 1584. Húseignaþjónustan Háþrýstiþvottur Málning Múr og sprunguviðgerðir Þak og lekaviðgerðir Utanhússklæðning Rennur og niðurföll Sími 892-1565 husa@simnet.is Áratuga reynsla Smíðum úr smíðajárni stiga- handrið, svalahandrið, innanhúss sem utan, hlið fyrir sumarbústaði og heimili, girðingar, gluggahlera, gardínustangir, hillurekka. Uppl. í síma 862 5108. Húsasmíðameistari getur bætt við sig verkefnum, ný smíði, við- hald, viðgerðir, breytingar, palla- smíði o.fl. Uppl. í síma 692 6896. Til sölu vatnslitamynd af Frostastaðavatni eftir Kristínu Þorkelsdóttur. Uppl. í s. 557 3173 og 898 3174. www.heimanam.is. Möguleiki til menntunar! Skrifstofutækni 2 annir, síðasti skrándagur 10. ág. - Bókhald og skattskil - Heima- síðugerð - Myndvinnsla - Almenn tölvunámskeið. Tölvufræðslan - www.heimanam.is. S. 562 6212. Til sölu á góðu verði. Windows XP professional uppfærsla og Mi- crosoft office XP standard. Bæði ónotað og löglegt. Uppl. í s. 557 9007 og 699 2335. Schumacher Swift RTR, 1/8 Buggý, 4wd, 3,5cc 2,4 hestöfl. Bíll með öllu á kynningarverði - 49.990 kr. Tómstundahúsið, Nethyl 2, sími 587 0600, www.tomstundahusid.is . Icy Spicy Leoncie. Hin frábæra söngkona vill skemmta um land allt með bestu smellina sína. Sjáið myndböndin á Skjá1. S. 691 8123 www.leoncie-music.com. Golfkennsla fyrir alla aldurs- hópa. Einka- og hóptímar/fyrir- tækjakennsla. Einnig gjafakort. Upplýsingar í síma 849 8434 eða eldon@torg.is. Við bjóðum framkvæmdaaðilum eftirtaldar framleiðsluvörur okkar á verksmiðjuverði: Fráveitubrunnar Ø 600 Fráveitubrunnar Ø 1000  Sandföng  Vatnslásabrunnar  Rotþrær  Olíuskiljur  Fituskiljur  Sýruskiljur  Brunnhringi  Brunnlok  Vökvageymar  Vegatálmar  Kapalbrunna  Einangrunarplast Sérsmíði f. vatn og fráveitur Borgarplast Sefgörðum 3, Seltjarnarnesi, sími 561 2211 Sveitasetur til leigu! Fjögurra til fimm herbergja íbúð til leigu að Tjörn í Svarfaðardal frá og með 1. ágúst í eitt ár. 5 km frá Dalvík og 45 km frá Akureyri. Nánari upplýsingar í símum 466 1555, 466 3127 og 846 3390.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.