Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						FRÉTTIR

6 FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ

www.icelandair.is/florida

Sólskinsríkið Florida nýtur sífellt 

meiri vinsælda hjá Íslendingum. Við

höfum nú ákveðið að mæta þessum 

vinsældum og fjölga ferðum til 

Florida. Frá næsta hausti verður 

flogið fjórum sinnum í viku til 

Orlando. Núna geta allir komist í 

sólina, sæluna og áhyggjuleysið.

VR orlofsávísun

Munið ferða-

ávísunina

*Best Western Plaza á mann í 

herbergi m.v. 2 fullorðna og 2 

börn. 30. nóv.-7. des., 11.-18. jan., 

24.-31. jan. Innifalið: Flug, gisting í 

7 nætur, flugvallarskattar, 

þjónustugjald og eldsneytisgjald.

5000 Ferðapunktar 

upp í pakkaferð

Fyrir handhafa Vildarkorts VISA 

og Icelandair. Jafnvirði 5000 kr. 

Gildir til 1. september.

Verð frá 47.888 kr.*

Fjórum sinnum 

í viku til Orlando

ÍSLENSKA AUGLÝSINGASTOFAN/SIA.IS  ICE 25370  07/2003 HESTAFERÐINNI yfir lengstu mögulegu leiðina

þvert yfir landið lauk á Reykjanestá í gærkvöldi. Hóp-

urinn, 20 knapar og 58 hestar, lagði af stað frá Fonti á

Langanesi 25. júlí sl. og fór um 780 kílómetra leið yfir

hálendið á 18 dögum, nánast í beinni línu að Reykja-

nestá. 

?Þetta gekk ótrúlega vel og allt fór samkvæmt áætl-

un. Knapar og hestar eru í góðu ásigkomulagi,? sagði

Finnur Ingólfsson, forstjóri VÍS og hestamaður, þegar

á leiðarenda var komið en með í för voru vinir hans og

ættingjar úr fjórum fjölskyldum, allt vant hestafólk.

Að meðaltali lagði hópurinn að baki um 48 kílómetra

á dag. ?Við fengum meiriháttar veður allan tímann,

stundum alltof heitt og stundum fengum við sandbyl

og ryk. Ætli hafi ekki rignt á okkur samanlagt í um 10

mínútur,? sagði Finnur.

Spurður um erfiðasta kafla leiðarinnar sagði hann

farartálmann hafa verið milli Ingólfsskála, norðan

Hofsjökuls, og Svartárbotna á Kjalvegi. Hópurinn

hefði lent í Blöndu straummikilli og hestarnir lent í

djúpu vatni. Sundið hefði þó gengið slysalaust fyrir

sig.

Morgunblaðið/Árni Torfason

Finnur Ingólfsson og ferðafélagar hans nálgast leiðarenda hestaferðarinnar á Reykjanesi í gærkvöldi.

Langri hestaferð lokið

?ÞAÐ er komið nýtt skipulag á

reitnum sem gerir ráð fyrir því að

ekki verði leyft að rífa Austurbæj-

arbíó,? segir Steinunn Valdís Ósk-

arsdóttir, formaður skipulags- og

byggingarnefndar Reykjavíkur og

borgarfulltrúi R-listans. Nýja

skipulagið hefði verið samþykkt

samhljóða á fundi nefndarinnar í

gær. 

Meðfram Njálsgötu verður sam-

kvæmt skipulagstillögunni tveggja

hæða sambyggð húsalengja með

allt að 30 íbúðum. Tekið verði mið

af húsum í nágrenninu um leið og

byggðin sé þétt. ?Síðan verður

haldið í svæðið sem er austast á

reitnum, næst Rauðarárstígnum, og

það gert að grænu útivistar- og

leiksvæði,? segir Steinunn Valdís.

Tillagan fer svo í hefðbundið kynn-

ingarferli eftir afgreiðslu í borg-

arráði á þriðjudag.

Árni Jóhannesson, framkvæmda-

stjóri ÁHÁ verktaka, sem eiga

Austurbæ, sagðist ekki vera sáttur

við þessa ákvörðun. Hann mætti á

fund skipulagsnefndar í gærmorg-

un en vildi ekki úttala sig um þetta

mál í gær. Það bíði betri tíma.

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, odd-

viti Sjálfstæðisflokksins í borgar-

stjórn, segir þetta engin ný tíðindi

og hafi verið ljóst þegar borgar-

fulltrúar Sjálfstæðisflokks og

Vinstri-grænna vildu ekki sam-

þykkja niðurrif Austurbæjarbíós.

Þá var málið fallið og Framsókn-

arflokkurinn og Samfylkingin

þurftu að bakka.

?Þetta eru góð tíðindi,? svaraði

hann aðspurður og leggur áherslu á

að nú fari fram umræða um framtíð

Austurbæjarbíós. Að þeirri umræðu

eigi borgin að koma þó án nokkurra

skuldbindinga um að leggja til fé í

rekstur eða annað sem tengist hús-

inu.

Á móti niðurrifi frá upphafi

Sveinn Aðalsteinsson, varafulltrúi

F-listans í skipulagsnefnd, lagði

fram bókun og sagði ákvörðunina

fagnaðarefni. F-listinn leggi áherslu

á að borgaryfirvöld leggi sitt af

mörkum til að menningarstarfsemi

nái að blómstra á ný í Austurbæj-

arbíói. Uppbyggingu á lóðinni þurfi

að fylgja fjölgun bílastæða sem

dugi íbúum og starfsemi tengdri

bíóinu. Er minnt á að F-listinn sé

eina aflið í borgarstjórn sem hafi

staðið gegn hugmyndum um nið-

urrif frá upphafi.

Steinunn Valdís, sem hefur talað

fyrir niðurrifi bíósins í borgar-

stjórn, segir þessa niðurstöðu alls

engin vonbrigði. ?Við sendum hluti

í kynningu til að fá viðbrögð og vit-

um ekki fyrirfram hvaða viðbrögð

við fáum. Þarna var þetta einfald-

lega þannig að það voru mjög há-

vær mótmæli við því að húsið færi,?

segir hún. ?Mér fannst engin

ástæða til þess að halda því til

streitu miðað við öll þessi mótmæli

og eftir að hafa vegið og metið rök-

in þá gerði ég þessa tillögu.?

Nýtt skipulag á reit

Austurbæjarbíós

ÞAÐ voru ótrúlega margir sem

tóku á móti 15 manna hópi úr

Sundfélagi Akraness í gær er

hópurinn lauk við árlegt Faxa-

flóasund sitt við Langasand á

Akranesi. Hópurinn lagði af stað

úr Reykjavík um 9:30 í gær og

lauk boðsundinu rétt fyrir kl. 15,

en afreksfólkið skiptist á um að

standa vaktina í sjónum sem var

spegilsléttur alla leiðina frá

Reykjavík en vegalengdin er um

18 km. 

Elsti þátttakandinn var tvítugur

en þeir yngstu eru á ferming-

araldri og er sundið liður í fjár-

öflun félagsins vegna æfinga-

ferðar sem farin er á tveggja ára

fresti á erlenda grund.

Gunnar Smári Jónbjörnsson hóf

sundið í gær með því að synda

samfleytt í 40 mínútur og sögðu

fylgdarmenn hans að hraðinn

hefði verið 3 sjómílur á klukku-

stund en allir sundmennirnir voru

íklæddir blautbúning sem hélt á

þeim hita í 10?11 gráðu heitum

sjónum auk þess voru sundfit not-

uð sem flýttu för sundfólksins.

Hinrik Örn Guðbjartsson tók

rispu sem stóð yfir í eina klukku-

stund samfleytt en hann hélt 2,7

mílna hraða að meðaltali. Gunnar

Smári lét ekki þar við sitja og tók

aðra 40 mínútna skorpu en þeir

sem yngri voru syntu í 15?20 mín-

útur samfellt. 

?Ég hef aldrei áður synt í eins

góðu veðri í Faxaflóasundinu,

sjórinn var spegilsléttur og það

var gríðarlegur hiti á dekkinu á

bátnum sem við vorum í þegar við

vorum ekki á sundi. Og það hafa

aldrei áður jafnmargir tekið á

móti okkur en ég geri ráð fyrir

að allt þetta fólk hafi verið að

bíða eftir okkur,? sagði Gunnar

Smári er hann leit yfir mannfjöld-

ann á Langasandi í gær og brosti

breitt. 

Morgunblaðið/Sigurður Elvar

Gunnar Smári Jónbjörnsson ræðir við móttökunefndina á Langasandi í gær

eftir að hafa gengið fyrstur á land eftir sundið frá Reykjavík yfir Faxaflóa.

Heitt að bíða á dekkinu

Syntu frá Reykjavík til Akraness 

ALGENGUSTU slysin sem landsmenn verða fyrir eru

heima- og frítímaslys, eða 43,5% allra slysa sem urðu í

fyrra. Rúmlega 29 þúsund slys voru skráð í Slysaskrá Ís-

lands á síðasta ári. Næst á eftir koma umferðaróhöpp,

sem eru 17,3% skráðra slysa og vinnuslys, 16,6%. Þetta

er í annað skipti sem slys eru skráð sérstaklega, en

Slysaskrá Íslands byggist á gögnum frá Landspítala ?

háskólasjúkrahúsi, Tryggingamiðstöðinni, Vinnueftirliti

ríkisins, Ríkislögreglustjóranum og Heilbrigðisstofnun

Austurlands.

?Karlmenn slasa sig áberandi miklu meira. Það er eig-

inlega sama hvers konar slys er um að ræða,? segir Hild-

ur Björk Sigbjörnsdóttir, verkefnastjóri hjá Landlækn-

isembættinu. Hún segir það engin ný sannindi að karlar

lendi oftar í slysum en konur, hver sem ástæðan fyrir því

sé. Munurinn er einkum áberandi hvað vinnuslys varðar,

3.376 slys voru skráð hjá körlum, en 955 hjá konum.

Fimm konur lentu í sjóslysum en 94 karlar. Þá voru

skráð 2.013 íþróttaslys hjá körlum, en 911 hjá konum.

Umferðaróhöpp voru þó algengari hjá konum, 1.222 slys

voru skráð hjá konum, en 1.074 hjá körlum.

?Þetta er allt frá litlum skrámum sem koma á slysa-

deildina upp í alvarleg slys,? segir Hildur. Hún segir að

ekki liggi fyrir nánari upplýsingar í Slysaskrá um hvers

eðlis slysin hafi verið, né hversu alvarleg þau voru.

Þá vekur einnig athygli að vinnuslys voru áberandi

fleiri í júlí, en í mánuðunum á undan og eftir. Þá virðast

heima- og frítímaslys algengari yfir sumarmánuðina og

færri slys verða á sjó þegar veðrið er hvað best í júní til

september.

Tæpur helmingur slysa verður á heimilum eða í frítíma

Karlar slasast

áberandi meira

                            

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48