Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið

Minnstaður

Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. 

Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti

Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján

Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,

sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115.

Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.

Mínstund frett@mbl.is

Hlíðarberg lokað | Gatnaframkvæmdir

standa nú yfir í Hafnarfirði og verður Hlíð-

arbergi lokað fyrir umferð í dag fram til 25.

ágúst vegna framkvæmdanna, að því er

fram kemur á heimasíðu Hafnarfjarð-

arbæjar. Unnið er að gerð hringtorgs við

Reykjanesbraut og breikkun Hlíðarbergs

auk þess sem leggja á hringtorg á mótum

Lækjargötu og Hringbrautar og steypa

upp brú yfir Lækjargötu. Brúargólfið verð-

ur steypt í vikunni.

L50098L50098L50098

Úr 

bæjarlífinu

HÉÐAN OG ÞAÐAN

Grettishátíð í Húnaþingi | Grettishátíð

fór fram í Húnaþingi um síðustu helgi og var

nýtt húsnæði Grettistaks á Laugarbakka,

Grettisból, formlega opnað en þar mun í

framtíðinni verða menningar- og fræðasetur

byggt á Grettissögu. Stjórn Grettistaks

ásamt Magnúsi Stefánssyni, þingmanni

Framsóknarflokksins, helguðu sér lóð við

húsið með því að kveikja elda á lóðamörk-

unum við táknræna athöfn. 

Hápunktur hátíðarinnar var kraftakeppn-

in sem Andrés Guðmundsson aflraunakappi

stýrði. Keppt var í kvenna- og karlaflokki og

urðu þau Kristín Baldursdóttir og Jóhann

Hermann Ingason hlutskörpust.

L50098L50098L50098

Rafmagnslaust á Ísafirði | Rafmagn fór af

nærri öllu Ísafjarðardjúpi í um klukkustund

í fyrradag eftir að vél í Sængurfossvirkjun í

Mjóafirði ofhitnaði, að því er fram kemur á

fréttavef BB. 

Jakob Ólafsson, framkvæmdastjóri raf-

veitusviðs hjá Orkubúi Vestfjarða, segir að

starfsmenn Orkubúsins hafi verið fljótir að

ræsa varaaflsvél í Reykjanesi og því hafi

rafmagnsleysið aðeins varað í um klukku-

stund. Vélarnar í virkjunum fóru svo aftur í

gang seinna um daginn. 

H

vergerðingum hef-

ur fjölgað tals-

vert það sem af

er árinu, og samkvæmt

þjóðskrá eru íbúar í

Hveragerði núna 1.973. 

Hvergerðingum hefur

því fjölgað um 89 frá síð-

ustu áramótum, sem er

um 4,7% fjölgun og nálg-

ast íbúatalan því óðfluga

2.000 manna markið, að

því er fram kemur á vef

Hveragerðisbæjar. Þró-

unin í ár er ólík þeirri sem

átti sér stað í fyrra, þegar

íbúafjölgun í bænum var

óveruleg. 

Orri Hlöðversson, bæj-

arstjóri í Hveragerði segir

að engar lóðir séu nú laus-

ar til úthlutunar í bænum

og endurspeglar sú staða

þá miklu eftirspurn eftir

húsnæði og lóðum sem

verið hefur. Mikið af hús-

næði er auk þess í bygg-

ingu núna, að sögn Orra. 

Fjölgar í

Hveragerði 

V

ið opnun Þekkingarseturs Þingeyinga og Nátt-

úrustofu Norðurlands eystra á Húsavík ákváðu

tónlistarmennirnir Guðni Bragason og Kristján

Þór Magnússon að koma Siv Friðleifsdóttur umhverf-

isráðherra þægilega á óvart. 

Þeir Guðni og Kristján höfðu fregnað að Siv ætti af-

mæli þennan dag og þar sem þeir höfðu verið fengnir

til að spila og syngja við athöfnina fluttu þeir afmæl-

isbarninu lagið Happy Birthday eftir Stevie Wonder

við góðar undirtektir viðstaddra.

Morgunblaðið/Hafþór 

Sungu fyrir afmælisbarnið

Þ

að líður að lands-

móti hagyrðinga,

en það verður

haldið 21. ágúst á Hvols-

velli. Sunnlendingar

munu kynna heima-

byggðir sínar með einni

til þremur vísum.

Gísli Halldórsson í

Króki ætlar ekki að

neita að kynna sitt hérað

ef honum kemur vísa í

hug næstu sjö daga.

Hann tók þátt í

mótinu á Núpi 1996, bjó

þá með fleiri Sunnlend-

ingum í Gerðhömrum og

kvað:

Gerðishamra góða mynd

geymir lengi hjarta mitt, 

þar má líta kræfa kind,

krummager og lúmskan 

pytt.

Hér við loksins fundum

frið,

flaut af hverju strái smjör

Staðinn kringir klettarið,

kyssir bára stein í vör.

Fundinn

friður

pebl@mbl.is

Neskaupstaður | Það hefur ver-

ið mikil veðurblíða og glamp-

andi sólskin undanfarna daga í

Neskaupstað og hitinn farið yfir

tuttugu gráður. Bæði mönnum

og málleysingjum var heitt og

biðu þessir félagar á meðan

pabbi fór inn í sjoppu að kaupa

ís. Sá tvífætti heitir Mikael Nat-

an Róbertsson og var hann að

viðra vin sinn sem hann sagði að

héti Sesar, en væri stundum

kallaður Krulli. Sesar er af svo-

kölluðu kóngapúðlukyni og eru

fáir slíkir til hér á landi. 

Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir

Heitir Sesar en er kallaður Krulli 

Góðir félagar

TÆPLEGA 240 kettir hafa verið skráðir

hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja frá því

að reglugerð um kattarhald á Suðurnesjum

tók gildi 28. apríl sl. en frestur til að skrá

kettina rann út í fyrradag. 

Hjá Heilbrigðiseftirlitinu fengust þær

upplýsingar að flestar skráningarnar hefðu

borist síðustu tvo daga skráningartímabils-

ins. Afsláttur af skráningargjaldi var veitt-

ur til þeirra sem skráðu ketti sína á réttum

tíma en frekari afsláttur verður ekki gefinn

og er gjaldið nú 15 þúsund krónur. 

Óskráðir kettir á Suðurnesjum verða

héðan í frá veiddir af Heilbrigðiseftirlitinu.

Ef eigandi þeirra gefur sig ekki fram verða

kettirnir gefnir eða seldir upp í kostnað, en

takist það ekki verða þeir aflífaðir. 

240 kettir

skráðir á 

Suðurnesjum

VIÐ endurbætur á húsnæði Sláturfélags

Suðurlands í ár hafa komið í ljós miklar

skemmdir á þaki yfir frystihúsi félagsins,

að því er fram kemur í Fréttabréfi SS. Gert

var við þakskemmdirnar til bráðabirgða en

ljóst er að skipta þarf um þakið næsta vor. 

Sláturfélagið hefur ráðist í miklar end-

urbætur á útflutningsvinnslu og frystihús-

ahluta vinnslustöðvar sinnar á Selfossi og

m.a. tvöfaldað sali til vinnslu á fersku kjöti.

Einnig var aðskilnaður milli fersks kjöts og

umbúða bættur og flæði vöru, fólks og um-

búða fært að ítrustu kröfum, segir í frétta-

bréfinu. 

Þak Sláturfélags-

hússins ónýtt

JARÐÝTA sem vinnur við snjóflóðavarn-

argarðinn við Seljalandsmúla rauf vatns-

lögn til Ísafjarðar í fyrrakvöld og varð hluti

byggðar á Ísafirði vatnslaus, að því er fram

kemur á fréttavef BB. 

Lögnin rofnaði þegar ýtan ók yfir loft-

tæmingarloka sem brotnaði af þannig að

upp kom mikil vatnssúla. 

Viðgerð hófst strax og náðist að ljúka

henni á skömmum tíma en að sögn Jónasar

Sigurðssonar, bæjarverkstjóra, tekur tíma

að lofttæma lögnina og því hafi íbúar Ísa-

fjarðar orðið varir við einhvern þrýsting á

vatninu í gær. 

Jarðýta 

rauf vatnslögn

???

???

Þriggja tíma hlaup | Stúlkurnar í fjórða

flokk kvenna í Sindra hlupu á mánudaginn

frá ráðhúsinu á Höfn í Hornafirði að Jök-

ulsárbrú í Lóni til að safna sér fyrir ferð á

Íslandsmótið í knattspyrnu sem haldið

verður á Akureyri um aðra helgi, að því er

fram kemur á vefsíðu Hornafjarðar. 

Stúlkurnar hlupu tvo kílómetra hver en

hlupu svo allar síðustu þrjá kílómetrana

ásamt þjálfara sínum. Björgunarsveitarbíll

fór á undan hverjum hlaupara og lög-

reglubíll var fyrir aftan til að tryggja ör-

yggi stúlknanna. 

L50098L50098L50098

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48